Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 10
10 Skoðun LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 DV Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: augiysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerð: Isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Sykurfíkn Ef við komum í bókabúð í Bandaríkjunum, getum við séð tugi mismunandi bóka, sem mæla með mismunandi aðferðum við að öðlast kjörþyngd og halda henni. í bóka- búðum hér á landi er úrval bóka á ensku minna, en af fá- anlegum bókum fjalla æði margar um megrun. Einn gárunginn sagði vestanhafs, að ekki væru allar þessar mismunandi bækur á boðstólum, ef ein þeirra virkaði. í þessu er mikill sannleikur. Það má ljóst vera, að fólki gengur afar illa að fara til lengdar eftir vel meint- um ráðleggingum allra þessara megrunarbóka. Sama er að segja um þá ráðgjöf, sem fer framhjá öllum slíkum bókum og segir fólki að borða minna og fara eftir opinberum manneldismarkmiðum. Þau markmið eru ágæt og byggja yfirleitt á næstnýjustu upplýsingum, en þau gera fáum kleift að halda sér í kjörþyngd. Á sama tíma og upplýsingar um manneldismarkmið og hóflegt át annars vegar og upplýsingar um margvíslegar megrunaraðferðir hins vegar þenjast út með miklum hraða, heldur fólk áfram að þyngjast. í Bandaríkjunum eykst ofíita fólks gegndarlaust, um 5% á ári. í skoðanakönnun DV í fyrradag kom fram, að 30% ís- lendinga eru ósáttir við holdafar sitt. Margir þeirra hafa vafalaust reynt að bæta stöðuna, en ekki tekizt það. í sama blaði kom fram, að offita barna er orðin eins mikil hér á landi og vestan hafs og vex hröðum skrefum. Ljóst má vera, að fólk viil fara eftir ráðleggingum, sem það fær, en getur það ekki. Á því er ekki nema ein skýr- ing. í matnum hljóta að vera fíkniefni, sem haga sér eins og önnur fíkniefni og heimta meiri og meiri mat. Margir geta ekki varizt þessum fikniefnum í fæðunni. Á allra siðustu árum hafa augu manna beinzt að við- bættum sykri sem helzta fíkniefninu í daglegri fæðu manna. í Bandaríkjunum hafa félagar í Overeaters Anonymus í fjörutiu ár haft viðbættan sykur efstan á blaði fikniefna, sem þeir megi alls ekki snerta. Rannsóknir allra síðustu ára í Bandaríkjunum benda til, að fikn stafi af boðefnarugli í heilanum, sem sé sum- part ættgengt og stafi sumpart af umhverfisáhrifum. Gildir þá einu, hvort fiknin snúist um efni á borð við áfengi og tóbak eða atferli á borð við spilamennsku. Sameiginlegt með allri fikn, hvort sem hún snýst um fíkniefni eða fikniatferli, er, að sumir ánetjast henni vegna boðefnarugls í heilanum. Ekki hefur enn verið sannað, að viðbættur sykur sé eitt þessara fíkniefna, en það mundi skýra ofát milljóna Vesturlandabúa. Þegar ný viðhorf koma fram á borð við þau, að sykur sé eitur, sem valdi óstöðvandi matarfikn, er eðlilegt, að hefðbundnir næringarfræðingar dagi uppi með kenning- ar úr gömlum kennslubókum og séu ekki með á nótun- um. Næringarfræðin hefur aldrei skilið fíkn. Ef við setjum viðbættan sykur á bekk með alkóhóli, nikótíni, læknadópi og ólöglegum fíkniefnum, þá gengur dæmið upp. Þá skiljum við, af hverju fólki tekst ekki þrátt fyrir mikla erfiðismuni að fara eftir ráðleggingum manneldisráða og vel meintra megrunarbóka. Ef sykur er fikniefni, er skiljanlegt, að vestrænar þjóð- ir séu að þyngjast með ógnarhraða á sama tíma og þekk- ing á næringu eykst og dreifist hröðum skrefum. Þá er líka ljóst, að hefðbundnar aðferðir duga ekki gegn offit- imni og leita þarf í nýjar smiðjur til úrbóta. Hér á landi hefur á síðustu dögum sprungið út umræða um viðbættan sykur sem eitur og sykur sem fikniefni. Umræðan er frábær, þótt sumum sé lítt skemmt. Jónas Kristjánsson Þjóðerni og samlögun Sífellt fleiri flóttamenn, sem flúðu land í Bosníustríðinu á árunum 1992-1995, hafa tekið þann kost að snúa til baka til Bosníu. Viða er ástandið mjög slæmt: Fjölmargir flóttamenn búa enn í tjöldum eða rústum heimila sinna og hafa engan aðgang að heilsugæslu eða mennt- un, enda er allt of litlu fé varið í uppbyggingarstarfið í Bosníu. En það breytir því ekki, að um 30 þús- und flóttamenn hafa snúið aftur á þessu ári, eða helmingi fleiri en í fyrra. Ein ástæðan er sú, að fleiri stríðsglæpamenn hafa verið hand- teknir í Bosníu. Taka má stjórn- málaþróunina í bænum Prijedor á yfirráðasvæði Bosníu-Serba (Repu- blika Srpska) sem dæmi en þar voru framdir hroðalegir stríðsglæp- ir í Bosníustríðinu og kerfisbundið kveikt í húsum