Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Side 28
28
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
Helgarblað
Þórhallur Vilhjálmsson var einkaþjónn og svínahirðir hjá Danielle Steel og skrifar sögu sína:
Robin Williams
kyssti svínið á trýnið
Þórhallur Vilhjálmsson réð sig
sem einkaþjón hjá drottningu ást-
arsögunnar, Danielle Steel, að
loknu námi í markaðsfrœði í San
Fransisco fyrir u.þ.b. áratug. Þar
átti hann kostulega og viðburða-
ríka vist í tvö ár og kynntist fram-
andi heimi ríkidœmis, bruöls og
sérvisku. Fyrir utan að gljábóna
gólf, pússa silfur og raða náttkjól-
um húsfreyjunnar þurfti Þórhallur
að gœta gœludýrs skáldkonunnar,
víetnömsku gyltunnar Coco, og taka
á móti gestum sem gátu verið með
skrautlegra móti.
Þórhallur hefur í samvinnu við
bandaríska metsöluhöfundinn Jef-
frey Kottler ritaó drepfyndna endur-
minningabók frá dvöl sinni í hring-
iðu auðs ogfrœgðar þar sem einka-
þjónninn þurfti jafnframt að Jinna
sjálfan sig. JPV-forlag gefur Svína-
hirðinn út.
Enda þótt Danielle Steel sé fræg-
asti og söluhæsti rithöfundur Am-
eríku er hún kannski ekki á allra
vörum á íslandi. í allra fyrsta sam-
tali okkar tveggja var hún reyndar
aö velta fyrir sér hvers vegna bæk-
ur hennar seldust ekki í fleiri ein-
tökum á íslandi en þegar hún
komst að því hvað við erum fá-
menn þjóð gerði hún sér ljóst að
miðað við höfðatölu lesum við
bækur hennar býsna mikið. Til
upplýsingar fyrir þau ykkar sem
eru ekki gagnkunnug verkum
hennar er Danielle Steel einfald-
lega einn helsti metsöluhöfundur
allra tíma. Hún er höfundur 50 út-
geflnna skáldsagna, 10 bamabóka,
4 unglingabóka og allmargra ann-
arra bóka um efni sem hún hefur
áhuga á. Næstum hver einasta af
skáldsögum hennar hefur verið
metsölubók og útkoman er rúm-
lega 500 milljónir prentaðra bóka.
Hún er mest seldi höfundur tuttug-
ustu aldarinnar og örugglega einn
sá auðugasti.
Sjónvarpsmyndir hafa verið
gerðar eftir fjölmörgum bóka
hennar, sögum sem eru síst minna
spennandi en hennar eigin
ævi. Útlitsins vegna gæti
Danielle Steel hæglega ver-
ið kvikmyndastjama,
prinsessa eða kvenhetja úr
einni af sínum eigin róm-
antísku skáldsögum. Hún
er glæsileg og stenst sam-
anburð við hvaða kónga-
fólk sem er og er auk þess
ein af auðugustu konum
heims. Hún hefur verið gift
fimm sinnum, fætt af sér
sjö böm og býr I stórhýsi
með 21 svefnherbergi og 20
baðherbergjum. Þegar ég
vann fyrir hana voru í
starfsliði hennar sex bresk-
ar bamfóstrur, þrír kín-
verskir þjónar, tveir bíl-
stjórar og lífverðir, mat-
sveinn, ráðskona, gjafainn-
pakkari og ýmislegt annað
aðstoðarfólk - og auk þess
islenskur einkaþjónn.
