Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV „Vitaskuld þykir mér það vera mikill heiður að vera út- nefndur bœjarlista- maður, þó ég sé kannski líka svolítið var um mig. Kannski er einhver ótti í undirmeðvit- undinni um að ver- ið sé að gera grín að mér. Ég veit ekki hvers vegna. Lista- maður er stórt orð og ég hef aldrei litið á mig sem slíkan, heldur fyrst og fremst sem bifvéla- virkja og söngvara. “ DV-MYNDIR BRINK Bifvéiavirki og bæjarlistamaöur „Mér fannst frægöin vera aö skrúfa mig upp á tímabili og þaö var vond tilfinning sem ég vil ekki upplifa að nýju. “ Aðalstarf Óskars er bifvétavirkjun hjá Kraftbílum á Akureyri en söngurinn tekur þó mikinn tíma. hæfileika sem þarf. Sannast sagna veit ég ekki hvort ég hefði hrein- lega haft taugarnar í þetta. Sigrar á sviðum óperuhúsanna geta vissulega verið sætir en mér finnst þó líka mikils um vert að vera sáttur við eigið líf og starf. Það er ég svo sannarlega." „Dæmalaust góðir" Á síðustu árum hefur íslensk- um söngvurum sem starfa við er- lend tónleikahús fjölgað ákaflega mikið „... og margir þeirra eru dæmalaust góðir,“ einsog Óskar kemst að orði. Hann nefnir sér- staklega bassana Kristin Sig- mundsson og Viðar Gunnarsson og tenórana Gunnar Guðbjörns- son og Kolbein Ketilsson." Af þessum mönnum sem ég nefni hef ég alltaf verið hvað hrifnastur af mjúkri og hlýrri rödd Gunnars Guðbjörnssonar sem er ævinlega hann sjálfur í söngum og er ekk- ert að búa til.“ Þegar rætt er um aðstöðu tón- listarmanna úti um landi segir Óskar hana vera afskaplega lélega oft á tíðum og koma niður á því að stórir sigrar geti unnist. „Menn hafa að vísu verið að tala um að byggja hér veglegt tónlistarhús og það gæti auðvitað skipt sköpum. En voðalega er ég samt hræddur um að tónlistar- eða menningar- Listamaður er stórt orð - segir Óskar Pétursson, söngvari frá Álftagerði „heimatenór og allra manna gagn“ á Akureyri Heimatenór og allra manna gagn Það er Óskar Pétursson á Akur- eyri, sem fyrir skömmu var út- nefndur bæjarlistamaður fyrir næsta áriö, sem svo kemst að orði. Þessa heiðurs mun hann meðal annars njóta með því að verða á launum frá bænum um hálfs árs skeið og segist Óskar svo sannar- lega ætla að nýta sér svigrúmið sem það gefur. Hefur meðal ann- ars í hyggju að leita sér frekari til- sagnar í söngum. „Síðan hef ég einnig verið með fyrirætlanir um að efna til veglegra tónleika hér á Akureyri um páskana á næsta ári og er þegar byrjaður undirbúning. En það mál er allt á frumstigi og ég get lítið sagt um það enn þá,“ segir Óskar. Spurður um skilgreiningar á því hver sé listamaður segir hann að efalaust megi flokka hann sem slíkan ef það sé sá sem gefur af sjálfum sér til annarra. „Megin- málið er þó það að ég hef aldrei leitt hugann aö því hvort ég sé listamaður. Sjálfur hef ég stundum notað þá skilgreiningu að segja að ég sé heimatenór og allra manna gagn sem fenginn er til þess aö syngja um allt Norðurland við þorrablót, skírnir, brúðkaup og jarðarfarir." Klósettsöngur og 100 jarðarfarir Fáir menn á Norðurlandi eru eftirsóttari sem einsöngvarar við jarðarfarir en einmitt Öskar Pét- ursson. Hann segist syngja árlega við 80 til 100 jarðarfarir, flestar á Akureyri. Og það getur verið erfitt að láta það ríma og koma heim og saman við aðalstarfið sem eru vörubílaviðgerðir hjá Kraftbílum á Akureyri. „Það er erfitt að ná fullri einbeitingu í söng við jarðar- för þegar maður hefur verið kannski hér á fullu í vinnu sem er oft á tíðum erfiðisvinna. Ég finn þetta betur eftir því sem ég eldist. Oft er líka erfitt að syngja við jarð- arfarir og tekur mjög á mann. Kannski ekki þegar í hlut á eldra fólk sem er hvíldinni fegið. En inn á milli koma alltaf jarðarfarir sem taka á mig og rífa í sálina, eins og til dæmis þegar ég syng yfir ungu fólki sem hefur farið snögglega." Söngur var nánast hluti af því uppeldi sem Óskar fékk á heima- slóðum sínum í Álftagerði í Skaga- firði, bænum sem hinir söngvinu bræður kenna sig við. „Ég flutti hingað til Akureyrar árið 1972 og fór að vinna sem bifvélavirki hér. Byrjaði þá mjög fljótlega að syngja með