Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 49
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 57 I>V Tilvera Afmælisbörn Sharon Stone 43 ára Sharon Stone, sem verður 43 ára S dag, fæddist bænum Meadville í Pennsylvaníu. Snemma kom í ljós nokkur þokki og afburðagáfur. Eftir stutta viðdvöl í fegurðarsamkeppnum hóf hún módelferil i New York og lék oft í sjónvarpsauglýsingum. Árið 1980 fékk hún sitt fyrsta hlutverk í mynd sjálfs Woodys Allens, Star- dust Memories. Það var mjög smátt i sniðum og gerði lítið fyrir feril hennar sem næstu árin var að mestu bundinn sjónvarpinu. Paul Verhoeven gerði gæfumuninn fyrir feril Stone þegar hann tók hana fram yfir Juliu Roberts og Michelle Pfeiffer í aðal- hlutverkið á móti Michael Douglas í Basic Instinct. Alex Kingston 38 ára Ein af aðalleikkonunum í Bráðavaktinni (ER), Alex Kingston, verður þrjátíu og átta ára i dag. Hún fæddist í London og var skírð Alex- andra. Eftir hefðbundið nám tók við nám í Kon- unglega leiklistarskólanum (RADA) þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Ralph Fiennes. Þau giftu sig 1993 en skildu 1997. Þá hafði Alex Kingston leikið bæði á sviði og í sjónvarpi. í kjölfar skilnaðarins dreif hún sig vestur um haf þar sem hún fékk fljótlega stórt hlutverk í ER. Kingston er gift aftur og á samkvæmt fréttum að eiga sitt fyrsta barn í mars. Stjörnuspá Gildir fyrir sunnudaginn 11. mars og mánudaginn 12. mars Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.i: Spa sunmitlagsins Láttu ekki glepjast af gylliboði sem þú færð. Samkeppnin er hörð í kringum þig og þér hleypur kapp í kinn. Happatölur þínar eru 7,18 og 36. Þú þarft að taka afstöðu í erfiðu máli. Ekki hika við að leita eftir að- stoð ef þér finnst þörf vera á henni. Vinur þinn endurgeldur þér greiða. Hrúturinn (21. mars-19. aprill: Spá sunnudagsins Spá sunnudagsins í''y Margt hefur setið á >hakanum hjá þér og þú r/ ættir aö fá einhvem til að kippa því í liðinn. Minni háttar vandamál eyðileggur kvöldið. Þér gengur allt i haginn og ekki er laust við að þú finnir fyrir öfund í þinn garð. Láttu sem þú vitir ekki af því. Happatölur þínar eru 8,11 og 33. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: Spa sunnu ’ Þessi dagur verður sá besti í langan tima nema þú takir ranga ákvörðun á lykilaugnabliki. Tombóluvinningiu- er í sjónmáU. Eitthvað spennandi og mjög und- arlegt gerist í dag. Þú skalt ekki láta álit þitt 1 ljós nema beðið verði sérstaklega um það. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Spa sunnudagsins 8 Einhver sem þú þekkir snýr baki við þér og þú verður fúll. Þú ættir að vera heima og horfa á sjónvarpið. Spá mánudagsins Þér finnst þú dáhtið einn í heiminum um þessar mundir. Þetta ástand varir ekki lengi þar sem þú kynnist mjög áhugaverðri'persónu næstu daga. Nautið (20. aaríl-20. maí.l: r\i Þú nærð frábærum xl árangri í máh sem þú væntir einskis af. Breyt- ingar eru fram undan á heimilinu. Aldraður ættingi gleðst við að sjá þig. Þér finnst þú hafa aUt of mikið að gera. Hvemig væri aö reyna að virkja fleiri í starfið í stað þess að gera afit sjálfur? Tvíburarnir (21. maí-21. iúni): )v™™ i Dagurinn í dag verður '***£/ leiðinlegur og ekkert \ merkHegt gerist en í kvöld verður smáupplyföng til þess að þú kætist. Vertu sérstaklega aðgætinn í öUu sem varðar peninga. Þú kynnist einhverjum sérstaklega skemmti- legum