Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Qupperneq 40
48
LAUGARDAGUR 3. MARS 2001
Tilvera
DV
tmmmmmm
Öryggiá
ferðalögum
Ferðamenn geta tryggt öryggi sitt
á ferðalögum með því að skipu-
leggja ferðina fyrirfram og kynnast
aðstæðum á áfangastað áður en lagt
er af stað. Þetta má gera með þvi að
lesa ferðabækur og kynna sér
ástandiö í landinu á netsíðum hestu
dagblaða landsins sem ætlunin er
að heimsækja. Einnig er hægt að
nálgast ýmsar gagnlegar upplýsing-
ar hjá www.state.gov/.
Ein besta leiðin til að komast í
vandræði er að hegða sér eins og
túristi, reynið því að blanda geði
við innfædda og láta eins og þið
séuð heima hjá ykkur. Ferðamenn
ættu alltaf að láta einhvern nákom-
inn vita hvert þeir eru að fara og
hvar er hægt að ná í þá.
Suðurskauts-
landið
Fyrirtæki í
ferðaþjónustu
eru sífellt að
leita að nýjum
og spennandi
stöðum til að
bjóða viðskiptavinum sínum upp á.
Nokkrar erlendar ferðaskrifstofur
eru famar að reyna fyrir sér og
bjóða upp á ferðir til Suðurskauts-
landis. Ferðirnar eru dýrar á mæli-
kvarða meðaljónsins og menn verða
að vera i góðu formi áður en þeir
skella sér í slíka ferð til þess eins að
glápa á mörgæsir á ísnum.
Gjafir í Kína
Þeir sem
ætla sér að
ferðast til Kína
ættu að hafa
með ýmislegt
smálegt til að
gefa leiðsögu-
mönnum og
öðrum sem
leggja þeim lið.
Hlutir eins og
sælgæti, pennar, stuttermabolir og
snyrtivörur njóta mikilla vinsælda.
Varast skal að gefa bækur og tíma-
rit þar sem kínversk stjórnvöld lita
á slikt sem áróður og getur komið
fólki í vandræði.
Aukin vellíðan
Til að auka vellíðan sina í löng-
um flugferðum
ættu farþegar
að forðast katfi
og áfengi þar
sem drykkim-
ir valda vökva-
tapi úr líkam-
anum. Velja
skal þægileg
ferðaföt og kvenfólk ætti að forðast
háhælaða skó. Einnig á fólk að nota
hvert tækifæri til að teygja úr sér
og fá sér göngutúr sé þaö hægt. -kp
Kaupmannahöfn
Góð gisting,
á besta staö.
^MILY HOT^
Valberg
Sími +45 33252519
ísl. símabókanlr milli kl. 8 og 14.00.
Fax +45 33252583
www.valberg.dk
Net tilboð
Skíöabrekkur viö allra hæfi
Angistarfull hugsun um hversdagleika kemst ekki að og þreyttur hugurinn hvilist í háskaleiknum á stórsvigsskíðunum.
I
írfl isfn j . u 1 -
V I ' I
Skíðaævintýri í Brentafjöllum:
Atakamikil ánægjuferð
Á tímum tækifæra og leikja nú-
tímamannsins er oft úr vöndu að
ráða hvemig á að ráðstafa frítím-
anum. Sólarfríin eru mörgum
gleðistund, að vera við sjó í sól og
yl. Frítími manna er öðm fremur
stund slökunar og upplifunar and-
ans. í öllum rólegheitunum á sól-
bekknum sækja á mann áleitnar
hugsanir vinnu og argaþras sem
átti að skilja eftir heima.
I skíðaferð er allt með öðru
sniði, það er átakaferð í þeim
skilningi að dagurinn er stanslaus
átök við skíðin og síðan sigrar á
bröttum brekkum, þannig að dag-
urinn liður í leik og líkamlegu
puði sem heldur manni helteknum
alla ferðina. AngistarfuII hugsun
um hversdagleika kemst ekki að
og þreyttur hugurinn hvílist í
háskaleiknum á stórsvigsskíðun-
um.
Madonna Di Campiglio
Skíðaferð til Madonna Di
Campiglio á Ítalíu, undir rótum
Brentafjalla, er öllum þeim sem
þangað koma ógleymanleg. Á þess-
um vetri buðu ferðaskrifstofurnar
upp á flug beint til Verona, en það-
an var farið til fjalla á rútum og
tók sú ferð þrjá og hálfan tíma.
Ekið var um ægifagurt landslag
með hrikalegum tignarleik fjalla
Ánægöir skíöakappar
íslendingarnir héldu hópinn og nutu ferðarinnar í sameiningu.
Ógleymanleg baunasúpa
Sumum ferðafélaga okkar þótti
lítið til matseldar koma á Hótel
Splendid, en gleyma sennilega
seint þeim baunasúpum alls konar
sem boðið var upp á og undirrituð-
um þótti góðar, að minnsta kosti
forvitnilegar.
Madonna-skíðasvæðið er hríf-
andi í þessum tignarlegu fjöllum.
Allar aðstæður eru eins og best
verður á kosið. Þá viku sem við
völdum okkur var heiðríkja upp á
hvern dag, snjór hefur ekki verið
betri i tuttugu ár þar um slóðir,
þannig að þeir fjögurhundruð ís-
lendingar sem fóru þessa viku til
Ítalíu luku upp einu orði um ólýs-
anlega ferð.
-GVA
Sigri hrósandi
Anna Ágústsdóttir var sigri hrósandi eftir aö hafa farið niður svarta brekku þrisvar sinnum, en þær eru erfiðastar.
Merkingar i brekkunum eru til fyrirmyndar og svæðið vel skipulagt.
og gljúfra sem lætur engan ósnort-
inn.
í Madonna bjuggum við á Hótel
Splendid, ágætis hóteli sem bauð
upp á hálft fæði, þ.e.a.s. morgun-
mat og kvöldmat. í skiðaferðum
þeim sem við hjónin höfum áður
farið höfum við aðeins tekið hótel
með morgunmat en farið út að
borða á kvöldin. Þessi
tilhögun sem viö nú
völdum okkur gerði
kvöldstundina miklu
afslappaðri. Maður
gekk að sínum diski
eftir klukkan átta að
kvöldi, eftir að búið var
að fara í gufubaðið,
með tilheyrandi snúlli
við sjálfan sig. Öll
kvöldin var þríréttuð
máltíð borin fyrir okk-
ur.
Ég er þeirrar skoðun-
ar að bragðlaukana eigi
að hafa með í ferðalög
og borða það sem boðið
er upp á í því landi sem
maður sækir heim.
Hamborgara, pitsur og
kjúklinga getur maður
borðað hvar sem er.
Hótel Splendid
Maður gekk að sinum diski eftir klukkan átta að
kvöldi, eftir að búið var að fara i gufubaðið, með
tilheyrandi snúlli við sjálfan sig.