Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Page 4
4
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Fréttir
DV
Hírast í hjólhýsi
- minna helst á dýr í búri, segir samstarfsmaður
Pólskir byggingaverkamenn í Grafarholti:
Hjólhýsiö í Grafarholti
Heimili tveggia Póiverja um margra mánaöa skeiö.
eru borin undir þá: „Pólverjarnir ekki viðrað vel þann tíma. Þetta er
eru búnir að vera í hjólhýsinu í til skammar," segja þeir.
minnst tvo mánuði og það hefur -EIR
Tyrklandsfararnir fengu fjöldafótabað:
Rollur fláðar í hverju tré
- sagði farþegi sem telur fulla þörf á aðgerðunum
Pólskir byggingaverkamenn,
sem hingað komu til að vinna við
nýbyggingar i Grafarholti, eru
látnir hírast í hjólhýsi sem vart
heldur vatni né vindum. Að sögn
starfsfélaga hafa Pólverjamir hírst
í hjólhýsinu í marga mánuði en fé-
lagar þeirra, sem einnig komu
hingaö til lands sömu erinda-
gjörða, búa við betri aðstæður í
herbergjum annars staðar í höfuð-
borginni.
Sem stendur búa tveir Pólverjar
í hjólhýsinu og bera þeir sig vel,
að sögn þeirra sem hafa heimsótt
þá. Þó kvarta þeir yfir vondum
veðrum en þá leikur allt á reiði-
skjálfi inni hjá þeim þar sem eru
tvö flet og ekki annað.
„Ég vorkenni þeim alltaf jafn
mikið þegar ég fer heim úr vinnu.
Þá fara þeir inn í hjólhýsið og
minna mig einna helst á dýr í
búri. Það hlýtur að vera hægt að
' búa starfsfólki betri aðbúnað en
þennan - jafnvel þótt þetta séu út-
lendingar," segir starfsmaður á
byggingasvæðinu i Grafarholti
sem alvarlega héfur íhugað að
bjóða Pólverjunum heim til sín; þó
ekki væri nema í kvöldkaffi.
„Ég kannast ekki við þetta,“ seg-
ir Ágúst Leifsson, framkvæmda-
stjóri byggingafyrirtækisins
Heimsbyggðar sem flutti Pólverj-
ana til landsins. „Við erum með
sex Pólverja í vinnu og þeir búa
allir við ágætar aðstæður að Fjarð-
arási 16 þar sem ekki væsir um þá.
Við greiðum fyrir þá flugferðir og
fæði auk húsnæðisins."
Genealogia Islandorum:
Þorsteinn
líka hættur
Þorsteinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri ættfræðiútgáfu Genealogia Is-
landorum, er hættur störfum hjá fyrir-
tækinu en hann var einn af stofnend-
um og átti um helmingshlut í fyrirtæk-
inu. Alls er því óvíst um framhald á út-
gáfustarfsemi fyrirtækisins sem blés
til mikillar sóknar fyrir ári og ætlaði
sér stóra hluti í islenskri bókaútgáfu.
Eins og fram kom í DV hefur Jóhann
Páll Valdimarsson horfið frá fyrirtæk-
inu með forlag sitt, JPV-útgáfu, og
hyggur á eigin rekstur ásamt fjöl-
skyldu sinni. Ekki náðist í Þorstein
Jónsson þar sem hann var staddur úti
á landi ásamt félaga sínum. -EIR
Byggingastarfsmenn í Grafar-
holti hrista hins vegar höfuðið
þegar orð Ágústs um Pólverjana
íslensku ferðamennirnir sem komu
frá Istanbúl i Tyrklandi í fyrrakvöld
töldu að skór þeirra hefðu ekki verið
settir i sótthreinsilög við komuna til
landsins. Halldór Runólfsson yfir-
dýralæknir hafði sagt við DV að
ferðamennirnir, sem voru rúmlega
200 talsins, myndu sæta sömu með-
ferð og farþegar frá Bretiandseyjum
þar sem gin- og klaufaveiki hefði ver-
ið staðfest í Tyrklandi.
