Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 11
b
11
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001
Skoðun
ar mundir, það hallar undan fæti í
heimilisrekstrinum og þegar upp
verður staðið í árslok má gera því
skóna að rekstarleg afkoma famili-
unnar standi á verulegum brauðfót-
um.
Og allt vegna þess að heimilið
nýtur ekki sömu rekstrarlegu for-
réttinda og olíufélögin. Það virðist
liggja líf við að olíufélögin og fyrir-
tækin í landinu séu rekin með
hagnaði en heimilisreksturinn er
augljóslega afgangsstærð. Og skatt-
urinn tekur auðvitað ekkert tillit til
þess þó stórkostlegur taprekstur sé
á heimilinu og heimtar sitt, á með-
an olíufélögin og aðrir slíkir geta
millifært ónotaö tap á milli ára og
hvað þær heita nú allar saman lög-
legu undanskotsleiðirnar.
Samt eru flestir sammála um að
það sé á vissan hátt mikilvægara að
framleiða börn, ala þau upp og
koma til manns sem gagnast kunnu
landi og þjóð en að selja einokunar-
olíu á okurverði. En þess sér því
miður ekki stað í því mismunandi
rekstrarumhverfi sem fjölskyldun-
um annars vegar og fyrirtækjunum
hins vegar er skapað.
The Oil Famiiy ehf.
Eftir að hafa velt þessum málum
fyrir mér um skeið hef ég nú ákveð-
ið að skapa sjálfum mér og fjöl-
skyldunni þær sjálfsögðu rekstrar-
legu forsendur sem við og öll önnur
heimili á landinu eigum auðvitað
skiliö. Ég ætla sem sé að stofna olíu-
félag um fjölskylduna, The Oil
Family ehf.
Ég hef ráðið mér lögfræðing og
hagfræðing mér til ráðgjafar og þeir
fullvissa mig báðir um að það sé
ekkert því til fyrirstöðu að stofna og
starfrækja olíufélag á heimilinu,
enda eru þeir báðir á launum hjá
méy við að komast að akkúrat þess-
ari niðurstöðu. Þeir kónar hafa bent
mér á að ég geti líka auðveldlega
skráð fyrirtækið á markað og selt í
því hlutabréf. Þannig megi alveg
gera ráð fyrir því að fermingarbarn-
ið sé bísna spennandi fjárfestingar-
kostur, því hver veit nema strákur-
inn verði atvinnumaður í fóbolta og
kannski seldur fyrir milljarð innan
tíu ára. Það er að sögn ráðgjafanna
í sjálfu sér ekkert óliklegra en að ís-
lensk erfðagreining fari að skila
hagnaði.
Nú, elstu strákarnir eru báðir á
sjónum og verða kannski einhvern
tímann útgerðarmenn með mikinn
kvóta (og er ekkert ólíklegra en að
netfyrirtækin fari að skapa verð-
mæti) og þar gætu legið nokkrar
spesísur. Ef önnur stelpan verður
viðskiptafræðingur og hin tann-
læknir þá eru þær afar líklegar til
að skila nokkrum arði, ekki síður
en bensínstöö á Bakkaflrði eða
Essósjoppa á Eskiflrði.
Hlutafélagavæðing heimilisins
gefur okkur líka heimild til að velta
óvæntum útgjöldum og hækkunum
í hafi út í verðlagið, þannig að mað-
ur á heimtingu á kauphækkun í
hvert skipti sem þvottavélin og bíll-
inn bila.
Ef þetta gengur allt eftir þá horf-
um við og aðrar fjölskyldur í land-
inu fram á bjartari tíma með halla-
lausum heimilisrekstri, líkt og olíu-
félögin gera núna.
Við skulum því ekki hafa neinar
vöflur. Oliufélagavæðum heimilin í
landinu og það strax!
„Agndofa þjóð bíður þess
að vísindamennimir út-
skýri hvar þeim brást
bogalistin. Af hverju
týnduð þið þorskstofnin-
um? Var eftir allt saman
eitthvað að marka
kverúlantana sem bentu á
það að vísindin í kringum
fiskifrœðina líktust meira
veðurspá en fullkominni
eðlisfrœðirannsókn. “
er eins og krækiber í helvíti og langt
innan skekkjumarka og ekkert er
nýtt í brottkastinu.
Ekki verður fram hjá því litið að
fiskifræðingamir hafa um árabil boð-
að stóra fiskistofna handan við horn-
ið. Nú er staðan sú að þorskurinn er
að éta krónuna; ekki upp til agna en
hún rýmar daglega.
Agndofa þjóð bíður þess að visinda-
mennimir útskýri hvar þeim brást
bogalistin. Af hverju týnduð þið
þorskstofninum? Var eftir allt saman
eitthvað að marka kverúlantana sem
bentu á það að vísindin í kringum
fiskifræðina líktist meira veöurspá
en fullkominni eðlisfræðirannsókn.
Varðandi vísindaleg mistök er ein-
falt dæmi til af því þegar vísinda-
menn NASA misreiknuðu sig svo
hastarlega að geimfar brotlenti á
Mars. Þeir rugluðu saman tommum
og sentímetrum.
