Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001
DV
Soha Arafat
Segir neöri vör Arafats skjálfa vegna
þreytu og álags.
Eiginkona
Arafats vantrúuð
á frið við ísrael
Eiginkona Yassers Arafats Palest-
ínuleiðtoga, Soha Arafat, trúir ekki
á að friðarsamkomulag náist við
ísrael. „Það hefur alltaf verið sann-
færing mín að friðarferlið mistak-
ist,“ segir hún í viðtali við sádi-
arabískt kvennablað. Litið er á um-
mæli hennar sem óbeina gagnrýni á
eiginmanninn.
Soha Arafat tjáir sig sjaldan i fjöl-
miðlum og greinir næstum aldrei
frá skoðunum sínum á stöðunni í
pólitikinni.
Soha tjáði sig einnig í viðtalinu
um heilsu Arafats. Vegna skjálfandi
neðri varar hafa verið vangaveltur
um að hann sé með Parkinsons-
veiki. „Hann á ekki við neina van-
heilsu að stríða. Skjálftinn er vegna
þess að hann er þreyttur, nánast ör-
magna,“ segir Soha sem býr í París
með dóttur þeirra hjóna.
Flórída:
Ný kosningalög
Ný kosningalög hafa verið sam-
þykkt í Flórída hálfu ári eftir að
umdeild atkvæðatalning í ríkinu
réð úrslitum í forsetakosningunum.
Samkvæmt nýju kosningalögunum
á að handtelja atkvæði þegar niður-
staðan er hnífjöfn. í desember í
fyrra andmæltu George W. Bush,
núverandi Bandaríkjaforseti, og
ráðgjafar hans handtalningu.
Demókratar fullyrtu að handtalning
hefði leitt í ljós sigur Als Gores,
frambjóðanda þeirra. Bróðir for-
setans, Jeb Bush, ríkisstjóri Flór-
ída, hlakkar til að undirrita lögin.
Margrét Danadrottning
Starfsmenn drottningar geta ekki
stefnt henni fyrir vinnurétt vegna
friöheigi hennar.
Kjarabarátta í
höll Margrétar
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sagði á þingi í
gær að starfsmenn dönsku hirðar-
innar fengju möguleika á að skjóta
baráttumálum sínum fyrir gerðar-
dóm. Starfsmennirnir höfðu beðið
stjórnmálamenn um að tryggja
þeim formlegan kjarasamning og
tilkynnt að þeir viidu ekki lengur
heyra beint undir Margréti Þórhildi
Danadrottningu. Vegna friðhelgi
drottningarinnar geta starfsmenn-
irnir ekki stefnt henni fyrir vinnu-
rétt. Starfsmenn hirðarinnar eiga
að njóta sömu kjara og embættis-
menn. Þeir eru hins vegar á lægri
launum. Bílstjóri hirðarinnar er til
dæmis með allt að hálfri milljón ís-
lenskra króna lægri árslaun en ráð-
herrabílstjóri.
Skýringa leitað á sætismissi í mannréttindanefnd:
Refsing gegn
Bandaríkjunum
Lönd, sem oft hafa gerst sek um
gróf mannréttindabrot og verið refs-
að fyrir, hafa nú losað sig við einn
helsta gagnrýnanda sinn, Bandarík-
in. Fréttaskýrendur segja það hafa
tekist með því að mynda bandalag
með löndum sem eru reið Banda-
ríkjunum af allt öðrum ástæðum.
Bandaríkjamenn voru í gær önn-
um kafnir við að leita skýringa á
því að þeir skuli í fyrsta sinn síðan
1947 ekki verið endurkjörnir í
mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna. Við atkvæðagreiðslu á
fimmtudagskvöld voru Frakkland,
Austurríki og Svíþjóð kjörin fulltrú-
ar Vesturlanda.
Meðal þeirra mörgu sem undrast
niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar er
Madeleine Albright, fyrrverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Hún segir það beinlínis ótrúlegt að
Súdan eigi sæti í nefndinni en ekki
Bandaríkin.
Ótrúleg samþykkt
Madeleine Albright segir ótrúlegt aö
Súdan skuli vera í mannréttinda-
nefnd Sameinuðu þjóðanna en
ekki Bandaríkin.
Henry Hyde, formaður utanríkis-
málanefndar fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, segir þetta tilraun til að
refsa Bandaríkjunum vegna kröfu
þeirra um að refsað verði fyrir
mannréttindabrot hvar sem þau eru
framin.
Mannréttindasamtökin Human
Watch benda á að meðal nefndar-
landanna sem nú voru kjörin séu
auk Súdans, Úganda, Sierra Leone
og Togo. Kína, Kúba, Sýrland, Alsír
og Líbýa eiga einnig sæti í nefnd-
inni.
Talsmaður forseta fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings gaf í skyn í gær aö
þingið kunni að endurskoða sam-
komulagið um greiðslu skulda
sinna til Sameinuðu þjóðanna.
Ýmsir telja að niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar megi skýra með
því hversu Bandaríkin hafi verið
neikvæð gagnvart alþjóðlegri sam-
vinnu.
