Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Page 28
28
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Helgarblað
DV DV
Áslaug Perla Kristjónsdóttir var lít-
il stúlka. Hún var grannvaxin og smá-
gerð, með bamslegt frítt andlit. Þrátt
fyrir að vera orðin 21 árs var henni
þráfaldlega synjað um afgreiðslu og
aðgang á skemmtistöðum vegna þess
að menn trúðu henni ekki þegar hún
sagði til aldurs.
Sennilega hefur það verið um
klukkan níu að morgni laugardagsins
27. maí árið 2000 sem Áslaug Perla féll
af svölum 10. hæðar fjölbýlishúss við
Engihjalla 9 í Kópavogi. Enginn veit í
smáatriðum hvað gerðist á svölunum
þennan laugardagsmorgun en héraðs-
dómur Reykjaness komst að þeirri
niöurstöðu að banamaður hennar, Ás-
geir Ingi Ásgeirsson, heíði í reiðikasti
hrint henni fram af svölunum.
Dómkvaddur matsmaður telur að
fallið hafi varað í 2,3 sekúndur og rétt-
arlæknir telur að hún hafi verið lif-
andi í fallinu. Hún lést af völdum
hinna miklu áverka sem hún hlaut
þegar líkami hennar skall á steinstétt-
inni þar sem hún fannst.
Trylltist gersamlega
Áslaug Perla bjó heima hjá móöur
sinni, Gerði Bemdsen, við Kapla-
skjólsveg. Móðir hennar var ein
heima með Andra Pétur, tæplega
þriggja ára dótturson sinn sem var í
gæslu hjá ömmu sinni þennan morg-
un. Hún hafði engar sérstakar áhyggj-
m- af því þegar Áslaug Perla var ekki
komin heim því hana renndi í grun að
hún heföi farið á fund vinar sins sem
reyndar bjó í Kópavogi og ef til vill
gist þar.
„Svo heyrði ég í útvarpinu að ung
stúlka hefði fallið af svölum í Kópa-
vogi og látist. Af einhverjum ástæðum
greip mig óhugur og ég hringdi strax
í lögregluna. Ég spurði hvort væri
búið að hafa samband við aðstandend-
ur og gaf þeim upp nafn dóttur minn-
ar. Þegar lögreglumaðurinn bað mig
að bíða fór mér að líða mjög ilia. Svo
kom hann aftur í símann eftir smá-
stund og sagði mér að það væri dóttir
mín sem hefði dáið.“
Svona lýsir Gerður því hvemig hún
frétti lát yngri dóttur sinnar þennan
laugardag fyrir nærri 10 mánuðum
síðan.
„Ég tryUtist gersamlega. Ég rétt
heyrði lögreglumanninn segja aö það
væri lögreglukona og prestur á leið-
inni til mín en ég missti algerlega
stjóm á mér og fleygði símanum frá
mér. Þegar þau komu þá vildi ég helst
henda þeim út og ég hefði örugglega
hent þeim út ef pabbi hennar hefði
ekki verið kominn. Ég hafði hringt í
hann áður en ég hringdi í lögregluna.
Ég var í algerri afneitun og heyrði
ekki almennilega hvað hefði gerst.
Þetta var svo ólýsanlega erfitt og
kvalimar óstjómlegar. Ég skalf svo að
ég gat ekki haldið á kaffiboUa, ég
hafði verki um aUan likamann og oft
hélt ég að ég væri að ganga af göflun-
um, að ég myndi hverfa inn í sjálfa
mig og koma aldrei aftur. Líðan mín
var eins og helvíti á jörð og ég vUdi fá
að leggjast inn á spítala og láta taka líf
mitt í stað dóttur minnar."
Gerður Berndsen, móðir Áslaugar Perlu Kristjónsdóttur sem var myrt 27. maí sl.
