Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2001, Page 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gastt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
->
Erfið fæðing tilnefninga í bankaráð Búnaðarbankans:
Hörð átök fram á
síðustu stundu
Hörð átök voru milli stjómarflokk-
anna fram á síðustu stundu í gær
vegna tilnefninga í bankaráð Búnaðar-
bankans fyrir aðalfund bankans sem
haldinn verður í dag. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra annaðist mála-
miðlanir við samstarfsflokkinn í sam-
ráði við Valgerði Sverrisdóttur við-
skiptaráðherra sem stödd var erlendis.
Hún var væntanleg til landsins í gær-
kvöld.
Formið á tilnefningunum i banka-
ráð hefur verið á þann veg að sameig-
inleg tillaga hefur orðið til með sam-
komulagi viðskiptaráðherra og full-
trúa annarra hluthafa um skipan
fimm manna í bankaráð. Tillaga við-
skiptaráðherra á sér rætur í báðum
stjómarflokkunum og stjómarandstöð-
unni. Berist ein tillaga um bankaráð,
svo sem tíðkast hefur, er það sjálfkjör-
ið. Bankaráðið kýs sér sjálft formann
en raunverulega er sú kosning hluti af
samkomulagi viðskiptaráðherra og
stjómmálaflokkanna um bankaráðið.
Þjark stjómarflokkanna um skipan
í bankaráðið hefur staðið í um tíu
daga. Síðdegis í gær brá svo við að
Framsóknarráðherrar tilkynntu
tveimur fulltrúum að setu þeirra í
bankaráði væri lokið. Það vom þeir
i
i
i
i
i
i
i
Bankastjórar og fráfarandi bankaráö Búnaöarbankans
Mikil átök áttu sér staö um bankaráösfulltrúa fyrir aöalfund í dag.
Haukur Helgason, sem setið hetúr í
ráðinu fyrir Samfylkinguna, og Hrólf-
ur Ölvirsson sem setið hefur í ráðinu
fyrir Framsóknarflokkinn. Samkvæmt
heimildum DV mun Valgerður hafa
haft hug á að velja sjálf mann úr Sam-
fylkingunni í bankaráðið. Þar með er
brotin sú regla að flokkamir velji sjálf-
ir sína fulltrúa. Með þessum hætti
mun Valgerður hafa hug á að styrkja
stöðu sína í ráðinu á þann veg að hún
hafi yfir þremur mönnum að segja. Þá
hafi hún undirtökin ef til frekari
hreinsana í bankanum komi en eins og
vitað er var hún ósátt við áffamhald-
andi setu Sólons R. Sigurðssonar á
stóli bankastjóra. I gær lýstu viðmæl-
endur DV áhyggjum sínum af því
hvaða áhrif þau átök og óvissa sem
ríkt hafa undanfama daga og vikur í
málefnum bankans myndu hafa á hlut-
hafa, starfsfólk og hversu mikið þau
myndu skaða bankann sjálfan hér
heima og erlendis. -JSS
Sjómannasamningarnir:
Þraukað í Karphúsinu
- og sér ekki fyrir endann á því
Vorið kom til Reykjavíkur í gær
og var fagnað vel af borgarbúum.
Víðáttumikil lægð, sem liggur suð-
ur af landinu, dælir hlýju lofti yfir
landið og njóta vel flestir lands-
menn þess ef frá eru skildir þeir
sem búa á norðvesturhorninu. Þar
er enn svalt.
„Ef marka skal langtímaspár þá
sér ekki fyrir endann á vorinu,“
sagði Siguröur Þ. Ragnarsson,
náttúrufræðingur og veðurfrétta-
maöur, sem sleikti sólina í gær
líkt og aðrir sem tök höfðu á. „Við
skulum hins vegar ekki gleyma
því að marsmánuður er yfirleitt
kaldari en febrúar ef tekið er með-
altal slðustu 30 ára þannig að enn
má búast við vetri þótt hlýlega
blási nú.“
Hitinn náði tveggja stafa tölu
viða á Suðurlandi í gær og að sögn
Sigurðar er alls ekki ólíklegt að sú
verði raunin víðar á landinu á
næstu dögum. Vorfiðringurinn í
fólkinu lýsti sér meðal annars í
því að með öllu reyndist ókleift að
verða sér úti um sumarbústaði
stéttarfélaga og félagasamtaka á
suðvesturhorninu. Þeir verða þétt
setnir alla helgina. * -EIR
„Það hefur nákvæmlega ekkert
gerst þótt menn hafi verið á daglegum
fúndum. Útvegsmenn, sem áður kvört-
uðu undan því að ekki væri hægt að fá
samningsaðila i einu lagi að samn-
ingaborðinu, fóru fram á það að þeir
gætu dundað með hveiju sambandi
fyrir sig og það hefur verið gert í þrjá
daga en það hefur engu breytt. Það
gerist ekki neitt,“ sagði einn tals-
manna sjómanna sem DV ræddi við í
gær þegar enn einn samningafundur-
inn var að hefjast í deilu sjómanna og
útvegsmanna hjá sáttasemjara.
