Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 25
25
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
tugsafmælið,“ segir Vilhjálmur og
hlær.
„Þá var ég staddur í flotastöð
sjóhersins í Norfolk í Virginíu í
Bandarikjunum svo sjálfsagt hefði
verið hægt að finna einhverja
fleytu og komast á sjó.“
Lengi var það siður Vilhjálms
að fara austur á heimaslóðirnar
og róa til fiskjar á litlum bátum á
afmæli sínu, 15. september, yfir-
leitt í félagsskap frænda og vina.
Fimmtánda september sl.
breytti hann ekki út af vananum
og fagnaði 83 afmæli sínu úti á sjó
en nú ekki á neinum smábáti því
hann og fornvinur hans, Birgir
Þorgilsson, fyrrverandi ferðamála-
stjóri, fengu að fljóta með í eina
veiðiferð með togaranum Guilveri
frá Seyðisfirði.
„Við fengum þennan fina klefa
þar sem ég var i lágkoju og Birgir
í hákoju og við nutum lifsins eins
og greifar. Það var frábært veður
fyrstu dagana og það er ekkert
sem jafnast á við fegurð hafsins og
það heiliar mig alltaf jafn mikið.“
Tertuveisla í matsalnum
Vilhjálmi voru bornar dýrindis
tertur og finirí á sjálfan afmælis-
daginn en hann og Birgir fylgdust
með störfum um borð og brugðu
sér stöku sinnum í aðgerð.
„Þetta eru auðvitað stórkostleg
forréttindi að fá að fylgjast með
þessum hörðu og vönu sjómönn-
um sem kunna að nota nýjustu
tækni. Þetta var ógleymanlega
skemmtileg ferð og allur aðbúnað-
ur alveg frábær.“
Birgir og Vilhjálmur standa í stafni
á Gullver í fögru veðri á Papa-
grunni.
Það var samt ekki logn og blíða
allan túrinn því þegar skipið var
statt á Papagrunni eftir um sex
daga úthald gerði vonskuveður og
reif upp úfið sjólag í 10 vindstig-
um.
„Það var stórkostlegt að sjá
þessa samhentu menn vinna við
þessar aðstæður í þessu sjólagi.
Þeir voru nú að spyrja mig hvort
ég héldi að Magnús, gamli bátur-
inn minn, hefði þolað þetta. Þetta
var frábær félagskapur."
Á móti kvótakerfinu
Vilhjálmur hefur skeleggar
skoðanir á fiskveiðimálum eins og
við má búast af manni af hans kyn-
slóð og telur að margir þeirra sem
mest tjá sig um sjávarútveg hefðu
gott af því að bregða sér til sjós og
sjá með eigin augum hvernig þetta
fer fram. En er hann hlynntur
kvótakerfinu og þeirri fiskveiði-
stjórnun sem nú tíðkast?
„Ég geri mér grein fyrir þvi að
það þarf að hefta sóknina í takmark-
aða stofna en ég tel að núverandi
kerfi, sérstaklega framsal aflaheim-
ilda, hafi leitt okkur í ógöngur. Ég
tel að best væri að leggja áherslu á
vistvæn veiðarfæri, eins og línu og
handfæri, og skikka alla sem róa til
fiskjar til að koma að landi daglega
með allan afla fullfrágenginn og
kældan."
En ætlar Vilhjálmur að halda
þessum sérstæða afmælissið áfram?
„Ætli maður reyni það ekki eitt-
hvað. Ég reyni að hreyfa mig svolít-
ið, stunda mikið golf en ég neita því
ekki að ég finn orðið örlítið fyrir
Elli kerlingu.
Að lokum viljum við Birgir sér-
staklega þakka eigendum og stjóm-
endum Gullvers, svo og skipshöfn-
inni allri, fyrir þessa ógleymanlegu
sjóferð."
-PÁÁ
Gamlar og ungar kempur í
brúnni á Gullveri NS
Taliö frá vinstri: Axei Jóhann
Ágústsson, skipstjóri á Gull-
veri, Birgir Þorgitsson, fyrrver-
andi feröamálastjóri, og Vil-
hjálmur Árnason, lögfræðingur
á eftirlaunum og fyrrverandi
skipstjóri.
HÚSASMIÐJAN