og áhugaverðum. Liónið (23. iúlí- 22. ágústi: I / Þú ert að undirbúa ferð en rj Æ eitthvað gerist og ferðin dregst á langinn. Undir lok dagsins verður allt í lagi með máhð og rólegt kvöld fram undan. Hjón og pör eiga sérlega góðar stund- ir saman og huga að sameiginlegri framtíð. Það er svo ótal margt hægt að gera ef maður er hugmyndaríkur. Vogin 123. sept-23. okt.C Spa sunnudagsins Hlutur, sem þú hélst að / T*^ þú hefðir týnt, finnst og \tesJ' þú verður mjög ánægður. Kvöldið verður ánægju- legt. HappaUtur þinn er grænn. Spá mánuriagsins Nú er svo sannarlega óþarfi að láta sér leiðast, það er svo mikið um að vera í kringum þig. Ferðalag er í undirbúningi og þú hlakkar mjög tíl. Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi: Spá sunnudagsins | Litir verða aðalum- ræðuefnið í kunningja- hóp þínrnn í dag, smá- rifrildi skýtur upp kolUnum. Annars verður dagurinn mjög venjulegur. GamaU vinur kemur i óvænta heim- sókn síðari hluta dags og segir þér heldur en ekki undarlegar fréttir. Happatölur þínar eru 9,17 og 26. Mevian (23. ágúst-22. sept.i: Spá sunnudagsins ^rCSt^ 1 'TVm Kringumstæðumar \v p- eru dáUtið snúnar og ' þú veist ekki hvemig þú átt að snúa þér í ákveðnu máU. Ekki vera svartsýnn. Láttu sem ekkert sé þó að einhverj- ir séu að finna að við þig. Það er ekkert annað en öfund yfir vel- gengni þinni sem býr þar að baki. Snorðdreki (24. okt.-21. nóv.i: Spa sunnudagsins Þér hættir til að vera idálítið öfgafuUur og of fljótur að dæma aðra. Þú þarft að temja þér meiri stillingu á öUum sviðum. Vinir þinir era ekkert sérlega skemmtílegir við þig. Það gæti verið að þú þyrftir að vera dáUtiö skemmtUegri sjálfur. stelngeitin (22. des.-19. ianl: Spa sunnudagsins Einhver þér nátengdur á í vanda sem ekki sýnist auðvelt að ráöa fram úr. Að athuguðu máU er tU auðveld lausn. Þú ferð út að skemmta þér og kynn- ist einhverjum sérstaklega spenn- andi. Ekki er óhklegt að eitthvert framhald verði á þeim kynnum. Trúbador og flakkari Jo Jo hefur ferðast mikiö síðastíiðna tvo áratugi og spiiað fyrir fólk á knæpum og á götuhornum í Bandaríkjunum og Evrópu. Að eiga sér draum - engin spurning - ég ætla að kaupa mér bleikan kadillak og krúsa inn í sólarlagið Trúbadorinn geðgóði sem þekktur er undir nafninu Jo Jo er kominn aft- ur til landsins eftir nokkurra mánaða viking á tónlistarsviðinu. Undanfarna áratugi hefur hann ferðast vítt og breitt um heiminn og framfleytt sér með því að spila á veitingahúsum og götuhornum. Hann er íslendingum þó að góðu kunnur því hann kemur alltaf heim annað slagið og tekur lagið. Jo Jo er brosmildur að vanda, einn af þessum mönnum sem virðast hafa endalausa trú á mannkyninu og alltaf geta séð björtu hliðarnar. Jo Jo, sem slettir mikið, segist hafa fengið „nikk- neimið“ í Bandaríkjunum fyrir rúm- um tuttugu árum þegar hann var að spila þar. „Ég var að þvælast í Georg- íu, Alabama og Flórída og það fengu allir einhver svona nöfn, eins og Big Buster eða The Boss og þetta festist bara við mig.“ Endaði alltaf með gítarinn „Ég hef oft verið spurður að því hvernig ég nenni að standa í þessu ár eftir ár með litlum eða engum Qár- hagslegum ávinningi. Ég reyndi á sín- um tima að feta hefðbundna leið og falla inn í normið en það bara gekk ekki og ég endaði alltaf með gítarinn í höndunum. Annars vil ég ekki gera mikið úr þessu, þetta er lifstíll. Mér finnst gaman að vera flakkari og bó- hem og nenni ekki að vinna hefð- bundna vinnu. Ég sé ekki eftir einu momenti, þetta er búið að vera rosa- lega gaman.