Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 Fréttir DV j u * * Smábátasjómenn æfir vegna utreiknmga LIU: ISiJ íT«i < rriTl 711 Stórútgerðin vill slátra okkur - segir Arthur Bogason sem telur góðæri ráða miklum afla Arthur Bogason. „Stórútgerðin I vill slátra okkur. Með því að setja smábátana í kvóta kemst fjöldi þeirra í þrot,“ segir Arth- ur Bogason, for- maður Landsam- ] bands smábátaeig- enda, um þá kröfu Landssambands ís- lenskra útvegsmanna að skikk verði komið á veiðar smábáta á dagakerfi og í þorskaflahámarks- kerfi. Eins og DV greindi frá í gær hef- ur Björn Jónsson hjá LÍÚ reiknað út að umframafli smábáta í steinbít og ýsu sé gífurlegur. Bátamir veiði þrefalt á við það sem stjómvöld ætli þeim. Sömu sögu er að segja af þorskveiði smábátanna sem stefnir langt fram úr því sem þeim er ætl- að. Engin leið er til þess að koma böndum á smábátaaflann þar sem stjómvöld hafa engin ráð til að halda afla í skefjum þó hann fari upp fyrir tiltekin mörk. „Það er arfavitlaust að kenna okkur um þær ógöngur sem fiski- stofnar eru í. Stórútgerðin hefur skrapað upp fiskimiðin allt frá því Bretinn var rekinn út. Þeir hafa si- fellt stækkað skipin og vélar þeirra og þannig rústað fiskistofna hjálp- arlaust. Þó smábátar hafi veitt um- fram það sem þeim er ætlað þá eiga eftir að koma mögur ár. Undanfar- in ár hefur verið góðæri til sjávar- ins. Hvað ætla menn að gera þegar aflinn minnkar?" spyr Arthur. í nýjum lögum sem taka eiga gildi í september er gert ráð fyrir Smábátar í góðæri Sjómenn á smábátum hafa mokfiskaö aö undanförnu. Aflinn hefur veriö þrefalt meiri í einstökum tegundum en stjórnvöld ætla þeim: Afleiöingin kann aö veröa sú aö stórfelldur niöurskuröur lendi á þeim í seþtember. að stór hluti smábátanna fari á kvóta sem aðeins nemur broti af raunverulegri veiði. Þá fara daga- bátarnir inn í kerfi þar sem dögum verður fækkað fari afli fram úr álætlun. Þannig fá þeir 89 bátar sem eru í kerfinu aðeins að róa í 21 dag í stað 23 áður. 500 þorskafla- hámarksbátar munu verða kvóta- settir í ýsu og steinbít og fara inn í kvótakerfi annarra smábáta á afla- marki. Skerðing þeirra mun verða á bilinu 50 til 70 prósent. Arthur formaður er ævareiöur vegna þessa og hann krefst þess að bátamir hafl sama frelsi og áður. „Við viljum ekki sjá þessa breyt- ingu verða. Þama á að troða 600 bátum nauðugum inn í aflamarks- kerfið. Slíkt mun hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir byggðir landsins. Margir munu hætta og selja og aðrir fara á hausinn," segir Arthur. Hann segist ekki skilja í stöðug- um árásum stórútgerðarinnar á smábátana. ( MU daeAtou txvt«M«sl tunfroin mukouð sMokrMnt UUí Stjórnlaus veiöi - *f honli iarp 10 ^tnnd tonn 4 txrimur ámm Frétt Dv frá í gær. „Ef þetta frelsi er svona dýrmætt þá skil ég ekki af hverju þeir hafa ekki andskotast til að fjárfesta í smábátaútgerð," segir Arthur. Hann segir ljóst að gangi lögin fram í sumar þá muni smábáta- menn setja fram kröfur sínar. „Við munum væntanlega krefjast þess að bátamir fái að veiða í net og einnig að þeir fái að leigja kvóta úr gamla kerfinu," segir Arthur. Fiskveiðum á Islandsmiðum er stjórnað með fernum hætti. Þrjú kerfi eru við lýði hjá smábátum. 