Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Side 44
52
LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Tilvera
I>V
frá sér bók sem hann
nefnir The Book of
Miracles. í bókinni
reynir höfundurinn
aö útskýra af
hverju trúin á hiö
ótrúlega er svona
sterk og af hverju
menn trúa á
kraftaverk.
Saga Bernadette
McKenzie
Bernadette McKenzie var tólf
ára og þegar búin að gangast undir
þrjá erfiða uppskurði þegar hún
fékk það útskurð að hún mundi
aldrei standa upprétt aftur. Hún
þjáðist af sjaldgæfum mænusjúk-
dómi sem hafði í íor með sér mikla
verki og hún var oft rúmliggjandi
vegna þess. Bernadette gekk í
nunnuskóla í úthverfi Fíladelfiu og
ákváðu nunnumar að biðja fyrir
henni með því að leita fyrirbæna hjá
látnum stofnanda reglunnar, Móðir
Frances de Sales Aviat og var álitin
dýrlingur. Bemadette bað sjálf til
Guðs fjórum dögum seinna þar sem
hún lá í rúmi sínu, kvalin af sárs-
auka.
Hún sagði Guði að ef hún yrði að
lifa svona myndi hún sætta sig við
það og hún bað Guð líka að senda
sér tákn ef hún ætti eftir að ganga
aftur - ef uppáhaldslagið hennar
yrði spilað í útvarpinu næst væri
það táknið. Lagið var spilað og
Bemadette síóð upp úr rúminu og
hljóp niður stigann til að segja fjöl-
skyldu sinni frá kraftaverkinu.
Gleðin var svo mikil að hún tók ekki
eftir því að verkirnir voru horfnir.
Sérfræðingar sem skoðuðu Bema-
dette sögðu aftur á móti að það væri
ekki fræðilegur möguleiki á því að
þetta gæti gerst. Á síðast ári var bati
Bemadette rannsakaður af fulltrú-
um Vatíkansins sem hugsanlegt
kraftaverk.
Svarar Guð bænum okkar?
Getur Guð orsakað að óútskýran-
legir hlutir eins og kraftaverk eigi
sér stað? Um páskana á hverju ári
halda kristnir menn og
gyðingar upp á stærstu
trúarhátíðir ársins,
upprisu Krists og
frelsun ísraels-
manna frá Egypta-
landi. Báðir at-
burðirnir eiga
uppruna sinn í
sögum af krafta-
verkum en margir
telja að þær séu ein-
göngu goðsagnir. Millj-
ónir manna um allan heim
eru þó á öðm máli og trúa að
kraftaverk séu raunveruleg. í hverri
viku safnast trúaðir menn saman til
að halda upp á atvik sem þeir telja
til kraftaverka - afrek sem Guð, guð-
ir, dýrlingar eða vitringar hafa unn-
ið í þeim til heilla. Gyðingar, kristn-
ir menn, hindúar, múslímar og
búddatrúarmenn telja sig allir upp-
lifað kraftaverk og eru sífellt að leita
eftir nýjum sönnunum um þau.
Trú og vantrú
Margir eru vantrúaðir á sögur
eins og söguna- um Bemadette og
telja þær hjátrú eða tilviljanir. Hins
vegar eru margir sem telja að
kraftaverk geti átt sér stað og sam-
kvæmt könnun sem tímaritið
Newsweek lét gera trúa 84% fullorð-
inna Bandarikjamanna því að Guð
geri kraftaverk. Tæplega helmingur
þeima, eða 48%, sagðist hafa upplif-
að kraftaverk eða orðið vitni að
slíku og 75% kaþólskra Bandaríkja-
mannna sögðust biðja fyrir krafta-
verkum. I hópi trúlausra sögðust
43% hafa beðið Guð um hjálp.
Þeir sem biðja fyrir kraftaverkum
biðja flestir um lækningu handa
sjálfum sér eða ástvinum sínum. í
áðumefndri könnun taldi helmingur
þátttakenda að Guð hefði komið við
sögu þegar fólk sem hafði verið úr-
skurðað látið vaknaði til lifsins að
nýju.
í Vatíkaninu og hjá hópum
múslíma og hvítasunnumanna hafa
verið þróaðar aðferðir til að skera
úr um hvort sögur af meintum
lækningum séu kraftaverk eða eigi
sér læknisfræðilegar skýringar.
Kraftaverkin
Heilagt vatn í Ganges
Hindúar hafa mikla trú á lækningamætti Gangesfljóts, 9. janúar síöastliðinn var haldinn „Mala Kumbh Mela“ sem er dagur kraftaverkanna viö Ganges.
Einn léttur í lokin
Kraftaverkadagurinn við Ganges
var runninn upp. Fyrsti sjúklingur-
inn var blindur en í þriðja sinn sem
honum var dýft í ána fékk hann
sjónina.
