Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
DV
Fréttir
Læknissynirnir frá Hvolsvelli hittust eftir 12 ára aðskilnað:
Halldór hefur ekkert breyst
- segir Þorfinnur ísleifsson og telur bróður sinn hafa verið vinnandi mann
’V- Islenskur hagfriEélnemi ngftiur látinn i Bnndarikjunum iriA 1988: \
Talinn af í tólf ár
- og tekinn af þjóðskrá. Fjölskyldan samcinuð eftir heimkomu mannsins í gær
; ím W *f 1 (Ut*U tkjwuunt lA
!SM og tkriðar IMktn hrui&U
ovtnrt « »nv«
KMunm, ÍbHrÍM- Hriralr
m*.» ira, tew« B«»í 4 ti Untn-
ku k fri IkWtchnkfuMlt «a*>w
•Trtur >k»i wru htit uui HHr aft
twai !«•! « ttn aí' «r f)r* ito'4«BU.
Htt»i dvekir mi l (að»»i f>d«h)ktu
wiawr i GMfvíur . Jpf rraðupjdib
stwritu b«ain«iMun>l lff» nwu.
TOf nt hWf* *» ►!«'•»'< «
i bakt' »*<ði Munn <m »«i K*ikbr»
HrÍMM anra OV lancMi vitt ■ **r.
K* HOckr hurf ***-
1 Uurt vur Ikuut brr* haffnrði i
f T.mí H»wi tr krhnwmiur fri
lUvtfri ttf uftix bvartlð taw
" Oð hmi »ýrjumu«i* Kum
aft (ronuu »*<»■. Jm t» » fctk 1 von
Hv«rt Uaiitcri Hrinú w ■w
dkjrt. iXM^frai hrft* Atl vifr Imuu
u»r< Ntafci un4w*rnu elt <M(
«t UnrUr tit a»m« Mtourtd1
tnarfi h*v* .\ðmtwður
tiv>«l Imvi IWflH »’!'*« ta IM* » »
V iS Jurttia* Jfi tin* hma Oti o< fcr* I
)fir u.Vðuivi I*tu rr i rutu .rð' »,«:! I
Frétt DV um endurkomu læknissonarins frá Hvolsvelli sem ekkert haföi
spurst til í rúm 12 ár.
„Við Halldór smullum strax
saman þegar við hittumst. Hann
hefur ekkert breyst,“ segir Þor-
finnur Isleifsson, bróðir Halldórs
Heimis, um endurfundi þeirra
bræðra þegar bróðir hans sneri
heim frá Texas eftir að ekkert
hafði til hans spurst í 12 ár. Stór-
fjölskyldan kom saman á miðviku-
dagskvöldið síöasta en að morgni
þess dags kom Halldór Heimir til
landsins ásamt Kristínu systur
sinni. Þá hitti hann i fyrsta sinn í
öll þessi ár systkini og aldraða for-
eldra auk systkinabarna sem fæðst
hafa frá því hann hvarf í Texas.
Þorfinnur er tveimur árum eldri
en Halldór Heimir sem var 25 ára
þegar hann hvarf en er nú nýorð-
inn 38 ára.
„Þegar við hittumst var eins og
við hefðum aldrei verið aðskildir.
Halldór er alveg eins og í gamla
daga. Hann er þó fámáll um dvöl-
ina ytra,“ segir Þorfinnur sem seg-
ist telja að hann hafi verið vinn-
andi maður í Texas og fráleitt að
hann hafi ánetjast sértrúarsöfnuði
eins og haldið hafi verið fram í ein-
hverjum fjölmiðlum.
Hann segist hafa hitt Halldór
Heimi síðast skömmu áður en
hann hélt út til að halda áfram
námi sínu í hagfræði. „Þegar ég
kvaddi hann var hann fullkomlega
eins og hann átti að sér. Það var
ekki hægt að ímynda sér það sem
átti eftir að dynja yfir okkur
nokkrum mánuðum seinna,“ segir
hann.
Þorfinnur segir tímann sem
bróðir hans var týndur hafa verið
mjög erfiðan og hann hafi saknað
hans ákaft.
„Ég hef þó aldrei trúað að hann
væri dáinn. Þó ég væri auðvitað
undrandi þegar hann kom fram
átti ég alltaf innst inni von á því.
Það var bara tilfinning mín en ég
hafði engar visbendingar. Ég hugs-
aði mikið um þetta fyrstu árin en
hélt í vonina allt fram á þennan
dag,“ segir Þorfinnur ísleifsson,
læknissonur frá Hvolsvelli sem sá
ekki bróður sinn í 12 ár.
-rt
Hvatningarorö
Þessi orösending haföi veriö hengd
upp í lönskólanum í Reykjavik. Nem-
endur eru beðnir um aö hatda sínu
striki, prátt fyrir boöaö verkfall.
