Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Page 6
6 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 DV Fréttir Starfsfólk aö störfum í NASCO Tekist er á um endurreisn rækjuverksmiöjunnar og íbúar bíöa milli vonar og ótta. stofnun miklum fjármunum á við- skiptum við NASCO og segir sagan að Agnari sé m.a. kennt þar um. Harrn tók þó ekki við framkvæmdastjóm rækju- verksmiðjunnar fyrr en siðustu mán- uði fyrirtækisins. Fleiri persónulegir þættir eru nefndir í tengslum við trún- aðarbrest Agnars og Kristins H. Bolvíkingum blöskrar Víst er að mörgum er farið að blöskra það sem menn vestra kaila ein- leik og einræðistilburði fyrrum bæjar- fulltrúa í Bolungarvik og núverandi formanns stjómar Byggðastofnunar. Af þessum sökum hafa sumir hlutað- eigandi viljað láta lýsa Kristin vanhæf- an til að fjaUa um málefni NASCO í Bolungarvik. Kristinn H. Gunnarsson hefur ekki svarað hringingum DV og því hafa ekki fengist viðbrögð hans við fúllyrð- ingum heimamanna. Forstjóri stofnun- arinnar, Theodór Bjamason, hefur hins vegar nefnt að vandinn snúist m.a. um óleyst deilumál vegna veðrétt- ar. Þar hafí einn veðhafl, Sjóvá-Al- mennar tryggingar hf., viljað að víkj- andi lán Byggðastofnunar víki fyrir öðram lánum sem á eftir koma. Skipti það verulegu máli varðandi þaö hvað menn fá á endanum greitt upp í sinar kröfur. Þessi röksemd kolféll við yfirlýsingu Ólafs B. Thors, lögfræðings Sjóvár-Al- mennra, í DV í gær um að tryggingafé- lagið væri tilbúið til að falla frá mála- ferlum ef samkomulag næðist á milli heimamanna og Byggðastofnunar. Sagði hann einnig að félagið styddi til- lögur heimamanna að lausn málsins. Hann taldi að einhver hnútur væri á málinu hjá Byggðastofnun sjálfri. Böndin berast því enn og aftur að formanni stjómar Byggðastofnunar sem virðist í raun hafa lausn málsins í hendi sér. Hörð átök DV hefur vitneskju um að hart hafl verið tekist á um málið á milli for- mannsins og heimamanna. Ljóst er hins vegar að á meðan stjóm Byggða- stofnunar fundar ekki formlega um málið og tekur ekki afstöðu þá gerist ,C Wjjh'&L § jyjí Innlent fréttaljós Hörður Kristjánsson blaðamaður ekkert. Þá benda Bolvíkingar einnig á að fyrirtækið sé í raun einskis virði á meðan starfsemin liggur niðri. Bygg- ingar og tæki verði því engum að gagni. Vísa menn til mismununar varðandi lausn mála á Ólafsfirði, þar sem miklar byggingar vora seldar eft- Engin svör fást við hugmyndum heimamanna um NASCO: Reiðin kraumar Kristinn H. Gunnarsson Séra Karl V. Matthíasson smiðjunnar og bjóst bæjarstjóri þá við fundi morg- uninn eftir í stjóm Byggðastofnunar. Bæði DV og Morg- unblaðið fjölluðu um fundinn eins og orðinn hlut, en af honum varð þó ekki. Stjóm Byggðastofnunar var ekki kölluð saman til að ræða þessar hugmyndir Bolvíkinga, en for- stjóri stofnunar- innar sagði málið rætt innan stofn- unarinnar. Djúpstæður trúnaðarbrestur Theodór Þungt hljóð er í Bjarnason Bolvikingum vegna málsins og þykir mörgum sem formaður stjómar Byggða- stofnunar, Bolvik- ingurinn Kristinn H. Gunnarsson, „dragi lappimar í málinu" eins og einn viðmælandi Ólafur DV orðaði það. Kristjánsson Fullyrt er við DV af áhrifamönnum vestra að ástæðan sé djúpstæður trún- aðarbrestur á milli Kristins H. Gunn- arssonar og Agnars Ebenezerssonar, annars aðaleiganda AG- fjárfesta í Bol- ungarvík. Kristinn