Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Page 50
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 I>V ''fíí vera M Vidarvagnar af götum Hong Kong Dagar gömlu viðarsporvagnanna í Hong Kong eru senn taldir. Vagn- amir, sem hafa verið meðal þess sem laðað hefur ferðamenn til borg- arinnar, komu fyrst á götuna árið 1904 og eru þvi að verða einnar ald- ar gamlir. Stefnt er að því að fyrir árslok 2004 verði búið aö skipta á öllum eömlu sporvögnunum og nýtísku- Regum straumlínulöguðum álvögn- um. Fyrsti „árþúsundavagninn" fór á götuna í síðustu viku en endurnýj- unin hefst af krafti eftir áramót. Að sögn forráðamanna sporvagn- anna í Hong Kong var markmiðið með útlitshönnun vagnanna að hafa nýtískulega vagna á nýrri öld, enda verður ekki annað sagt en að and- stæðumar hafi verið miklar þegar „árþúsundavagninn" rann um rykugar götur borgarinnar, innan um verulega frumstæðari farkosti. Jf Nýju vagnarnir era með færri sæti en þeir gömlu og eru rúmbetri á allan hátt. Þriðjungur flotans verður útbúinn með loftkælingu. Nýi vagninn vakti gríðarlega at- hygli og margir Hong Kong-búar tóku sér far með honum og létu vel af. Síðbúinn farfugl á hringferð um landið: Á puttanum í landi Nonna og Manna PV. SAUÐARKROKI: Það var eins og aö rekast á síð- búinn farfugl þegar ungur ferða- langur varð á vegi fréttaritara DV á móts við Barðslaug i Fljót- um á sunnudag. Á öðrum degi vetrar var þarna maður á ferð á tveimur jafnfljótum með bakpok- ann sinn og tjaldið á herðunum. Þetta reyndist vera 22 ára Austur- ríkismaður og hann er búinn að vera á ferðalagi á og við hring- veginn síðan i lok júlí þegar hann byrjaði ferðalag sitt út frá Reykjavík og hélt suður og austur um. Hann hefur tvær vikur til að klára hringinn, á pantað flugfar heim viku af nóvember. „Þú heldur líklega að ég sé kol- vitlaus en þegar ég var drengur sá ég í sjónvarpinu myndina um Nonna og Manna og hreifst mjög af myndinni og náttúrunni sem brá þar fyrir. Þá ákvað ég að þeg- ar ég yrði stór færi ég til íslands og ferðaðist um þetta fallega land. Ég lét verða af því í sumar og sé ekki eftir því. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegur tími og náttúran hér er stórkostleg. Hérna býr líka mjög vinsamlegt fólk, ég hef kynnst því á ferð minni,“ sagði Benno Plugger og tók upp myndavél úr pússi sínu og myndaði heitu laugina þarna við veginn hjá Langhúsum. „Ég kom til Siglufjarðar í gær og langaði að skoða Síldarminja- safnið en það var lokað. Ég er líka nokkuð seinn á ferðinni. Siglufjörður er mjög fallegur bær en þar er líklega kalt og dimmt yfir veturinn," sagði Benno og blaðamanni skildist að hann hefði tjaldað einhvers staðar inn við Hól. Þennan dag lá leið hans síðan í Varmahlíð. Hann gekk inn að jarðgöngunum og fékk bíl- far þaðan að Ketilási og var því búinn að ganga drjúgan spotta þegar fréttaritari DV hitti hann. Það er ekki hægt annað en dást að þessum unga kjarkmikla manni sem einn síns liðs hefur ferðast um landið á tveimur jafn- fljótum og puttanum, með tjaldið sitt og bakpokann, í rúma þrjá mánuði og það þegar komið er fram á vetur. Sem betur fer fékk hann mjög gott sumar til að ferð- ast og hann var líka búinn að verða sér úti um íslenska lopa- peysu áður en haustið gekk í garð. -ÞÁ DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON Á slóöum Nonna og Manna Benno Plugger, 22 ára Austurríkismaður. Ungur drengur sá hann myndina um Nonna og Manna í sjónvarpinu ákvaö hann að fara í ferðalag til þessa fallega lands þegar hann yrði stór. Helga Ingimundardóttir hefur sinnt hvalaskoðun í sjö ár: Hnúfubakur og önnur stór- hveli algeng sjón í sumar Hólmarar bjóða sælkeraferðir frá Reykjavík Sæferðir ehf. í Stykkishólmi hafa að undanförnu verið að auka á fjöl- breytni í þjónustu og fara nú með gesti í sannkallaðar sælkeraferðir 'Wrá Reykjavík. Gunnar Sigvaldason