Allmargir Tyrklandsfaranna höfðu
samband við DV í gær og báðu blaðið
um að grennslast fyrir um hvers
vegna þeir hefðu ekki þurft að stíga i
sótthrein'sibakka. Voru þeir sammála
um að þörf hefði verið á slíkri sótt-
vörn þar sem trúarhátíð múslíma
hefði staðið yflr í Istanbúl meðan þeir
dvöldu þar. Slík hátið felst m.a. í því
að kind er slátrað heima og hún mat-
reidd samkvæmt hefð.
„Það var verið að flá þarna rollur i
hverju tré og þvo vambir við hvert
hús,“ sagði einn íslensku ferðalang-
anna sem kom frá Istanbúl í fyrra-
kvöld.
„Það hefði sannarlega verið
ástæða til að grípa til sótthreinsun-
ar,“ sagði annar ferðalangur.
„Ég athugaði málið," sagði Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir við DV í
gær. „Staðreyndin var sú að fólkið
var látið ganga á dreglum sem gegn-
vættir höfðu verið í sótthreinsilegi.
Þannig varð að hafa þetta af tæknileg-
um ástæðum, að sögn talsmanns fyr-
irtækisins sem sér um sótthreinsun-
ina. Farþegamir hafa vafalaust búist
við bökkum en ekki tekið eftir dregl-
unum. Sótthreinsunin fór því fram.“
-JSS
Akureyri:
E-töflu-
sprenging
DV, AKUREYRI:
„Við erum búnir að taka meira af
e-töflum það sem af er árinu en við
gerðum allt síðasta ár,“ segir Daníel
Snorrason, deildarstjóri rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á Akureyri,
en það hefur vakið athygli að e-töfl-
ur verða sífellt umfangsmeiri þegar
fíkniefni eru gerð upptæk i bænum.
Nú i vikunni kom síðasta e-töflu-
málið upp á Akureyri. Þá fékk rann-
sóknarlögreglan fréttir af því að
flkniefnasending væri á leiðinni til
bæjarins frá Reykjavík með flugi.
Fjórir mættu á flugvöllinn til að
sækja sendinguna sem innihélt 15 e-
töflur og þeir voru allir handteknir.
Við yfirheyrslur játaði svo einn fjór-
menninganna að eiga töflurnar.
Daníel segir að þeir sem eru teknir
með e-töflur hafi nær undantekning-
arlaust komið við sögu lögreglunnar
áður fyrir fíkniefnaneyslu. Hann seg-
ir t.d. ekki óalgengt að menn sem hafi
verið í hassneyslu færi sig yfir í
sterkari efnin, s.s. e-töflurnar sem séu
að verða eitt vinsælasta fíkniefnið á
markaðnum. -gk
Loðnuveiöin:
500 þús-
und frá
áramótum
- kvótinn gæti náðst
DV, AKUREYRI:__________
Ört saxast nú á loðnukvótann og er
ekki eftir að veiða nema 192 þúsund
tonn af útgefnum heildarkvóta sam-
kvæmt upplýsingum Samtaka fisk-
vinnslustöðva síðan í gærmorgun. Þá
nam heildarveiðin á vertíðinni 626
þúsund tonnum, og þar af höfðu
veiðst 500 þúsund tonn frá áramótum
sem er með því almesta sem fengist
hefur á þessum árstima.
Menn eru i kapphlaupi við timann
og vofir sjómannaverkfallið yfir en
það á að bresta á á miðnætti 15. mars.
Verði verkfall er hætt við að um 100
þúsund tonn verði eftir af kvótanum,
en væri hægt að veiða stanslaust þar
til loðnan úr „austurgöngunni" fer til
hrygningar væri hugsanlega hægt að
ná kvótanum öllum.
