Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001
DV
Fréttir
Óánægja vegna hugmyndar sjálfstæðismanna um styttingu landleiðar:
Ríkisrekinn Staðarskáli?
- atvinnurekstur í Hrútafirði drepinn niður ef þjónustan á að færast inn á hálendið
Leiöin milli Akureyrar og Reykjavíkur myndi styttast verulega samkvæmt
þlngsályktunartillögunni.
„Er ekki hlutverk stjómvalda að
stuðla að byggð á landsvísu? Þeir væru
að drepa niður minn atvinnurekstur
með þvi að færa umferðina upp á há-
lendið en kannski ríkið ætli sér bara
að kaupa af manni Staðarskála í stað-
inn? Svo gengur nú ekki of vel að
halda þeim fjallvegum sem fyrir eru
opnum þótt menn fari ekki að auka
umferðina á hálendinu. Ég held að
þessi leið yrði lokuð meira og minni
vegna ófærðar," segir Bára Guðmunds-
dóttir, eigandi Staðarskála síðan 1960.
Bára er ómyrk í máli vegna hug-
mynda Halldórs Blöndal, forseta Al-
þingis, um styttingu landleiðarinnar
frá Akureyri til Reykjavikur. Halldór
hefur lagt fram þingsályktunartillögu
ásamt þremur öðrum sjálfstæðismönn-
um, þeim Tómasi Inga Olrich, Am-
björgu Sveinsdóttur og Guðmundi
Hallvarðssyni. Þar em nokkrir kostir
reifaðir, svo sem 8 km jarðgöng úr
Eyjafirði. Tillögurnar tengjast hug-
myndum um afnám Reykjavikurflug-
vallar og segir Halldór það algjörlega
óraunhæfan kost að flytja innanlands-
flugið til Keflavikur.
„Mesta styttingin fengist með þvi að
fara Öxnadalsheiði að norðan og síðan
þingveginn við Silfrastaði, austur yflr
Blöndu um Arnarvatnshæðir og síðan
um Kaldadal og Þingvelli til Reykja-
víkur. Þetta yrðu um 320 km í staö 389
nú - en um 333 km ef Kjölur yrði far-
inn,“ sagði Halldór Blöndal í samtali
við DV í gær. Hin leiðin sem Halldór
nefnir er að gera 8 km jarðgöng upp úr
Eyjafirði i svokallaðan Hafrárdal. Þá
yrði farið yfir Jökulsá eystri og síðan
um Kjalveg. „Okkur hefur líka lengi
dreymt um að fá veg yfir Sprengisand
til að tengja Norður- og Suðurland. Það
yrði skemmtilegt að hafa styttri hring-
leið fyrir ferðamenn. Menn gætu skot-
ist um helgar um Sprengisand til Ak-
ureyrar," segir Halldór.
Þessar fyrirætlanir myndu breyta
mjög þjónustuumhverfi staða, svo sem
Blönduóss, Hrútafjarðar og Borgar-
ness. Umferð myndi minnka verulega í
gegnum þessi bæjarfélög og tekjur
dragast saman. Því er ljóst að ekki
yrðu allir á eitt sáttir um þessar hug-
myndir og Halldór viðurkennir að gera
megi ráð fyrir að aðilar, t.d. á Norð-
vesturlandi, hafi áhyggjur af þessu
máli. „En við getum ekki byggt fram-
tíðarvegakerfi landsins upp á slikum
forsendum. Við sjáum líka sem dæmi
að íbúar Sauðárkróks hika ekki við að
krefjast þess að farið sé Þverárfjall til
Blönduóss í stað þess að fara um
Varmahlíð."
Halldór segir að ekki sé búið að taka
saman nákvæman kostnað við þessar
hugmyndir en það yrði að sjálfsögðu
þjóðhagslega hagkvæmt að stytta leið-
ina. Einnig spili inn í að á sumum
svæðum, sem tengjast hugmyndunum,
þurfi hvort eð er að byggja upp vegi
bráðlega. Einnig reifa þingmennirnir
þá hugmynd að halda sig í grófum
dráttum við hingveginn eins og hann
er núna en stytta hann þó. T.d. styttist
leiðin um 12 km ef Svínvetningabraut
verði farin. -BÞ
Fjöldamótmæli
gegn Akureyrar-
bæ um helgina
Hópur fólks hyggst mótmæla 23%
hækkun á launataxta dagmæðra á Ak-
ureyri. Fundað verður á Bláu könn-
unni á sunnudag og eru foreldrar reið-
ir vegna þessara miklu útgjaldahækk-
unar. Sigríður Ólafsdóttir er ein þeirra
sem hyggjast mótmæla hækkuninni
sem er nálægt 10.000 krónum á mánuði.
