Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000
13
DV
Mögnuð ævintýrastemning
Helgi Pálsson var jafnaldri Jóns
Leifs og einn af fyrstu meðlimum
Tónskáldafélags íslands. Hann lét þó
ekki eftir sig margar tónsmíðar og í
dag er tónlist hans ekki oft leikin.
Undirritaður hefur t.d. aldrei heyrt
strengjakvartett Helga sem Eþos-
kvartettinn flutti á tónleikum Kamm-
ermúsikklúbbsins í Bústaðakirkju á
sunnudagskvöldið. Verkið er í ný-
klassískum stíl, tíu tilbrigði við eigið
tema, og þar á eftir er fúga. Tilbrigð-
in eru létt og innileg og létu svo
þægilega í eyrum á tónleikunum að
þau hljómuðu nánast eins og dinner-
tónlist.
En í fúgunni byrjuðu meltingar-
truílanirnar; það var eins og Helgi
hefði ekki áttað sig á hvemig hann
átti að vinna úr grunnhugmyndun-
um og endaði verkið því í lausu lofti.
Fúgur eru vandmeðfamar, reglurnar
stífar og þarf mikið hugmyndaflug til
að týnast ekki í formúlum og klisj-
um. Ekkert er eins leiðinlegt og illa
samin fúga, og er það ástæða þess að
fúga hefur verið skilgreind sem tón-
verk þar sem hljóðfærin koma inn
eitt og eitt i einu og áheyrendumir
ganga út einn og einn í einu.
Eþos-kvartettinn skipa fiðluleikar-
arnir Auður Hafsteinsdóttir og Gréta
Guðnadóttir, Guðmundur Krist-
mundsson víóluleikari og Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari. Leikur
þeirra var nokkuð varfæmislegur í
byrjun tónleikanna en svo sóttu þau í sig veðrið
og fluttu kvartett Helga af öryggi og smekkvísi.
Sterk hughrif
Næst á dagskrá var strengjakvartett í F-dúr op.
135 eftir Beethoven. Kvartettinn er einn af síð-
ustu verkum meistarans og svo mikið snilldar-
verk að manni verður orða vant. Hér verður ekki
einu sinni gerð tilraun til að vera með einhverj-
ar kjánalegar útskýringar á borð við þær sem
maður les gjaman í tónleikaskrám, því svona
tónsmíð er um eitthvað sem ekki er hægt að tjá
með orðum. Leikur fjórmenninganna var í heild
fallegur, samspilið gott og allar hendingar og lag-
línur eðlilega mótaðar. Fyrsta fiðlan var að vfsu
dálítið sár á efstu tónunum en túlkunin var sann-
færandi og kallaði fram sterk hughrif hjá undir-
rituðum. Þegar það gerist skipta smávægilegir
hnökrar engu máli.
Svipað var uppi á teningnum í síðasta verkinu
á efniskránni, kvartett nr. 2 í a-moll op 51/2 eftir
Brahms. Þetta er einstaklega formfögur tónlist
með magnaðri ævintýrastemningu, laglínurnar
hrífandi og framvindan hnitmiðuð. Flutningur
Eþos-kvartettsins var stórglæsilegur, túlkunin
bæði skáldleg og kraftmikil. Greinilegt er að hér
eru andríkir listamenn á ferðinni, og voru þetta
prýðilegir tónleikar.
Jónas Sen
Af Kristjönu og stuðsveit Samúels
Finnsk-íslenskur kvintett
Kristjönu Stefánsdóttur kom
fram á Kaffi Reykjavík síðast-
liðið fostudagskvöld fyrir
troðfullu húsi. Kristjana og
finnska söngkonan Páivi
Turpeinen hófu tónleikana á
Stolen Moments eftir Oliver
Nelson sem hljómaði mjög
skemmtilega í flutningi
þeirra. Þær skiptust á í öðr-
um lögum. Sú flnnska söng
þjóðlag frá Finnlandi sem var
ekki ýkja áhugavert þótt fal-
legur væri söngurinn. Krist-
jana gerði frábæra atlögu að
laginu Joumey to Iceland eft-
ir Tómas R. við ljóð W.H.
Audens; pottþéttur ilutning-
ur. Lokalag fyrir hlé var
búlgarskt þjóðlag flutt með
nokkrum ærslum, léttúðugt
og hressilegt. Gunnlaugur — .........
Guðmundsson bassaleikari,
Anssi Einar Lehtivouri trommari og Agnar Már
Magnússon pianóleikari skiluðu undirleiknum
Kristjana Stefánsdóttir
Geröi frábæra atlögu að laginu Journey
to lceland eftir Tómas R.
með miklum sóma.
Því miður varð rýnir frá
að hverfa er hér var komið
sögu. Gafst hann upp á að
standa upp á endann sætis-
laus og vitlaus í skapinu eft-
ir að hafa lent í troðningi
miklum og stympingum og
álpast til að skyggja á útsýni
manna og kvenna og hlotið
að launum ónotalegar at-
hugasemdir og olnbogaskot.