múslíma árið 1996 til að koma í veg fyrir að þeir kæmu til baka. Þegar hafist var handa við að handtaka stríðsglæpamenn árið 1997 varð það til að kippa fótunum undan þeirri valdastétt sem hafði ráðið þar lögum og lofum síðan í upphafi Bosniustríðsins. Nú hefur fyrsta moskan verið reist í Prijedor en slíkt hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum. Reyndar hafa mjög fáir lagt í að snúa aftur til austur- hluta Republika Srpska, eins og t.d Srebrenica, þar sem mestu fjöldamorð í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar voru framin í augsýn friðargæsluliða Samein- uðu þjóðanna. Eiginkonur sjö þús- und karlmanna, sem þá voru teknir af lífi, eru nú í stöðu flóttamanna í eigin landi. Það þarf því ekki að koma á óvart að hundruð þúsunda Bosníumanna - Serba, Króata og múslíma - hafa enn ekki tekið þá áhættu að hverfa til síns heima af ótta við að sæta þjóðernisofsóknum. Verndun mannréttinda Árið 1992 bjuggu um 4,3 milljónir manna í Bosníu. Eftir að stríðsátök- in hófust neyddist um ein milljón manna til að yfirgefa heimili sín og 1,2 milljónir flúöu land. Eftir að friði var komið á meö Dayton-sam- komulaginu árið 1995 voru sett lög sem af óskiljanlegum ástæðum styrktu réttarstöðu þeirra sem tekið höfðu húseignir flóttamanna ófrjálsri hendi. Það var ekki fyrr en áriö 1998 að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna komu því til leiðar að þessi lög voru numin úr gildi og ný lög sett til vemdar mannréttindum fómarlambanna. Um 30 þúsund manns hafa nú fengið eignir sínar til baka. Vandamálið er að ýmsir harðlínumenn, t.d. í þeim hluta Bosníu þar sem flokkur Bosníu- Króata (HDZ) er viö völd, og stjóm- ^.'tV l ' . || 'i/4 V ; j VpV P ! m—Lil Vonir um að unnt verði að halda Bosníu-Herzegóvínu saman til langframa Flóttamönnum sem snúiö hafa aftur til Bosníu eftir stríöshörmungarnar á ár- unum 1992-1995 hefur fjöigaö verulega á þessu ári. völd í Republika Srpska hafa þrá- faldlega neitað því að framfylgja nýju lögunum. Ef ekki tekst að vernda réttindi minnihlutahópa í Bosníu-Herzegóvinu eykst hættan á því, að sambandsríkið klofni í þrennt út frá þjóðemismörkum. Þótt erfitt hafi reynst fyrir flótta- menn að endurheimta eigur sínar á Valur Ingimundarson stjórnmála- sagnfræðingur yfirráðasvæði Serba hafa þeir ekki mætt mikilli þjóðernisandstöðu. Forsætisráðherra Republika Srpska, Milorad Dodik, hefur þó verið mjög tregur til að veita minni- hlutahópum pólitísk völd og neitað að standa viö loforð sitt um að heimila 70 þúsund flóttamönnum aö snúa aftur. Öll pólitísk öfl í Repu- blika Srpska era andvíg því að taka upp sátta- og samlögunarstefnu gagnvart öðrum þjóðemishópum. Það verður því að höggva á rót vandans: að vinna gegn þeim hugs- unarhætti sem þjóðemishreinsanir hafa alið af sér. Á því svæði þar sem flokkur Bosníu-Króata (HDZ) er við völd er þjóðemisstefna á undan- haldi, ekki síst vegna þeirrar ákvörðunar stjómvalda í Króatíu að draga verulega úr fjárhagsstuðningi til hans. Að vísu stendur það lýð- ræðisumbótum fyrir þrifum að eng- um flokki hefur tekist að hnekkja forræðisstööu HDZ. En á þessu ári hefur þeim flóttamönnum sem heimilað hefur veriö að snúa aftur til síns heima í Mið-Bosníu fjölgað verulega. Það bendir til þess að ný viðhorf séu að ryðja sér til rúms gagnvart minnihlutahópum. Vestrænar skuldbindingar Ef alþjóðastofnanir og ríkisstjóm- ir á Vesturlöndum leggja ekki meira af mörkum til endurreisnar- starfsins í Bosníu er veruleg hætta á því aö flóttamenn hætti við að snúa heim eða þeir minnihlutahóp- ar, sem þegar hafa gert það, flytjist aftur á brott. Vestur-Evrópuríkin viðurkenndu í raun ekki að Bosnía væri í Evrópu fyrr en árið 1995 eft- ir að þjóðernishreinsanirnar náðu hámarki og um 200 þúsund manns höfðu látið lífið. Með þvi að grípa til beinnar hernaðaríhlutunar tóku vestræn ríki á sig efnahagsskuld- bindingar sem þeim ber skylda til að standa við. Eina leiðin til að berj- ast gegn þeirri fasísku hugmynda- fræði sem lá þjóðernishreinsunum. Serba og Króata i Bosníu til grund- vallar og brjóta niður þaö valda- kerfi sem komið var á fót til að framfylgja því er að tryggja réttindi minnihlutahópa og gera þeim kleift að snúa aftur heim. Hvernig getur þú stutt Bush? Hann er vitlaus, óreyndur... ...og stefnumúi hans eru eins og slagorð á stuðurum bílal Enhannersvo afslappur með *y8jNéw*s þetta allt!! TfUBLREMOlF. 5tRVlCE4 |
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.