„Þetta þýðir að ég þarf að borga
44.231 krónu á mánuði fyrir rúma átta
tíma. Reyndar er þetta svolítið mis-
munandi eftir t.d. menntun dagmæðra
en þetta er reiðarslag," segir Sigríður.
Mótmælin breinast ekki að taxta
dagmæðra sem slíkra, að sögn Sigríðar,
heldur ætla hinir óánægðu fyrst og
fremst að benda á það misrétti sem er
milli bæjarfélaga. Akureyrarbær nið-
urgreiðir ekki dagvistun til sambýlis-
fólks og þaö þykir Sólveigu litið rétt-
læti. Sambúðarfólk fær niðurgreiðslu á
höfuðborgarsvæðinu en þetta er mis-
munandi eftir bæjarfélögum. Niður-
greiðslan t.d. á Seltjamarnesi er 8.000
krónur fyrir niu tíma daglega vistun til
sambúðarfólks.
DV náði ekki í talsmenn dagmæðra
á Akureyri vegna þessa máls. -BÞ
Uppboð á óskilamunum:
Ótrúlegt úrval af reiðhjólum
„Það er alltaf mikið fjör í kring-
um uppboðið og margir gera
reyfarakaup. Við erum með ótrúlegt
úrval af reiðhjólum, svo dæmi sé
tekið," segir Þórir Þorsteinsson,
varðstjóri I óskilamunadeild lög-
reglunnar, en í dag verður haldið
árlegt uppboð lögreglunnar á óskila-
munum.
Að sögn Þóris verða reiðhjólin
fyrirferðarmest á uppboðinu, eða
hátt í fjögur hundruð. Auk þess
verða boðnir upp ýmsir hlutir, svo
sem sjónvörp, myndbandstæki, 78
snúninga plötur, ferðatöskur, úr,
gleraugu og margt fleira. Undanfar-
in ár hafa í kringum 2000 manns
sótt uppboðið og Þórir kveðst eiga
von á svipuðum fjölda í ár. Munirn-
ir á uppboðinu eru reglu samkvæmt
búnir að bíða eigenda sinna í eitt ár
eða meira en það er sá tími sem lög-
reglan gefur fólki til að vitja óskila-
muna. Uppboðið fer fram í Vöku-
skemmunni að Eldshöfða 2 og hefst
kl. 13.30.
-aþ
Reiöhjól á leiö á uppboö dv mynd hari
Þórir Þorsteinsson, varöstjóri í óskilamunadeild lögreglunnar, prófar hlaupa-
hjól sem veröur boöiö upp á morgun. í baksýn sést hluti reiðhjólanna sem
verður seldur á uppboöinu.
Héraðsdómur:
Fangelsi vegna
e-töflumáls
DV, AKUREYRI:
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt karlmann til skilorðsbund-
innar fangelsisvistar fyrir meðferð
fíkniefna. Maðurinn var handtekinn í
bifeið sinni fyrir utan flugstöðvarbygg-
inguna á Akureyri
en þá hafði hann sótt þangað pakka
sem í voru 25 e-töflur. í bifreið manns-
ins fannst einnig lítilræði af tóbaks-
blönduðu hassi.
Við dómsuppkvaðningu var litiö til
ungs aldurs mannsins en hann var 17
ára þegar hann framdi brot sitt og aö
hann hafði hreina sakaskrá og játaði
greiðlega. Einnig var litið til þess að
hann fór i fikniefnameðferð eftir að
hann var handtekinn og er í fastri
vinnu. Hann var dæmdur i 30 daga
fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Frestun á fullnustu dómsins var bund-
in þvi að hann sæti sérstakri umsjón
Fangelsismálastofnunar á skilorðs-
tímabilinu. -gk
Fangelsi fyrir
hnefahögg
DV, AKUREYRI:_________________
Nítján ára Dalvíkingur hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra vegna hnefahöggs sem hann
veitti manni á skemmtistað á Dalvík
fyrir tæpu ári síðan.
Mennirnir voru á dansleik og varð
þeim sundurorða. Árásarmaðurinn var
sakaður um að hafa slegið hinn mann-
inn og sparkað síðan í hann liggjandi.
Hann viðurkenndi að hafa slegið
manninn en neitaði að hafa sparkaö í
hann og var sýknaður af þeim lið
ákærunnar.