„Þetta var svo ólýsanlega erfitt og kvallrnar óstjórnlegar. Ég skalf svo aö ég gat ekki haldiö á kaffibolla, ég haföi verki um allan líkamann og oft hélt ég aö ég væri aö ganga afgöflunum, að ég myndi hverfa
inn í sjálfa mig og koma aldrei aftur. Líöan mín var eins og helvíti á jörð og ég vildi fá aö leggjast inn á spítala og láta taka líf mitt í stað dóttur minnar. “
Dómur fyrir lífstíð
- Gerður Bemdsen, móðir Áslaugar Perlu Kristjónsdóttur sem féll fyrir
hendi morðingja í maí 2000, krefst harðari refsinga og vill lífstíðarfangelsi
fyrir banamann dóttur sinnar
Eins og lokuð inni í hylki
Gerður var eins og lömuð næstu
daga á eftir og segir að hún hafi far-
ið í gegnum kistulagningu og jarð-
arfór eins lokuð inni í hylki.
„Ég kveið óskaplega fyrir kistu-
lagningunni. Ég hélt að hún væri
svo Ula farin að ég treysti mér ekki
tU að sjá hana en svo ráðlagði séra
Pálmi Matthíasson, sem jarðsöng
hana, mér að fara svo ég gæti sleppt
af henni hendinni. Mér fannst ótrú-
legt að sjá hvað hún leit vel ut. Ég
leið í gegnum þetta en svo féU ég
saman og lenti langt niður.“
Fljótlega kom að því að aðstand-
endur Gerðar og hún sjálf áttuðu sig
á því að hjálpar væri þörf og hún
komst í meðferð hjá sálfræðingi og
geðlækni. Hún telur að það geri sér
gott.
„En það tekur langan tíma að
losna við erfiðar hugsanir. Ég hef
litla orku, ég píndi mig i vinnu fyrr
en ég treysti mér tU þvi ég gat ekki
lifað á hálfum launum. Ég kem oft
algerlega úrvinda heim úr vinnu og
skríð beint upp í rúm og ég eyði
stundum hálfum helgum í hvUd og
slökun.
Ég á enn þá mjög erfitt með að
vera innan um aðra og fer aldrei
neitt út á meöal fólks. Ég hef sam-
band við fáa, aðaUega tvær systra
minna, sem hafa upplifað hvemig
það er aö missa bamið sitt, og 2-3
vini.“
Fullt starf aö syrgja
Gerður segist ekki hafa leitað tU
sorgarsamtaka eða hjálparhópa um
sorgarviðbrögð og segir það skoðun
sína að fólk beri ekki mikið skyn-
bragð á sorgina.
„Fólk var að spyrja mig tveimur til
þremur mánuðum eftir að þetta gerð-
ist hvort ég væri búin að jafna mig,
eins og ég hefði aðeins orðið fyrir
minni háttar áfaUi. Það heUtust yfir
mig ráðleggingar og tUmæli frá fólki
sem ég þekkti ekki mikið. Ég leitaði
til séra Sigurðar Pálssonar sem reynd-
ist mér mjög vel og hann sagði að það
væri fuUt starf að syrgja. Það fannst
mér vera mjög satt.
Ég hef verið að lesa bók eftir Bar-
böru D. Rosof sem heitir: The Worst
Loss og ég pantaði hjá Máli og menn-
ingu. Þessi bók hefur hjálpað mér að-
eins að skilja aUar þær tilfinninga-
fiækjur sem fylgja barnsmissi."
Tíminn læknar ekki öll sár
Gerður vakti mikla athygli fyrr í
þessari viku þegar hún skrifaði grein
í Morgunblaðið og lýsti þeirri skoðun
sinni að það sem almennt er talinn
lífstíðardómur í íslenskum lögum, eða
16 ár, væri of stuttur dómur og lengja
bæri refsirammann upp í raunveru-
legt lífstíðarfangelsi. Ásgeir Ingi Ás-
geirsson var dæmdur í 14 ára fangelsi
í héraðsdómi í febrúar fyrir morðið á
Áslaugu Perlu. í greininni segir Gerð-
ur orðrétt:
„Tíminn læknar ekki öU sár og
aldrei stærsta sár í heimi: að missa
barnið sitt. Það eina sem ég tel heUagt
í þessum heimi er líf hverrar mann-
eskju, það má enginn, aUs enginn
snerta annars líf. Ef ég hefði framið
einhvern af þessum glæpum fyndist
mér ég hafa fyrirgert lífi mínu og
vUdi að það yrði tekið frá mér.