Karlakór Akureyrar og hef sungið með ýmsum kórum og sönghópum eftir það. En að skag- firskum sið má auðvitað segja aö það fyrsta sem ég hafi sungið opin- berlega hafi verið á klósettinu í Miðgarði, en ævinlega þykir til- heyra að þar sé sungið, helst radd- að, á hverri einustu söngskemmt- un og dansleik." Sáttur við eigið líf og starf Eins og segir hér að framan kveðst Óskar ætla að leggja fyrir sig söngnám næsta vetur. „Endur fyrir löngu var ég við nám einn vetur í Söngskólanum, hjá Má Magnússyni, og einnig lærði ég hjá Sigurveigu Hjaltested og Guð- rúnu A. Kristinsdóttur píanóleik- ara sem ég hef lært mjög mikið af og hef átt gott samstarf viö. Mest var ég síöan hér á Akureyri hjá Margréti Bóasdóttur. Hjá hverjum þessara kennara lærði ég sína ögn- ina, þó allir væru þeir ákaflega ólíkir. Margrét var til dæmis ekk- ert að láta mig garga frá mér vitið, heldur lagði rækt við miðsvið raddar minnar. Már kappkostaði hins vegar að sprengja mig nánast þannig að ég öskraði eins og ég lif- andi gat.“ Sagan segir frá ungum bifvéla- virkja á Akureyri sem fyrir nær þrjátíu árum venti sínu kvæði í kross og hélt til söngnáms úti í hinum stóra heimi. Sá heitir Krist- ján Jóhannsson og hefur á undan- förnum árum unnið margra glæsta sigra á sviðum óperuhúsa heimsins. „Nei, mig hefði ekki langað til þess að verða spor- göngumaður Kristjáns, til þess er ég ekki rétta manngerðin," segir Óskar ákveðinn. „Sannast sagna hefði ég ekki haft neina burði né verið nógur til að berjast fyrir til- veru minni í hinum harða heimi óperuhúsanna. Kristján hefur mikið sjálfstraust, flotta fram- komu, munninn fyrir neðan nefið - eða með öðrum orðum alla þá hús hér í bænum rísi ekki fyrr en ég er kominn á elliheimilið. Það er svo aftur spurning hvaða tón- list verður í húsinu flutt. Stund- um er sagt að við söngvarar úti á landi förum ekki í allra metnaðar- fyllstu tónverkin heldur tökum þessi lög sem allur meginþorri þjóðarinnar hefur gaman af. En við skulum þá ekki vameta þann hóp sem sækir tónlistarviðburði fyrst og fremst til þess að skemmta sér.“ Einhver kengur Þegar litið er yfir hóp íslenskra einsöngvara vekur athygli að það eru tenórsöngvararnir sem öðrum fremur njóta vinsældanna. Spurn- ingin sem vaknar hlýtur því að vera sú hvort íslenska þjóðin sé hreinlega æst i tenóra. „Það virð- ist vera,“ segir Óskar og hlær. „Einhver kom með þá speki að tenórar væru vinsælir vegna þess að þegar þeir færu upp á háa C-ið væru þeir komnir í algjöran línu- dans um hvort þeir héldu tónin- um eða ekki. Að fylgjast með þessu væri hrein og klár spennu- fíkn meðal áhorfenda úti í sal. Ég hef oft fylgst með þessu þegar ég stend á sviðinu; salurinn springur ef þú kemst sem sigurvegari í höfn en á hinn bóginn ertu algjör- lega jarðaður ef þú springur. Síð- an er líka gaman að velta því upp að í óperum er alltaf birta yfir rödd tenóranna sem leika hina ástsjúku. Bassarnir leika ruddana. Ef við höldum okkur svo við þessa skilgreiningu þá treysti ég mér til að svara því að ég sé enginn ruddi né ofstopamaður heldur vil fara mýkri leiðir í líf- inu. En síðan geta bassar oft verið hinir mýkstu og elskulegustu menn - og þannig er það oft á tíð- um,“ segir Óskar. „Mér fannst frægðin vera að skrúfa mig upp á tímabili og það var vond tilfinning sem ég vil ekki upplifa að nýju. Satt best að segja varð ég helst og nær eingöngu var við þetta ef ég var kenndur. En nú er ég steinhættur að fá mér i tána og því er ég ekki lengur að hugsa um frægð. En ég væri þó ekki heiðarlegur nema ég segði að þetta klórar auðvitað stundum í mig. Samt er alltaf í mér einhver kengur vegna feimni, finnst stundum þegar ég labba inn í Nettó eða Hagkaup að fólkið sé að horfa á mig. Þessi tilfinning hlýt- ur að rjátlast af mér á endanum." -sbs Söngvarinn „Þaö er erfitt aö ná fullri einbeitingu í söng viö jaröarför þegar maöur hefur veriö kannski hér á fullu í vinnu sem er oft á tíðum erfiöisvinna. Ég finn þetta betur eftir því sem ég eldist. Oft er líka erfitt aö syngja við jaröar- farir og tekur mjög á mann. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.