Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Side 9
9
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
lOV Fréttir
Embætti forseta íslands fór 16 milljónir fram úr fjárheimildum 1999:
Opinberar heimsóknir
sliga forsetaembættið
Nýútgefin skýrsla Ríkisendur-
skoðunar á ríkisreikningum 1999
gerir sérstakar athugasemdir við
embætti forseta íslands en eins og
kunnugt er fór það 16,6 milljónir
króna fram úr fjárheimildum árs-
ins í fyrra eða 17,6 prósent. Emb-
ættið átti 1,5 milljón krónur eftir í
fjárheimildum siðan árið 1998, svo
alls var höfuðstóll embættisins 15
milljón krónur í mínus í árslok
1999. Að mestu var þessum pening-
um sem ekki voru til eytt í opinber-
ar heimsóknir.
„Þegar fjárlög eru ákveðin sjá
menn í grófum dráttum hvemig op-
inberar heimsóknir verða en síðan
er mjög algengt að það bætist við
þær og það á jafnt við önnur emb-
ætti sem þetta,“ sagði Stefán L. Stef-
ánsson forsetaritari. „Það er mjög
erfitt að sjá með ársfyrirvara ná-
kvæmlega. hversu margar og
hversu viðamiklar opinberar heim-
sóknir verða bæði erlendis og hér á
landi.“
Hann tók sem dæmi þegar þjóð-
höfðingjar hittast á ailsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna, eða við aðrar
svipaðar aðstæður, þá óska erlend-
ir ráðamenn stundum eftir að koma
til íslands og þessar heimsóknir er
ekki hægt að sjá fyrir. Stefán út-
skýrði að það vora ýmsar ástæður
fyrir því að opinberar heimsóknir í
fyrra urðu viðameiri en gert hafði
verið ráð fyrir í upphafi og tók sem
dæmi að eftir að fiárlög voru sam-
þykkt var ákveðið að forsetinn,
ásamt þjóðhöfðingjum Norðurland-
anna, yrði við opnun norrænu
sendiráðanna í Berlín. Einnig juk-
ust útgjöld vegna þess að opinberar
heimsóknir forseta Eistlands og
Lettlands til fslands urðu umfangs-
meiri því degi var bætt við báðar að
ósk gestanna. Auk þess urðu heim-
sóknir forseta innanlands til Eyja-
Wm
DV-MYND GÍSLI HJARTARSON.
1
Bílvelta við Bása
Þaö fór illa fyrir þessum vörubíl sem var aö losa farm viö Bása á Kirkjubólshlíö í Skutulsfiröi um þrjúleytiö í gær. Bíl-
stjórinn var aö iosa farm á hliö þegar skjólborö festist og farmurinn fór ekki af bílnum í tæka tíö. Afleiðingarnar uröu
þær aö bíllinn lagöist á hliöina. Engin slys uröu á fólki við atburöinn.
Fjárhagsvandræöi forsetaembættísins
Embætti forseta ísiands stendur ekki undir kostnaöinum sem fylgir oþinber-
um heimsóknum.
fiarðar og Austfiarða umfangsmeiri
en áætlað haföi verið, sem og heim-
sókn hans á íslendingaslóðir í
Norður-Dakóta.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar sá
ástæðu til þess að gera sérstakar at-
hugasemdir viö átta ríkisstofnanir
auk forsetaembættisins - Tækni-
skóla íslands, Menntaskólann á Ak-
ureyri, Landlæknisembættið, Þjóð-
minjasafn íslands Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri, Málefni fatl-
aðra í Reykjavík, Heilsugæslustöð-
ina Laugarási og Heilbrigðisstofn-
anir á Austurlandi. Skýrslan fer
einnig hörðum orðum um rikis-
stjómina en eins og kunnugt er fór
hún 21,2 milljónir fram úr því fé
sem henni var úthlutað fyrir árið
1999. Auk æðstu stjómar landsins
virtu margar aðalskrifstofur ráðu-
neytanna ekki fiárheimildir sínar,
segir í skýrslunni.
Cadillac Fleetwood '85
ekinn aðeins 85 þús. m., leðurinnrétting,
sóllúqa, rafdr., vél 4.1. ssk,
Gott eintak "
Eðalvagn á eðalverði: aðeins 690.000
Upplýsingar í síma 869 3017
Kynferðisbrotadómur í Héraðsdómi Norðurlands vestra:
Fær 15 mánuði fyrir ára-
langt óeðli við telpur
DV, SAUDÁRKRÓKI:
Héraðsdómur Norðurlands
vestra hefur dæmt karlmann í 15
mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn tveimur ungum stúlkum,
og til greiðslu samtals 700.000
króna skaðabóta til þeirra. Auk
þess er honum gert að greiða meg-
inhluta sakarkostnaðar og
málsvamarlauna. Atburðirnir áttu
sér stað á árunum 1989 til 1995 en
þá voru stúlkurnar á barnsaldri,
þau fyrstu er þær voru fimm eða
sex ára. Maðurinn var sýknaður af
kæru þriðju stúlkunnar.