Ef einhvem tímann er ástæða til
þess að dæma einhvern i lífstíðarfang-
elsi þá er það þegar hann hefur tekið
annars líf. Ég vil gjarnan að einhver
svari mér sem vit hefur á hvenær
ástæða er til að dæma einhvernú lífs-
tíðarfangelsi. Er hægt að fremja
stærri glæp en morð? Mig langar
einnig að vita hvaða formúla var not-
uð þegar þessi 16 ára regla var ákveð-
in.“
Auga fyrir auga
- Ertu með þessu að biðja um hið
forna réttlætislögmál sem Biblían
boðar?
„Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.
Það hafa þrjár ungar manneskjur faU-
ið fyrir hendi morðingja á íslandi á
tiltölulega mjög stuttum tíma. Hvert
og eitt þeirra hefði átt góðar líkur á að
„Ég missti algerlega
stjórn á mér og fleygði
simanum frá mér. Þegar
þau komu þá vildi ég
helst henda þeim út og ég
hefði örugglega hent
þeim út ef pabbi hennar
hefði ekki verið kominn.“
37
Helgarblað
lifa 60-70 ár til viðbótar. Það er sá
tími sem mér finnst réttlátt að morð-
ingi gefi af sinu lífi í staðinn. Sá sem
tekur líf annarrar manneskju, hann
tekur líka líf foreldra fómarlambanna
og líf þeirra hrynur tU grunna. Þótt
foreldrar eigi fleiri börn þá eru þau
yfirleitt vanbúin að hjálpa þeim gegn-
um sorgina með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Ég veit að menn sem hafa verið
dæmdir í lífstíðarfangelsi hafa setið
inni í mesta lagi 60% af tímanum.
Þeir fá leyfi tU tveggja mánaða útivist-
arleyfis með ákveðnum skilyrðum. Á
sama tíma situr fjöldi fórnarlamba og
aðstandenda sem er í kringum hvert
dauðsfaU og ekkert bætir þeirra
missi.
Ég leitaði svo hegningarlögin uppi
og gat bara engan veginn sætt mig við
þessa skilgreiningu. Ég leitaði bæði
tU lagadeildar Háskólans sem vísaði
mér til Orators og svo fékk ég afrit af
lögunum.
Mér finnst með ólíkindum að lesa
þessi lög því þau virðast vera sniðin
með hagsmuni og aðstæður fangans í
huga. Ég get ekki skilið lögin með öðr-
um hætti en að það sé í raun heimUd
tU þess að dæma menn í lífstíðarfang-
elsi og það vU ég að sé gert í þessum
þremur tilvikum," segir Gerður.
Þekkti ekki morðingjann
í dómi Héraðsdóms má lesa að Ás-
laug Perla og banamaður hennar hafi
aldrei hist fyrr en þessa nótt og Gerð-
ur telur að augljóst sé að hann hafi
vélað hana inn i EngihjaUanum á
íolskum forsendum, undir því yfir-
skini að hann ætlaði að bjóða henni í
partí.
„Hún hefði aldrei farið að fara með
honum þarna upp á svalirnar. Hún
var svo óskaplega lofthrædd. Ég
þekkti hana nógu vel til þess.“
Banamaður Áslaugar Perlu fékkst
aldrei til þess að lýsa fyrir lögregl-
unni nákvæmlega hvað þeim fór á
miUi en meðgekk að hafa hrint henni
og við það hefði hún faUið fram af
svölunum.
