Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Page 11
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 11 I>V Skoðun Tölvur og aukin stéttaskipting í liðinni viku hélt ég því fram hér á þessum stað að netvæðing heims- ins og þó sérstaklega aukin net- verslun ógnaði tekjustofnum hins opinbera. En hætturnar eru fleiri með aukinni tölvuvæðingu. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni í mínum huga að hið opinbera þurfi að stokka upp spilin og leita nýrra leiða við að fjármagna þá þjónustu sem almenn samstaða er um að veitt skuli. í slíkri uppstokkun fel- ast einnig ómæld tækifæri, ekki sist ef okkur tekst að læra af þeim mis- tökum sem gerð hafa verið í skatt- heimtu og uppbyggingu opinberrar þjónustu. En eins og ætíð þegar ný tækni ryður sér til rúms fylgja hættur auknum og nýjum tækifærum. Fyr- ir okkur íslendinga eru hætturnar þar verður Netið með öllum sínum kostum og göllum einn drifkraftur- inn, eða hreinlega um eðlilega þró- un efnahagslífsins. Hlutfallsleg eft- irspurn eftir vel menntuðu vinnu- afli mun aukast, raunar margfaldast á næstu árum og áratugum. Þekk- ingarsamfélagið krefst þess að upp- lýsingarnar - þekkingin - verði nýtt með hagkvæmum hætti, hvort held- ur við að hanna bíla, í verðbréfavið- skiptum eða við stjórnun fyrir- tækja. Vel menntað vinnuafl Menntun eða menntunarstig okk- ar íslendinga hefur aukist á undan- fornum árum en þrátt fyrir aukið framboð af vel menntuðu vinnuafli eru vísbendingar um að launabilið hafi aukist - einmitt vegna þess að öflunar eða viðskipta. Þannig verð- ur staða þeirra sem standa höllum fæti enn verri en ella, þeir hafa tak- markaðri upplýsingar almennt og litla möguleika til að nýta sér net- viðskipti, sem eiga a.m.k. sam- kvæmt kennisetningunni að skila viðskiptavinum sínum lægra vöru- og þjónustuverði. Og það eru einmitt þeir sem lökust hafa kjörin sem geta haft hlutfallslegan mestan hag af viðskiptunum. Netnotkun íslendinga virðist vera almennari og meiri en annarra þjóða. Sú staðreynd ætti að auð- velda okkur að grípa til þeirra að- gerða sem nauðsynlegar eru tO að koma í veg fyrir að tækniþróunin leiði til aukinnar stéttaskiptingar. En mestu skiptir þó að samstaða ná- ist um róttæka uppstokkun á alþjóðavæðingu mun gjörbylta hug- myndum okkar um hagkerfið - hvernig það starfar og þó einkum hvernig við öflum upplýsinga um starfsemi þess. Ég er sjálfur einn þeirra sem held þvi fram að opin- berar hagtölur sýni í besta falli ákveðna tilhneigingu og að ekki sé hægt að byggja á þeim til að taka skynsamlegar ákvarðanir aðrar en almennar í peninga- og ríkisfjármál- um. Þegar viðskiptin færast æ meira yfir á Netið munu vandamál hagfræðinga verða enn meiri en áður. Hugmyndir okkar um t.d. við- skiptajöfnuð verða úreltar þegar útilokað er að fylgjast með uppruna viðskiptana - hver veitir þjónust- una og hver kaupir. Og aftur mun hugtak okkar um gjaldmiðla gjör- 'íslflSillií jafnvel enn meiri en fyrir aðrar þjóðir þó við séum einnig á margan hátt betur i stakk búnir en aðrir til að kljást við þær. Stéttaskipting Við Islendingar höfum oft stært okkur af því að hér sé lítil ef nokk- ur stéttaskipting. - Launamunur er hér minni en víðast annars staðar. Þetta mun breytast ef við hyggjum ekki að róttækum breytingum - byltingu á íslensku menntakerfi. Við höfum raunar þegar séð að launamunur hefur aukist á undan- fömum árum og sá munur mun halda áfram að aukast eftir því sem þörfin fyrir vel menntað fólk eykst. 