Við ákvörðun refsingar var horft
til þess að brot ákærða voru fram-
in á löngu tímabili. Þau beindust
gegn ungum stúlkum sem ekki
höfðu burði til að koma í veg fyrir
áreitið. Samkvæmt skýrslu félags-
ráðgjafa hafa þessir atburðir haft
mikil áhrif á stúlkurnar en þrátt
fyrir það séu framtíðarhorfur
þeirra ágætar. Einnig var horft til
þess að stúlkurnar voru báðar
tengdar ákærða fiölskylduböndum
og máttu því bera til hans traust
sem hann brást. Sérstaklega eigi
þetta við um aðra stúlkuna sem
ákærði ber að hafi verið hænd að
sér.
„Til refsilækkunar verður að
horfa til þess að ákærði hefur leit-
að aðstoðar hjá presti og sálfræð-
ingi til að takast á við vandamál
sín en hann gerir sér fyllilega grein
fyrir því að háttsemi sín var röng.
Þá hefur hann boðist til að greiða
stúlkunum bætur þó ekki hafi
náðst samkomulag um fiárhæð
þeirra. Ákærði hefur ekki áður
sætt refsingu sem hefur áhrif á nið-
urstöðu máls þessa. Einnig er rétt
að horfa til þess að u.þ.b. þrjú ár
liðu frá því ákærði lét af háttsemi
sinni og þar til mál þetta kom fram
í dagsljósið. Ákærði beitti stúlk-
umar ekki ofbeldi eða hótaði að
beita því,“ segir í dómsorði, en til-
vikin sem ákærði beitti þeirri
stúlknanna sem hann áreitti oftar
voru um 30 talsins að því er stúlk-
an bar, yfirleitt á heimili hans en
einnig á ættarmóti. Áreitið var að-
allega þukl á kynfærum og brjóst-
um.
Ákærði kveðst hafa þurft að fást
við þá sálarkreppu sjálfur að reyna
kynferðislegt ofbeldi sem hann hafi
orðið fyrir sem barn. Hann telur
sig hafa verið búinn að takast veru-
lega á við vandann eftir að áreitinu
lauk og þar til málið kom fram í
dagsljósið.
-ÞÁ
UPPB0Ð
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins aö Bjarnarbraut 2,
Borgarnesi, sem hér segir á eft-
_______Irfarandi eignum:_______
Helgugata 4, Borgamesi, þingl. eig.
Guðni Haraldsson, gerðarbeiðandi Sýslu-
maðurinn í Borgamesi, fimmtudaginn 2.
nóvember 2000 kl. 10.
Hl. Sigmundarstaða í Borgarfjarðarsveit,
þingl. eig. Reynir Aðalsteinsson, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn í Borgamesi,
fimmtudaginn 2. nóvember 2000 kl. 10.
Hl. Þórólfsgötu lOa, þingl. eig. Sigurður
Ingvarsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki
hf., fimmtudaginn 2. nóvember 2000 kl.
10.
Hlíðarbær 11, Hvalfjarðarstrhr., þingl.
eig. Búi Gíslason og Harpa Hrönn Dav-
íðsdóttir, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóð-
ur og Islenska skófélagið ehf., fimmtu-
daginn 2. nóvember 2000 kl. 10.
Lundur 2, Borgarfjarðarsveit, þingl. eig.
Einar Gíslason, gerðarbeiðandi Borgar-
fjarðarsveit, fimmtudaginn 2. nóvember
2000 kl, 10,__________________________
Melgerði, Lundarreykjadal., þingl. eig.
Friðjón Ámason og Kolbrún Elín Ander-
son, gerðarbeiðendur Iðunn ehf., bókaút-
gáfa, íbúðalánasjóður og Olíufélagið hf.,
fimmtudaginn 2. nóvember 2000 kl. 10.
Sumarbústaðurinn Hlíðartröð 9, Hval-
fjarðarstrandarhreppi, þingl. eig. Bene-
dikt G. Kristþórsson, gerðarbeiðandi
Tollstjóraskrifstofa, fimmtudaginn 2.
nóvember 2000 kl. 10.
SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESl.
DV
SSOIO