matreiðslu- maður hefur slegist í hópinn og hef- ur hann fengið frábærar viðtökur. Pétur Ágústsson, einn forráða- manna fyrirtækisins, sagði í sam- tali við DV að þeir myndu að minnsta kosti verða með þessar ferðir fram að áramótum og blanda sér í slaginn um jólahlaðborðin á höfuðborgarsvæðinu. -DVÓ/ÓJ „Ég held að fólkið verði sjaldnast fyrir vonbrigðum þegar það sér þessar risaskepnur syndandi í æti rétt við bátinn,“ segir Helga Ingi- mundardóttir, leiðsögumaður og framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu Suðurnesja, en fyrirtækið hefur boðið upp á höfrunga- og hvala- Hvalaskoðunarkonur Hetga Ingimundardóttir ásamt dóttur sinni, Birnu Rúnarsdóttur. Frabær VInnuaðstaða 2 5 . □ □ □ , - lengd: 1 BO Breidd: bo 2 3 . □ □ □ , - TM - HÚSGÖGN Síöumúla 30 - Sími 568 6822 - œvintýri líkust SKRIFBDRÐ Mahogony - 4ra skúffu skápur svartur - lyklaborðshilla lengd: 1 40 Breidd: 64 skoðun síðustu ár, núna á skipinu Andreu sem tekur 55 manns. Hvalaskoðunartímabilinu er senn að ljúka og Helga að koma í land. „í nær öllum ferðum sjást einnig stökkvandi smáhveli, blettahnýð- ingur og fólkið nánast æpir af hrifningu. Nú í sumar gerðist það oftar en áður að stórhveli eins og hnúfubakur stökk allt að tuttugu og fimm sinnum. Við höfum alltaf farið í Fræðasetrið í Sandgerði fyr- ir brottför, nema ef farið er frá Grindavík, og farþegar fá þá smjör- þefmn af því sem koma skal með fyrirlestri og myndasýningu starfs- fólksins þar,“ segir Helga Veðráttan á Suðurnesjum fælir alls ekki fólk frá því að fara í hvala- skoðunarferðir. „Ef veðrið er óhag- stætt hér í Keflavík er bátnum siglt til Grindavíkur eða Sandgerðis þar sem veður getur verið skaplegra en hér. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af þvi þó skipt sé um brottfarar- höfn því hvalir hafa fundist ailt í kringum Reykjanesskagann eða í meira en níu af hverjum tíu ferð- um. Ef svo óheppilega vill til að engir hvalir sjást er farþegunum boðið frítt í aðra ferð. Aöalleiðsögumaður í hvalaskoð- unarferðunum í sumar hefur verið sjávarlífræðingur, dönsk stúlka, Marianne Rasmussen, sem hefur lagt stund á rannsóknir á smáhveli eða höfrungi. Rannsóknir hennar, sem eru, að sögn Helgu, einstakar í öllum heiminum, beinast að hegð- un dýrsins og hljóðum sem eru ýmis samskiptahljóð, blístur- eða bergmálshljóð sem dýrin gefa frá sér til að rata í slæmu skyggni í sjónum. Marianne hefur einnig rannsakað hvort sömu dýr halda sig á ákveðnu svæði ár eftir ár. Nú, eftir fjögurra ára rannsókn, hefur hún fundið að minnsta kosti 50 ein- staklinga sem virðast „búa“ í Garð- sjónum yfir hlýrri mánuði ársins frá því í apríl til októberloka ár hvert." Stökkvandi hnúfubakur / nær öllum ferðum sjást einnig stökkvandi smáhveli, blettahnýðing- ur og fólkið nánast æpir af hrifn- ingu. Aflinn grillaftur um borft Höfrunga- og hvalaskoðun Suður- nesja er elsta starfandi fyrirtæki sinnar tegundar á íslandi og siglir nú með hvalaskoðara sjöunda árið í röð. Auk Islendinga, sem að vísu eru enn minnihluti farþega, kemur fólk alls staðar að úr heiminum, þó flestir frá Norðurlöndum og Englandi. Eru far- þegamir sóttir á öll gistiheimili og hótel á höfuðborgarsvæðinu og þeim ekið aftur á sama stað að lokinni ferðinni. Leiðsögnin um borð er á ensku og dönsku, auk þess á fleiri tungumálum, svo sem á þýsku eða ítölsku. „íslendingar eru hrifnastir af sjóstangaveiðiferðum með hvalaskoð- unarívafi. Þá er aflinn jafnan grillað- ur um borð en góð aðstaða er fyrir hópa i sal skipsins, sem og á dekki.“ Helga segir að fyrirtækið hafi lagt skógræktinni lið þannig að fyrir hvem farþega sem kaupir sér ferð með Ferðaþjónustu Suðurnesja er keypt eitt tré sem Skógræktarfélag Suðurnesja hefur séð um að gróður- setja. Þá má benda á heimasíðu Ferðaþjónustunnar sem er www.arct- ic.is/itn/whale. -AG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.