Hvar reiknaði Hafrannsóknastofn-
un vitlaust. Getur verið að stofnunin
sé að ragla saman metram og foðrn-
um? Eða er hún kannski að rugla
saman þorski og steinbít? Afleiðing-
amar era ljósar.
I hverju liggja mistökin? Hvað er
sjávarútvegsráðherra að hugsa?
Spurningarnar eru ótalmargar en
svörin era árlega á sömu lund.
„Sorry, þorskstofninn er í kreppu."
„Af hverju?“ er spurt og það stend-
ur ekki á svarinu:
„ Af því bara.“
Hin pólitíska véfrétt
Framsóknarflokkurinn og fátt bend-
ir til aö það muni breytast mikið í
næstu kosningum. Alla vega ekki
þannig að sú mynd sem við höfum í
dag breytist í grundvallaratriðum.
Það er því í raun engin skynsamleg
ástæða fyrir Davíð - svona út frá
öllum venjulegum mælikvörðum -
að hefja máls á því að gefa eftir for-
sætisráðuneytið í samstarfl við svo
miklu minni flokk. Raunar er það í
sjálfu sér stórmerkilegt að hann
skuli yfirleitt vera að gefa það út
nú, viö mitt kjörtímabil, að hann
hafl áhuga á að endumýja samstarf
stjórnarflokkanna eftir næstu kosn-
ingar. En hvað veldur þá þessu út-
spili?
Kenningar
Eins og áður segir hafa ýmsar
kenningar heyrst. Til dæmis að
Davíð telji heppilegt að gefa eftir
forsætisráðuneytiö til að fá fleiri
ráðherrastóla á móti. Einnig heyrist
að hann sé á leið út úr pólitík og
ætli sér ekki einu sinni að vera á
vettvangi stjórnmálanna þegar kem-
ur að því að standa viö yfirlýsing-
arnar.
Satt að segja eru þetta frekar
slakar kenningar, bæði vegna þess
að þær ganga þvert á það sem Dav-
íð er sjálfur að segja og vegna þess
að innri rök þeirra standast ekki.
Davíð hefur fjálglega lýst því að
hann muni sækjast eftir forustu á
lista í Reykjavík í næstu kosningum
og jafnvel þó hann ætlaði að hætta
þá er ekkert sem knýr hann til þess
að skjalla Framsókn og Halldór með
þessum hætti nú. Þvert á móti gæti
þetta valdið eftirmönnum hans
óþarfa vandræðum síðar og það
vakir nú tæplega fyrir honum!
Fordæmi Þorsteins
Ein athyglisverð kenning gengur
út á að Davíð hafl gefíð yílrlýsingar
sínar í afmælisvímu og þvi beri að
taka þær með mikilli varúð. Þessi
vímukenning er komin frá Stein-
grími Hermannssyni, fyrrum for-
sætisráðherra, sem er eins og svo
margir aðrir nokkuð hissa á útspili
Daviðs. Steingrímur minnti á það í
samtali við DV í vikunni að Davíð
hafi fundið Þorsteini Pálssyni það
til mikillar foráttu á sínum tíma að
sitja í ríkisstjórn sem Steingrímur
Hermannsson leiddi, þrátt fyrir að
Sjálfstæðisflokkurinn væri mun
stærri flokkur en Framsóknarflokk-
urinn. Þetta er gagnleg ábending
hjá Steingrimi, þó þessi annars
ágæta vímukenning hljóti að öðru
leyti að teljast heldur ólíkleg.
Maddaman friðuð
Fjórða kenningin, og sú sem hlýt-
ur að teljast líklegust, felur í sér að
Davíð meti stöðuna þannig að hann
þurfi með einhverjum hætti að friða
Framsóknarmaddömuna. Ekki bara
Halldór Ásgrímsson og hans nán-
ustu samstarfsmenn heldur mun
víðari hóp framsóknarmanna sem
margir eru farnir að hafa verulegar
efasemdir um ágæti stjórnarsam-
starfsins. Sá sem þetta ritar hefur
áður rakið það hér á þessum vett-
vangi hvernig fjölmörg merki um
kulnun í hinu pólitíska hjónabandi
ríkisstjómarsamstarfsins hafa gert
vart við sig seinni hluta vetrar.
Nægir þar að minnast á Búnaðar-
bankamálið, Þjóðhagsstofnunarmál-
ið og nú síðast Evrópumálin. í flest-
um þessum málum hafa framsókn-
armenn búið við ofríki og stundum
hreinEm og beinan dónaskap frá
sjálfstæðismönnum - ekki síst Dav-
íð sjálfum.
Blómvöndur
Á stjórnarheimilinu hefur Fram-
sóknarmaddaman því verið í hlut-
verki hinnar þolinmóðu eiginkonu,
á meðan sjálfstæðismenn hafa hegð-
að sér eins og hinn ofstopafulli og
tillitslausi heimilisfaðir. Slík sam-
bönd enda yfirleitt aðeins á tvo
vegu. Annaðhvort beygir eiginkon-
an sig í duftiö og gerist meðvirk
með ofstopamanninum eða þá að
hún lætur ekki bjóða sér þetta og
fer að heiman. Framsóknar-
maddaman var farin að íhuga
seinni kostinn. Það aftur gjörbreytti
framkomunni hjá ofstopamannin-
um. Þegar til kom gat hann ekki
hugsað sér að missa maddömuna og
færir henni þess vegna blómvönd og
lofar bót og betrun. Og valdahlut-
völlin á heimilinu breytast gjörsam-
lega í einu vetfangi!