Atburðarás á vettvangi, vitnaleiðsl-
ur og mat sérstaks matsmanns sem
var fenginn til að leggja eðlisfræðilegt
mat á kringumstæður varð síðan til
þess að dómurinn taldi engan vafa
leika á sekt Ásgeirs. Orðrétt segir i
dómsniðurstöðum:
„í atburðarás sem þó er ekki að
fuUu ljós, þykir sannað með visan til
matsgerðar, rannsóknargagna iög-
reglu og vættis vitna að ákærði hafi í
reiðikasti brugðist við með kröftugri
atlögu að Áslaugu Perlu á meðan hún
hafði buxur sínar gyrtar niður fyrir
hné og komið henni þannig yfir svala-
handriðið með þeim afleiðingum að
hún féU tU jarðar og hlaut bana af.
Þykir eigi óvarlegt að fuilyrða að á
þeirri stundu hafi honum hlotið að
vera ljóst að slík atlaga leiddi óhjá-
kvæmilega til dauða.“
Gerður segist ekki vera sátt við að
lögreglan skyldi ekki kynna henni
rétt sinn tU þess að hafa réttargæslu-
mann.
„Það var leitt fram þarna hvert
vitnið á fætur öðru sem vitnaði um
Áslaugu Perlu og hennar persónu.
Það var eins og verjanda væri mikið í
mun að sanna að hún hefði hugsan-
lega viljað stytta sér aldur. Þetta er að
mínu viti alger fjarstæða. Ég þekkti
dóttur mína vel og hún hefði aldrei
látið það hvarfla að sér.
Við fengum aldrei að heyra neitt
um fortíð morðingjans sem mér skUst
að sé ekki alveg flekklaus. Mér hefði
fundist það skipta meira máli.“
Sex ára í einelti
Gerður og Kristjón Haraldsson
eignuðust saman tvær dætur, Ragn-
heiði og Áslaugu Perlu. Þegar dæturn-
ar voru ungar, Áslaug Perla aðeins 12
ára, skildu þau hjón og tveimur árum
síðar, þegar Áslaug Perla var 14 ára,
urðu tvö dauðsfóU innan fjölskyld-
unnar sem tóku mjög á afla aðstand-
endur. Gerður telur þó að þessi áfóll,
sem voru þung og mörkuðu djúp spor
í viðkvæma barnssál, hafi ekki verið
þau einu sem mörkuðu hana.
„Ég fór með hana til sérfræðings
þegar hún var sex ára og hún fékk þá
umsögn að hún væri afburða greind.
Ástæðan fyrir því að ég fór með hana
var að mér fannst hún ekki una sér
nógu vel á leikskólanum á Ægisborg.
Það var ekki fyrr en löngu seinna að
ég komst að því að hún varð fyrir ein-
elti á leikskólanum án þess að starfs-
fólkið hreyfði legg né lið til að koma í
veg fyrir það.
Ég var óskaplega slegin yfir þessu
því það hefði mér aldrei komið til
hugar. Ég er óskaplega hrædd um að
þetta hafi haft slæm áhrif á hana.“
Söngur og Ijóðlist
Áslaug Perla var sett ári á undan í
grunnskóla og lauk grunnskólaprófi
frá Hagaskóla og gekk vel að læra
enda segir Gerður að hana hafi aldrei
skort hugmyndir.
„Hún byrjaði að yrkja þegar hún
var 13 ára gömul og lét eftir sig meira
en 300 ljóð. Hún orti bæði á ensku og
íslensku. Hún hafði óskaplega gaman
af tónlist og lærði á píanó i mörg ár og
hana dreymdi um að vera söngkona.
Hún tók þátt í söngvakeppnum, bæði
í grunnskóla og framhaldsskóla."
Áslaug Perla fór í Kvennaskólann
eftir Hagaskóla og gekk námið ágæt-
lega.
„Hún var forystusauður í eðli sinu
og hafði mjög mörg áhugamál. Hún
var í kómum í Neskirkju og spilaði
körfubolta."
Áslaug Perla hætti námi í Kvenna-
skólanum eftir þrjá vetur og fór út á
vinnumarkaðinn einn vetur en settist
síðan aftur á skólabekk í Ármúlaskóla
en síðasta misserið sem hún lifði var
hún í öldungadeild MH. Hún var í
máladeild og þessi önn var sú næst-
síðasta að stúdentsprófi. Síðasta verk-
efnið sem hún skilaði í skólanum var
enskuverkefni, ritgerð um breska rit-
höfundinn Oscar Wilde.