Sjómannasamtökin, þ.e. Sjómanna-
samband íslands, Farmanna- og fiski-
mannasambandið og Vélstjórafélag ís-
lands, sem oft hafa verið sundurleitur
og ósamstiga hópur í viðræðum við út-
vegsmenn, hafa að þessu sinni komið
saman til samninga, eða þar til útvegs-
menn, sem kvörtuðu oft undan því að
þurfa að semja við þrjá aðila, fóru
fram á það í vikunni að fá hvem aðila
í einu til fundar við sig. Talsmaður
einna af sjómannasamtökunum segir
Morödómar þyngjast:
Dómarar dæma 16 ár - fram-
kvæmdavald styttir eftir föngum
- óþolandi, segja lögmenn
Meðaldómur yfir íslenskum saka-
mönnum fyrir manndráp af ásetningi
er 14,9 ára fangelsi sé miðað við 11
slíka brotamenn síðasta áratug - þetta
eru þyngstu refsingar íyrir morð að
meðaltali á Norðurlöndunum. Fæstir
lögmenn og dómarar sem DV hefur
rætt við telja að fangelsisdómar fyrir
morð séu of stuttir hér á landi. Hins
vegar benda menn á og segja „óþol-
andi“ að dómsvaldið sé skert með því
að heimila með lögum að fram-
kvæmdavaldið, Fangelsismálastofnun,
ákveði Jafnvel á bak við luktar dyr“
hina raunverulegu refsilengd. Árið
1994 fengu 2 af hverjum 3 fóngum
reynslulausn eftir að hafa afplánað
helminginn af þeim dómi sem þeir
voru dæmdir í.
Fyrir rétt rúmum áratug gekk mað-
ur út á reynslulausn eftir 7 ára afplán-
un á 14 ára dómi fyrir morð. Nokkrum
misserum síðar framdi hann annað
morð, þá auðvitað á reynslulausn.
Þrátt fyrir að maðurinn hefði náð að
taka tvö líf og bijóta skilyrði reynslu-
lausnar féllst Hæstiréttur ekki á að
dæma hann i ævilangt fangelsi eins og
lög heimila. Á þeim tima, árið 1993,
vildi einn dómari dæma manninn i
ævilangt fangelsi - settur hæstaréttar-
dómari. Sá dómari, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, var nýlega skipaður fastur
dómari við Hæstarétt íslands. -Ótt
Sjá nánar úttekt á morðmálum á
bls. 14
Fundaö an arangurs
Gert er ráö fyrir stífum fundarhöldum í deilu sjómanna og útvegsmanna um
heigina en myndin er tekin á fundi deiluaöila í gær. Þar var rólegt eins og sjá
má á því aö Sævar Gunnarsson, formaöur Sjómannasambandsins,
drap tímann með því að ieggja kapal.
það engu hafa breytt, menn hafi farið
yfir allt sviðið og nánast öll mál verið
til umræðu en ekki samkomulag um
neitt.
Reiknað er með að sáttasemjari muni
freista þess að halda mönnum við efnið
í Karphúsinu um helgina enda ekki
nema tæp vika til verkfalls. -gk
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Blessuö sólin elskar allt
Vellíöan skein úr hverju andliti í Sundlaugunum í Laugardal í gær.
Vorið er komið
i
i
i
CER VALGERÐUR
MEÐ PÁLMANN
í HÖNPUNUM?
SYLVANM
SYLVANIA
tilboösverö kr. 2.750,-
Merkilega heimilistækið <
Nú er unnt að "
merkja allt á
heimilinu, j
kökubauka,
spólur, skóla-
dót, geisla-
diska o.fl.
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport___
Rafport