Fíll í postulínsbúð
Það leið varla sá dagur
þessar fyrstu vinnuvikur
að mér yrðu ekki á
heimskuleg glappaskot. í
hvert skipti sem mér varð
á í messunni kom Amy
mér til bjargar. Það var eins og
henni fyndist eitthvað í mig spunn-
ið. Hún virtist sérlega hrifin af því
hvað ég gat ryksugað í beinum lín-
um og hvað ég var fús til að gera
hvað sem hún bað um möglunar-
laust. Engu aö síður fannst henni
ég vera eins og fíll í postulinsbúð
enda var ég alltaf að valda óskunda
og velta hlutum mn koll. Allt sem
var í húsinu var annaðhvort af-
skaplega brothætt eða gersamlega
ómetanlegt. Ég reyndi að fara eins
varlega og mér var unnt en var
samt sífellt að gera eitthvað af því
sem Amy óttaðist mest. Ég var sér-
lega hættulegur með ryksuguna,
saug upp dýrmæta dúka, blóm,
smástyttur og jafnvel augað úr
bjamarfeldinum sem lá á gólfinu.
Ovænt heimsókn
Dyrabjallan glumdi. Ég fór til
dyra af miklu sjálfsöryggi og fannst
ég sannarlega vera farinn að kunna
á þessa hlið starfsins. í forstofunni
stóð fyrirmannleg kona um frnim-
tugt, klædd glæsilegum kjól og
skreytt perlum. Hún var dálítið
svipuð Barböru Bush, sem var for-
setafrú um þær mundir, og þar sem
mér hafði orðið rækilega á í mess-
irnni með Elizabeth Taylor velti ég
fyrir mér hvort þetta gæti kannski
verið hún. Ég litaðist um eftir ör-
yggisvörðum en þegar ég sá enga
gerði ég ráð fyrir að þetta væri bara
ein af þessum venjulegu, fínu frúm
í San Francisco.
„Ég heiti Helena von Wettstein,"
tilkynnti hún með mjög fáguðum
málhreim,“ og er komin til
að hitta Danielle Steel.“
Ég vísaði henni inn í dag-
stofuna og spurði hvort
mætti bjóða henni eitthvað
að drekka.
„Já,“ sagði hún, „það
væri fallega gert af þér.
Vodka martini. Tvöfaldan
ef þú vildir vera svo vænn.“
Ég var ekkert hissa á
þessari beiðni þar sem ég er
vanur því að fólk heima
drekki tvöfalda sjússa
hvenær sem færi gefst. Ég
skildi konuna eftir með
drykkinn sem hún
svolgraði græðgislega í sig
áður en ég var kominn út
úr stofunni til þess að til-
kynna komu hennar. í þetta
skipti barði ég vandlega að
dyrunum hjá Danielle áður
en ég gekk inn.
„Kom inn,“ sagði hún,
undrandi að sjá mig á þess-
um tíma dags. „Hefur eitt-
hvað komið fyrir?“ Eins og
ég hef nefnt áður var hún
sífellt hrædd um að ein-
hverju barnanna yrði rænt
eða að einhver hryðju-
verkamaður eða brenglaður
aðdáandi reyndi að gera
henni mein.
„Nei, það hefur ekkert komið fyr-
ir,“ sagði ég huggandi. „Það er bara
Helena von Wettstein. Hún er kom-
in til að hitta þig.“
„Hver? Ég þekki enga með því
nafni.“
„Helena von Wettstein," endurtók
ég. „Henni svipar svolitið til Bar-
böru Bush svona án perlufestarinn-
ar. Hún þekkir þig örugglega. Og
hún bíður eftir þér niðri.“
Danielle Steel var sýnilega brugð-
ið. Hún hafði fullkomna stjórn á
dagskipan sinni og hverri mínútu
var vandlega ráðstafað. Hún mundi
aldrei heimila óvænta gesti eða upp-
ákomur af þessu tagi.
Við fórum saman niður til að
rannsaka málið og ég var farinn að
Fína fjölskyidan
Danielle Steel ásamt þáverandi eiginmanni sínum, John Traina, og börnum úr ýmsum hjónaböndum. Myndin er tekin 1993.
verða verulega kvíðinn. Nú áttaði
ég mig á því að þessi Helena hafði
spurt eftir Danielle Steel en ekki
DanieOe Traina en það nafn notaði
hún ævinlega heima við.
