Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Page 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001 I>V Á leiö í moskuna Páfi í bíl sínum á leiö í Ummayad- moskuna i gamla borgarhlutanum í Damaskus. Páfi heimsótti mosku múslíma í Damaskus Jóhannes Páll páfi varð í gær fyrsti páfinn til að stíga inn í mosku múslíma. Áður en páfi gekk inn í Ummayad-moskuna í gamla borgar- hlutanum í Damaskus í Sýrlandi tók hann af sér skóna að sið múslíma og fagnaði þá mannfjöldi sem safnast hafði við moskuna. í moskunni lagði páfi áherslu á aö trúarsannfæring gæti aldrei réttlætt ofbeldi. Páfi bað um frið milli krist- inna, múslima og gyðinga. Notaöi hann tækifærið til að hvetja til friö- ar í Miðausturlöndum. Þar sem Ummayad-moskan stend- ur var áður hof heiðingja er breytt var í kirkju helgaða Jóhannesi skír- ara eftir að rómverska keisaradæm- ið tók upp kristna trú á fjórðu öld. Þegar arabar unnu Damaskus 639 gerðu þeir hinn helga stað að bæna- húsi múslíma. Færeyingar hika við að staðfesta Kyoto-bókunina Eydun Elttor, umhverfis- og orku- málaráðherra Færeyja, segir Færey- inga munu krefjast fyrirvara þegar Danir staðfesta Kyoto-bókunina um minnkun gróðurhúsalofttegunda á næsta ári ásamt öðrum Evrópusam- bandslöndum. Ástæðan er möguieg olíuvinnsla Færeyinga sem getur leitt til þess að losun koltvísýrings í Færeyjum tvöfaldist. Enn er þó ekki vitað hversu mikil losunin er nú. Elttor leggur áherslu á það í viðtali við danska blaðið Politiken að Færeyingar muni gera allt sem þeir geti til að berjast gegn um- hverfismengun. Fjöldi alþjóðlegra olíufyrirtækja mun 'í júlí næstkomandi hefja olíu- leit við Færeyjar. Makedóníuher heröir sóknina gegn albönskum skæruliðum: EB ESB varar við stríðsyfirlýsingu Her Makedóníu herti í gær sókn sína gegn bækistöðvum albanskra skæruliða samtímis þvi sem leiðtog- ar Evrópusambandsins, ESB, og Atlantshafsbandalagsins, NATO, lögðu af stað til Skopje til að lýsa yf- ir stuðningi við stjórnvöld en vara þau jafnframt við að lýsa yfir stríðs- ástandi. Fréttamenn Reuters, sem staddir voru nálægt bæjunum Vakcince og Slupcane, um 40 km norðaustur af Skopje, greindu frá því að skotið hefði verið úr fallbyssum á bæina á mínútu fresti um skeið síðdegis í gær. Fréttamenn í bænum Tetovo heyrðu í stórskotaliöi í fjalllendi ná- lægt landamærunum við Kosovo. Starfsmenn Alþjóða Rauða kross- ins lýstu í gær yfir áhyggjum sínum vegna þeirra hundraða óbreyttra borgara sem eru í felum í kjöllurum. Solana í Skopje Yfirmaöur utanríkis- og öryggismála ESB, Javier Solana, á leiö til fundar viö ráöamenn í Makedóníu. Stjórnvöld í Makedóníu lýstu því yfir seint á laugardaginn að þau ætluðu að íhuga hvort lýsa ætti yfir stríðsástandi. Slík yfirlýsing myndi veita öryggissveitum og forsetanum aukin völd. Herinn fengi aukna möguleika á aögerðum innan landamæra Makedóníu, það er að segja á svæðum og í bæjum þar sem íbúar af albönskum uppruna eru í meirihluta. Stjórnin gæti tekið ákvarðanir án þess að biða eftir samþykkt þingsins. Forsetinn fengi auk þess aukið rými til að reka embættismenn og ráðherra. Ljubco Gorgievski forsætisráð- herra sagði að ákvörðun um yfirlýs- inguna yrði mögulega tekin á þing- fundi á þriðjudag. Bardagarnir undanfarna daga hafa kynt undir áhyggjum af því að nýtt stríð brjótist út á Balkanskaga. Vatni dælt Innflytjandi frá Bangladesh sækir sér vatn í Guwahati í Assam á Indlandi. Þingkosningar eru í Assam á fimmtudaginn og eru innflytjendur á svæöinu orönir aö kosningamáli. Handtekinn við komuna Breska lögreglan tilkynnti í gær að hún myndi hand- taka lestarræningj- ann Ronald Biggs við komu hans til Englands í dag. Biggs, sem flýði réttvisina fyrir 35 árum, lagði í gær af stað heim frá Rio de Janeiro í Bras- ilíu. Slys á áhorfendapalli Um 250 slösuðust þegar þak hrundi á áhorfendur á íþróttaleik- vangi í Sari í íran í gær. Hjó sex ára með öxi 26 ára maður, sem flúið hafði geð- deild sjúkrahúss, hjó í gær sex ára stúlku í almenningsgaröi í Ljungby í Svíþjóð með öxi í höfuðið og særðist hún alvarlega. Lögreglan handtók manninn. Hafna tillogu Arafats Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, hafnaði í gær tillögu Yass- ers Arafats Palestínuleiðtoga, um nýjan leiðtogafund í Sharm el- Sheikh í Egyptalandi. Arafat bað um fundinn til að ræða skýrslu bandaríska þingmannsins Mitchells um ástæðu átakanna í Miðaustur- löndum. Thulestöðin í hættu Bandaríkjamenn hafa varað við því að Thule-ratsjárstöðin á Græn- landi verði lögð niður verði stöðin ekki hluti af eldflaugavamarkerfi Bandaríkjanna. Ákærður fyrir hryðjuverk Morgan Tsvangirai, stjórnarandstöðuleið- togi í Simbabve, kemur fyrir hæstarétt í dag vegna ákæru um hryðjuverk. Tsvangirai segir stjórn Mugabes vera að reyna að losa sig við andstæðing. Sprengt í London Sprengja sprakk í fyrrinótt fyrir utan pósthús í norðvesturhluta London. Talið er að írski lýðveldis- herinn, IRA, standi á bak við árás- ina. Skotárás í Zaragoza Spænski stjórnmálamaðurinn Manuel Gimenez var í gær skotinn til bana er hann var á leið með syni sínu á knattspyrnuleik í Zaragoza. Aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA, er kennt um drápið. FSLÁTTUR GILDIR TIL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.