Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 50
58
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Tilvera
DV
■ SOLPOGG AFTURAGAUKNUM
Aftur koma strákarnir úr hljómsveit-
inni Sóldögg á Gauk á Stöng í kvöld
til aö troða upp og sjá um góöa fíl-
inginn hjá fólkinu í Reykjavík. Aliir
i eru velkomnir.
I Böli
‘ ■ HARMONIKUBALL I ASGARÐI
! Félagarnir í Harmoníkufélagi Reykja-
, víkur leika fyrir dansi á harmoníku-
ballinu sem haldiö veröur í kvöld í
Ásgaröi, Glæsibæ. Ragnheiöur
Hauksdóttir syngur og gamanið
hefst klukkan 22.
Klassík
■ BACH I BREIÐHOLTSKIRKJU
1 tilefni 250. ártíöar Johanns
Sebastians Bachs verða haldnir tón-
leikar í Breiöholtskirkju klukkan 17
í dag. Organistinn er Þjóöverjinn og
íslandsvinurinn Jörg E. Sonder-
mann. Aðgangseyrir er 900 krónur
og rennur hann til Hjálparstarfs
kirkjunnar.
■ BURTFARARPRÓF í SALNUM
Það veröa skemmtilegir tónleikar í
Salnum, Kópavogi, í dag í tilefni
burtfararprófa frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík. Gunnar Leó Leós-
son flautuleikari og Þorsteinn Gauti
Sigurösson píanóleikari leika verk
eftir Hoffmeister, Reinecke, Hjálmar
H. Ragnarsson, Gaubert, Ibert og
Hindemith. Tónleikarnir hefjast
klukkan 14.
Leikhús
■ ABIGAIL HELDUR PARTI
Leikritiö Abigail heldur partí eftir
Mike Leigh veröur sýnt á Litla sviöi
Borgarjeikhússins klukkan 19 í
kvöld. Örfá sæti eru laus.
■ PLATONOV Á Herranótt, leikfélag
Menntaskólans í Reykjavík sýnir í
kvöld klukkan 20 leikritið Platonov
eftir Anton Tsjekhov í Tjarnarbíói.
Kabarett
■ LINUDANS í KOPAVOGINUM
Ekki missa af Línudansæfingunni
sem hefst klukkan 22 í kvöld í
Lionssalnum, Auöbrekku 25 í Kópa-
vogi. Allir línudansarar og kúrekar
eru velkomnir. Elsa sér um tónlist-
ina. l-ha.
Opnanir
■ HÉIMSkÁÚfSLÓNblNtJNÁÐS-
LEGU I HAFNARHUSI
í dag veröur opnuð sýningin „Heim-
skautslöndin unaöslegu" í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Sýn-
ingin lýsir meö myndrænum hætti
lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís-
lendingsins Vilhjálms Stefánssonar
en er um leið kynning á umhverfi,
menningarheimum og málefnum
noröurslóða. Sýningunni lýkur 3.
júní.
■ UM ÞAÐ AÐ VERA FISKUR í
HAFNARBORG
Þýsk-norska listakonan Barbara
Vogler opnar í dag sýningu í Sverris-
sal í Haffiarborg og Apóteki Hafnar-
borgar Á sýningunni veröa innsetn-
ingar og teikningar sem gerðar eru
meö blýanti, litblýanti og pastellitum
á handunninn pappír. Sýningin
stendur til mánudagsins 26, mars
og Hafnarborg er opin alla daga frá
kl. 11-17 nema þriöjudaga.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
aigga^eikur, nýtt barnaleikrit eftir Guörúnu Helgadóttur, verður frumsýnt í Möguleikhúsinu á morgun:
Arátta að vilja deila
lífinu með öðru fólki
lí f iö
Sjeikspír eins
og hann leggur
sig
Leikritið Sjeikspír eins og
hann leggur sig verður sýnt í
Loftkastalanum klukkan 20 í
kvöld. Örfá sæti laus.