Skilaboð frá Guði
Við gengum inn í dagstofuna. Hel-
ena lét hringla í ísmolunum í mart-
iniglasinu sinu og vonaðist eftir
ábót.
„Vertu hér kyrr,“ hvíslaði Dani-
eUe að mér með ákafa og greip um
handlegginn á mér.
„Góðan daginn," sagði hún við
konuna. „Hvað get ég gert fyrir
þig?“
Konan stóð upp óstyrk á fótunum
og sneri sér að okkur. Það lifnaði
allt í einu yfir andlitinu á henni.
„Ég er með skUaboð til þín, DanieUe
Steel."
„Skilaboð?" spurði DanieUe, ger-
samlega klumsa. Hún var sífeUt að
líta á mig til að vera viss um að ég
væri þarna ef hún þyrfti á mér að
halda.
„Já,“ svaraði konan og stóð svo
og beið.
„Og frá hverjum eiginlega?"
spurði DanieUe og nú var greinUeg
óþolinmæði og reiði í málrómnum.
„Frá GUÐI!“ Og um leið sveiflaði
hún handleggnum í stóran boga og
var nærri dottin um koU.
Þegar hér var komið greip Dani-
eUe um handlegginn á mér og við
hörfuðum út úr stofunni.
„HLAUPTU!" æpti hún og þaut
felmtruð í átt að eldhúsinu. Ég
heyrði rödd hennar bergmála um
húsið, „Hringið í 911! Hringið í lög-
regluna!"
Ég fór aftur inn í dagstofuna til
að gá að manneskjunni sem mér var
nú ljóst að var einhver áfengissjúk-
ur umrenningur. Mér fannst góð
hugmynd að halda henni rólegri
þangað tU lögreglan kæmi svo ég
bauð henni upp á annan martini
sem hún þáði með reisn og innUegu
þakklæti. Ég velti fyrir mér hvenær
einkaþjónn hefði síðast boðið henni
upp á drykk í kristaUsglasi.
Þegar lögreglan kom var Helena
afskaplega meðfærUeg og kurteis og
fór alveg vandræðalaust. Ég sneri
mér við og sá að DanieUe horfði á
mig verulega Ul á svipinn.
„Ef þetta gerist nokkurn tímann
aftur ertu djöfullinn hafi það búinn
að vera!“ öskraði hún á mig. Ég
hafði heyrt fóstrumar, einkum Liz,
tala um skapsmuni hennar. Ég vissi
að Liz hafði einu sinni næstum ver-
ið rekin vegna þess að Nicky hafði
tekist að lita hárið á sér rauðfjólu-
blátt. Við heyrðum líka hvernig
Danielle var sífellt að æpa á aum-
ingja ritarana og skamma þá fyrir
að vera ekki nógu fljótir. En þetta
var í fyrsta skipti sem ég sjálfur
varð alvarlega fyrir barðinu á reiði
hennar. Það einkennUega var að í
stað þess að vera særður eða móðg-
aður var ég í rauninni þakklátur
fyrir þessa yfirhalningu. AUa vik-
una hafði ég verið að klúðra hlutum
hvað eftir annað án þess að það
hefði haft neinar neikvæðar afleið-
ingar og þess vegna fagnaði ég refs-
ingunni sem mér fannst ég eiga skil-
ið. Ég skildi líka tU fullnustu þá
skelfingu og einangrun sem Dani-
eUe Steel bjó sífeUt við, ævinlega
hrædd um að einhver mundi reyna
að gera henni eða einhverjum úr
fjölskyldu hennar mein.
Danielle Steel fékk skyndilega þá
flugu í höfuðiö að heimili hennar
vœri of lítið og setti húseignina á
sölu. Þaö kom í verkahring Þórhalls