Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
I>V
Fréttir
Verðmæti 20
Sígauna-Rúmeninn Dinu Florin sem þóttist líka heita Stefan, Carlos og Luizi:
Neitar að gefa upp hvar
17-18 milljóna þýfi er
- ákæruvaldið krefst þess að dómarinn taki hann „engum vettlingatökum“
DV-MYND E.ÓL.
Mörg stórinnbrot
Ákæruvaldið krefst þess að Rúmeninn Dinu Florin verði dæmdur í að minnsta kosti þriggja ára fangelsi. Hann
framdi mörg stórinnbrot hér á landi og sendi þýfið úr landi.
Ákæruvaldið krefst þess að héraðs-
dómur taki Rúmenann Dinu Florin,
23 ára, „engum vettlingatökum" -
sýni honum enga miskunn og dæmi
hann í a.m.k. þriggja ára fangelsi.
Fulltrúi lögreglustjóra segir unga
manninn hafa komið gagngert tO ís-
lands til að fremja stórinnbrot og
senda þýfið úr landi eftir að hafa
komið hingað undir fólsku nafni og
óskað hælis sem pólitískur flóttamað-
ur.
Dinu kveðst hafa sætt pólitískum
ofsóknum í heimalandi sínu - þess
vegna hafi hann setið í fangelsi í
Rúmeníu. Fyrir dómi í gær kom hins
vegar fram rúmenskt sakavottorð
mannsins þar sem segir að hann hafi
fimm sinnum verið dæmdur í fang-
elsi ytra - allt frá einu og hálfu ári
upp í fjögur og hálft ár. Sakargiftir
voru þjófnaður. Sígaunamaðurinn
hefur því setið í fangelsi ytra frá
unga aldri.
í DÓMSALNUM . . ó«ar
Svemsson
blaðamaður
Mágur lefðbeindi úr fangelsi
í Þyskalandi
í réttarhaldinu í gær kom fram að
þegar Rúmeninn var handtekinn var
hann með bréf á sér frá mági sínum
sem situr í fangelsi í Þýskalandi. Þeg-
ar bréfið var þýtt kom í ljós að mág-
urinn hafði m.a. sent honum það til
að leiðbeina honum í „þjófnaðar- og
afbrotafræðum".
Þegar Dinu Florin kom til landsins
gekk hann undir nafninu Stefan
Catalin. Meðan á dvöl hans stóð hér,
fyrir handtöku - í rúman mánuð -
gekk hann líka undir nöfnunum Car-
los Mendoza og Luizi FioriIIi. Hann
kveðst hafa komið með Norrænu til
Seyðisijarðar þann 6. júlí - daginn eft-
ir framdi hann tvö innbrot á Homa-
firði, fór svo til höfuðborgarsvæðis-
ins og lét greipar sópa um skartgripa-
verslanir í nokkram stórinnbrotum.
Hér var greinilega á ferð forhertur
og skipulagður brotamaður, að áliti
ákæruvaldsins, sem bar sig „fag-
mannlega" að verki á myndbandi
sem tekið var upp i innbroti Rúmen-
ans í verslunina Faco í Faxafeni í
ágúst - ekki löngu áður en hann var
handtekinn og úrskurðaður í gæslu-
varðhald.
„Það eru engin vettlingatök
í lögunum"
Hallvarður Einvarðsson, fyrrver-
andi ríkissaksóknari og verjandi
Rúmenans, mótmælti kröfu sækjand-
ans um þriggja ára fangelsi og lagði
áherslu á að það „séu engin vettlinga-
tök i lögunum" - refsingar eigi ekki
að dæma eftir vettlingatökum - held-
ur lögunum einum.
Við réttarhald í innbrota- og þjófn-
aðarmáli Rúmenans, þar sem verð-
mæti þýfisins nam 24 milljónum
króna, kom fram að hinn ungi
sígauni neitaði að segja lögreglunni
frá því hvar þýfi upp á 17-18 milljón-
ir er niðurkomið - aðeins að hann
hafi sent það til Rúmeníu - þar sé það
einhvers staðar. Dinu hefur neitað að
segja lögreglunni hvar þrir fjórðu af
1600 gull- og silfurmunum frá íslandi
era niðurkomnir í heimalandi sínu.