Klúbbar
Skuggaleikur heitir nýtt bamaleik-
rit eftir Guðrúnu Helgadóttur sem
frumsýnt verður í Möguleikhúsinu á
morgun. Langt er um liðið síðan Guð-
rún sendi frá sér fyrra bamaleikrit
sitt, Óvita, sem heiilaði böm og for-
eldra fyrir um 20 áram. Það leikrit var
tekið upp að nýju 10 ámm síðar tU að
leyfa nýrri kynslóð bama að njóta
þess, auk þess sem það hefúr verið
sýnt víðs vegar um landið.
Binni þarf að leggja ýmislegt á sig tU
að hjálpa Ugga að vera venjulegur
drengur og af því lærir hann mikið og
að lokum telur Uggi óhætt að verða aft-
ur skuggi, enda kann hann því miklu
betur.
Ruslafatan fær ekkert
Eftir Guðrúnu liggja margar bama-
bækur, auk barnaleikritanna tveggja
og skáldsögunnar fyrir fúUorðna sem
kom út fyrir síðustu jól. Að auki hefúr
Guðrún látið tU sín taka í stjómmálum
aUt þar til fyrir fáum árum. Margir
hafa því velt fyrir sér hvenær Guðrún
hafi haft tíma tU að skrifa.
„Þegar dugnaðarkonur em í eró-
bikk og aUs konar klúbbum," svarar
Guðrún að bragði en heldur svo áfram
í meiri alvöra. „Ég hef náttúrlega aðal-
lega skrifað á sumrin þegar þing hefur
ekki setið. Annars vinn ég þannig að
ég geng með í óratíma og fer ekki að
skrifa fyrr en ég veit nákvæmlega
hvað ég er að fara að gera, upphaf og
endi og eiginlega aUt þar á mUli. Ég get
þess vegna unnið nokkuð hratt þegar
ég sest en aðdragandinn að því er lang-
ur. Sumir vinna þannig að þeir setjast
niður og byrja bara að skrifa og henda
kannski öUu sem þeir skrifa þann dag-
inn. Ruslafatan mín hefur aldrei feng-
ið mikið.“
Stjómmálamanni og rithöf-
undi ekki blandaö saman
Guðrún segist aldrei hafa átt í erfið-
leikum með að sameina pólitUcina og
skrifdmar. „Ég er svoddan draumóra-
maður að mér finnst þetta í raun vera
gremar af sama meiði. Það er þessi
árátta manns að vUja endUega deila lífi
sínu með öðm fóUd, annars væri mað-
ur ekkert að þessu, hvorki að skipta
Fyrsta barnaleikritið í meira
en 20 ár
„Ég hef ekki skrUað fyrir leikhús
siðan ég skrUaði Óvitana. Mig hefur
reyndar oft langað tU þess en einhvem
veginn hefur aldrei orðið úr því,“ seg-
ir Guðrún.
Óvitar vora sýndir á stóra sviði
Þjóðleikhússins og Guðrúnu fannst
býsna vandasamt að skrifa leikrit inn
í svo lítið rými sem Möguleikhúsið er.
„Það mega vera svo fáir leikarar, helst
engir," segir Guðrún og hlær. Leik-
myndin þarf líka að vera einfold vegna
þess að Möguleikhúsið ferðast mikiö
með sýningamar sínar. Það er ekki al-
veg auðvelt að fá eitthvað tU að gerast
undú1 þessum kringumstæðum en ef
einhverjum tekst það þá er vísast að
það sé Guðrún Helgadóttir.
Sýnmgin er ætluð ungum bömum.
„Ég held að það sé alveg óhætt að fara
með krakka frá u.þ.b. tveggja og hálfs
árs upp í svona átta, níu ára á sýning-
una,“ segir Guðrún.
Brynja Benediktsdóttir leikstýrir
sýningunni, Tryggvi Ólafsson, mynd-
listarmaöur í Kaupmannahöfn, hann-
aði leikmyndina, tónlistin er eftir Val-
geh Guðjónsson og Bjarni Ingvarsson
og Pétur Eggerz ieika. Guðrún er afar
ánægð með samstarfsfólkið. „Þeir em
töframenn, Pétur og Bjarni," segir hún
og lofar einnig þau Brynju, Tryggva og
Valgeh fyrir sína þætti í sýningunni.