1 skorti hækkar verðið - lögmál sem allir ættu að þekkja. Hér skiptir í raun engu hvort við tölum um nýja-hagkerfið, sem er orðið tískuorð hagfræðinga yfir tækni- og þekkingarsamfélagið, en Laugard Óli Björn Kárason ritstjóri hlutfallsleg eftirspurn hefur aukist meira en aukning framboðsins. Ekkert bendir til annars en að þessi munur muni halda áfram að aukast, að minnsta kosti virðist mér ís- lenskt menntakerfi ekki vera í stakk búið til að auka framboðið af menntuðu fólki, hvort heldur er á sviði tölvutækni, viðskipta, líftækni eða á öðrum sviðum. Vandinn sem við stöndum hins vegar frammi fyrir er sá að tekju- kerfi hins opinbera, sem ber langstærsta hluta kostnaðarins af menntakerílnu, kann að vera ógnað af uppgangi netviðskiptanna, eins og ég reyndi að sýna fram á fyrir viku hér á þessum stað. Ef við ætlum okkur að búa í frjálsu samfélagi en um leið koma í veg fyrir að launamunur fari ekki „úr böndunum" verður að tryggja greiðan aðgang að góðu mennta- kerfi sem „framleiðir" vel menntað fólk sem er tilbúið og hefur hæfi- leika til að nýta þekkingu til efna- hagslegra framfara. Þetta leysir þó ekki vandann sem kann að blasa við til skamms tima - vanda sem Netið hefur eða er að skapa. Staðreyndin er sú að aðgang- ur og/eða notun á Netinu virðist annars vegar fara eftir menntun og hins vegar tekjum. Þvi meiri mennt- un og því hærri tekjur því líklegra er að fólk noti Netið til upplýsinga- Vid íslendingar höfum oft stœrt okkur af því að hér sé lítil ef nokkur stéttaskipting. - Launa- munur er hér minni en víðast annars staðar. Þetta mun breytast ef við hyggjum ekki að róttækum breytingum - byltingu á íslensku menntakerfi. menntakerfinu sem hefur verið lam- að að stórum hluta í margar vikur vegna verkfalla framhaldsskóla- kennara. Menntakerfi sem er reglu- lega tekið úr sambandi vegna vinnudeilna mun ekki skila þvi sem ætlast er í framtíðinni. Úrelt hugtök Nú þegar ný öld gengur í garð get- um við horft bjartsýn fram á veginn - tækifærin eru alls staðar ef við berum gæfu til að nýta möguleik- ana. En framfarirnar munu einnig breyta miklu i umhverfinu og breyta hugmyndum okkar um þjóð- félagið og hagkerfið. Netvæðingin samhliða aukinni breytast og smátt og smátt taka yfir- þjóðlegir gjaldmiðlar yfir í viðskipt- um manna á milli. Þetta leiðir til þess að sjálfstæð peningastjórnun hér á landi, sem og í flestum öðrum löndum, verður úr sögunni. Þannig færist stór hluti efnahagsstjómar- innar úr landi til aðila sem við höf- um ekkert að segja yfir, hvort held- ur það er Seðlabanki Bandaríkj- anna með Alan Greenspan í farar- broddi - þó hann verði Sjálfsagt all- ur þegar þar að kemur - eða til ann- arra, jafnvel einkarekinna seðla- banka. Og það mun fleira breytast þar með. Mælingar á verðlagi - verð- bólgu - verða afstæðar. Útreikning- ar á hagvexti verða ónákvæmari en nú er ef ekki útilokaðir. Og hag- fræðilegar úttektir á launaþróun og launamun verða enn ónákvæmari en áður. Og einmitt þess vegna skiptir miklu að staðið sé vel að menntun - menntun er besta og ör- uggasta