Þetta þýðir í raun aö manninum hef-
ur að stærstu leyti heppnast að koma
góssinu undan. Sé gert ráð fyrir að
hann fái þriggja ára fangelsi, eins og
ákæravaldið fer fram á, mun hann
sleppa út á helmingi afplánunar, eftir
18 mánuði. Hann hefur þegar setið af
sér tvo mánuði í gæsluvarðhaldi
þannig að hann yrði samkvæmt
þessu dæmi laus eftir 16 mánuði héð-
an í frá, snemma á árinu 2002. Þó
þetta kunni að hljóma vel sloppið
gretti Rúmeninn sig í réttarhaldinu í
gær þegar túlkur hans sagði honum
að ákæruvaldið krefjist þriggja ára
fangelsisrefsingar.
Fór beint í yfirheyrslu í gær
Þegar sakborningurinn var leiddur
út úr réttarsalnum í gær og mál hans
hafði verið tekið til dóms fór hann
nánast beinustu leið austur á Litla-
Hraun í yfirheyrslu - í nýju saka-
máli. Nú er komið á daginn að fleiri
mál eru tU rannsóknar en þau sjö
innbrot sem hann er ákærður fyrir.
Þegar tveir lögreglumenn fóru tU
Rúmeníu tU að ná í hluta þýfisins hjá
foreldram Rúmenans komu í ljós
munir úr öðru innbroti hér á landi,
a.m.k. einu.
Helsta ástæða þess að Rúmeninn
var handtekinn þann 17. ágúst er
framangreint myndband frá verslun-
inni Faco. Þar sást að maður með er-
lent yfirbragð var að verki og var þvi
farið að leita slíkra manna - þangað
tU Dinu Florin fannst. Hann gaf lög-
reglu upp rangt nafn í fyrstu en játaði
á sig sjö innbrot eftir tveggja daga
gæsluvarðhald. Dinu ætlaði að fara
úr landi nokkrum dögum eftir að
hann var handtekinn - með vegabréf
sem honum hafði verið sent frá Rúm-
eníu á dvalarstað sinn á Nýbýlavegi í
Kópavogi. Vegabréfið barst eftir að
hann var handtekinn - þá kom óyggj-
andi á daginn hver maðurinn var.
Mynd með réttu nafni var í vegabréf-
inu - Dinu Florin. Þetta telur ákæru-
valdið augljóslega úthugsuð vinnu-
brögð - dæmi nú hver fyrir sig.
húsa brann í
verðbólgunni
DV, AKRANESI:
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi sínum í vikunni að leggja niður
Menningarsjóð Akraness og láta höf-
uðstól sjóðsins, 800.000 krónur, renna
til kaupa á listaverkinu Fótbolta-
mennirnir eftir Sigurjón Ólafsson. Er
það gert til minningar um gullaldar-
tímabil Skagamanna á knattspymu-
vellinum.
Menningarsjóður Akraness var
stofnaður árið 1964 þegar Landsbanki
íslands tók yfir rekstur Sparisjóðs
Akraness. Höfuðstóll sjóðsins var 13,5
milljónir króna á verðlagi þess árs og
var tilgangur hans að veita styrki til
framfara- og menningarmála á Akra-
nesi og næsta nágrenni. Ekki mátti
skerða höfuðstól sjóðsins.
Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, sagði
í samtali við DV að honum hefði ver-
ið sagt að höfuðstóll sjóðsins í upphafi
hefði samsvarað verði 20 einbýlishúsa
á Akranesi. DV lét reikna út fyrir sig
hvað sjóðurinn ætti að vera ef hann
hefði verið 135.000 gamlar krónur þeg-
ar myntbreytingin varð, en eins og
kunnugt er varð verðbólgan mörgum
sjóðum að falli. Miðað við 135.000 kr.
frá árinu 1979 ættu því að vera í sjóðn-
um í dag um 5 milljónir króna, en
sjóðurinn er ekki nema 800.000, sem
skýrist af verðbólgunni. Ef tekið er
mið af einbýlishúsaverði á Akranesi
hefðu átt að vera í sjóðnum 260-280
milljónir króna miðað við enga verð-
bólgu. Vissulega hefur verðbólgan
leikið margan manninn og sjóðinn
grátt, eins og sést á þessu dæmi.
