Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 24
24 Helgarblað LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 DV Vilhjálmur Árnason fer alltaf á sjó á afmælinu sínu: 83 ára í 10 vindstig- um á Papagrunni - nokkrir góðir dagar um borð í Gullveri Þegar Vilhjálmur Ámason var að alast upp á Hánefsstöðum í Seyðisfirði á árunum eftir fyrri heimsstyrjöldina var sjórinn það eina sem skipti máli. Á Eyrum, eins og staðurinn var kallaður í daglegu tali, var róið til fiskjar á hverjum degi sem Guð gaf og bú- skapur í landi var eitthvað sem var fengist við þegar ekki gaf. Vilhjálmur fór ungur til sjós því hann var alinn upp á bryggjunum og varð 14 ára gamall fullgOdur háseti hjá föður sínum. Hann hleypti heimdraganum og reri tvær vertíðir á Homafirði, eina í Njarðvík en 19 ára gamall var hann kominn með svokallað pungapróf og varð formaður á ver- tíðarbátnum Magnúsi frá Seyðis- firði og stýrði honum alls í sjö sumarvertíðir. En varstu fiskinn, Vilhjálmur? „Ég vil nú ekki segja það kannski. Á þessum árum voru er- lendir togarar hér uppi í land- steinum og engan fisk að hafa nema sækja dýpra en þeir. Við rerum stundum 30-40 mílur út vegna þess.“ Hengdi upp sjóstakkinn Það átti ekki fyrir Vilhjálmi að liggja að verða sjómaður. Það má segja að hann hafi hringað upp sitt færi og hengt upp sjóstakkinn tæplega 27 ára þegar hann settist á skólabekk í stað þóftunnar og lærði lögfræði. „Það má kannski segja að kreppuárin hafi sýnt manni fram á að það væri engin framtíð í sjó- mennskunni. Þá fór allt á hausinn og menn misstu báta sína i gjald- þrot og þetta varð hálfgert volæði allt saman. Maður sá heldur aldrei pening út úr þessu. Þegar ég reri á Homafirði unnum við varla fyrir matnum. Ég vildi ekki lenda í þessu aftur og ákvað að ná mér í einhverja menntun." Lúxus þeirra tíma Vilhjálmur segist ekki hafa séð pening fyrr en eftir vertíðina sem hann reri í Njarðvík árið 193&-1937. Hann hafði fast kaup, 600 krónur, fyrir vertiðina. Þá kom hann um vorið fótgangandi til Reykjavíkur með nokkur hund- ruð krónur í vasanum. Þar sem hann stóð efst á Öskjuhlíðinni í vorlogninu sást ekkert hús í bæn- um vegna þess að þykkt ský af kolareyk huldi alla útsýn. Sjómað- urinn ungi lét sauma á sig föt og fór niður á Hótel ísland og splæsti á sig tveimur eggjum, rúnstykki og mjólkurglasi. Þetta var munað- ur þess tíma þegar maður var ungur með fullar hendur fjár. Starfsævi Vilhjálms væri efni í sjálfstætt viðtal mun lengra þessu. Hann rak eigin lögfræðistofu ára- tugum saman, sat í stjórn ís- lenskra aðalverktaka, var fræðslu- fulltrúi SÍS, handgenginn þjóð- sagnapersónum eins og Jónasi frá Hriflu og margt margt fleira. Alltaf á sjó á afmælinu En Vilhjálmur hefur aldrei al- mennilega losnað við sjóinn úr blóðinu og áratugum saman hefur hann haldið þeim sið að halda upp á afmælið sitt úti á sjó. „Ég missti reyndar úr fimm- Vilhjálmur og Birgir fyrir utan Kaffivagninn í Reykjavík Vilhjálmur hefur haft þaö fyrir siö áratugum saman aö fara á sjó á afmælinu sínu og breytti ekki út af vananum þegar hann varö 83 ára á dögunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.