Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 11
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001 11 I>V Skoðun Skattar og stríð Laugard Fyrir skömmu rakst ég á fróðlega grein í breska dagblaðinu The Fin- ancial Times eftir Niall Ferguson, prófessor í sagnfræði, þar sem hann heldur því fram að nær allir skattar sem lagðir eru á almenning og fyrir- tæki hafi verið lagðir á til að standa undir stríðsrekstri.. Greinin er byggð á nýrri bók eftir Ferguson, sem kom út fyrir nokkrum dögum - The Cash Nexus: Money and Power in Modern World. Ég hef alla tíð haft nokkurn áhuga á skattheimtu ríkisins og því vakti greinin athygli mína. Ekki skemmdi að fyrir um 12 árum gekk ég með þá hugmynd að hægt væri að einkavæða útgáfu peninga - galdmiðla - enda ætti einokun rík- isins á peningaútgáfu rætur sínar í nauðsyn einræðisherra fyrri alda að fjármagna stríðsrekstur eða kom- ast yfir ódýrt fjármagn. Skrifaði ég nokkuð um þetta áhugamál, enda búinn að gefa upp vonina að opin- berum seðlabönkum tækist aö reka skynsamlega stefnu í peningamál- um. Þá voru að baki ár mestu óráðsíu í sögu lýðveldisins. Reynsla annarra þjóða af stjórnun peninga- mála var svipuð, þó fæstar þjóðir hafi þurft að sæta viðlíka stjórn- leysi og við íslendingar. Óstjórn peningamála hafði leitt af sér gríð- arlega tilfærslu eigna frá almenn- ingi til ríkissjóðs og fyrirtækja - mesta eignaupptaka sögunnar fór fram í skjóli dulinnar skatt- heimtu óðaverðbólgunnar. Meiri hiutr kopars... Þegar ég gældi við hugmynd um einka- væðingu peningaút- gáfu, sem flestir telja fráleita, benti ég á að Halldór Snorrason hafi að likindum ver- ið fyrsti íslendingur- inn sem áttaði sig á af- leiðingum þess að kon- ungar fái einir að slá mynt. Halldór var í hirð Haralds konungs harðráða og þegar þjón- ustu hans við konung var lokið fékk hann að launum peninga. Hall- dóri þótti hins vegar lítið til þeirra peninga koma, þar sem konungur haföi veriö heldur spar á silfrið en peningunum er þannig lýst: „Var meiri hlutr kopars, þat besta kosti, at væri helmings silfr.“ Halldór fleygði peningunum frá sér, enda verðmæti þeirra ekki það sem konungur vildi vera láta. Haraldur harðráði var því búinn að upp- götva þá list sem rikis- valdið hefur oft leikið síðan eftir; að rýra verð- gildi peninga. Noregskon- ungur gat leyft sér að þynna myntina út með kopar og með því að spara silfrið hagnaðist hann vel. Útþynnt silfur og of- framboð á seölum hefur sömu af- leiðingar í för með sér. íslenski seðlabankinn beitti í raun sömu aðferðum og Noregskonungur með skelfilegum afleiðingum fyrir almenning. 560-falt Ég var sannfærður um að ríkinu væri ekki treystandi til þess að mis- nota ekki það vald sem er samfara einokun á peningaprentun. Það myndi fyrr eða síðar, af pólitískum ástæðum, freistast til þess að gefa út of mikið af peningum, sem leiðir til verðbólgu. Sannfæringuna sótti ég til reynslu okkar íslendinga. Á 28 árum, frá 1960 til 1988, hafði verðlag á íslandi nær 560-faldast (56.000% hækkun) og fátt benti til þess að ábyrg peningamálastefna með sjálf- stæöum seðlabanka væri á næsta leiti. Þess vegna taldi ég nauðsynlegt að afnema einok- un seðlabanka á peningaút- gáfu og inn- leiða þar samkeppni. Almenning- ur og fyrir- tæki gætu síðan