Kennaradeilan:
Óbreytt staða
„Það er óbreytt staða. Við getum
ekki sagt að hafi þokast neitt í
samningsátt,“ sagði Elna Katrín
Jónsdóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara, við DV í gær.
Samningsaðilar hafa setið á fund-
um alla vikuna þar til í gær. Samn-
inganefnd ríikisins óskaði eftir
fundahléi yfir helgina, en næsti
sáttafundur verður nk. mánudag.
„Við erum búin að vera að ræða í
þó nokkurn tíma um hugmyndir
um breytingar á framsetningu
launa,“ sagði Elna Katrín. „Þá hafa
fulltrúar menntamálaráðuneytisins
átt fundi með samningsaðilum til að
fara yfir ákveðin mál sem tengjast
ráðuneytinu, t.d. varðandi nýja að-
alnámsskrá og endurmenntun. En
það hefur ekkert afgerandi komið út
úr þessu. Við teljum að það vanti að
tengja þessa kerfisumræðu við
laun.“ -JSS
Hæstu launin í Eyjum:
Tólf sjómenn
hver með 7,3
milljónir í tekjur
I Fréttum í Vestmannaeyjum er
greint frá því að Stígandi hf., út-
gerð Ófeigs VE, hefði með réttu átt
að vera á toppnum yfir þau fyrir-
tæki sem greiddu hæstu launin á
síðasta ári. I Fréttum er sagt að
meðallaun skipverja á Ófeigi VE
hafi verið 7,3 milljónir króna á ár-
inu en þrátt fyrir það hafi fyrirtæk-
ið ekki komist á lista Frjálsrar
verslunar yfir þau fyrirtæki sem
greiddu hæstu launin.
Meðallaun 12 skipverja á Ófeigi
VE voru 7,3 milljónir króna í fyrra
en samkvæmt lista Frjálsrar versl-
unar var það Gunnar I. Hafsteins-
son i Reykjavík, útgerðarmaður
Freyju RE, sem greiddi hæstu með-
allaunin eða 6.950.000 krónur. Sagt
er að umbeðnar upplýsingar frá
Stíganda hf. hafi verið sendar inn
en af einhverjum ástæðum hafí
þær ekki náð inn á lista blaðsins.
-DVÓ
Barnabætur hækka dv-mynd þök
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sinum i gærmorgun frumvarp sem felur i sér meira en þriðjungshækkun barnabóta á
næstu þremur árum. Ákvörðunin um hækkun barnabótanna er í samræmi viö yfírlýsingu rikisstjórnarinnar i tengslum
viö kjarasamninga síðastliðiö vor og meginmarkmiöiö aö draga úr tekjutengingu barnabótakerfisins.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar fyrir árið 1999:
Landlæknisembættið skuldum vafið
- þyrfti að draga úr starfsemi og fækka starfsmönnum
Fjárhagsvandi ýmissa ríkisstofnana og -fyrirtækja fer
vaxandi.
Nýútgefin skýrsla Ríkis-
endurskoðunar á ríkis-
reikningum 1999 fer hörð-
um orðum um landlæknis-
embættið og segir það ljóst
að embættið geti ekki leyst
fjárhagsvanda sinn nema
með verulegum samdrætti í
starfseminni og fækkun
starfsmanna. Starfsemi
landlæknisembættisins hef-
ur vaxið töluvert á siðustu
árum með fjölgun starfs-
manna og verkefna. Með
nýju skipuriti hefur starf-
semin orðið fjölþættari en
áður var en rekstrarhalli
hefur einnig farið vaxandi
síðustu ár.
„í árslok 1999 var uppsafnaður
fíárhagsvandi embættisins um 34
milljónir króna vegna útgjalda um-
fram fíárheimildir. Útgjöld á árinu
2000 stefndu í að fara 24 milljónir
króna fram úr fíárheimildum. Fjár-
hagsvandi embættisins stefndi
þannig að óbreyttu í að verða um
58 milljónir króna í árslok 2000,“
segir í skýrslunni, en Ríkisendur-
skoðun fór yflr rekstur embættis-
ins eftir að landlæknir fór fram á
endurskoðunina vegna fíárhags-
vandans.
Samdráttur í starfseminni og
fækkun starfsmanna verður að ger-
ast í samráði við heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið en launa-
kostnaður embættisins er um 56
prósent af heildarkostnaði þess.
Þvi bendir Rikisendurskoðun á að
skoða megi hvort ekki sé hægt að
draga úr yfirvinnu og fresta að
ráða í þau störf sem losna. Auk
þess þarf að mati Ríkisendurskoð-
unar að styrkja fíármálastjórn
embættisins, koma á virkri áætl-
anagerð um fíármál og kostnaðar-
eftirlit og gripa til markvissra að-
halds- og sparnaðaraðgerða.