89 bátar eru í dagakerfi þar sem þeir mega fiska eins og þeir geta á 23 dögum. Um 500 bátar róa í svoköll- uðu þorskaílahámarkskerfi þar sem hámark er á því hve mikinn þorsk þeir mega veiða en í öðrum tegund- um mega þeir veiða ótakmarkað. Þriðji flokkurinn er kvótakerfi smábáta sem er í meginatriðum eins og kvótakerfi stærri skipa. All- ar tegundir eru undir kvóta. Fjórða kerfið er siðan sjálft kvótakerfið sem stærri fiskiskip eru innan. Þar eru allar fisktegundir bundnar kvóta. Margir eru þeirrar skoðunar að öll flskiskip ættu með réttu að vera í einu og sama kerfinu, öðru- visi sé ekki hægt að stjórna veiðum af neinu viti. Aðspurður segist Arthur ekki geta lagt til að allur flotinn færi inn í eitt kvótakerfi þar sem auðlinda- skattur réði úthlutun veiðiheimilda „Ég kastaði þessu fram í ræðu á aðalfundi Landssambands smábáta- eigenda fyrir sex árum. Ég tel mig heppinn að hafa sloppið lifandi frá þeirri hugmynd," segir Arthur. -rt Leigubílstjóri sem mætti Einari Erni og morðingja hans í Öskjuhlíð: Einar Örn var brosandi rétt fyrir manndrápið Tilefnislaus og hrottafengin árás Ákæruvaldiö telur að árás Atla Helgasonar á Einar Örn hafi veriö tiféfíif§Mf§] og sýnt meiriháttar brotavilja. Fossá Skiþiö er nú tilbúiö til veiöa eftir að „ vankantar“ hafa veriö sniönir af því. Fossá í slipp á Neskaupstað „Tilraunaveiðar á skipinu hafa komið ágætlega út. Hins vegar hafa komið upp vandamál, t.d. varðandi spilkerfi og flokkara, en þau mál eru nú komin í lag,“ segir Þorsteinn Þor- bergsson, skipstjóri á kúfiskveiðiskip- inu Fossá frá Þórshöfn. Fossá, sem smíðuð var í Kína, kom til landsins í febrúar og var um það tal- að að skipið færi til veiða fljótlega eft- ir það. Eins og Þorsteinn segir hafa komið upp vandamál varðandi skipið og nú er það í slipp á Neskaupstað. „Það er verið að setja í skipið rör sem tekur skeljabrot frá flokkara en rörið sem fyrir var skilaði ekki hlutverki sínu,“ segir skipstjórinn. Hann segist ekki gera mikið úr þess- um erfiðleikum með að koma skipinu tO veiða en vissulega sé það „svekk- elsi“ að skipið skuli ekki hafa verið í topplagi þegar það var afhent. „En ég er ánægður með skipið þrátt fyrir þessa vankanta sem við höfum verið að sníða af því og það er nú tilbúið til veiða," segir Þorsteinn. Fossá hefur verið á undanþágu til tilraunaveiða í verkfalli sjómanna og þess því að vænta að tekið verði til við veiðarnar af fullum krafti þegar verk- fallið leysist. Þorsteinn segir að kúfisk- vinnslan á Þórshöfn, þar sem aflinn verður unninn, virðist í fullkomnu lagi. -gk Árás Atla Helgasonar lögfræðings á Einar Öm Birgisson var tilfefnislaus, langdregin og hrottaleg. Hann gerði ekkert til að leita aðstoðar þó að sjúkralið væri stutt frá Öskjuhlíð þar sem Atli kveðst hafa lamið Einar Öm í höfuðið meö hamri. Réttarmeina- fræðingur hefur sýnt fram á að hamar- inn hafi verið stærri en Atli heldur fram og höggin fleiri. Framburður Atla um að Einar Öm hefði neytt fikniefna er tilbúningur. Atli beitti aðra blekkingum f marga daga - fram að handtöku - til að leyna morðinu og villa um fyrir öðmm. Þetta sýnir fram á meiriháttar brotavilja. Það á að koma til refsiþyngingar þar sem sakfella á ákærða fyrir manndráp af ásetningi. Ásetningur Atla um manndráp myndaðist eigi siðar en hann greip til hamars í sæti bOs síns. Þetta er meginkrafa og niöurstaða ákæruvaldsins í morðmáli ríkissak- sóknara gegn Atla Helgasyni. Auk refs- ingar, 16 ára fangelsis, er farið fram á í DÓMSALNUM Úttar Sveinsson að lögfræðingurinn verði sviptur mál- flutningsréttindum ævOangt. Bros, deilur og átök? LeigubOstjóri sem kom fyrir héraðs- dóm í gær, eina vitnið sem borið getur um að Atli og Einar Öm hefðu hist í Öskjuhlíð, kveðst hafa mætt tveimur mönnum í bfl - annar þeirra hafi ör- ugglega verið Einar Öm undir stýri, hlæjandi eða í það minnsta brosandi. LeigubOstjórinn kveðst hafa talið að Atli hafi setið við hlið Einars Amar. Þetta kemur heim og saman við fram- burð Atla um að hann hafi beðið eftir Einari Emi í Öskjuhlíð, hann hafi síð- an gengið að bfl félaga síns er hann kom og sest upp í hjá honum - þetta hafi gerst áður en tfl deflna og síðan átaka kom. Sigríður Jósepsdóttir, sækjandi málsins, sagði á hinn bóginn aö ekki hefði verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að morðstaðurinn hafi verið Öskjuhlíð og líkur væru á að Einar Örn hefði verið á lífi eft- ir að hann fékk högg í höfuðið. Hann fannst í hraungjótu skammt frá Reykjanesbraut að afleggjaran- um að Grindavík og þar fannst blóð, einnig í bíl Atla. Þegar dómsformaður þriggja héraðsdómara spurði Atla að því í gær hvort hann hefði einhverju að bæta við framburð sinn eða þeirra vitna sem komu fyrir dóminn sagði hann: „Ég hef sagt sannleikann, lýst öllu eftir minni bestu vitund." Aumingja Arni Sjávarútvegsráðherrann Árni Mathiesen er bókstaflega á mflli steins og sleggju þessa dagana. Öðru megin standa. smábátasjómenn I með vaxandi fylk- ingu þingmanna úr öllum flokkum á bak við sig sem vflja að hætt verði við kvótasetningu I á ýsu, ufsa og steinbít. Hinu-' megin við Árna með reidda hnefa standa forystumenn LÍU með Krist- ján Ragnarsson í fararbroddi og vflja að kvótasetningalög verði gerð virk og engar refjar. Á sveif smá- bátasjómanna leggjast sveitarstjórn- armenn og segja byggðir landsins endanlega hrynja ef kvótinn veröi að veruleika en LÍÚ menn segja fiskistofna hrynja ef stjómlausar veiðar smábátanna haldi áfram. Ráðgjafi heita pottsins kann fá ráð fyrir Árna í þessari vonlausu stöðu en segist sjálfur hafa skellt sér til Kanari i langt frí ef hann væri í sporum ráðherrans... Ónýtur flygill? Þrotlaus vinna í áratugi við að koma Borgarleikhúsinu á legg reyn- ist ekki standa undir þeim vænting- um sem gerðar voru til þessarar stofnunar. Þrátt fyrir góðan vilja og góða spretti leikara og starfsfólks þá hafa peningavandræði og erjur sett meiri svip á starfsemina en góðu hófi gegnir. Nú er fram- kvæmdastjórinn á förum en steininn tók þó úr þegar besti vinur heitá pottsins kom með þær fréttir að svo væri fjárans flygOlinn i leikhúsinu ónýtur i þokkabót. Haföi hann það fyrir satt að sá landsfrægi spflari, Jónas Ingimundarsson, hcifi ekki treyst sér til að berja nóturnar á gripnum undir fögrum söng Þóru Einarsdóttur. Því hafi tónleikum snarlega verið slegið á frest og flutt- ir annað... Davíð of reynslulaus Greiningardefld Kaupþings telur að þróun vísitölu neysluverðs og gengis- þróun að undanfómu gefi tilefni tfl þess að endur- skoöa spá um verðbólgu ársins í hefld. Spár hafa þvi hækkað úr 4% í desember í 6-7% nú. Þaö fer því að síga í að verðbólga fari að nálgast tveggja stafa tölu eins og var á mestu vinsældarárum Steingríms Hermannssonar, fyrrum forsætisráðherra. Benda menn á að líklega væri rétt af Davíð að fara að standa upp úr ráðherrastól sínum og kafla Steingrím á stýrimannsvaktina að nýju. Davíð hafi hvort sem er ekk- ert í hann að gera enda gjörsamlega reynslulaus í að stíga ölduna í tveggja og jafnvel þriggja stafa verð- bólgu... Órofin samstaða Sjómenn sýna víðar samstöðu en í verkfalli og harðri baráttu fyrir bætt- um kjörum. Fregnir berast nú vestan af Qöröum að sjó- menn úr sjávar- plássum á norðan- verðum Vestfjörð- um ætli að samein- ast um eitt herjans skrall í tflefni sjó- mannadags í íþróttahúsinu á Torfnesi á ísafirði. Það eru forsvarsmenn Björgunar- félags Isafjarðar sem eru drifíjaðrirn- ar í þessari samstöðu. Ekki mun hafa þurft langar samningaviðræður tfl að koma þessu þrekvirki á laggirnar. Velta menn því fyrir sér hvort Þórir Einarsson ríkissáttasemjari gerði ekki rétt í því að kalla þessu rösku björgunarsveitarmenn til samninga- gerðar fyrst sjómenn og útgerðar- menn ráða ekki við dæmið...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.