Næsti sjúklingur var með snúinn
fót en í þriðja sinni sem honum var
dýft í ána varð fóturinn alheill.
Þriðja sjúklingnum var ýtt fram í
hjólastól en í þriöja sinni sem hon-
um var dýft í ána var stóliinn kom-
inn með rafmagnsmótor.
Byggt að hluta til á grein i
Newsweek.
-MA/kip(á)ff.is
gerast enn
- í þriðja sinn sem honum var dýft í ána fékk hann sjónina
Fyrir skömmu var greint frá því í
fjölmiölum aó lítil kanadísk stúlka
hefði nœrri frosiö til bana í 24 stiga
gaddi. Erika Nordby, sem er þrettán
mánaöa, skreiö út heiman frá sér á
bleiunni einni saman og var úti í
frostinu í nokkrar klukkustundir.
Þegar stúlkan fannst var líkami
henna líkastur ísklumpi og henni
ekki hugaó líf. Erika var vafin i hita-
teppi og hjarta hennar tók að slá.
Lœknar segja þaö kraftaverk að hún
skuli vera lifandi eftir aö líkamshiti
hennarfór niöur fyrir 16' C og hjart-
aö hætti aö slá í aö minnsta kosti tvo
tíma. Stúlkan er á batavegi og ekki
er taliö aó hún hafi oröió fyrir
heilaskaöa.
Æöri kraftur aö verki
Þegar við heyrum svona sögur er
algengt að líta á þær sem sönnum
um að kraftaverk geti átt sér stað og
að einhver æðri kraftur sé að verki.
Trúin á kraftaverkið er samoflð
sögu trúarbragða í heiminum. Þegar
menn trúa á kraftaverk skiptir ekki
máli hvort það getur raunverulega
gerst heldur hvort menn trúa á það.
Kenneth L. Woodward sendi nýlega
Kraftaverk
Erika Nordby í fangi móður sinnar
eftir aö hún vaknaöi úr dði vegna
ofkælingar.
María mey vitraðist við Fatima
Áriö 1917 vitraöist María mey þremur börnum viö Fatima í Portúgal. Kaþ-
ólska kirkjan hefur viöurkennt atburöinn sem kraftaverk. Jóhannes Pðll pðfí
II. messaöi viö Fatima 13. maí 2000. Aftan viö hann stendur systir Lucia
dos Santos sem er sú eina af börnunum sem er lifandi í dag.
Tengjast trúarbrögðunum
Meðal trúaðra er það ekki spum-
ing hvort kraftaverk geti átt sér
stað heldur hvort menn trúi að þau
geti gerst. Þegar við heyrum sögur
af atburðum eins og þegar Rauða-
hafið klofnaði eða af einhverjum
sem hefur fengið óskiljanlega lækn-
ingu spyrjum við sömu spurningar-
innar: „Er þetta raunverulega
kraftaverk?"
Við rannsóknir á kraftaverkum
skipir mestu máli hvemig trúaðir
menn líta á þau en ekki hvort þau
gerðust í raun og veru. Það skiptir
ekki máli hvort kraftaverkin hafa
átti sér stað á ferðalagi til fyrir-
heitna landsins fyrir 3000 árum eða
í Reykjavík okkar daga. Sögur af
kraftaverkum fela einkum tvennt í
sér : Þær útskýra vegi Guðs fyrir þá
sem trúa og veita þeim tækifæri til
að upplifa kraftáverk.
Til að átta sig á af hverju fólk trú-
jr á kraftaverk verðum við að skilja
hvað liggur að baki þeim og hvem-
ig kraftaverk era skilgreind í mis-
munandi trúarbrögðum. Öll trúar-
brögð heims viðurkenna tilvist
kraftaverka.
Á Indlandi og í Miðausturlöndum
eiga sér stað kraftaverk sem birtast
í formi tákna eða ótrúlegra atburða.
Þegar ótrúleg eiga sér stað kaUaði
það fram óttablandna virðingu hjá
fólki. Táknin eru ímynd hins mikil-
fenglega valds Guðs eða guða. Þegar
Búdda steig upp með því að skipta
líkama sínum í hluta og sameinað-
ist þeim aftur framkvæmdi hann
kraftaverk og sýndi fóki fram á að
hann hefði náö frelsun frá karma-
lögunum. Múhameð kallaði fram
vatn í eyðimörkinni og um leið
sýndi hann ást Allah á liðsmönnum
sinum. Jesús reisti LasRrus upp frá
dauðum og sýndi fram á vald Guðs
yfir dauðanum en um leið boðaði
hann sína eigin upprisu. Jesús
hermdi lika eftir gömlum krafta-
verkum sem spámennirnir Elía og
Elísa höfðu framkvæmt löngu áöur
og lagði línurnar fyrir þvi að Pétur
og Páll myndu endurtaka þau
seinna.