valið sér þann gjald- miðil best væri treystandi. Þar með gæti ríkisvaldið ekki hagað sér af sama ábyrgðarleysi við stjórnun peninga- mála og reynslan sýndi. Stjórnvöld gætu aðeins stundað óráðsíu í skjóli einokunar. Langflestir hagfræðingar telja seðlabanka gegna gríðarlega mikil- vægu hlutverki og fáar ef nokkrar kennslubækur í hagfræði draga slíkt f efa. Þannig hefur verið alið á þeirri trú að einokun á peningaút- gáfu hafi orðið til vegna hagfræði- legrar nauðsynjar. Svipað er að segja um skattheimtu, en Niall Ferguson prófessor sýnir fram á annað, sem er i takt við það sem ég komst að með einok- un peningaútgáfu fyrir liðlega áratug þegar gælt var við hugmyndir sem eiga sér ekki mik- inn hljómgrunn. Fjármögnun stríðsrekstr- ar Hér er ekki rúm til að fjalla ítar- lega um skrif Nialls Fergusons. Hann bendir á að É I se m T Sannfœringuna sótti ég til reynslu okkar íslend- inga. Á 28 árum, frá 1960 til 1988, hafði verð- lag á íslandi nœr 560- faldast (56.000% hækk- un) ogfátt benti til þess að ábyrg peningamála- stefna með sjálfstœðum seðlabanka væri á nœsta leiti. ara stríðsrekstur hafi fyrst og fremst valdið því að fjárþörf ríkisins jókst og til að standa undir kostnaðinum hafi skattkerfi, eins og við þekkjum, tekið að mótast. Nær allir skattar, sem hækka verð á vöru og þjónustu eða lækka ráðstöfunartekjur einstaklinga og fyrirtækja, eiga uppruna sinn í nauðsyn þess að fjármagna striðs- rekstur. Tollar voru teknir upp vegna stríðskostnaðar sem og vöru- gjöld og söluskattar. Stríð neyddi ríkið til að taka upp beina skatt- heimtu af eignum og tekjum. Bretar ruddu leiðina að nútímatekjuskatti til að fjármagna stríðsrekstur við Frakka. Skuldasöfnun ríkisins og einokun á peningaútgáfu eiga einnig rætur að rekja til stríðs- rekstrar að því er Niall Ferguson bendir á. í gegnum nær alla sög- una höfum við búið í stríðsríkj- um en ekki velferðar- ríkjum skattheimt- an var aldrei ætluð til að standa undir velferðarþjófé- lagi. Þetta hefur breyst á und- anföm- tugum og löngun ríkisins til auk- innar skattheimtu er frem- ur af pólitískum toga en hernaðarlegum. Og eftir því sem þeim fjölgar sem greiða ekki tekjuskatt (aðeins einn af hverjum þremur skattgreið- endum á íslandi greiðir í raun tekjuskatt) og skriffinnskubákn- ið stækkar, eykst hin pólitíska krafa til aukinnar skattheimtu. Niall Ferguson er langt frá því að vera talsmaður þess að einokun ríkisins á peningaútgáfu verði af- numin eða skattar lagðir niður á friðartímum. Þvert á móti telur hann að seðlabankar og skatt- heimta, sem eiga hins vegar rætur í fjármögnun striðsrekstrar, hafi haft mikilvæg og góð áhrif á efna- hagsþróun. Greinilegt er að hann er þeirrar skoðunar að við séum betur sett nú vegna þessara „hlið- aráhrifa" sem stríðsglaöar ríkis- stjómir og einræðisherrar fyrri alda höfðu. Skiptir engu hvort um er að ræða mannauðinn eða póli- tísk kerfi lýðræðis. Hugmyndir og röksemdir Nialls Fergusons eru athyglisverðar og eiga erindi til allra sem áhuga hafa á stjórnmálum og hagsögu. Þegar rætt er um tilgang og hlutverk stofnana ríkisins er nauðsynlegt að átta sig á því úr hvaða farvegi þær hafa sprottið, hvort heldur það er seðlabanki eða flókið bákn skatt- heimtumannsins. Að varpa ljósi á söguna getur hjálpað okkur