“ Á síðustu tveimur ára- tugum hefur Jo Jo spilað um alla Evr- ópu og víða í Bandaríkjunum og hann nýtur mikilla vinsælda í Þýskalandi og í Danmörku. „Ég bjó í Danmörku um tíma og spilaði á knæpum og á Strikinu. Einu sinni var ég að spila á Strikinu þegar Bruce Springstean kom til mín og fór að djamma með mér, atvikið vakti mikla athygli og við komumst á marg- ar forsíður og í sjónvarpið," segir Jo Jo hlæjandi, „og ég sem fila músíkina hans ekkert sérstaklega." Gaf mér gulldollar „Það er ótrúlegt hvað maður hittir mikið af fólki á svona ferðalögum og ég er löngu hættur að leggja það á minnið. Ég hitti til dæmis einhverja Hollywood-stjörnu í fyrra á kaffihúsi þar sem ég var að spila og hann gaf mér gulldollar, „but I don’t remember who he is“. Ég spilað líka einu sinni með bestu rokcabilly-hljómsveit Rússa sem heitir The Svindlers og það var mjög skemmtilegt. Ég kem alltaf heim annað slagið því hér er „homebase" og næstu vikurnar ætla ég að spila á Dubliner og fleiri stöðum. Það getur verið að ég fari aft- ur til Danmerkur í haust og kannski verður gefinn út diskur með frum- saminni tónlist eftir mig þar á næst- unni. Ég er líka að klára efni með Guðmundi Steingríms og fleirum sem á að fara á demó sem ég ætla að senda til Bandaríkjanna og víðar. Þetta verða tólf til þrettán lög sem eiga að gefa „good picture” af því sem ég er að gera. Ef þetta gengur eftir verður diskurinn gefinn út undir nafninu J.J James sem mér finnst hljóma vel eins og J.J. Cail, „you know“, ég meina „why not“.“ Óendanlegir mögulelkar Jo Jo segir að líf listamannsins hafi aldrei verið betra, aUar dyr opnar og allir tilbúnir til að hjálpa. „Þeir sem nenna að leggja vinnu í ferilinn geta lifað góðu líf á -iistinni, það þarf eng- inn að vorkenna sér fyrir að vera listamaður í dag. Ég er ekki að tala um að menn komist á toppinn - það eru náttúrlega fáir sem geta það - ég er að tala um að hafa í sig og á. „You know“ ég hef aldrei verið að reyna að meika það og dregið það á langinn að gefa út disk. Það er svo gaman að eiga drauma og maður á ekkert flýta sér um of í því að láta hann rætast. Mér hefur aldrei þótt efnið mitt nógu þroskað til að gefa það út. Ég held að ég sé eins og Edison. Hann átti sér draum um að búa til ljósaperu en áður en honum tókst það fann hann fimm þúsund aðferðir hvernig á ekki að gera það. Sannast sagna eru möguleikarnir úti í hinum stóra heimi óendanlegir þó að fólk hér heima sjái þá ekki alltaf. Mér finnst íslendingar dálítið aðþrengdir í hugsun og í samskiptum sín á milli. Það er rosalega „tens“ andrúmsloft hér og mikið ójafnvægi en um leið mikil gróska. Mig er reyndar farið að langa að vera meira heima og leiðin til Keflavíkur er alltaf að verða lengri, „I am getting older“ og farinn að mikla hana fyrir mér.“ Þegar Jo Jo er spurður að lokum hvað hann ætli að gera þegar hann slær i gegn ljómar andlitið á honum eins og sólinn og hann skellihlær: „Gera, það er engin spuming. Ég ætla að kaupa mér bleikan kadillak og krúsa inn í sólarlagið.” -Kip Spila fyrir Olsen Stuttu eftir að Olsenbræður sigruðu í Eurovision mættu þeir á knæpu þar sem Jo Jo var að spila og skemmtu sér prýðilega. W <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.