Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2000, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 Helgarblað DV Lynne Rogers dreymdi um að verða flugfreyja: Fékk svar við frá morðingja Lynne Rogers hafði sent hundruð umsókna í þeirri von að fá drauma- starfið. Lynne, sem var 17 ára og bjó í London, langaði til að verða flugfreyja og starfa um allan heim. Fyrir hádegi þriðjudaginn 3. sept- ember 1991 virtist sem draumur henn- ar kynni að vera að rætast. Maður nokkur hringdi heim til hennar og bauð henni í atvinnuviðtal í tilefni umsóknar hennar. Hann sagði að um væri að ræða flugfreyjustarf um borð í einkaþotu sem hefði bækistöð í Gattwick. Launin væru tvöfalt hærri en þau sem Lynne fékk á skrifstof- unni þar sem hún starfaði. Unga stúlkan gat varla sofið vegna eftirvæntingar. En faðir hennar, Der- ek að nafni, var tortrygginn. Honum þótti þetta hljóma næstum því of vel til að vera satt og bauðst því til þess að fylgja dóttur sinni í atvinnuvið- talið. En Lynne mátti ekki heyra minnst á það. Áður en hún fór að heiman fullviss- aði hún fóður sinn og systur sína, Suzanne, um að hún myndi hringja heim strax að loknu viðtalinu um kvöldmatarleytið. En ekkert heyrðist í Lynne um kvöldið og heldur ekki um nóttina. Derek Rogers fór þá til lögreglunnar og tilkynnti hvarf dóttur sinnar. Lögreglan var sammála fóðurnum um að ástæða væri til að hafa áhyggj- ur. Lynne átti nefnilega reiðhest sem var hennar líf og yndi. Hún hafði aldrei vanrækt hann. Það gerði hún hins vegar kvöldið 4. september. Líkfundur í skóginum Hugboð lögreglunnar reyndist rétt. Tæpri viku eftir að Lynne Rogers hvarf fannst lík hennar í skógi nálægt Crownborough í Sussex. Taska Lynne var horfin en hún var enn í finu dragtinni og hvítu blússunni sem hún hafði klæðst áður en hélt af stað í við- talið. Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið kyrkt með berum höndum og það tæpum sólarhring áður en hún fannst. Hvar hafði hún verið frá því að hún fór að heiman á miðvikudegin- um og hvarf í miðborg London þar til hún var myrt á sunnudeginum? Moröinginn Scott Singleton haföi óstjórnlegan áhuga á öllu sem tengdist flugi. „Unga stúlkan gat varla sofið vegna eft- irvæntingar. En faðir hennar, Derek að nafni, var tortrygg- inn. Honum þótti þetta hljóma næstum því of vel til að geta verið satt og bauðst því til að fylgja dóttur sinni í atvinnuvið- tallð." Hin myrta hafði ekki verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Það sáust hins vegar merki um ofbeldi á höfði henn- ar og öxlum. Einnig var greinilegt að morðinginn hafði bitið hana í aðra kinnina. Lögreglan hóf nú rannsókn á því hvernig morðinginn hefði komist yfir atvinnuumsókn Lynne. Hún hafði sent hundruð umsókna til mögulegra vinnuveitenda. Þeir voru allir yfir- heyrðir en ekkert benti til sektar þeirra. Lögreglan aflaði sér því upp- lýsinga um fyrirtækið African Safaries. Það var ekki lengur til en hafði enn pósthólf. Hugsanlegt var að umsókn Lynne hefði verið fjarlægð úr pósthólfinu en hver hafði tekið hana? Yfirheyrslur í Gattwick báru engan árangur. Enginn þekkti til African Safaries. Lögreglan var hins vegar heppnari á Charing Cross brautar- stöðinni. Þar kvaðst leigubílstjóri hafa tekið eftir Lynne Rogers vegna þess hversu vel hún hefði litið út í dökku dragtinni sinni með síða, ljósa hárið. Hann