„Systir hennar hringdi inn í skóla
eftir að hún var dáin og þeir sögðu
Sýnishorn af ljóðum
Áslaugar Perlu.
Skórnir
Perlan sem merlar í sjónum
í hafmu þar sem ég bý.
Ég kemst aldrei upp úr þeim
skónum
sem ég klœddi mig aldrei í.
(1995)
Gáfuhaus
Hún situr meö gáfulegan svip
hlustar á gáfulegar samrœður.
Hún er eitt eyra og fylgist vel
meö.
Hún er full af
leyndardómsfullum gáfum
og ofnotuóum heilasellum.
Fer ekki leynt meö gáfulegan
augnsvip
og skýra andlitsdrætti
sem lýsa ótrúlegu
rökhugsunarsviöi hennar.
Þögn - Og hvað finnst þér svo
Rut?
Þögn - Hún opnar undursamleg
augun og segir: Ha?!
(1994)
mér að hún hefði fengið átta í ein-
kunn fyrir hana,“ segir Gerður.
Af Vogi á leiö á Vík
Áslaug Perla neytti áfengis þegar
kom fram yfir unglingsárin en var
staðráðin í að ná tökum á þeirri
neyslu. Hún fór í undirbúningsmeð-
ferð á Vogi viku áður en hún lést og
átti að mæta viku síðar í meðferð á
Vík.
„Hún var send út á fóstudegi og átti
að fara á Vík nærri viku seinna. Mér
finnst að Vogur og Vík eigi að vera
samtengd. Hún sagði mér að þegar
hún færi aftur inn á Vog vildi hún
þegar hún kæmi þaðan aftur fá að
vera bara einn dag heima áður en hún
færi inn á Vik. Tveir yfirmenn á Vogi
viðurkenndu í samtölum við mig að
þetta hefðu verið mistök.
Ég held að það sé viðurkennt að
konur þurfa öðruvísi áfengismeðferð
en karlar og ég held að Áslaug Perla
hafi ekki mætt þeim skilningi og
hlýju inni á Vogi sem AA-samtökin
byggðu á frá upphafi. Það sést best á
því að daginn sem Áslaug Perla fór
kvaddi ráðgjafinn hennar hana ekki
einu sinni né óskaði henni góðs geng-
is og það særði hana.“
Fæ aldrei barniö mitt aftur
Gerður er að undirbúa með hjálp
vina og aðstandenda útgáfu ljóðabók-
ar með ljóðum Áslaugar Perlu en seg-
ist hafa átt afar erfitt við að lesa í
gegnum ljóðasafnið að dóttur sinni
genginni og velja ljóð til birtingar.
„Seinast setti ég mér það takmark
að lesa fimm ljóð á dag. Þannig komst
ég í gegnum þetta.“
Bókin verður bæði á íslensku og
ensku og með káputeikningum eftir
Gerði sjálfa. Hún hefur einnig hug á
að reyna að varðveita með einhverj-
um hætti lag eða lög sem Áslaug Perla
samdi með aðstoð tölvu og eru til í
minni tölvunnar.
„Ég finn að þessi vinna og umræð-
urnar sem hafa fylgt í kjölfar þessarar
greinar sem ég skrifaði hafa veitt mér
þrótt og stappað í mig stálinu að
minnsta kosti tímabundið. En ég fæ
barnið mitt aldrei aftur." -PÁÁ
Gerður hefur vakið athygli á því hve stuttir, að hennar mati, lífstíöardómar eru á íslandi
Þaö hafa þrjár ungar manneskjur falliö fyrir hendi morðingja á íslandi á tiltölulega mjög stuttum tíma. Hvert og eitt
þeirra heföi átt góöar líkur á aö lifa 60-70 ár til viöbótar. Það er sá tími sem mér finnst réttlátt aö morðingi gefi af
sínu lífi í staðinn. Sá sem tekur líf annarrar manneskju, hann tekur líka líf foreldra fórnarlambanna
og líf þeirra hrynur til grunna.