Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2001, Page 28
28 Helgarblað LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 DV Snorri Óskarsson, formaður Betel-safnaðarins í Vestmannaeyjum. „Þaö er afar hættulegt fyrir trúarleiötogar aö skipta sér af fjármálum. Þaö eru yfirleitt þrjú atriði sem verða safnaöarleiötogum að falli. Þaö er kvenfólk, peningar eöa valdagræögi. Ef safnaöarleiötogi eða ölc riöum lendir hann fyrr eöa síðar í vandræöum. Þeir sem ætla aö leiöa safnaöarstarf veröa líka aö leyfa Guðs oröi aö leiöa sig í sínu lífi því þeir eru fyrirmynd. “ Eldklerkurinn farinn frá Eyjum - Snorri Óskarsson safnaðarleiðtogi talar um ágirnd, skammsýni og veikleika mannanna, kvótakerfið, nektarstaði og samkynhneigð. Hann dreymir um að verða fljúgandi trúboði á eigin flugvél. Það segir slna sögu um hvað Snorri Óskarsson, safnaðarformað- ur í Betel, er mikill og rótgróinn Vestmannaeyingur að hann tekur á móti blaðamönnum í heimsókn í herberginu sem hann fæddist í. Það er sólskin við Faxastíg í Éyjum og yfir bænum sú kyrrð og ró sem aldrei finnst á götum höfuðborgar- innar Það eru blikur á lofti þrátt fyrir sólskinið. Snorri er á förum frá Vestmannaeyjum, tæplega fimmtug- ur, og hyggst setjast að á Akureyri í sumar. Hann hefur alið allan sinn aldur í Vestmannaeyjum, fæddur inn i Betel-söfnuðinn þar, frelsaðist níu ára og var skírður með niður- dýfingu 11 ára gamall. Hann hefur leitt Betel í 28 ár og skeleggur mál- flutningur hans jafnan vakið at- hygli langt út fyrir eyjarnar en Snorri er bókstafstrúarmaður af gamla skólanum sem telur það skyldu sína að segja þeim til synd- anna sem ekki ganga á Guös vegum og hafa orð Biblíunnar að leiðar- ljósi. Leitum sannleikans Hvítasunnusöfnuðurinn hefur undanfarið verið í kastljósi fjöl- miðla með nokkuð neikvæðum hætti en Hinrik Þorsteinsson, for- stöðumaður safnaðarins í Fljótshlíð, situr í stjóm hins umdeilda fyrir- tækis Thermo Plus á Suðumesjum en fjöldi fólks missti stórfé og sum- ir aleiguna á hlutabréfakaupum í fyrirtækinu, sumir að ráði Hinriks. Snorri hefur ekki hlíft Hinrik trú- bróður sínum við gagnrýni og hefur sagt að trúverðugleiki hvítasunnu- manna í heild hafi beðið skaða af. í dag, laugardag, er sérstakur fundur um málefni Hinriks og afskipti hans af Thermo Plus og koma þar saman forstöðumenn allra safnaða hvíta- sunnumanna á landinu. Fundurinn fer fram í Fíladelfíu í Reykjavik og þar verður sannleikans leitað, að sögn Snorra. Þó er stjómskipulagið þannig að hver söfnuður ræður sér sjálfur og sameiginlegur landsleið- togi er ekki til þótt litið sé til safn- aðarins í Reykjavík um ákveðna forystu, að sögn Snorra. Er málstað- ur hvítasunnumanna í vondum málum? „Hinrik er bisnessmaður og at- hafnamaður og margt gott hefur komið frá honum og við hvíta- sunnumenn eigum honum margt að þakka. Hinrik á allan okkar stuðn- ing en allar hliðar þessa máls þurfa að koma upp á yfirborðið og ég á erfitt með að trúa því að það hafi verið ætlun hans að blekkja fólk og svíkja." Ágirndin réöi - Nú segja þeir sem eiga um sárt að binda eftir viðskipti við hann að hann hafi einmitt gert það. „Við munum á þessum fundi fara vandlega yfir allt þetta mál og treysta því að við fáum að heyra all- an sannleikann. Við göngum ekki til leiks með það álit að Hinrik sé sekur maður en treystum honum til að segja okkur satt. Við þurfum að finna brotalömina í þessu máli. Þeir sem eru reiðir við Hinrik eru þeir sem ætluðu aö græða á hans snilli. Það fólk sýndi ágirnd og ágirnd er synd. Við tölum hiklaust um að kynvilla sé synd og í sömu línu í Biblíunni og kynvilla er fordæmd er ágimdin fordæmd líka.“ - Er Hinrik þá ekki syndugur maður, sekur um ágirnd? „Við skulum leyfa honum að svara þvi.“ „Þeir sem eru reiðir við Hiririk eru þeir sem œtl- uðu að grœða á hans snilli. Það fólk sýndi ágirnd og ágimd er synd. Við tölum hiklaust um að kynvilla sé synd og í sömu línu í Biblíunni og kynvilla er fordœmd er ágimdin fordæmd líka. “ - Getur þessi fundur safnaðar- leiðtoga sett hann af? „Nei, við getum það í rauninni ekki og það er ekki okkar stefna. Hann myndi samt víkja ef við bæðum hann um það. Hvort sú staða kemur upp er óvíst, við munum fara gegnum málið frá A til Ö en við erum ekki á neinum hausaveiðum." Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hvítasunnumenn lenda í vand-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.