Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________1>V Mæðgurnar Maria iffiand, til hægri, ásamt Juliu dóttur sinni sem nú óttast um líf sitt. Maria leitaöi til dóttur sinnar þegar henni leiö illa í hjónabandinu. Ottaslegin fjolskylda Julia meö litlu systur sinni, Andreu, sem hún hefur tekiö aö sér, dætrunum Iris og Nicotu, og eiginmanni sínum, Johannesi. Heimili Juliu Julia býr ásamt fjöiskyidu sinni í íbúö í þessu húsi í Seefeld í Austurríki þar sem nágrannarnir hafa séö dularfullan mann læöast um. „Ég held að það hafi liðið yfir mig þegar ég sá hann. Hann stóð hinum megin við götuna og horfði á mig, maðurinn sem hafði myrt móður mína. Nú gekk hann um ljóslifandi í stað þess að sitja geymdur á bak við lás og slá.“ Þegar Julia Schneider, sem er 21 árs, rankaði við sér lá hún á götunni í miðborg Seefeld, heima- bæjar hennar í Austurríki. Hún hafði hnigið æpandi niður með krampakast þegar hún sá morð- ingja móður sinnar og vegfarend- ur kölluðu á lækni sem gaf henni róandi sprautu. „Ég stamaði víst eitthvað um móður mína og morðingja og allir horfðu á mig án þess að skilja nokkuð. Þeir gátu heldur ekki vit- að hvern ég hafði séð.“ Sleppt af stofnun fyrir geðveika Hún hafði séð föður sinn, Stefan Iffland, sem var 54 ára, er tveimur árum áður hafði verið dæmdur til vistar á stofnun fyrir geðsjúka um óákveðinn tíma fyrir að hafa drepið konuna sína, móður Juliu, með exi. Rétturinn hafði talið hann mjög hættulegan og aö útlit væri fyrir að hann yrði hættulegur í framtíð- inni. Samt sem áður höfðu lækn- amir á stofnuninni, sem hann hafði dvalið á i tvö ár, talið að hann væri reiðubúinn til að koma út í samfélagið á ný. Þess vegna hafði honum verið sleppt. „Ég er skelfingu lostin. Ég ótt- ast að hann hefni sín á systkinum mínum og börnunum mínum. Ég skil einfaldlega ekki hvemig mað- urinn getur verið frjáls ferða sinna eftir það sem hann gerði við móður mína,“ segir Julia. Þegar Julia ræðir um foður sinn talar hún um „manninn". Hann er ekki lengur faðir hennar. Hún vill ekkert vita af honum. Morðinginn Stefan iffland er frjáls maöur og gengur um göturnar í Seefeld. Hann er ekki lengur talinn hættulegur. Maria Iffland var 48 ára og hafði verið gift Stefan í 20 ár þegar hún var orðin svo þreytt í hjóna- bandinu að hún vildi skilja. Ástæðan var sú að maðurinn hennar hafði logið að henni og svikið hana svo mikið að hún þoldi einfaldlega ekki lengur sam- vistirnar við hann. Hún hafði meðal annars uppgötvað að húsið, sem þau höfðu reist sér saman þegar þau voru ung og sem hún hafði alltaf tekið þátt í afborgun- um af með saumakonulaununum sínum, var á nafni Stefans. Þegar Mariu þótti allt vera ómögulegt leitaði hún stundum huggunar hjá Juliu, elstu dóttur sinni, sem var vel gift og tveggja barna móðir. Þegar Maria Iffland sá hamingjuna blómstra hjá ungu fjölskyldunni varð henni alltaf hugsað til síns eigin brúðkaups. Daginn fyrir vígsluna hafði Stefan birst heima hjá henni og foreldrum hennar með lítinn dreng við hlið sér. „Þetta er Marco, sonur minn, sem er þriggja ára. Viltu gæta hans um stund. Ég þarf að sinna erindi í hmwmwmm bænum.