Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Side 12
12 MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000 Skoðun DV Ferjur og flóa- bátar úr umferð fer Herjólfur sömu leið? Vestmannaeyjaferjan Herjólfur - Samskip tekuryfír. Ferðu oft til tannlæknis? Guðrún Þorleifsdóttir nemi: Mjög sjaldan, þaö er ekkert sérlega gott. Pétur Hansson nemi: 2 sinnum á ári og þaö er ekkert sérlega vont. Þórður Viggósson nemi: Ég fer í árlegt tékk og er einmitt aö fara á föstudaginn. Þórir B. Sigurðarson klippari: Já, en ég hef aldrei fengiö skemmda tönn. Ólafur Ingi Skúlason flugmaður: Ég fer þegar ég þarf þess en mér finnst þaö ekkert sérlega vont. Tómas Huldar Jónsson módel: Ég hef aldrei fengiö skemmda tönn. Magnús Gunnarsson skrifar: Það er skaði að dottinn skuli nið- ur áhugi á rekstri flóabáta og skipa fyrir farþega og vörur, í kringum og til og frá landinu. Gullöld slíkra skipa hér var á 6. og 7. áratugnum, þegar landsmenn áttu og ráku ekki færri en 4 farþegaskip sem þjónuðu landsmönnum með siglingum við landið vestan- og norðanvert svo og í kringum land, auk flóabátanna, á Breiðafiröi, ísafirði og milli Akra- ness og Reykjavíkur. Þessu til við- bótar sigldu svo Gullfoss Eimskipa- félagsins og Dronning Alexandrine milli Reykjavíkur og Danmerkur og Bretlands. Síðan fylltust menn óróa og vildu komast ferða sinna loftleið- is undir kjörorðinu „Fljótt, fljótt, sagði fuglinn" - löngu fyrir daga samnefndrar skáldsögu Thors Vil- hjálmssonar. En hvað er það sem hindrar ey- þjóð norður í Ballarhafi að eiga og reka farþegaskip til innanlands- flutninga svo og frá landinu? Nú er íslendingum vísað á Norrænu hina færeysku vilji þeir komast sjóleið- ina frá landinu, og það frá Seyðis- firði. En hver vill aka sandana mjúka alla leið frá Reykjavík eða þéttbýlinu hér suðvestan lands alla þá leið? Herjólfsmálið svokallaða minnir óþyrmilega á þegar rekstri Ríkis- skipa var hætt, svo til eina nóttina, og boðað var til fundar á Hótel Sögu þar sem starfsfólki, og einkum skip- verjum, var lofað störfum hjá Sam- skipum. Allir flutningar áttu að fara Þorvaidur Olafsson (110844-4179) skrifar:______________ í DV 7. nóv. sl. spyr Pétur H. Blöndal alþm., bersýnilega hneyksl- aður og af nokkrum þjósti: „Hvers vegna geta kennarar ekki unnið allt árið og verið á vinnustað sínum all- an daginn og verið með lifeyrisrétt- indi eins og annað fólk?“ Pétur er sá alþingismaður sem er þjóðkunnur m.a. fyrir árangurslitla leit að bág- stöddum meðal aldraðra og öryrkja - þeirra sem hvorki hafa spillt efn- um sínum með óráðsíu né drykkju- skap - en sitja samt í fyrirrúmi Framsóknar þar sem náðarsól Sjálf- stæðisflokks skín á þá. Vert er að benda á að hér spyr þingmaður Reykvíkinga, sem ásamt öðrum þingmönnum hverfur af „Hvað er það sem hindrar eyþjóð norður í Ballarhafi að eiga og reka farþegaskip til innanlandsflutninga svo ogfrá landinu?“ fram á vegakerfinu og í flugi. Og sú hefur verið stefnan æ siðan. Markmiðið hefur verið að fækka íslenskum skipum til farþegaflutn- inga. Horfín er Akraborgin, horfið er Fagranesið á ísaflrði, og stefnt að því að Breiðafjarðaferjunni Baldri verði lagt. Og hver veit hve lengi „Þótt fyrmefndur Pétur muni ekki vera fundvís maður er hann þó talinn reikningsglöggur og œtti því ekki að verða skota- skuld úr því að bera saman lífeyrisréttindi alþingis- manna og framhaldsskóla- kennara. “ vinnustað sínum um það leyti sem sauðburður hefst á vorin (áður en vorönn lýkur í framhaldsskólum) en snýr svo aftur til vinnustaðar í vetrarbyrjun að loknum heyskap, göngum og slátrun (löngu eftir að