Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 43
I
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
DV
_______51
Tilvera
Eldurinn
réðst að mér
- við grillið í garðinum
Ómar Einarsson
„Ég verö aö viöurkenna aö ég geri lítiö aö því aö elda. Sú var tíö aö mitt
sterkasta vopn til aö sanna mig viö matargerö vargrilliö. Síöan lenti ég
„nett“ illa í því í sumar og hefekki grillaö síöan. “
Matgæðingur vikunnar að þessu
sinni er Ómar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Kasts.
Fyrirtækið Kast sérhæfir sig í
þráðlausri markaðssetningu
(Mobile Marketing) og auglýsinga-
leiðir þess hafa vakið mikla athygli
bæði hér heima og erlendis.
„Fólk ætti að þekkja nokkrar af-
urðir Kasts, svo sem auglýsingar
sem birtast á skjám GSM-síma en
Kast hóf nýverið útsendingar slíkra
auglýsinga. Það sem við erum að
gera hefur vakið mikla athygli, ekki
síst auglýsingaþjónusta sem tekur
mið af staðsetningu þess GSM-síma
sem auglýsingin er send í, sú lausn
er þróuð sameiginlega af Kasti og
Stefju hugbúnaðarhúsi," sagði
Ómar Einarsson framkvæmdastjóri.
En hefur hann tíma tO að elda?
Lenti illa í því
„Ég verð að viðurkenna að ég geri
lítið að því að elda. Sú var tíð að
mitt sterkasta vopn til að sanna mig
við matargerð var grillið. Síðan
lenti ég „nett“ illa í því í sumar og
hef ekki grillað síðan.
Þannig er mál meö vexti að ég og
frúin höfðum boðið vinafólki í mat.
Ég sparaði ekki yfirlýsingarnar þeg-
ar ég sagðist sjá algjörlega um þetta
matarboð þar sem annar gestanna
(karlmaður) er alltaf að gorta yfir
snilld sinni við grillið. Ég tók þessu
sem áskorun og hélt af stað glaður í
bragði að kaupa í matinn. Það var
sko ekkert sparað á þeim bænum og
ég fór i Gallerí kjöt og keypti þar úr-
vals lambafillet, keypti allt það með-
læti sem hugurinn girntist og ekki
vantaði rauðvínið með matnum.
Þegar ég kom svo heim sá ég aö
konan brosti út í annað því hún hef-
ur eflaust séð tilhlökkunina í mér
að lækka nú rostann í félaganum.
Gleymdi matargerðinni
Ég lagði á borð eins og ég hefði
ekki gert annað alla mína tíð,
skreytti með kertum og flottheitum
og gat hreinlega ekki beðið eftir þvi
að elda þetta úrvals kjöt á grillinu.
Þegar gestirnir svo komu fór ég út
og kveikti á gasinu. Þá hringdi sím-
inn og ég hljóp auðvitaö inn og
gleymdi eldamennskunni smátíma.
Þegar ég kom út aftur hélt ég svo
áfram og kveikti neistann. Það síð-
asta sem ég man var að það kom
rosalega vond lykt, þvi miður var sú
lykt af öllum hárum sem ég hafði
verið með fyrir ofan háls. Eitthvað
hafði gasmagnið á grillinu verið
komið yfh' hættumörk og eldurinn
gjörsamlega réðst að mér. Þarna
stóð ég svo eins og „Kojak“ við
grillið, illa brunninn og meira að
segja augabrúnirnar fuku lika,“ seg-
ir Ómar og hlær þegar hann rifjar
þetta upp.
•klj
Spínat-lasagna
1- 2 laukar
2- 3 gulrætur
1 dós tómatar
(Chunky w/garlic frá Hunts)
1 dós Paul Newman salsasósa
2 msk. tómatpuré
1-2 hvítlauksrif
1 pk. Mc spínat
400 g sveppir
500 g kotasæla
Aðferð:
1. Mýkið lauk og gulrætur í olíu og
setjið afganginn út í. Látið malla og
kryddið (með timjan, salti og pipar og
steinselju).
