Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2000, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
9
DV
Útlönd
Landbúnaðarráðherrar ESB leyfa fiskimjöl í fóður svína og alifugla:
Hálfur sigur fyrir fiski-
mjölsframleiðendurna
Landbúnaðarráðherrar Evrópu-
sambandslandanna ákváðu á síð-
ustu stundu á fundi sínum í gær að
leyfa áfram notkun fiskimjöls í fóð-
ur svina og alifugla, framleiðend-
um fiskimjöls á fslandi og víðar á
Norðurlöndunum til mikils léttis.
Fiskimjöl verður þó ekki leyfi-
legt í fóður nautgripa, ekki frekar
en beina- og kjötmjöl sem var bann-
að í sex mánuði. Bannið gengur í
gildi um áramótin og er tilgangur-
inn að berjast gegn útbreiðslu
kúariðu sem talin er berast í naut-
gripi með dýramjöli.
Að sögn fréttaritara norska
blaðsins Aftenposten i Brussel
voru allir málsaðilar í Brussel, þar
á meðal framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins, sammála um að
ekki væri nein hætta á að kúariða
bærist með fiskimjöli.
Innan Evrópusambandsins höfðu
Danir og Bretar eindregið lagst
gegn því að fiskimjöl yrði bannað í
allt fóður nema fiskafóður, eins og
upphafleg tillaga fyrir fundi land-
búnaðarráðherranna gerði ráð fyr-
ir.
„Þetta er hálfur sigur og er ekki
jafnalvarlegt og upphaflega stóð
til,“ segir landbúnaðarsérfræðing-
urinn Steinar Svanemyr, fulltrúi í
norsku sendinefndinni hjá ESB, í
samtali við fréttaritara Aftenpost-
en.
Hann segir að niðurstaða fundar
Kúabændur mótmæla
Franskir kúabændur kveiktu elda í borginni Nantes í vesturhiuta Frakklands í
gær. Mótmælunum var ætlað að vekja athygli landbúnaðarráðherra Evrópu-
sambandsins sem funduðu í gær um kúariðu og leiðir til að stemma stigu
við útbreiðslu hennar. Ráðherrarnir ákváðu á fundinum að banna allt dýra-
mjöl í fóöur nautgripa en fiskimjöl verður áfram gefið svínum og hænsnum.
ráðherranna sé mikilvægur al-
mannatengslasigur þar sem áður
hafi fiskimjöl og annað dýrafóður
verið sett undir sama hatt.
Danskir sjómenn líta svo á að öll
þessi læti þar sem fiskimjöl og
kúariða voru spyrt saman séu að-
eins fyrsta lotan í stríði við önnur
lönd Evrópusambandsins sem
vildu stöðva fiskiðnaðinn í Dan-
mörku.
„Ég átti von á því að sjávarút-
vegsráðherrar ESB myndu taka
sönsum og ekki gera fiskimjölið
óverðskuldað að blóraböggli í vit-
leysunni um kúariðuna. En
ákvörðun ráðherranna um að ekki
megi nota fiskimjöl i fóður jórtur-
dýra sendir enn röng skilaboð,"
segir Bent Rulle, formaður dönsku
sjómannasamtakanna, í samtali við
dönsku fréttastofuna Ritzau.
Auk bannsins á notkun bein- og
kjötmjöls í allt dýrafóður ákváðu
landbúnaðarráðherrarnir einnig í
gær að ESB myndi greiða fyrir og
slátra öllum nautgripum eldri en 30
mánaða, sem setja átti í fæðukeðj-
una og sem ekki hefur verið kann-
að hvort sýktir eru af kúariðu.
Kúariða er talin valda nýju af-
brigði af heilarýrnunarsjúkdómin-
um Creutzfeldt-Jakob í mönnum.
Sá sjúkdómur er banvænn. Rúm-
lega áttatíu sjúklingar hafa látist af
völdum hans í Bretlandi og tveir í
Frakklandi.
Forseti í vanda
Jacques Chirac forseti hefur hingaö
til neitað að tjá sig um greiðslurnar
sem flokkur hans fékk.
Fjölmiðlar krefja
Chirac svara um
mútumálið
Eftir að fyrrverandi hægri hönd
Jacques Chiracs Frakklandsforseta
var sett í gæsluvarðhald á föstudag-
inn vegna gruns um mútuþægni
hefur forsetinn verið undir þrýst-
ingi um að greina frá sínum þætti í
málinu. Leiðandi fjölmiðlar og
stjórnmálamenn kröfðust þess í gær
að forsetinn útskýrði hversu mikið
hann hefði i raun vitað um spilling-
armálið í sínum eigin flokki,
Gaullistaflokknum. Chirac var yfir-
borgarstjóri í París þegar flokkur
hans krafðist aukagreiðslna af verk-
tökum sem vildu fá verkefni hjá
borginni. Talið er að fénu hafi með-
al annars verið varið til kosninga-
baráttu Chiracs þegar hann bauð
sig fram til forsetaembættisins.
Chirac hefur hingað til neitað að
tjá sig um málið og sagt að hann
væri upptekinn vegna leiðtogafund-
ar Evrópusambandsins.
Það sem viðskiptavinurinn vill
þegar hann verslar fyrir jólin!
og sölunámskeið stendur yfir.
Skráning á þessi vinsælu þjónustu
Námskeið haldin um allt land.
kringlunni 4-12
104 Reykjavík
simi 588 1000
fax 588 1060