-DVÓ
s
Isafjörður:
Brotist inn
í ölgerð
Brotist var inn í útibú Ölgerðar Eg-
ils Skallagrímssonar á ísafirði á ell-
efta tímanum á miðvikudagskvöldið
og talsverðu af áfengi stolið. Þjófarnir
brutust inn um útidyrahurð og unnu
skemmdarverk á henni sem og á
geymslu í húsinu. Að sögn lögregl-
unnar á ísafirði er magn fengsins ekki
vitað, en þó er ljóst að mennirnir
komust á brott með einn kassa af
vodka og einn kassa af bjór.
Lögreglan á ísaflrði er með málið i
rannsókn og allar upplýsingar sem
fólk getur gefið lögreglunni um
mannaferðir við útibú ölgerðarinnar
þetta kvöld eru vel þegnar.
-SMK
Veöríð i kvöld
Solargangur og sjávarföll
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 17.23 16.59
Sólarupprás á morgun 09.02 08.01
Síödegisflóð 19.01 23.34
Árdegisflóð á morgun 07.22 11.55
Skýöngar á v&barti&imm
Urkomulítiö norðan til
Suðaustan 10 til 15 m/s, en 13 til 18 við
suðvesturströndina og á annesjum
norðanlands. Skúrir eða haglél sunnanlands,
en skýjað meö köflum og úrkomulítið á norðan
til. Hiti 5 til 10 stig yfir daginn.
<'*-»VINDÁTT ÍOV-HIH -io° NviNDSTYRKUR VcnncT í metrum á sekóndu rKut> f HEIÐSKÍRT
o
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
©
RiGNING SKÚRIR SLYDDÁ SNJÓKOMA
Q s? =
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
AmoffSrv
It/bijj
Nóvember á næsta leiti
Þá er október aö verða búinn og farið
að styttast í nóvember. Þá er líka
kominn tími til aö athuga um
vetrardekkin því þá getur hálkan og
snjórinn fariö að láta sjá sig. Og
samkvæmt veðurspánni er von á
snjókomu og hagléli í næstu viku, að
minnsta kosti hjá norðanmönnum.
Þurrt að mestu sunnan- og vestanlands
Norðaustanátt, 10 til 15 m/s norðvestan til en hægari annars staðar og
súld eöa rigning með köflum norðan- og austaniands, annars þurrt að
mestu og hiti 3 til 8 stig.
rvLtmifittj't
Vindur: /J||
10-13 m/s
Hiti 2° til 5”
Þriö|iiil,i:
Vindur:
8-13 m/s
Hiti -2* til 5°
wiióviHml
pKH3
Vindun C
8—13 in/sf
e;
Hiti-2* tii 5“ eVe°
Noröaustan 10-13 m/s og
slydduél eða skúrir norðan
tll, en skýjað með köflum
og þurrt sunnan tll. Hltl 2
tll 5 stlg.
Norðlæg átt. Él eða
snjókoma norðanlands, en
skýjað með köflum og
þurrt sunnanlands.
Kólnandl veöur.
Norðlæg átt. Él eða
snjókoma norðanlands, en
skýjað meö köflum og
þurrt sunnanlands.
Kólnandl veður.
AKUREYRI rigning 6
BERGSSTAÐIR skýjað 7
BOLUNGARVÍK rigning 7
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 8
KEFLAVÍK haglél 7
RAUFARHÖFN rigning 6
REYKJAVÍK úrkoma 6
STÓRHÖFÐI úrkoma 8
BERGEN skýjaö 9
HELSINKI skýjað 3
KAUPMANNAHÖFN skýjað 11
ÓSLÓ skýjað 4
STOKKHÓLMUR 5
ÞÓRSHÖFN rigning 10
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 4
ALGARVE heiöskírt 22
AMSTERDAM rigning 11
BARCELONA mistur 19
BERLÍN skýjaö 12
CHICAGO þokumóða 14
DUBLIN léttskýjað 13
HALIFAX þokumóöa 9
FRANKFURT rigning 11
HAMBORG hálfskýjað 12
JAN MAYEN léttskýjað 4
LONDON rigning 14
LÚXEMBORG skýjaö 10
MALLORCA hálfskýjaö 23
MONTREAL alskýjað 13
NARSSARSSUAQ léttskýjað -6
NEWYORK þokumóöa 14
ORLANDO heiöskírt 18
PARÍS alskýjaö 13
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON þokuruöningur 9
WINNIPEG heiösklrt -3
grMftnijjtM.'Miuijjiin.Tn-aðryinafmtia