Athugasemdir gerðar
Skýrsla Ríkisendurskoöunar ger-
ir einnig sérstakar athugasemdir
við átta aðrar ríkisstofnanir
- embætti forseta - íslands,
Tækniskóla íslands,
Menntaskólann á Akureyri,
Þjóöminjasafn íslands,
Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri, Málefni fatlaðra,
Reykjavik, Heilsugæslustöð-
ina Laugarási og Heilbrigð-
isstofnanir á Austurlandi.
Auk þess fer hún hörðum
orðum um ríkisstjórnina, en
eins og kunnugt er fór hún
21,2 milljónir fram úr því fé
sem henni var úthlutaö fyr-
ir árið 1999. Embætti forseta
íslands fór 16,6 milljónir
króna fram úr fíárheimild-
um ársins í fyrra, eða 17,6 prósent,
og margar aðalskrifstofur ráðu-
neytanna virtu ekki fíárheimildir
sínar. Hagstofa Islands eyddi 17
milljónum sem hún ekki átti til.
Meira en helmingur sýslumanns-
og lögregluembætta fór fram úr
fíárheimildum sínum í fyrra og
bætir hinn flati 1,7 prósenta niður-
skurður dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins á árinu 2000 ekki fíár-
þröng þessara embætta eins. og
komið hefur fram í fíölmiðlum.
Einnig kemur fram að Ríkisend-
urskoðun hefur séð ástæðu til þess
að gera sérstakar athugasemdir við
fíárreiður og bókhald sífellt færri
stofnana síðustu ár. -SMK
Kristín Rós tekur annað gull
Kristin Rós Hákon-
ardóttir sunddrottn-
ing gerði sér lítið fyr-
ir og synti öðru sinni
til sigurs á Ólympíu-
móti fatlaðra í Sydn-
ey í morgun. Þar með
hefur hún unnið fem
verðlaun á mótinu,
tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverð-
laun. Vísir.is greindi frá.
Strangari tóbaksvarnarlög
I nýju tóbaksvamarfrumvarpi er
sjónum einkum beint að markaðssetn-
ingu og sölu tóbaks og vemd gegn tó-
baksmengun. M.a. er lagt til að fækkað
verði svæðum þar sem reykingar em
leyfðar. Vísir.is greindi frá.
Breikkun í umhverfismat
Vegagerðin hefur birt drög að áætl-
un um mat á umhverfísáhrifum vegna
breikkunar Reykjanesbrautar á milli
Hafnarfíarðar og Keflavikur. Þar kem-
ur fram að gert er ráð fyrir tveimur að-
skildum brautum með tveimur akrein-
um í hvora átt á 35 kílómetra kafla og
að á þeirri leið verði mislæg gatnamót
á sjö stöðum. Vísir.is greindi frá.
Ný jarðgöng
Verkefnishópur Hönnunar og Vega-
gerðarinnar hefur birt drög að tillögu
um áætlun fyrir mat á umhverflsáhrif-
um jarðganga og vegar á miili Reyðar-
fíarðar og Fáskrúðsfíarðar. Áætlað er
að göngin verði um 5,5 km að lengd og
vegtengingar um 8 km, alls 13,5 km.
Fréttavefurinn greindi frá.
112 þúsund krónur í laun
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
krefst þess aö við upphaf nýs kjara-
samnings verði enginn félagsmaður
undir 112 þúsund króna grunnlaunum
á mánuði. Vísir.is greindi frá.
Samskip fær Herjólf
Kærunefnd útboðsmála sá ekkert at-
hugavert við útboð Vegagerðarinnar á
rekstri Vestmannaeyjafeijunnar Herj-
ólfs. Gengið var frá samningum um
reksturinn í gær. Stjóm Herjólfs dró
kæra sína í málinu tfl baka. Visir.is
greindi frá.
Hluti af framtíðargarði
Danfoss mun kaupa íslenska skál-
ann á EXPO 2000 en hann verður form-
lega afhentur í dag. Danfoss mun flytja
skálann að höfuðskrifstofum sínum í
Nordborg þar sem skálinn veröur hluti
af skemmtigarði með áherslu á tækni
framtíðarinnar. Vísir.is greindi frá.
Útsvar verður hækkað
Félagsmálaráð-
herra kynnti frum-
varp um breytingar á
lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga,
og samkvæmt heim-
ildum Vísis.is er það
í aðalatriðum í sam-
ræmi við tillögur
nefhdar um tekjustofna sveitarfélaga.
Þetta þýðir að hámarksútsvar verður
hækkað um tæpt 1% í tveimur áfóng-
um og að fasteignaskattur verði miðað-
ur við fasteignamat í stað brunabóta-
mats. Vísir.is greindi frá.
Knútur aðstoðarforstjóri
Knútur Hauksson
hefur verið ráðinn
aðstoðarforstjóri
Samskipa og gegnir
jafnframt stöðu fram-
kvæmdasfíóra rekstr-
arsviðs innlendrar
starfsemi. Kristinn
Þór Geirsson, sem
gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs innlendrar starfsemi
Samskipa, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Goða hf. Vísir.is greindi
frá.
-KEE