2. Steikið sveppi, setjið spínat út í
(sjóðið fyrst spínatið skv. leiðbeining-
um), notið svo kotasæluna. Notið fersk
lasagnablöð og ostasósu (pakka). Setjið
fyrst gulrótarblönduna og svo lag af
spínatblöndunni og svo ostasósuna.
Skötuselur
meö
villisvepp-
um
Fyrir 6
1 kg snyrtur skötuselur
1 dl hveiti
salt og pipar
smjör til steikingar
ViÚisveppasósa
1/2 laukur
30 g þurrkaðir villisveppir
1 dós Campbell’s sveppasúpa
1/2 dl sérrí (þurrt)
3 dl fiskisoð (eða vatn og fiski-
kraftur)
salt og pipar
kjötkraftur
Meðlæti
1 haus spergilkál
30 litlar kartöflur
2 msk. söxuð steinselja
6 gróf smábrauð
smjör til steikingar
salt
Nykaup
Þar semferskleikitm býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Byrjið á að laga sósuna. Skerið
skötuselinn í 2 cm þykkar sneiðar.
Veltið honum upp úr hveitinu,
kryddið með salti og pipar og steik-
ið í smjörinu í 1/2 mínútu á hvorri
hlið. Setjið í eldfast mót, hellið sós-
unni yfir og bakið í 10 mínútur í
200” C heitum ofni. Færið upp á
diska og leggið kartöflur og soðið
spergilkál snyrtilega á diskana.
Villisveppasósan
Setjið villisveppina í sjóðandi
vatn og látið standa í nokkrar mín-
útur. Saxið laukinn og steikið í potti
uns hann er orðinn glær. Veiðið
sveppina úr vatninu og bætið þeim
í pottinn. Setjið súpuna, soöiö og
sérríið saman við og látið sjóða.
Bragðbætið með kjötkrafti, salti og
pipar.
Meðlætið
Skerið spergilkálið i stilka og
sjóðið vel í söltu vatni uns meyrt.
Steikið soðnar kartöflur í smjöri á
pönnu og stráið ferskri saxaðri
steinselju yfir.
Hollráð
í þennan rétt er líka mjög gott aö
nota nýja lúöu. Soðiö af villisvepp-
unum er mjög bragðmikið. Það má
sía í gegnum dúk og frysta til síðari
nota, t.d. í súpur og sósur.
Lambageiri
með fylltum
kartöflum
Fljótlegt og einfalt
- við allra hæfi.
Fyrirfjóra:
8 stk. lambageirar (700-800 g)
4 stk. grillpinnar
Fylltar kartöflur
4 bakaðar kartöflur
4 sneiðar beikon
1 stk. vorlaukur (saxaður)
1 stk. rauðlaukur (saxaður)
1 stk. rauð paprika (söxuð)
1/2 tsk. paprikuduft
2 msk. sýrðar, saxaðar agúrkur
1 msk. sætt sinnep
salt og nýmalaður pipar
50 g mozzarellaostur
1 dl sýrður rjómi
2 msk. dijonsinnep
Lambageirarnir þræddir upp á
grillpinna og grillaðir í 5-7 mínútur
á hvorri hlið. Bakaðar kartöflur
skornar í tvennt og skafið innan úr
þeim. Beikonið er steikt á pönnu
ásamt grænmeti, kryddað með salti
og pipar og síðan kælt. Þessu er
hrært saman við sýrðan rjóma,
kartöflumaukiö, sýrðu agúrkurnar
og kryddinu stráð yfir. Þetta er sett
ofan í kartöflurnar og mozzarella-
ostinum stráð yfir. Kartöflurnar eru
síðan hitaðar upp í grillinu, en ekki
of lengi því þá rennur rjóminn af.
Meðlæti:
Dijonsinnep og fylltar kartöflur.