til að komast að skynsamlegri niðurstöðu í deilumálum samtímans. Óli Björn Kárason ritstjóri Skattalækkanir Bush bússkatturinn aflagður muni alríkis- stjórnin eiga meira en nóg til að borga reikninga sína, auka útgjöld til menntunar og varnarmála, útvíkka Medicare sjúkratryggingarnar, koma í veg fyrir gjaldþrot almannatrygg- ingakerfisins og borga mestan hluta skulda ríkissjóðs. Ef spár forsetans ganga eftir þarf hann ekki að óttast ákvæði sem kveður á um að skatta- lækkunum í framtíðinni verði slegið á frest ef ekki verður lengur tekjuaf- gangur á fjárlögum. Ef hann hefur rangt fyrir sér verður ákvæðið nauð- synlegt til að koma í veg fyrir halla- rekstur ríkissjóðs sem þjakaði efna- hagslífið svo lengi.“ Úr forystugrein Houston Chronicle 8. mars. Raunveruleg hætta „Hættan sem stafar af hreyfingum herskárra múslíma í Mið-Asíu er raunveruleg en allt of ýkt af stjórn- völdum í þessum heimshluta og öðr- um, þar á meðal Rússlandi, Kína og Bandaríkjunum. Fjöldahandtökur og gróft ofbeldi gegn fólki sem liggur undir grun um að styðja öfgasinna í þessum heimshluta sem er að meiri- hluta islamskur, gerir ógnunina sem ætlað var að kveða niður bara enn meiri. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu hinnar virtu stofnunar ICG sem sagt var frá i blaðinu í gær. Kúg- unun er sérstaklega harkaleg í Ús- bekistan þar sem litið er á það sem gagnrýni á kerfið að vera með sítt skegg eða klút á höfðinu." Úr forystugrein Politiken 8. mars. Pólítík að skrípaleik „Það var óþægi- legt að sjá einræð- isherra Simbabve, Robert Mugabe, snæða kvöldverð með Chirac Frakk- landsforseta og for- sætisráðherra Belgíu, Guy Ver- hofstadt, fyrr í vikunni. Samtímis sem tekið var á móti Mugabe með opnum örmum og honum lofað meiri fjárhagsaðstoð frá Evrópu- sambandinu krafðist mannréttinda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, Mary Robinson að Mugaby tryggði sjálfur að mannréttindi í Simbabe yrðu virt en þar eru stjórnarandstæðing- ar, blaðamenn og lögmenn beittir of- beldi, pyntaðir og ofsóttir. Öryggis- lögregla hans og svokallaðir upp- gjafa hermenn halda landsbyggð- inni í jámgreipum. Chirac og Ver- hofstadt hefðu ekki átt að taka í hönd Mugabes. Þeir hefðu átt að handtaka hann þegar eftirrétturinn var borinn fram. Það gerðist hins vegar ekki. í staðinn var stórpólitík gerð að skrípaleik. Verhofstadt kvaðst gjaman vilja að Mugabe gerðist sáttasemjari í deilunni í Kongó þótt að hann hefði sjálfur sent her til svæðisins." Úr forystugrein Aftonbladet 8. mars. Nei í Sviss vlð ESB „Um síðustu helgi fengum við staðfest á ný að Noregur er ekki eina „öðruvísilandið" í Evrópu. Meö óvæntum meirihluta höfnuðu Svisslendingar tillögu um að hefja strax viðræður við ESB um aðild. Löndin þrjú, sem ekki vilja ESB-að- ild, Sviss, ísland og Noregur, eru öll með pólitíska sjálfsmynd sem ein- kennist af heitri þjóðfemistilfmn- ingu og varnarstöðu sem ekki sam- ræmist auðveldlega hugsununum um samkennd ESB. í fyrra sam- þykktu kjósendur í Sviss tvíhliða samkomulag við ESB. Aðild að ESB virðist ekki jafn nauðsynleg þar sem mörg praktísk vandamál eru leyst. Einungs meðákvörðunin er ekki nægjanleg ástæða fyrir aðild." Úr forystugrein Aftenposten 6. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.