H. vilji hreinlega ekki fá Agnar inn í rekstur fyrirtækis- ins á nýjan leik. Er málið rakið allt aft- ur til innkomu Bakka hf. í Hnífsdal og kaup á rekstri Þuríðar hf. Það fyrir- tæki kom næst á eftir Ósvöra hf. að rekstri í húsinu eftir gjaldþrot Einars Guðfmnssonar hf. Agnar kom þá fyrst að málinu ásamt Aðalbimi Jóakims- syni í Bakka. Síðar seldu þeir Þorbimi hf. í Grindavík frystihús og rækjuverk- smiðju ásamt kvóta sem þá hvarf á braut og var færður yfir á skip Þor- bjamar. Agnar koma svo að nýju að málum NASCO fyrir um ári síöan og tók þá til við umfangsmiklar breyting- ar á verksmiðju sem vora taldar vera famar að skila árangri er fyrirtækið fór í þrot. Eigi að síður tapaði Byggða- ir gjaldþrot til nýs félags á aðeins 2,8 milljónir króna. Byggðastofnun vilji hins vegar hundrað milljóna fyrir hús- ið í Bolungarvík. Skuldir NASCO munu i haust hafa numið um 316 milljónum króna. Reiknað var með að nýir rekstraraðil- ar legðu fram nýtt hlutafé að upphæð 60 milljónir króna. Þar af átti hlutur Bolungarvíkurkaupstaðar og Verka- lýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur að vera samtals 15 milljónir króna. Þá átti að breyta skuldum upp á 48,6 millj- ónir króna í hlutafé. Gangi Byggða- stofnun að tilboði heimamanna sem mun vera upp á 235 milljónir króna, er reiknað með að nettóskuldir á fyrir- tækinu komi til með að nema í upphafi um 90 milljónum króna. Augljós hætta Séra Karl V. Matthíasson, þingmað- ur Samfylkingarinnar á Vestfjörðum og fyrrverandi stjómarmaður í Byggðastofnun, telur að það verði að drífa verksmiðjuna í gang á meðan þama er enn fólk á lausu sem kann að vinna rækju. Hann sér þó augljósa hættu fólgna í því að gangsetja fyrir- tækið með of mikinn skuldabagga á herðunum og segir: „Það má þó aldrei láta svo miklar skuldir fylgja verk- smiðjunni að málið sé dauðadæmt í upphafi." Lárus Benediktsson, formað- ur verkalýðsfélagsins, segir timann vera að hlaupa frá mönnum. Hver dag- ur sem tapist sé milljóna virði. Klukkan tifar Bæjarstjórinn, Ólafur Kristjánsson, er varfærinn í sínum málflutningi, enda rekstur í fyrrum frystihúsi Ein- ars Guðfmnssonar hf. búinn að vera vandamál í heilan áratug. Bærinn hef- ur þegar brennt sig illa á þátttöku í rekstri í húsinu og skiljanlegt að þar á bæ reyni menn að stíga létt til jarðar. Hann vill heldur ekki styggja ráða- menn í Byggðastofnun þar sem í fá önnur hús er að venda varðandi end- urreisn fyrirtækisins. Á meðan togast er á um fjöreggið á einhverjum illskiljanlegum forsendum þá tifar klukkan á Bolvíkinga og íbúar pakka saman foggum sinum og undir- búa brottfór úr plássinu. Þá er einnig ljóst að forsvarsmenn verkalýðsfélags- ins og bæjarfélagsins era að missa þol- inmæðina enda virðist málið vera að komast í illleysanlegan hnút. Ovissa Enginn veit hvenær rækjuverksmiöja NASCO í Bolungarvík kemst aftur í gang. Byggðastofnun er sögö tefja. Mikil reiði er í Bolungarvík í garð Byggðastofnunar vegna seinagangs við að koma rekstri rækjuverksmiðju NASCO í gang á nýjan leik eftir gjald- þrotið i desember. Reiðin beinist að verulegu leyti að Kristni H. Gunnars- syni, stjómarformanni Byggðastofnun- ar. Byggist kergjan m.a. á því að stjóm Byggðastofhunar haldi ekki formlega fundi um nýjar tillögur í málinu þrátt fyrir að viðurkennt sé að staða byggð- arlagsins sé mjög