“ Þannig fékk Maria vitneskju um að tilvonandi eiginmaður hennar hafði verið kvæntur áður. Gifti sig af ótta viö umtal „Mamma gifti sig bara af þvi að hún óttaðist umtal fólks. Hún hefði þá þegar átt að vísa honum á dyr,“ segir Julia. En það gerði Maria ekki og það kostaði hana lífið. Þegar hún ræddi um skilnað við manninn sinn fékk hún þetta svar: „Ef þú vilt endilega skilja gerðu það þá. Ég ætla ekki að halda þér. En þú færð ekki húsið og ekki einu sinni helminginn af því.“ „En ég hef jú greitt af því í öll þessi ár.“ „Já, og þakka þér fyrir það. En það breytir ekki málinu. Ég einn er skráður eigandi og þú færð ekkert. Og svo verða börnin hjá mér.“ Niðurbrotin leitaði Maria Iffland til lögfræðings. Hann sagði henni að líklegast fengi hún for- ræðið yfir bömunum viö skilnað og að maðurinn hennar yrði að greiða meðlag með þeim. Hún gæti auk þess krafist helmings af verðmæti hússins. Stefan Iffland rauk út úr húsinu og ók heim til fjölskyldu sinnar til að ráðfæra sig við hana þegar Ópin fóru í taugarnar á fóöurnum Ópin fóru í taugamar á föðurn- um og hann gekk út á götu þar Læknirinn var morðingi Áhugi læknisins á læknariturum gerði hann að morðingja. „Ég er skelfingu lostin. Ég óttast að hann hefni sín á systkinum mínum og börnunum mínum. Ég skil einfaldlega ekki hvernig maðurinn getur verið frjáls ferða sinna eftir það sem hann gerði við móður mína.“ Maria hafði greint honum frá heimsókn sinni til lögfræðingsins. Maria heyrði hann ekki snúa aft- ur því hún var að þvo þvott í kjall- aranum. Þess vegna vissi hún ekki að eiginmaður hennar ætlaði að skilja við hana á sinn eigin hátt. Hneig blóðug niður við þvottabalann Hann læddist að henni með exi þar sem hún stóð yfir þvottinum og hjó hana í hnakkann af öllu afli. Hún hneig niður og blóðið fossaði úr höfði hennar. Stefan hélt áfram að höggva konuna sína. Hann ætlaði að sjá til þess að hún léti lífið. Stefan Iffland gekk alblóðugur upp á efri hæðina og sagði við Andreu dóttur sína sem var 12 ára: „Ég var að drepa mömmu þína. Komdu, nú skulum við aka til Hans frænda og Anni.“ Barnið varð skelfingu lostið og æpti án af- láts. sem hann, alblóðugur, bað vegfar- endur um að kalla strax á lögregl- una. Hann veitti enga mótspyrnu við handtökuna og játaði strax voðaverkið. Málið var tekið fyrir í Inns- bruck. Kviðdómendur fundu hann sekan en þar sem nokkrir sér- fræðingar höfðu lýst þvi yfir að Stefan Iffland væri ekki sakhæfur var hann dæmdur til öryggis- gæslu um óákveðinn tíma. Tveim- ur árum eftir að hann hafði myrt konuna sína með exi var hann frjáls maður. Julia dóttir hans er viti sínu fjær af ótta. Hún hefur leitað að- stoðar yflrvalda en segir það hafa verið eins og að ganga á vegg. Ekkert sé hægt að breyta ákvörð- un læknanna sem telja að hann sé ekki lengur hættulegur umhverfi sínu. „Ég er mjög óttaslegin. Ég hef séð hann læðast í kringum húsið okkar nokkrum sinnum. Verður eitt barnanna eða ég að verða næsta fórnarlamb hans áð- ur en yfirvöld koma okkur til að- stoðár?“ spyr hún. Dóttir hinnar myrtu er skelfingu lostin: Morðinginn er frjáls ferða sinna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.