leiðin sem viö getum farið til að tryggja að fólk fái notið tækni- framfaranna. Ég er ekki einn þeirra sem lifir í útópískum hugmyndaheimi þar sem stéttaskipting er engin. Stéttaskipt- ing og launamunur eru eðlileg í frjálsu samfélagi, - spurning snýst aðeins um að byggja upp þjóðfélag tækifæranna. Og þar skiptir menntakerfið mestu. Skoðanir annarra Kosningar bara byrjunin „Þó svo að Serbía hafi á Þor- láksmessu upplif- að kosningasigur DOS-bandalags- ins, sem hlaut 65 prósent atkvæð- anna, er ljóst að þingkosningarnar sýna fram á stórt vandamál í serbneska þjóðfélaginu þar sem einræði hefur ríkt og stríð geisað. Tíu árum á eftir öðrum A- Evrópulöndum ætlar Serbía nú að ná því sem landið hefur misst af í þróun efnahags og stjórnmála. Það segir svolítið um sterka stöðu Milosevics að flokkur hans skyldi fá nær 14 prósent atkvæðanna og að róttækir og þjóðemissinnar skyldu fá þriðja hvert atkvæði. Nú er brautin rudd fyrir leiðtoga DOS, Zoran Djindjic, að taka við forsætis- ráðherraembættinu i Serbiu. Það hefur sýnt sig eftir fall annarra ein- ræðissljórna að uppgjör við fortíð- ina hreinsar loftið. Bæði Kostunica forseti og Djindjic hafa sagt að sækja eigi Milosevic til saka heima fyrir vanstjórn og spillingu. Þetta er dæmi um hversu sterk þjóðerniss- stefnan í Serbíu er enn. Serbía á langt i land með að verða hluti af stöðugri Evrópu.“ Úr forystugrein Aftenposten 27. desember. Skortur á moskum „Það var stór dagur fyrir þá 149 þúsund múslíma sem héldu sam- komur í gær í tilefni þess að föstu- mánuðinum lauk. Þeir komu hins vegar saman í moskum á baklóðum og í yfirgefnum byggingum þar sem enn er skortur á alvörumoskum í Danmörku. Hefði einhver vænst breytinga frá nýjum kirkjumálaráð- herra hefur sá sami orðið fyrir von- brigðum við fréttum gærdagsins. Ráðherrann vísaði ekki bara á bug stuðningi ríkisins við byggingu moskasem ef til vill er skiljanlegt. Hann sagði múslíma sjálfa verða að semja við sveitarfélög sem árum saman hafa komið í veg fyrir að moskur yrðu reistar." Úr forystugrein Politiken 28. desember. Góðar og slæmar fréttír Það var löngu timabært að bæði ísraelar og Palest- ínumenn skuli nú tilbúnir að hugsa til framtíðar - en þar með er ekki sagt að þrátt fyrir fögur áform muni finnast lausn á vandamálunum. Góðu fréttirnar eru þær að bæði ísraelar og Palestínumenn eru á já- kvæðan hátt að reyna að finna raunhæfa lausn á vandanum. Vondu fréttirnar eru þær að Palest- ínumenn geta ekki sætt sig við að allir flótamenn fái ekki að snúa aft- ur. Úr forystugrein Hufvudstads- bladet 29. desember. Ætlar sér um of Donald Rums- feld, sem George W. Bush, forseta- efni, valdi til að gegna embætti varnarmálaráð- herra, er reyndur embættismaður sem stýrði eitt sinn vamarmála- ráðuneytinu af miklu ágæti en undir öðrum kring- umstæðum sem einkenndust af kalda stíðinu. Tengsl Rumsfelds við baráttuna fyrir eldflaugavarnar- kerfi ýtir undir áhyggjur um að Bush ætli sér um of í þeim málum of fljótt. Að öðru leyti er Rumsfeld jarðbundinn maður sem á sér ekki sérstaka framtíðardrauma rétt eins og aðrir sem munu fara fyrir örygg- ismálunum, t.a.m. Condoleezza Rice, Colin Powell og Dick Cheney. Úr forystugrein New York Times 29. desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.