Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Side 8
Fréttir
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
DV
CFyrirlestur um framtíð auglýsinga-
og birtingarmála á Netinu fyrir
auglýsinga-og markaðsfólk.
Framtíð
Intemetinu
Vilja ekki sorpiö frá Akureyri:
Gætum þurft að
endurskoða samstarfið
- segir Ásgeir Magnússon, formaður Fram-
kvæmdaráðs Akureyrarbæjar
Framkvæmda-
ráð Akureyrar-
bæjar hefur
frestað fyrri
ákvörðun sinni
um útboð á sorp-
hirðu og falið
tæknideild bæj-
arins að vinna
aðgerðaráætlun
um sorphirðu og
förgun til fram-
tíðar. Þessi ákvörðun er tekin í
kjölfar þess að mikil óvissa er
uppi varðandi framtíðarskipulag
þessa málaflokks sem stafar ekki
síst af landleysi Akureyrarbæjar
til að urða sorp.
Ásgeir Magnússon, formaður
Framkvæmdaráðs Akureyrar-
bæjar, segir að áformað hafi ver-
ið að breyta sorphirðu bæjarins i
sumar á þann hátt að hætta að
taka sorp í pokum frá íbúum en
hefja þess í stað „tunnuvæðingu“
og fara að taka sorpið í tunnum
frá íbúunum og flytja það til urð-
unar. Leitað hefur verið til ná-
grannasveitarfélaganna í firðin-
um um að fundinn yrði sameig-
inlegur urðunarstaður fyrir allt
sorp í Eyjafirði en árangur hefur
enginn orðið í því máli.
„Þetta er stórt vandamál og
það er auðvitað enginn hagur af
því fyrir okkur að menn nái ekki
samkomulagi um einn urðunar-
stað innan fjarðarins, en slík
lausn væri auðvitað langhag-
kvæmust fyrir alla aðila. Akur-
eyri er reyndar þannig í sveit
sett að við höfum engan annan
stað til urðunar sorps en Gierár-
dal þar sem sorp hefur verið urð-
að undanfarin ár. Við höfum
hreinlega ekkert annað svæði til
urðunar og ef þessi landstóru
sveitarfélög í nágrenni okkar eru
ekki tilbúin að koma að þessu
máli, sem var reyndar forsendan
fyrir stofnun Sorpsamlags Eyja-
fjarðar á sínum tíma, þá verðum
við að endurskoða afstöðu okkar
í þessu máli og samstarfið allt.
Við sitjum í þeirri vondu stöðu
að eiga engra kosta völ. Framtíð-
in i þessum málum er hins vegar
án efa sú að fara þær leiðir að
finna sameiginlegan urðunar-
stað en jafnframt að fara í meiri
flokkun á sorpi og i vinnslu á
hluta þess,“ segir Ásgeir. -gk
Ásgeir
Magnússon
Hvernig getur þú fullnýtt þá peninga
og vinnu sem fara í Netauglýsingar?
í fyrirlestrinum verður farið yfir framtíð auglýsinga á Netmarkaðnum
og stiklað á stóru í þeim nýjungum sem eru í sjónmáli í greininni.
Farið verður á fræðandi hátt yfir þann hag sem hægt er að hafa
af vel útfærðum auglýsingum á þessum ört vaxandi vettvangi.
DAGSKRÁ
12:45 Móttaka gagna
13:00 Staða markaðarins og framtíð
(Situation on the Net market/ the Future)
14:30
15:00
16:30
Kaffihlé
Hámarksnýting auglýsinga á Netinu
(Full value of Internet Advertising)
Léttar veitingar
Fyrirlesari er Brad Aronson, forstjóri og aðaleigandi l-frontier.com, sem er
auglýsingastofa í Fíladelfiu, Bandaríkjunum. l-frontier.com hefur verið
leiöandi 1 þróunarvinnu við auglýsingar á Netinu slðan hún var stofnuö
árið 1996.