alvarleg. Starfs- mönnum hefur verið haldið við efnið á þeim forsendum að búast megi við nið- urstöðu og að rekstri verði komið i gang á ný en ekkert gerist. Samkvæmt upplýsingum DV hafa einhverjir fyrr- verandi starfsmanna NASCO þegar yf- irgefið plássið og fleiri era að pakka saman og á fóram. Stjórn ekki kólluð saman Á mánudag var greint frá nýjum áformum bæjar- stjómar, AG-f]ár- festa og verkalýðs- félags um þátttöku í endurreisn verk- í Bolvíkingum - telja formann Byggðastofnunar tefja endurreisn rækjuverksmiðjunnar t'Umsiðn: Reynir Traustason netfang: sandkom@ff.ls Forðaðist meiðyrðamál Ekki er vitað /ort Mörður nmason, „óvinur þjóðarinnar núm- er eitt“, hafi verið ánægður með ís- lenska textann sem hann hafði fyrirskipaðað að sunginn yrði við lagið sem flutt verður í Evrópu- keppni sjónvarpsstöðva. Hins vegar tók Kristján Hreinsson, sem reglulega gerir úttektir á dægur- lagatextum á Rás 2, textann á tepp- ið og pakkaði honum saman. Krist- ján sagðist reyndar ætla að hafa sem fæst orð um textann til að forðast meiðyrðamál. Hann fann þó textanum allt til foráttu og sagði að heppilegra væri með tilliti til ís- lenskrar tungu að textinn við ís- lenska lagið yrði fluttur á hebresku eða einhverju öðru tungumáli. Hvort það olli svo sinnaskiptum Marðar eða eitthvað annað látum við hins vegar liggja á milli hluta en vonir standa til að „Baby“ standi sig betur en „Birta“... Óyndislegur staður Hrafn Gunn- laugsson kvik- myndagerðarmað- ur var að ræða hugmyndir um flutning Reykja- víkurflugvallar úr Vatnsmýrinni á einhverri út- varpsstöðinni og hafði ákveðnar skoðanir sem fyrr. Sem kunnugt er kynnti Hrafn stór- kostlega hugmynd um flutning flugvallarins út í Skerjafjörð í frægri sjónvarpsmynd, hugmynd sem enginn virðist þora að ræða af alvöru. Þegar umræðan barst að Keflavíkurflugvelli stóð ekki á skoðunum Hrafns, hann sagöi tæpitungulaust að Suðumesin væru óyndislegasti staður á íslandi og ekki góð ásýnd þjóðarinnar þeg- ar erlenda gesti ber að garði. Engar áhyggjur PáH Pétursson félagsmálaráð- herra kom mönn- um verulega á óvart þegar hann lýsti því yfir á dögunum að hann hefði engar áhyggjur af at- vinnulíflnu á Húsavík en miklar á Kópaskeri. Margir hrukku við enda hefur hvert áfallið af öðru riðið yfir at- vinnulifið á Húsavik á undanforn- um mánuöum og misserum. Á Kópaskeri hefur hins vegar verið sáralítið eða nánast ekkert at- vinnuleysi og ástandið raunar óvenju gott. Haft er fyrir satt að Steindór Sigurðsson, sveitarstjóri í Öxarfjarðarhreppi, sem var á leið i bíl sínum um Tjömes, hafi verið svo hissa er hann heyrði ummæli ráðherrans í útvarpinu að hann hafi næstum því misst vald á bíln- um sínum og orðið að hægja ferð- ina til að aka ekki út af. Loftur Mörgum finnst það skemmtileg til- viljim að formaður Félags flugumferð- arstjóra, sem stjórnar umferð i háloftunum, skuli heita Loftur, en sá er Jóhannsson. Þetta leiðir hug- ann að öðrum svipuðum tilviljunum eins og þeirri að Sigurjón Bláfeld skuli vera ráðunautur í loðdýrarækt. Norður á Akureyri gekk til skamms tíma um götumar Vörður Trausta- son lögreglumaður og þá muna menn eftir því þegar Jökull Bergmann komst í fréttimar fyrir ekki löngu þegar hann var að klífa jökla og þverhnípt björg í útlöndum, en sá er mikill fjallamaður...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.