Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2000, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 1>V ______ Tilvera Jean Todt: Bjargvættur Ferrari „í langan tíma höfum við þráð og beðið um þessi úrslit. Nú mun líf okkar breytast. Við höfum afrekað að gera draum að veruleika með draumaliðinu. Árið 1997 vorum við aðeins 15 mínútur frá því að vinna ökumannstitilinn. Og árið 1998 áttum við möguleika til loka baráttunnar og á síðasta ári, 1999, árið sem Schumacher varð fyrir alvarlegu slysi á Silverstone, unnum við titil keppnisliða. Þetta ár er metár. 170 stig, 10 sigrar, 10 ráspólar og báðir heimsmeistaratitl- amir. Ég vil fá að þakka ykkur öllum fyrir frábært starf og segja hversu stoltur ég er.“ Þetta voru orð Jeans Todts í þakkarhófi sem hann hélt keppnisdeild Ferr- ari á miðvikudags- kvöldið þar sem hann bauð öllu því starfsfólki sem í allt sumar hefur unnið hörðum höndum að því að færa keppnisliðinu samkeppnishæfa keppnisbíla og aflmiklar vélar. Frá upphafstímum Formúlu 1 hefur Ferr- ari verið partur af kappakstrinum en „litla“ Ferrari hefur ekki alltaf verið það stórveldi í Formúlu 1 sem það er í dag. Verkefnið ærið Maranello er lítill bær á Norður- Ítalíu. Þar eru byggðir frægustu og metnaðarfyllstu sportbílar heimsins. Þar eru einnig hannaðir og smíðaðir keppnisbílar keppnisliðs Ferrari í Formúlu 1 og allt af íbúum bæjarins Maranello. Þó eru allir stjómendur liðsins erlendir. Ross Brawn tækni- stjóri og Rory Byme hönnuður em enskir en höfuð alls hersins kemur frá Frakklandi og heitir Jean Todt. Hann hefur verið keppnisstjóri Ferr- ari-liðsins síðan á miðju tímabili 1993 en þá hafði liðið gengið í gegnum langa og erfiða niðursveiflu og árang- urinn lét heldur betur á sér standa. Á áttunda áratugnum hafði Todt leitt Peugeot til heimsmeistaratitils i WRC Rally og fannst Luca Montezemollo, forstjóra Ferrari, hann vera rétti maðurinn til að byggja upp sam- keppnishæft keppnislið og gera Ferrari aftur að stórveldi í For- múlu 1, sama hvað það kostaði. Árangurinn fór straxað koma í l]ós Todt, sem er 54 ára, er hálfgerður huldumaður og ekki er mikið vit- að um persónu- lega hagi hans. Miklum tíma eyð- ir hann á skrif- stofu sinni og er ávallt fyrstur til vinnu og síðastur til að kveðja. Fljótt eftir komu Todt’s til Ferraris fór árangurinn að koma i ljós. Hann réð til liðsins hæf- ari mannskap til að hanna bílinn og fyrsti sigur liðsins í fjögur ár varð að veruleika árið 1994 er Gerhard Berger, nú hjá BMW Williams, sigr- aði á Hockenheim. Annar sigur kom í kjölfarið árið 1995 og menn litu bjartari augum á framtíðina en stærsti bitinn í púsli Jeans Todt’s var samt Michael Schumacher sem kom til liðsins fyrir metupphæð. í kjölfarið fylgdu þrír sögulegir sigrar og ekki síst langþráður sigur á Monza sem gaf hinum ítölsku Tifosi byr undir báða vængi og Todt var á grænni grein. Lokatakmarkinu náð „Ég hefði aldrei trúað því að þetta yrði svona erfitt. Hér hjá Ferrari hef ég lært þolimæði. í upphafi hefði ég ekki trúað því að ég gæti leyst úr öll- um þeim erfiðleikum sem við höfum gengið í gegn um,“ segir Todt sem hefúr bjargað heiðri Ferraris. Síðan 1997 hafa þeir barist til síðasta móts á hveiju ári um titilinn og í Malasíu Jean Todt er frægur fyrir herfræði sína í keppnum og hefur þess vegna oft verið kallaður „litli Napóleon" af bæði samherjum og andstæðingum. -ÓÓ-jó ímLjnÁaítoj'a ■zJxts.yfzjauL ízii'i J inníjocjL <J\Z[ariLnói.±on (fjódœi [jóimijndix có~TijE’ij'Licjötu. 105 - 2. fiæó eSími 562 n66 - 862 6636 Gleðin leynir sér ekki hjá Jean Todt eftir 7 ára bið um síðustu helgi small lokapúslið saman og báðir titlamir voru loksins í höfn hjá Ferrari. Markmiðinu var náð og Jean Todt er strax farinn aö huga að starfslokum. „Já, nú hef ég náð takmarki mínu, eða í það minnsta er þetta fullkomnun á verk- efni mínu og þetta eru mjög ánægju- legar stundir hjá mér,“ segir Todt. „Ég kom til Ferrari til að gera þetta (ná titlunum) og ég er ánægður." Spennufallið og gleðin var augljós hjá litla Frakkanum þegar hann fór upp á verðlaunapallinn með Schumacher í Japan. Það var fals- laust. En vinnuálagið hefur verið mikið og hann vill fara að slaka á. „Það eru fleiri hlutir í lífi mínu en kappakstur. Álagið sem fylgir þessu starfi er ekki eitthvað sem ég vil lifá*1 við til langframa. Ég vil ekki vinna svona mikiö það sem eftir er. Ég þarf að huga vandlega að framtiðinni og ég vildi gjaman setjast í helgan stein fyrr en síðar.“ -ÓSG BARREL sófi meö háu baki sem er afar þægilegur. Klæddur mjúku anilínleðri. Fæst í fleiri litum. 3ja sæta sófi L216 sm. 2ia sæta sófi L166 sm. Settið 3+2 ■HjÉHdH DOMINO sófi með pokafjöðrum í sæti, sem gera hann einstaklega þægitegan. klæddur mjúku nautsleðri. Fæst i fleiri titum. 3ja sæta sófi L220 sm . 2ja sætasófi L170 sm . stótt m I H í T'll HUSGAGNAHOLLIN Bitdshöfða • 110 Reykjavík • simi 510 8000 • www.husgagnahottin.is BERGAMO sófi með háu baki ktæddur mjúku nautsteðri. 3ja sæta sófi L214 sm. 2ja sæta sófi L160 sm. Settið 3+2+1 Ml I H I IIB 3+2 I COMO sófi ktæddur hanskamjúku anitínleðri. Fæst i fleiri titum. 3ja sæta sófi L206 sm. 2ja sæta sófi L151 sm. Settið 1+2+1 pWÆIIKllB . 3+1+1 mz*wM H. 3+2 IMiClíwEliH ALTEA sófi ktæddur mjúku nautsleðri og með pokafjöðrum í sæti. Fæst í fteiri titum. 3ja L206 sæta sófi BHB. 2ja sæta sófi L166 sm. WiVJÆflB . Er kominn timi til að skipta út sófasettinu? Komdu i Húsgagnahöllina og líttu á glæsilegt úrval af vönduðum leóursófasettum sem eru í senn notaleg og endingargóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.