I gær hafði mestum loðnuafla á
vertíðinni verið landað í Vestmanna-
eyjum eða 58.672 tonnum, á Eskifirði
57.938 tonnum, Neskaupsstað 48.377
tonnum, Grindavík 35.507 tonnum,
Akranesi 36.482 tonnum, Seyðisfirði
35.747 tonnum og á Þórshöfn 31.507
tonnum. -gk
Veöríö í kvoid
Urkomulítid á Vesturlandi
Austlæg átt, víða lO.til 15 m/s norövestan til
en annars mun hægari. Dálítil rigning eða súld
með köflum en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti
0 til 7 stig, mildast syðst.
Sólargangur og sjávarföll
mmm
REVKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 19.14 17.22
Sólarupprás á morgun 08.00 09.29
Síódeglsfló& 19.15 23.48
Árdeglsflóó á morgun 07.31 12.04
&týdngpr á va&urtáknum
— vindátt -io °4_ HITI 1°
VINDSTYRKUR i metrum i sekúndu "Nfrost HEIÐSKÍRT
o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAÐ
w w h'i
RIGNING skúrir SLYDDA SNJÓKOMA
S
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- VEÐUR RENNINGUR ÞOKA
Alft eftir vfe&ríj
I hlýrra lagi
Febrúarmánuöur er nýafstaðinn en
hann var í hlýrra lagi og þarf að fara
aftur til ársins 1994 til að finna hlýrri
febrúarmánuö. Tvö kuldaköst gerði þó,
það fyrra dagana 4.-9. og þaö síðara
hófst þ. 21. og stóð út mánuðinn. í
Reykjavík var meöalhitinn -0,2° sem er
0,6° undir meðallagi og úrkoma
mældist 80,8 mm sem er lítils háttar
umfram meöallag.
Norðaustlæg átt ríkjandi á landinu
Noröaustlæg átt, 8 til 13 m/s norðvestan til en annars hægari. Rigning
eöa súld með köflum norðan- og austanlands en annars þurrt aö mestu.
Hiti 0 til 6 stig.
TEsmm, iMtrW 1 gU J*
Vindur: /-^ r--' V 8—13 m/» ) Vindur: vL—s, 3-8 «v'» J Vindur: /J 0^0-, 3-8 m/» ^ _)
Hiti 6“ tilO* "WW Hiti 3° tilO* Hiti 2° til 4°
Noröaustlæg átt, 8 tll 13 m/s norövestan tll en annars hægari. Rigning eöa súld meö köflum noröan- og austanlands en annars þurrt aö mestu. Austlæg átt, 3 tll 8 m/s, skýjaó með köflum og hltl i krlngum frostmark. Hæg noröaustlæg eóa breytilag átt og kólnar í veðrl. Litils háttar skúrlr e&a slydduél á Vesturlandl en annars úrkomul'itið.
vmmm
AKUREYRI þokumóöa 3
BERGSSTAÐIR hálfskýjaö 2
BOLUNGARVÍK hálfskýjaö 1
EGILSSTAÐIR 1
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 5
KEFLAVÍK hálfskýjaö 5
RAUFARHÖFN þoka 2
REYKJAVÍK skýjaö 7
STÓRHÖFÐI hálfskýjaö 6
BERGEN rigning 5
HELSINKI alskýjað 0
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 4
ÓSLÓ snjókoma 1
STOKKHÓLMUR 2
ÞÓRSHÖFN súld 7
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 4
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM súld 9
BARCELONA skýjað 14
BERLÍN þokumóöa 15
CHICAGO heiöskírt -4
DUBLIN skýjað 11
HALIFAX skýjaö —6
FRANKFURT skýjaö ii
HAMBORG skýjaö 12
JAN MAYEN snjókoma -2
LONDON skýjað 13
LÚXEMBORG rigning 8
MALLORCA skýjaö 17
MONTREAL -1
NARSSARSSUAQ hálfskýjaö -12
NEW YORK rigning 3
ORLANDO skýjað 7
PARÍS skúr 12
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON skýjaö 2
WINNIPEG alskýjaö -11