Það átti sér líka stað í KafFi-
leikhúsinu kvöldið áður að
seldir voru miðar langt um
fram sætafjölda. Þó er gaman
að vita til þess að djasshátíð-
in skuli vera vel sótt.
Stórsveit Samúels Jóns
Samúelssonar hélt uppi fjör-
inu fyrri part laugardags-
kvöldsins á hinum títtnefhda
stað, Kaffi Reykjavík. Flutt
var tónlist sem Samúel
samdi og útsetti fyrir útskriftartónleika sína úr
Tónlistarskóla FÍH síðastliðið vor. Hæfileikar
piltsins eru ótvíræðir á þessum sviðum og mætti
hann hiklaust gefa gaum að slíku í framtíðinni.
Aðallega voru verkin fónk- eða bræðingsættar
og, eins og tónlist hljómsveitarinnar Jagúars,
minna þau helst á músík áttunda áratugarins. Þá
mátti heyra viðlíka bræðingstilraunir hjá stór-
sveitum Bills Watrous og Maynard Fergusons og
líka í músik Donald Byrds og Chucks Mangione,
að ógleymdum síðari plötum Blood, Sweat and
Tears. Það er ekkert víst að Samúel hafi einmitt
pælt í músík fyrrnefndra en eitthvað er honum
þessi tími hugleikinn. Þetta andrúmsloft kemur
ekki sist fram í notkun vává-pedala (við bassann,
meira að segja), hljóðgervils Daða Birgissonar og
bjagaðs sándsins úr Rhodes-píanói hans og gítar-
riffanna hjá Ómari Guðjónssyni. Samúel er líka
prýðilegur básúnuleikari og tók mörg ágætis sóló
sem og aðrir sólistar. Plássins vegna verða hér
engin nöfn nefnd frekar en minnst á kostulegt
quica-sóló Helga Svavars slagverkamanns.
Verkin Jógúrt, Hvað?, Lególand með síendur-
tekinni lúpu í 7/8 sem sólóað var yflr og Pi eru
sannarlega vel frambærileg verk og öll voru þau
flutt af mikilli spilagleði hljómsveitarmanna.
Ingvi Þór Kormáksson
I177KI
J Wmmmma fl
REYKJAVIKUR
X -1«. SEPTeMIER 200«
Pönnuköku-
djass og úrvals harðbopp
Einn dagskrárliður djasshátíðar var Pönnu-
kökudjass. Reyndar á músík Johns Lewis, sem
kvartett víbrafónleikarans Reynis Sigurðssonar
flutti, ekkert meira sameiginlegt með pönnukök-
um en öðrum kökum eða hverju sem er en þetta
var síðdegistónlist á Hótel Borg og ágætt að fá
pönsur með kaffinu. Því miður missti pistilritari
af fyrri hluta tónleikanna og flutningi á verkinu
Conversations eftir Gúnther Schuller þar sem
strengjakvartett kom við sögu. Tókst sá flutning-
ur mjög vel að sögn fróðs manns. Þórir Baldurs-
son á píanó, Birgir Bragason bassaleikari og
Birgir Baldursson trommari ásamt Reyni fóru
allnákvæmlega í útsetningar John Lewis á ýms-
um elstu verkum Modern Jazz Quartets. Fyrsta
lag eftir hlé var trommuþátturinn úr La Ronde
svítunni sem hljóðrituð var 1955 og svo mátti
heyra Django sem fyrst var hljóðritað árið áður.
Bluesology og Aftemoon in Paris voru á sínum
stað og slúttað með Bag’s Groove. Þetta var mjög
huggulegt og Hótel Borg kjörinn staður fyrir
þessa músík.
Jazzhátið Reykjavikur með Friðrik Theódórs-
son í fararbroddi á þakkir skildar fyrir að bjóða
upp á þá ágætu listviðburði sem einkennt hafa 10
ára afmælishátíðina. Ekki síst má þakka fyrir að
fá hingað í lokahnykkinn Kvintett Dave
Hollands. Þótt Holland væri sjálfur fjarri góðu
gamni vegna skyndilegs andláts sonar hans voru
það samt tónsmíðar hans sem hljómuðu í ís-
lensku óperunni að kvöldi sunnudags. Eitt verk-
ið, Metamorphosis, var reyndar eftir básúnuleik-
arann Robin Eubanks. Bassaleikarinn Lonnie
Plaxico, staðgengill Hollands, og Eubanks eiga
sér einna lengsta frægðarsögu liðsmanna hljóm-
sveitarinnar en hinir eru að slá I gegn f vin-
sældakosningum djasstímarita ytra. Chris Potter
hefur vakið athygli út fyrir raðir djassgeggjara
með leik sínum á nýjasta diski Steely Dan og tón-
leikaferð í kjölfarið.
