Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Page 24
24 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 Helgarblað Meðferðin holdi klædd - Þórarinn Týrfingsson yfirlæknir og einvaldur í SÁÁ talar um fíkn og fjármögn- Þórarinn Tyrfingsson er enginn álfur. Ef eitthvað er þá er hann álfakonungur líkt og Alfinnur álfakonungur sem margir muna eflaust eftir úr samnefndum barnabókum. Þórarinn er yfir- læknir á Vogi og persónugerving- ur áfengis- og fikniefnameðferðar á fslandi. Árlega birtist rúnum rist andlit hans á sjónvarpsskjánum eða sið- um dagblaðanna og segir okkur af lífsreyndum alvöruþunga sögur úr þeirri varnarbaráttu sem Þórar- inn og menn hans heyja stöðugt við fikniefnadjöfulinn og Bakkus konung og óteljandi fótgönguliða þeirra. Þessir tímar eru nú uppi vegna þess að um þessar mundir fer fram árlega álfasala SÁÁ til styrktar starfseminni. Sölubörn og endurreistir fíklar fara eins og maurar um samfélagið og bjóða okkur að kaupa loðna krúttlega álfa til þess að næla í barminn eða stilla upp á ísskápinn eða tölvuna og minna okkur þannig á það að við erum góð þegar öllu er á botn- inn hvolft. Við styrktum SÁÁ og keyptum álf. 4,3 í viðbót á viku Árið 2000 komu 1843 fíklar af ýmsum toga á ólíkum aldri til með- ferðar hjá SÁÁ á Vogi og fóru það- an til frekari meðferðar á Vík eða Staðarfell eða nutu göngudeildar- stuðnings. Sumir hafa eflaust end- að í sambýlum sem SÁÁ rekur á Miklubraut og við Eskihlíð. Þeim fjölgaði verulega milli ára sem sáu ljósið og ákváðu að drifa sig í meðferð eða úr 1615 árið áður. Það svarar til þess að nærri einn hafi bæst við hvern virkan dag eða um það bil 4,3 á viku. Nú lætur nærri að tala þeirra sem koma til meðferðar sé jafnhá töl- unni yfir þá sem látast á ári hverju á íslandi. Okkur finnst þeir vera heldur margir en hinir mættu áreiðanlega vera fleiri. DV spurði Þórarin Tyrfingsson hverjir það væru sem kæmu í meðferð og hvers vegna. „Karlmenn eru i miklum meiri- hluta eða um 70% á móti 30% kvenna. Við greindum mikla aukningu í neyslu kannabisefna á árunum 1995 til 1996 eftir að slík neysla hafði staðið í stað að okkar mati frá 1987 en nú í kjölfar þess- arar aukningar má sjá mikla aukningu i neyslu örvandi efna eins og amfetamins, kókaíns að ógleymdri e-töflunni eða helsælu eins og sumir kjósa að kalla hana,“ sagði Þórarinn. Drukkum lengi lítið en illa Þórarinn sagði að i hópi þeirra sem koma i meðferð á hverjum tima væru 40% að koma í fyrsta sinn en 35% hafa komið áður. Af- gangurinn er, að sögn Þórarins, hluti af um 500 manna hópi sem hefur litla eða enga stjórn á neyslu sinni og leitar til SÁÁ hvað eftir annað. - En hvernig er með Bakkus konung. Er veldi hans á undan- haldi? „Mælt í alkóhóllítrum drukkum við Islendingar lengi minna en margar aðrar þjóðir og mátti segja Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi dv-mynd e.ól. Hann hefur þurrkað íslendinga síðan 1979 og segist vinna þarft en á köflum misskilið starf. 228 fleiri komu í með- ferð árið 2000 en árið áður. að við drykkjum lítið en illa. Þetta er hægt og hægt að breytast. Áfengisneysla ungs fólks hefur gjörbreyst frá því að vera skemmt- ananeysla yfir í að vera rútínu- neysla og við erum að ná öðrum þjóðum í þessari neyslu svo Bakkus á sína fylgismenn og þeim fjölgar.“ K j ötmarkaðurinn skrifar um Við vinkonurnar höfum verið að ræða ákveðið mál að undan- förnu. Nefnilega það ferli sem fer i gang þegar ókunnugt eða mis- kunnugt fólk hittist á öldurhúsi og fer að gera hosur sínar grænar hvert fyrir öðru. Þetta er hinn skrautlegi mökunardans sem stiginn er á nær hverjum fer- metra lands frá Fischersundi að Rauðarárstíg hverja helgi þegar brennivínsblautt og leitandi fólk reynir að finnast í nóttinni. Stundum finnur fólk hvort annað og á saman fallegar stundir en oftar er þetta óttalegt fálm út í loftið því einhvern veginn er eins og við höfum