Hundraö saknaö eftir ferjuslys
Björgunarmenn í Kongó gáfu í gær upp alla von um aö hægt yröi aö bjarga þeim hundrað manns sem taldir voru inni-
lokaðir í ferju er hvolfdi á Kivuvatni viö bæinn Goma á fimmtudagskvöld. Sögðu björgunarmenn skort á iyftibúnaöi
hamla björgunaraögeröum. í gær höföu einungis fundist um tuttugu lík í vatninu.
Kim ætlaði líklega bara
til fundar við Mikka mús
Kim Jong Nam, sonur Kims
Jongs Ils, leiðtoga N-Kóreu, hafði
líklega ekkert slæmt í hyggju þegar
hann kom fyrr í vikunni til Japans
með falsað vegabréf. Sennilega ætl-
aði hann bara að sýna syni sínum
Mikka mús og félaga hans í
Disneylandi í Tókýó eins og hann
greindi japönskum embættismönn-
um frá.
Enn í gær vildu japönsk yfirvöld
ekki staðfesta að maðurinn, sem
kvaðst vera sonur Norður-Kóreu-
leiðtogans, væri sá sem hann sagð-
ist vera. Hann þykir að minnsta
kosti ákaflega líkur leiðtoganum.
Til þess að koma í veg fyrir að
þegar stirð samskipti þjóðanna
versnuðu ákváðu japönsk yfirvöld
að setja manninn, fjögurra ára son
hans, eiginkonu og vinkonu um
borð í flugvél til Peking í gær. Þar
beið tjórmenninganna bifreið en
Vísaö úr landi
Fjölskylda Kims fékk ekki aö sjá
Disneyland.
ekki er vitað hvert var ekið með þá.
N-kóreskur stjórnarerindreki tjáði
fréttamönnum að sagan um Kim
Jong Nam væri „gabb“ og að hann
væri ekki í sendiráðinu í Peking.
Ekki barst nein tilkynning um
hvenær Kim færi aftur heim til
Norður-Kóreu.
Nokkrir japanskir þingmenn mót-
mæltu því í gær að Kim skyldi hafa
verið sendur úr landi áður en ljóst
var hver tilgangur hans var með
Japansheimsókn hans. Sérfræðing-
ar í málefnum N-Kóreu hallast
margir að þvi að hann hafi liklega
sagt satt þegar hann lýsti því yfir að
hann hafi ætlaö að skemmta sér í
Japan.
Tívolíið í útkanti Pyongyang, höf-
uðborgar N-Kóreu, er sagt orðið slit-
ið. Rússíbaninn þar hefur verið bil-
aður í nokkur ár og önnur tæki
gömul og slitin.
Stuttar fréttir
Meðal þeirra fallegustu
Forsetafrú Banda-
ríkjanna, Laura
Bush, er fyrsta for-
setafrú Bandaríkj-
anna sem kemst á
lista tímaritsins
People yfir 50 falleg-
ustu manneskjur
landsins. George W.
Bush forseti kveðst
ánægður með að
Bandaríkin skuli komast að raun
um það sem hann hafi vitað í 23 ár.
Sprengt á Kýpur
Sprengja sprakk í gær utan við
heimili „forsætisráðherra Norður-
Kýpur“. Vörður særðist lítilsháttar
í árásinni.
Samtök frelsa börn
Nýstofnuð samtök í Danmörku,
Daphne, frelsaði þrjá drengi sem
rænt hafði verið til Marokkó. Yfir-
völd í Kaupmannahöfn styrktu að-
gerð samtakanna sem skipuleggja nú
frelsun barna í öðru arabalandi.
Bresk stjórnvöld fordæmd
Mannréttindadómstóll Evrópu
fordæmdi í gær bresk yfirvöld
vegna drápa breskra hermanna á
tíu IRA-félögum og tveimur óbreytt-
um borgurum á N-írlandi á níunda
og tíunda áratugnum og ónógrar
rannsóknar á drápunum. Voru
hverri fjölskyldu fórnarlambanna
dæmd 10 þúsund pund í bætur.
Grunaður um hryðjuverk
Fyrrverandi þýskur sérsveitar-
maður hefur verið handtekinn í
Kosovo vegna gruns um hryðjuverk
gegn Serbum.
Hækkar bensínskatt
Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands,
itrekaði í gær að
stjórnvöld myndu
ekki hætta við áætl-
un um hækkun bens-
ínskatts á næsta ári
þrátt fyrir að hækk-
að eldsneytisverð
kunni að valda kjósendum gremju.
Sókn gegn skæruliðum
Stjórnarher Makedóniu hélt í gær
áfram árásum á stöðvar albanskra
skæruliða í fjalllendi skammt frá
bænum Vakcince.
Sá engar spurningar
Fjölmiðlakóng-
urinn Silvio
Berlusconi, for-
sætisráðherra-
efni miðju- og
hægrimanna á
Ítalíu, kvaðst í
gær ekki hafa
fengið lista tíma-
ritsins The
Economist með
50 spurningum sem það kveðst hafa
sent honum. Sakaði Berlusconi
tímaritið um að gera vinstrisinnuð-
um vinum sínum greiða.
Söguleg afsökunarbeiðni
Jóhannes Páll páfi kom grísku
réttrúnaðarkirkjunni á óvart í
heimsókn sinni til Grikklands í gær
er hann bað guð fyrirgefningar á
syndum rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar gagnvart þeirri grísku. Baðst
páfi afsökunar eftir fund með erki-
biskup Aþenu. Á eftir foðmuðust
páfi og erkibiskupinn.