sá hana tala við mann á brautarstöðinni. Tveir skólapiltar höfðu séð Lynne setjast inn í bláan Vauxhall á The Strand. Þeir höfðu ekki tekið eftir númeri bílsins. Undarlegt samtal í símaklefa Einn sjónarvottur í viðbót kvaðst hafa séð mann í símaklefa í Crawley i Sussex. Sjónarvotturinn, sem beið fyr- ir utan klefann, hafði heyrt manninn tala við einhverja Lynne um fyrirtæki í Gattwick og starf í einkaþotu. Sjón- arvottinum þótti undarlegt að samtal um slíkt starf skyldi fara fram i síma- klefa og ekki frá skrifstofu fyrirtækis. Auk þess leit maðurinn í simaklefan- um ekki út fyrir að vera í bransanum. Hann var órakaður og í krumpuðum fótum. Vitnisburður bónda, sem á sunnu- dagsmorgninum hafði séð bláan bíl við skóginn þar sem lík Lynne Rogers fannst daginn eftir, reyndist mikil- vægur. Bóndann grunaði að veiðiþjóf- ur væri á ferð og skráði hann þess vegna hjá sér númer bílsins. Þegar bóndinn heyrði fréttir af morðinu á Lynne hafði hann strax samband við lögregluna. Harðneitaði öllu Bíllinn var í eigu Scott Singleton frá Crawley. Singleton, sem var 36 ára, harðneitaði að hafa verið í sam- bandi við Lynne. Hann kvaðst heldur ekki hafa komið nálægt Charing Fórnarlambið Lynne Rogers gat varla sofiö vegna eftirvæntingar fyrir viötaiiö um flugfreyju- starf um borö i einkaþotu. Hún kom ekki heim eftir atvinnuviötaliö sem hún fór í. I London Tveir skólapiltar sáu Lynne setjast upp í biáan Vauxhall í þessari götu í London. Cross stöðinni og skóginum þar sem líkið fannst. Skólapiltarnir þekktu hins vegar aftur bláa bílinn og leigu- bílstjórinn staðfesti að Singleton væri maðurinn sem hann hafði séð á tali við Lynne á járnbrautarstöðinni. Þetta voru þó ekki nægar sannanir gegn Singleton. Ekki heldur sú stað- reynd að Singleton hafði haft pósthólf í grenndinni sem tilheyrði African Safaries. Þræðir á dragt Lynne voru sams konar og þræðirnir i gólfteppinu í stofu Singletons þar sem stúlkunni hafði líklega verið haldið fanginni. Þræðirnir sýndu hins vegar aðeins að Lynne hefði verið í íbúð Singletons. Þeir sönnuðu ekki að hann hefði mis- þyrmt stúlkunni og myrt hana. Lög- reglan þurfi eitthvað haldbærara sönnunargagn. Það hlyti að vera eitthvað sem kom að gagni í sárinu á kinn Lynne. Singleton hafði neitað að láta gera af- steypu af gervitönnum sínum. En lög- reglunni barst óvænt aðstoð. Singleton hafði skömmu fyrir morðið látið smíðan nýjan góm þar sem hann hafði týnt þeim gamla. Tannlæknir- inn, sem smíðaði tennurnar, hafði geymt afsteypu af þeim. Venjulega fleygði tannlæknirinn strax afsteyp- um en þar sem Singleton var erfiður sjúklingur og kvartaði oft þótti tann- lækninum ráðlegra að geyma af- steypuna ef hann þyrfti á henni að halda máli sínu til stuðnings. Gómurinn kom upp um hann Þegar lögreglan bar afsteypuna saman við tannfórin á kinn Lynne kom í ljós að þau voru eftir Scott Singleton. Hann var fundinn sekur fyrir rétti og dæmdur í lífstíðarfang- elsi. í ljós kom að maðurinn hafði óstjórnlegan áhuga á öllu sem snerti flug. Á heimili hans var fjöldi bóka um flug og hann hafði komið sér upp fólskum flugmannsbúningi og húfu. Það kom aldrei í ljós hvernig dagar Lynne liðu frá þvi að hún hvarf þar til lík hennar fannst í skóginum. Skaut keppinautinn Fyrrverandi eiginmaðurinn hefndi sín grimmilega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.