þvi miður ekki öll lært dansinn í sama mökunar- dansskólanum. Typpatal Það er eins og sumir karlmenn séu með beina viðbragðsbraut frá kynfærunum og upp í talfærin. Dags daglega ef meðvitundarstig er óskert og karlmaðurinn vel áttaður á stund, stað og persónu er þetta ekki til trafala en um leið og hömlur eru svæfðar með áfengi eða öðrum eiturlyfjum fer ferlið í gang. Þetta virkar á þá lund að um leið og kvenmaður nálgast byrjar að renna í vininn og þá fara þeir að segja skrýtna hluti við konur án nokkurra filt- era eða ritskoðunar heilabarkar- ins. Þetta eru einkennilegar setn- ingar eða pikköpp línur eins og „djöfull væri gott að ríða þér“ eða Þaö er erfiöur og flókinn dans sem er stiginn á skemmtstöðum hverja helgi. Konur eru í karlalelt og karlar eru í konuleit. Aöferöirnar eru margvíslegar og sumar fráhrindandi. „ertu þröng“ eða „viltu totta mig á eftir“. Auövitað geta konur al- veg verið i léttu skapi á góðri stund og haft húmor fyrir svona nálgun en yfirleitt eru gaurarnir sem nota þessar línur í örvænt- ingarfullri leit aö skyndiást í nóttinni og eru líklega búnir að þylja linuna sína 150 sinnum í von um að lenda loksins á sprund sem vill þýðast þá. Þetta virkar sérstaklega illa ef maðurinn er með áfengisaugu, drafandi mál- róm og andremmu. Það er afskap- lega kynslökkvandi ástand fyrir konur en það er ekki síður kyn- slökkvandi að fá það á tilfinning- una að vera númer 151 í við- reynsluröðinni það kvöldið. Gsti samt gengið... Einu tilfellin þar sem áður- nefndar línur gætu gengið, sem og aðrar ríðinga- og tottlínur, eru þegar karlinn er snyrtilegur, í mesta lagi dálitið áfengismjúkur eða heitur og búinn aö vinna sér inn mjög mörg lostaprik á undan með augnaráði, brosi eða örvandi samræðum um eitthvað áhuga- vert (ekki endilega kynlíf, kannski frekar brennandi mál- efni eins og skortinn á verkfalls- rétti lögreglumanna eða rauðar paprikur). Ef lostaprikin hlaðast upp með augnsambandi og bros- um og annarri kveikjandi líkams- tjáningu má vel vera að setning sem sögð er í gleði og einlægum áhuga gæti virkað þó að hún innihaldi orð eins og „ríða“ og „tott“. Viðreynsla þarf nefnilega yfirleitt að byggjast á því að fórn- arlambinu finnist það hafa sér- stöðu en ekki vera einn af ótal skrokkum sem koma til greina á grillið það kvöldið. Þetta verður allt að passa inn í augnablikið og vera hárnákvæmlega útreiknað svo aö það slokkni ekki i þeim neistum sem kunna að vera byrj- aðir að snarka undir dömunni. Ehm... dömunni segi ég, en vil hins vegar minna á að vitaskuld geta dömur og aðrar konur reynt við karla á börum. Það er nú samt yfirleitt þannig að þær nota aðeins aðrar aðferðir og hvort sem það er félagsmótun að kenna/þakka eða ekki er afskap- lega sjaldgæft að þær noti þessar alræmdu ríðinga-/tott-/þrengsla- setningar. Ég hef að minnsta kosti aldrei heyrt konu segja „ef þú bara vissir hvað ég er þröng“ eða „djöfull væri gott að totta hann á þér“, í það minnsta ekki við ókunnuga menn. Hitt er svo annað mál hvað þær segja við karla sem þær þekkja. Æfingar Já, það er erfitt að vera til. En fyrir þá og þær sem vilja auka möguleika sína á knæpum borg- arinnar er vert að minnast á nokkrar vefsíður þar sem ágætar leiðbeiningar er að finna um dað- ur: www.flirts.com, www.get- girls.com og svo auðvitað okkar ágæti www.einkamal.is þar sem hægt er að æfa rafræn samskipti við hitt kynið með góðum ár- angri. Fyrir þá sem eiga ekki tölvu eða eru meira fyrir sam- skipti af holdi og blóði er alveg tilvalið að fá góðan vin eða vin- konu með sér í hlutverkaleik til að æfa pikköpplínur og við- reynslutækni. Þetta hljómar voðalega kjánalega en trúið mér, ég hef séð svona kjánaskap breyta feimnasta fólki í daður- snillinga á undraverðan hátt. Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfrœöingur og kynlífs- rúðgjafi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.