Yfirgefinn af eigin skugga
Leikritið er um Binna sem ekki er
beinlínis fyrirmyndarbarn eins og höf-
undur lýsir honum:
„Hann er voðalega eigingjarn og
frekur þannig að það vill eiginlega eng-
inn leika sér við hann og á endanum
er svo illa komið fyrir honum að
skugginn hans nennir ekki einu sinni
að vera með honum. Hann ákveður að
taka til sinna ráða og ganga í mann-
heima og reyna að siða Binna svolítið
til:“
En lífið verður skugganum, sem
heitir Uggi þegar hann er orðinn
drengur, nokkuð erfitt að sögn Guð-
rúnar. „Það er erfiðara að vera strák-
ur en hann hélt. Þetta fjallar svo um
valdabaráttu Binna og Ugga sem breyt-
ist á endanum í samvinnu eins og vera
ber.“
Leiöindapúki eignast vin
/ leikritinu Skuggaleik segir af Binna og Ugga vini hans sem reynir að kenna honum að vera góður og skemmti-
legur. Hér eru Pétur Eggerz í hlutverki Binna og Bjarni Ingvarsson í hlutverki Ugga.
Foreldrar skilja aö stjónmálamanninn og rithöfundinn
„Meira að segja á dramatískustu augnablikum þegar þjóðin var alveg kolvitlaus út í mig þá hljóp hún í bókabúðir og
keypti bækurnar mínar, “ segir Guðrún Helgadóttir.
sér af þjóðmálum né gefa út bækur."
Guðrún segist ofl hafa undrast
hversu lítið fólk virðist hafa blandað
saman stjómmálaþátttöku hennar og
bökaskrifum. „Stundum hefur nú
hvesst á mig í pólitíkinni en það er
eins og það hafi aldrei haft minnstu
áhrif á að fólk læsi bækumar mínar
fyrir bömin sín, meira að segja á
dramatískustu augnablikum þegar
þjóðin var alveg kolvitlaus út í mig þá
hljóp hún í bókabúðir og keypti bæk-
umar mínar. Mér hefur alltaf þótt al-
veg óskaplega vænt um þetta. Þetta er
afskaplega heilbrigt - maður deilir um
ákveðna hluti en það þýðir ekki að
maður sé afskrifaður."
Bömin eru framtíðin
Guðrún er elst af tíu systkinum og
kveðst hafa verið með þau í halarófu á
eftir sér þar til hún fór sjálf að eiga
böm. „Mér finnst mjög spennandi að
skrifa fyrir krakka og mér finnast
böm bara alveg ótrúiega ^jpennandi
einstaklingar. Þess vegna finnst mér
mjög þýðingarmikið að lesa fyrir böm
og skrifa fyrir böm. Þetta er framtíðin.
Framtíð tungumálsins og undirstaða
menningarinnar.“
Guðrún er nú hætt afskiptum af
stjómmálum og var spurö hvort búast
mætti við enn meiri afköstum frá
henni á rithöfúndasviðinu en verið
hefði. „Ég held auðvitað áfram að
skrifa en að öðra leyti er erfitt að segja
til um það,“ segir hún. „Þetta er ekkert
sem maður getur þvingað sig til að
gera. Ég veit ekkert hvort ég skrifa
endilega voðalega miklu meira. Ég hef
aldrei haft neina löngun til að setjast
niður og skrifa bara til að skrifa.
Frumskilyrðið er að maður hafi ein-
hverja hugmynd. Þegar hugmyndin er
komin hefst baráttan við formið. Og
þegar það er komið er kannski hægt að
fara að setjast niður og vinna. Þetta er
eitthvað sem verður bara að koma. Ég
er byrjuð að skrifa svolítið núna, bók
fyrir fullorðna. Efhið hefur sótt á mig
nokkuð lengi en svo veit maður ekkert
hvað úr þessu verður." -ss