Ef til vill kom mest á óvart frábær leikur
víbrafónleikarans prófessorslega, Steve Nelson,
og trommarans Billy Tilson. Ljóst er að allir eru
þessir menn í fremstu röð nútímadjassleikara og
reyndar algerir töframenn hver á sitt hljóðfæri.
Það var talsverð harðbopp keyrsla i gangi sem
kann að hafa komið sumum á óvart en ljóðræn
augnablik inni á milli. Snarstefjun er ríkur þátt-
ur í tónlistinni og einleikskaflar langir. Hætt er
við að einhverjum hefði leiðst þófið hefðu spilar-
arnir ekki haft jafn ríkulegan aðgang að gnægta-
brunni hugmynda og raun bar vitni. Var þeim
fagnað ákaflega að lokum. Takk fyrir.
Ingvi Þór Kormáksson
______________Meniúng
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Bókmenntahátíð
Á Bókmenntahátíð í
Iðnó í kvöld lesa upp
Jógvan Isaksen, spennu-
sagnahöfundur frá Fær-
eyjum, Nora Ikstena frá
Lettlandi, Ivan Klima
frá Tékklandi og okkar
eigin Sjón og Pétur
Gunnarsson. Á morgun
miðvikudag er engin dagskrá yfir dag-
inn, þá verður farið með gesti hátíðar-
innar í Reykholt til Snorra, en annað
kvöld lesa 1 Iðnó erlendu stórstimin
Kerstin Ekman, André Brink og A.S.
Byatt, og með þeim verða landar okk-
ar Margrét Lóa Jónsdóttir og Einar
Kárason (á mynd).
Hugmynd að
bókmenntasögu
Félag íslenskra fræða gengst fyrir
opinberum fyrirlestrum í Skólabæ í
vetur og verður sá fyrsti annað kvöld
kl. 20.30. Þá flytur dr. Gottskálk Þór
Jensson erindið „Recensus, Conamen,
Idea, Specimen, Apparatus sive Sci-
agraphia? - Hugmyndin að íslenskri
bókmenntasögu." Allir eru hjartan-
lega velkomnir.
í erindinu verður almennt sagt frá
fyrstu íslensku tilraununum til ís-
lenskrar bókmenntasöguritunar á lat-
ínu og sérstaklega fjallað um lítið
rannsakað samstarf íslendings og
Þjóðverja í þessu skyni á þriðja ára-
tug 18. aldar. Fundarstjóri er Örn
Hrafnkelsson.
CAPUT í Salnum
CAPUT-hópurinn
heldur afar athyglis-
verða tónleika i Saln-
um annað kvöld kl.
20 í samvinnu við M-
2000. Á efnisskrá er
frumflutningur á
verkum eftir Sunleif
Rasmussen, Hróðmar
I. Sigurbjörnsson og Atla Ingólfsson.
Öll eru verkin samin sérstaklega fyr-
ir CAPUT-hópinn. Hópurinn er stór á
þessum tónieikum, alls fimmtán
manns auk stjórnandans, Guðmundar
Óla Gunnarssonar.
Siðareglur
sagnfræðinga
Á aoalfundi Sagnfræðingafélags ís-
lands í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu í kvöld kl. 19.30 verður
borin upp tillaga um siðareglur félags-
ins. Hægt er að kynna sér þær á
heimasíðu félagsins á vefslóðinni:
www.akademia.is/saga.
Forstöðumaður Þjóðmenningar-
hússins, Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur, mun áður en fundur
hefst leiða félagsmenn um nýuppgerð
salarkynni safnsins. Þá flytja Agnar
Helgason mannfræðingur og Sigrún
Sigurðardóttir líffræðingur fyrirlest-
ur sem þau nefna Uppruni Islendinga.
Orgeltónleikar
I Kvöld
kl. 20 held-
ur banda-
ríski org-
anistinn
Andrew
Paul Holm-
an tónleika
á Noack
orgel Lang-
holtskirkju. Hann hefur spilað á tón-
leikum víða um Bandaríkin og gert
sér far um að kynna tónlist frá
Norðurlöndunum á tónleikum sín-
um þar. Að sama skapi hefur hann
lagt sig eftir að leika verk eftir banda-
rísk tónskáld á tónleikum sínum á
Norðurlöndunum.
Á efnisskrá eru verk eftir Dieterich
Buxtehude (1637-1707), Niels W. Gade
(1817-1890), Kjell Mork Karlsen (f.
1947), Daniel Pinkham (f. 1923) og Jo-
hann Sebastian Bach (1685-1750).
Raddirnar hljóðna
Síðustu tónleikar Radda Evrópu
verða í Bergen í Noregi í kvöld. Kór-
inn söng í Santiago de Compostela á
Spáni á sunnudagskvöldið og þar eins
og annars staðar voru viðtökurnar
geysigóðar. Eftir kvöldið í kvöld fara
öll ungmennin til síns heima en þau
eru sem kunnugt er frá öllum menn-
ingarborgunum niu.