Vestmannaeyjaferjan Herjólfur verður í siglingum eftir að rekstur- inn var fluttur frá Eyjum til Reykja- víkur? Jafn líklegt er að einn dag- inn verði tilkynnt að rekstri Herj- ólfs verði hætt, hann sé tíma- skekkja, og farþegar til og frá Eyj- um vinsamlega beðnir að nota flug- ið. - Og fragtin með Samskipum. Hvað segja menn þá? Láta það yfir sig ganga eins og annað? Rétt eins og að fólk er skikkað til að vakna klukkan fimm, fjögur eða fyrr að morgni til að ná morgun- flugi til Evrópu! Já, hvað segja menn yfirleitt um aumingjaskapinn í íslendingum? Er það þá satt sem þeir segja um landann? haustönn er hafin í framhaldsskól- um). Þá gerir alþingismaðurinn býsna drjúg hlé á störfum sínum á vinnustað um jól og páska því að bústörfm kalla, bæði tilhleypingar og gegningar. Þótt fyrrnefndur Pétur muni ekki vera fundvís maður er hann þó tal- inn reikningsglöggur og ætti því ekki að verða skotaskuld úr því að bera saman lífeyrisréttindi alþingis- manna og framhaldsskólakennara. Vill ekki einhver starfsmanna Al- þingis finna nauðsynleg gögn handa Pétri svo að hann geti farið að reikna eitthvert kvöldið þegar hann er búinn að sitja fundi Alþingis all- an daginn? - Ég treysti DV til þess að ljá honum rúm fyrir niðurstöð- urnar. Flokkum til framtíðar? Karen skrifar: Inn um bréfalúg- una hjá mér var hent inn plakati frá Sorpu með yfir- skriftinni Flokkun- artafla - Flokkum til framtíðar. Þar var kennt hvernig maður skyldi flokka sorpið á heimilinu og nánar tilgreint hvað á að vera í hverjum flokki - allt frá bylgjupappa til skótaus og hjól- barða. Ekki óskýr bæklingur og nokk- uð vel upp settur. En, guð hjálpi manni! Er þetta framtíðin? Á nú að fara að skikka okkur til að flokka sorpið eins og þeir gera í Svíþjóð. Ég myndi aldrei gera þetta sjálfviljug. Og ég er viss um að þá yrðu menn skyld- aðir til að kaupa tilskilda poka eða tunnur. Nóg er að greiða fyrir sorp- tunnurnar. Þetta er ekki til fagnaðar hér á landi. Höldum núverandi fyrir- komulagi og látum það nægja. Gott hjá Ólafi Reykvisk kona sendi þennan pistil: Ég get nú ekki lengur orða bundist yfir hræsni þeirra sem gagnrýna það að forseti okkar tekur unnustu sína með í ferðalög til útlanda. Hvað á svona yfirdrepskapur að þýða nú á tímum? Er ekki bara nóg að þau hafa ákveðið að eyða ævinni saman? Þó kirkjan hafi einhvem timann troðið þvi inn i kenningu sína að fólk þurfi hennar blessun og samþykki til að sofa saman þá er það orðið úrelt. Þetta gerði kirkjan eingöngu til að ráða yfir fólki. - Gott hjá Ólafi Ragn- ari að sýna að við á íslandi erum ekki múlbundin á þennan hátt. Kennarar í vörn Gisli Magnússon skrifar: Kennarar í framhalds- skólum hafa stigið örlaga- ríkt skref með því að fara í verk- fall, því eng- inn veit hvort það stendur leng- ur eða skemur. Það mun hins vegar vera almannarómur að verkfallið sé afar óvinsælt svo vægt sé til orða tek- ið. Ríkið hefur ekki tök á að semja við kennara á þeim nótum sem þeir setja á blað. Langt í frá. Kennarar virðast nú hafa fengið bakþanka af öllu sam- an og segjast ekki vilja útiloka skammtímasamning. Vonandi lýkur verkfallinu brátt á einhverjum þeim grunni sem tryggt getur eðlilegt skóla- hald nú þegar. Að öðrum kosti verður ástandið óviðráðanlegt. Kennarar eru ábyrgir fyrir því. Hún gat séð af hundsfylli Kristín Árnadóttir skrifar: „Hún gat séð af hundsfylli / hún gat léð eitt rúmbæli / hún var kona hress við veg / hún var kona rausnarleg." - Þessi húsgangur að vestan kemur oft upp í hugann þegar maður les um menn sem eru að „gefa“ einhverjar smágjaflr til líknarmála, tækjakaupa og það með „pompi“ og „prakt“, myndbirtingu og tilheyrandi. Því gefa ekki máttarstólpar þjóðfélagsins, fyr- irtæki og aðrir góðærisprelátar eitt- hvað umtalsvert til líknarmála t.d. svo að gagn sé að? Margir bíða enn eftir Samherjamanninum hólpna sem seldi sinn hlut á „réttum" tíma. Og fleirum sem rakað hafa saman fé á lotteríi og lausagangi fjármálanna, allt á kostnað þjóðfélagsins í heild. - Jæja, þeir um það, en stórmannlegir eru þeir ekki. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11,105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Dagfari________________________________________________________________________________ Ólýðræðislegur fáránleiki „Það þarf að kenna þessu liði aö vinna,“ sagði einn örfárra góðvina Dagfara þegar fregnir bárust af „ekki“-úrslitum bandarísku forsetakosninganna í vikunni. „Svo kunna þessar hálfvitar ekki einu sinni að telja. Að þeir skuli ekki skammast sín að kalla þessa hörmung lýðræðisþjóðfélag." Þetta er eflaust sá tónn sem heyra má víða hjá fólki sem furðar sig á vandræðagangi Ámeríkana við að fá botn í forsetakjör sitt. Það sem sómakæra íslenska kjósendur furð- ar kannski mest er að atkvæðamagn skipti hreint ekki öllu máli varðandi það hver verði kjörinn til að sitja sem forseti í húsinu hvíta næstu fjögur árin. Þannig geti A1 Gore hæg- lega lotið í lægra haldi þrátt fyrir að hafa um- talsvert fleiri kjósendur á bak við sig en keppi- nauturinn Bush. Reyndar hafa íslenskir kjósend- ur örlita reynslu af slikum vitleysisgangi og hafa margsinnist horft upp á Framsóknarflokkinn fá miklu fleiri þingmenn í kosningum en kjörfylgi flokksins segir til um. Þar er reglum um skipt- ingu þingmanna eftir kjördæmum um að kenna. Ameríkanar eru bara svo miklu villimannslegri í slíkum útreikningum. Ef Bush hlýtur t.d. örlítinn meirihluta atkvæða í sólarríkinu Flórída, þá fylgja allir þingmenn kjördæmisins með í kaup- Þó að Sovétmennimir gömlu hafi ef til vill skrifað sjálfir á alla atkvæðaseðl- ana með vodkaglasið í annarri hendi, þá kunnu þeir allavega að telja og leggja saman, öfugt við Ameríkanana. bæti. Þar gildir lögmálið allt eða ekkert. Reyndar virðist allt velta á úrslitum í þessu merkilega ríki. Þar er þegar búið aö telja í tvígang á vélræn- an hátt, en enn bíður heimurinn spenntur eftir úrslitum. Þrátt fyrir allt er löngu ljóst að A1 Gore er með mikið meira fylgi á landsvísu en Bush, það skiptir bara ekki máli. í Banda- ríkjunum líkt og á íslandi eru það reglurnar sem gilda. Hafi menn ákveðið að búa til hringavitlausar reglur um kjördæmakerfl, þá gilda þær hvað sem tautar og raular og hvað sem allri skynsemi líður. Ekki er laust við að góðvinur Dagfara hafi fengið vægt áfall, ef ekki snert af „bráð- kveddu", yfir að í fyrirmyndarríkinu í vestri skuli hið „lýðræðislega" kosninga- kerfi vera jafn fáránlega ólýðræðislegt og raun ber vitni. Svo voru þessir ágætu menn vestur þar að gera grín að kosningum i Sov- étríkjunum sálugu, þar sem forkólfamir voru iðulega með sín 99% atkvæða í kosingum. Þar gilti þó allavega á pappírunum reglan um að meirihlutafylgi þyrfti til að forseti næði kosn- ingu. Þó Sovétmennirnir gömlu hafi ef til vill skrifað sjálfir á alla atkvæðaseðlana með vod- kaglasið í annarri hendi, þá kunnu þeir allavega að telja og leggja saman, öfugt við Ameríkanana. Þetta gerðu þeir skammlaust þó vel slompaðir væru - og voru ekki lengi að því. Spyr sá sem ekki veit -SQRFA^: Bæklingur frá Sorpu Guö hjálpi manni, er þetta framtíöin? Krakkar í MR Læra þrátt fyrir verkfall.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.