Brad er höfundur bókanna „Advertising on the Internet”, sem hefur veriö
marg endurprentuð og „Banners and Beyond", sem er um framtlð skapandi
þróunarvínnu fyrir Netauglýsingar og var gefin út af Jupiter Communications.
Skráning fer fram á Vísi.is. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá markaðsdeild
Vísis.is. Þátttökugjald er kr. 12.900,- en kr. 9.900,- fyrir ÍMARK félaga. Sérstök
afsláttarkjör fyrir fyrirtæki sem senda fleiri en einn þátttakanda. Innifalið
er kaffi á meðan ráðstefnan stendur og léttar veitingar I lok dagskrár.
Námskeiðið er haldið mánudaginn 28. maí
frá ki.12.45 til 17.00 á Hótel Sögu.
írisir.is góður punktur!
Síðasti starfsdagur 83 ára Sparisjóðs á Flateyri:
Sparisjóður Vestfirð-
inga tekur til starfa
DV, FLATEYRI:__________________
Síðasti starfsdagur Sparisjóðs
Önundarfjarðar var á fóstudag í
fyrri viku en sjóðurinn sameinað-
ist daginn eftir fleiri sparisjóðum
á Vestfjörðum í Sparisjóð Vest-
firðinga með starfssvæði um mest-
alla Vestfirði. Undir hatt hins
nýja sameinaða sparisjóðs falla
Sparisjóður Önundarfjarðar,
Sparisjóður Dýrafjaröar, Spari-
sjóður Súðavíkur og Eyraspari-
sjóður á Patreksfirði.
„Sparisjóður Önundarfjarðar
hefur starfað óslitið frá því 1918 og
gengið vel og starfið veriö afskap-
lega farsælt. Hann hefur verið öfl-
ugur bakhjarl byggðarinnar héma
í firðinum. Fyrir utan almenna
lánastarfsemi hefur sjóðurinn lagt
mikið af mörkum til menningar
félagsmála á staðnum," segir Ei-
ríkur Finnur Greipsson, spari-
sjóðsstjóri á Flateyri.
Eitt stærsta verkefni Sparisjóðs-
ins í menningarmálum var stofn-
um Minjasjóðs Önundarijarðar
sem kom upp öflugu minjasafni á
Flateyri en safn þetta eyðilagðist í
snjóflóðinu mikla 1995, sem og
munir safnsins. En nú hillir und-
ir að tekið verði til við safnarekst-
ur á nýjan leik.
Ein helsta ástæða fyrir samein-
ingu sparisjóðanna er aö styrkja
þá og gera samkeppnishæfari á
fjármagnsmarkaðnum. Sam-
kvæmt útlánareglum ráða þessir
litlu sparisjóðir ekki við að taka |
stærri fyrirtæki í viðskipti og fyr- I
ir liggur að enn verður hert á
þessum reglum.
„Þessi sameining hefur litlar
breytingar í for með sér fyrir við-
skiptavini sparisjóðanna. Helsta
breytingin verður í þá veru að
þessi nýi stóri sjóður hefur að-
gang að fjármagni á hagstæðari
kjörum, auk þess sem nýi sjóður-
inn ræður við að taka stór fyrir-
tæki í viðskipti og styrkir með því
fjármálastarfsemi á Vestíjörðum," |
segir Eiríkur Finnur.
Höfuðstöðvar Sparisjóðs Vest-
firðinga verða á Þingeyri en gert
er ráð fyrir að allir núverandi af-
greiðslustaðir sparisjóðanna verði
reknir áfram, auk þess sem starf-
semin á ísafirði verður efld frá þvl
sem nú er. Sprisjóðsstjóri verður
Angantýr Jónasson, fyrrverandi
sparisjóðsstjóri á Þingeyri. -GS i
Síðasti dagurinn
Starfsfólk Sparisjóös Önundarfjaðar á síöasta starfsdegi
þessarar gömlu stofnunar.
Guörún Sigurbjört Eggertsdóttir, Vigdís Erlingsdóttir, Eiríkur fínnur Greipsson,
Guöbjörg Haraldsdóttir og Guölaug Auðunsdóttir.