Fyrir hnefahöggið var hann hinsveg-
ar dæmdur í 40 daga fangelsi. Með hlið-
sjón af ungum aldri hans var dómur-
inn skilorðsbundinn til tveggja ára.-gk
Dæmdur fyrir of-
beldi í svefnskála
DV, AKUREYRh _________________
Hafnfirðingur á þrítugsaldri hefur
veriö dæmdur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra fyrir að hafa veist að konu
i svefnskála við Kröfluvirkjun. Þetta
átti sér stað í september á sl. ári.
Maðurinn og konan voru á snyrt-
ingu svefnskálans þegar maðurinn
veittist að konunni með ofbeldi, tók
hana fóstum tökum og kom í veg fyrir
að hún kæmist leiðar sinnar. Við þetta
hlaut konan eymsli á enni, handlegg og
úlnlið.
Maðurinn, sem áður hefur komið
við sögu lögreglu, játaði verknaðinn.
Hann var dæmdur í 90 daga fangelsi en
dómurinn var skilorðsbundinn til
þriggja ára. Þá skal maðurinn sæta sér-
stakri umsjón á skilorðstímanum sem
Fangelsisstofnun rikisins annist. -gk
Hlýjast norðan-og austanlands
Suðvestan 5-8 m/s og súld öðru hverju
sunnan- og vestanlands en léttskýjað á
Norður- og Austurlandi, hiti yfirleitt 5 til 10 stig
en 10 til 15 stig norðan- og austanlands.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 22.05
Sólarupprás á morgun 04.42
Síðdegisflóö 17.12
Árdegisflóð á morgun 05.25
22.08
04.39
21.45
09.58
Skýi'iiigaí á veöurtáknum
^VINDÁTT 10V-HITI 15A -10°
NViNDSTYRKUR í metrum á sekúndu ’Dfrost HEIÐSKÍRT
o. :Ö
ŒTTSKÝjAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
W vim *7tí}* tf?
RIGNING SKURIR SLYDÐA SNJÓKONiA
w ~\r =
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNÍNGUR RÖKA
Allt eftír ■
IgiÍJMÞ
Súld eöa rigning
Sunnan 10-15 m/s og súld eða rigning sunnan- og vestanlands en
hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á
Norðausturlandi.
Notum hjólhestana
Þar sem voriö hefur nú hafið innreið
sína er upplagt aö taka fram
reiðhjólin og bregöa sér í hjólatúr.
Óheyrilegt verð á bensíni gefur einnig
tilefni til að spara bílinn og nota
hjólhestana.
MaiHidagií
i
riO
Vindur:
10-15
Hiti 7” til 15° ÓAA
Sunnan 10-15 m/s og
súld eöa rigning sunnan-
og vestanlands en
úrkomulítiö fyrir noröan og
austan. Hitl 7 til 15 stig,
hlýjast á Noröausturlandi.
Miðvikudi
Vindur;
7-10 m/. )
Hiti 5° tii 10°
Suðvestan 8-13 m/s og
skúrir sunnan- og vestan
til en víða léttskýjað
noröaustanlands. Hltl 5 til
10 stlg.
Hæg suðaustanátt með
vætu um allt land. Hltl
yflrleltt 5-10 stlg
* *
AKUREYRI skýjaö 12
BERGSSTAÐIR skýjaö 9
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 9
EGILSSTAÐIR 10
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 11
KEFLAVÍK úrkoma í grennd 8
RAUFARHÖFN alskýjaö 11
reykjavIk hálfskýjaö 8
STÓRHÖFÐI skýjað 7
BERGEN hálfskýjaö 7
HELSINKI léttskýjaö 21
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 11
ÓSLÓ skýjaö 9
STOKKHÓLMUR 12
ÞÓRSHÖFN skýjaö 8
ÞRÁNDHEIMUR skúr á síö. kls. 6
ALGARVE skýjaö 16
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCELONA alskýjaö 14
BERLÍN heiöskírt 20
CHICAGO skýjað 10
DUBLIN skýjaö 12
HALIFAX skýjaö 21
FRANKFURT skýjaö 12
HAMBORG 12
JAN MAYEN snjóél -3
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG alskýjað 16
MALLORCA skýjað 18
MONTREAL heiðskírt 18
NARSSARSSUAQ léttskýjað 8
NEW YORK léttskýjaö 24
ORLANDO skýjaö 18
PARÍS skýjaö 10
VÍN léttskýjaö 25
WASHINGTON þokumóöa 17
WINNIPEG þoka 6