Ekki valkostir
Sjálfstæðismenn hafa eflaust átt-
að sig á því að í ríkisstjórn getur
samstarfið verið hverfult og valkost-
irnir sem þeir hafa eru þrátt fyrir
allt ekki endilega svo kræsilegir.
Það er nefnilega ekkert líklegra að
flokkurinn geti stofnað til friðsælla
fjölskyldulífs á stjórnarheimili með
Samfylkingunni eða Vinstri græn-
um, en með Framsókn. Útspil Dav-
íðs er því í raun pólitiskur blóm-
vöndur og skilaboðin sem véfréttin
í Delfi var aö færa okkur um síð-
ustu helgi eru yfirlýsing um bót og
betrun í stjómarsamstarfinu.
Spurningin er bara sú, hvort fram-
sóknarmönnum, með Halldór í
broddi fylkingar finnist eitthvað
varið í þennan blómvönd og það
sem hann stendur fyrir eða hvort
þeir túlka þetta sem lasburða yflr-
klór.
„Davíð gaf það nefnilega
sterklega til kynna að
hann vildi að núverandi
stjómarflokkar héldu
áfram samstarfinu eftir
nœstu kosningar - að
breyttu breytanda - og
að hann teldi það fylli-
lega koma til greina að
Halldór Ásgrímsson
myndi leiða samsteypu-
stjóm Sjálfstœðisflokks
og Framsóknarflokks. “
Birgir
Guðmundsson
fréttastjóri
Eftir að Davíð Oddsson tileinkaði
sér þá stefnu að koma helst ekki
fram í umræðuþáttum í fjölmiðlum
og vera ekki á siðum dagblaðanna
nema til hátíðabrigða hafa ummæli
hans um hin ýmsu málefni náð
þeirri stöðu að teljast takmörkuð
auðlind. Það er helst í umræðum á
Alþingi sem menn fá að heyra hvað
forsætisráðherra flnnst um hitt og
þetta og svo auðvitað í drottningar-
viðtölum sem tekin eru til hátíða-
brigða. Af þessum sökum leggur
þjóðin við hlustir í þessi skipti sem
Davíð á annað borð tjáir sig um eitt-
hvað. Enda er leikurinn eflaust til
þess gerður hjá honum.
Yfirlýsingin
Um síðustu helgi og í byrjun þess-
arar viku brá hins vegar svo við að
Davíð var talsvert mikið í fjölmiðl-
um og það talaði á honum hver
tuska. Landsmenn hlustuðu af at-
hygli á það allt. Tilefnið var líka
ærið, hann var að fagna 10 ára
valdaafmæli. Að öðru sem Davíð
var að tala um ólöstuðu, þá hafa
ummæli hans um næstu ríkistjórn-
armyndun vakið langmesta athygli.
Davíð gaf það nefnilega sterklega til
kynna að hann vildi að núverandi
stjórarflokkar héldu áfram sam-
starfinu eftir næstu kosningar - að
breyttu breytanda - og að hann teldi
það fyllilega koma til greina að Hall-
dór Ásgrímsson myndi leiða sam-
steypustjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Þvf miður var
Davíð ekki spurður meira út í þess-
ar yflrlýsingar en ljóst er að menn
skilja þær með afar misjöfnum
hætti, allt eftir því hver á í hlut.
Davíð er því í hlutverki véfréttar-
innar frá Delfl hvað þetta varðar.
Eins og véfréttin forðum gefur hann
út yfnlýsingu um framtíðina, sem
áhugamenn um pólitík hafa verið
að velta fyrir sér, ræða og túlka alla
vikuna. En vegna þess hversu
knöpp ummæli hans era fæst ekki
úr því skorið nákvæmlega hvað
hann er að meina. Og eins og í Delfl
forðum veltur það síðan á túlkun
þeirra sem á hlýða hversu merkileg
fréttin reynist á endanum. En sú
staðreynd breytir þó ekki því að al-
menn umræða um véfréttir af þessu
tagi getur út af fyrir sig verið afar
gagnleg, því hún veltir upp ýmsum
flötum á hinu pólitíska ástandi á
hverjum tíma. Og þannig er það
líka núna, í það minnsta virðist
enginn hörgull á kenningum
um það hvað forsætisráðherr-
ann sé að fara með þessum
yfirlýsingum.
Rausnarboö
Rétt er að árétta áður en
lengra er haldið að tilboð eða
„næsum-því-tilboð“ Davíðs um
að Halldór Ásgrímsson leiði sam-
steypustjórn Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks er afar rausnarlegt
hvernig sem á það er litið.
Sjálfstæðisflokkurinn er
tvöfalt stærri en