Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Síða 27
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
I>V
Tilvera
43
"'SISI
Traci Lords 33 ára
Afmælisbarn
dagsins er Traci
Lords og verður hún
33 ára. Lords er sjáif-
sagt eina klám-
myndastjarnan sem
hefur náð að festa
sig í sessi sem leikkona. Hún fæddist
í Ohio og var skírð Nora Louise
Kuzma. Hún var mjög bráðþroska og
var aðeins fimmtán ára þegar hún lék
í sinni fyrstu klámmynd. Þegar hún
var 18 ára hafði hún leikið í yfir 80
slíkum. Lords sneri baki við bláu
myndunum á átjánda afmælisdegi sín-
um og hefur síðan leikið í fjölda kvik-
mynda og sjónvarpsmynda.
Stjörnuspá
Gildlr fyrlr þriöjudaginn 8. maí
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.i:
, Þú ert utan við þig á
ákveðnum vettvangi í
■ dag og það kann að
koma verulega niður á
Eöstum þínum.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsi:
Þú ferð á gamlar slóðir
log það riíjast upp fyrir
þér atvik sem átti sér
stað fyrir langalöngu.
Ekki sökkva þér í dagdrauma um
það sem liðið er.
Hrúturinn (21. mars-19. aprill:
. Mikilvægt er að ljúka
'þeim verkefhum sem á
þér hvíla strax. Ann-
ars er hætta á að þau
vindi stöðugt upp á sig.
Nautið (20. apríl-20. maíi:
/ Þú þarft að sýna
ákveðnum aðila að þú
treystir honum því aö
*Lrimr.f annars er hætt við að
hann missi traust sitt á þér.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
V Verðu deginum með
yV' fjölskyldunni eins mik-
-V I ið og þú getur. Það má
bæta samskipti þin og
nokkurra annarra í fjölskyldunni.
Krabbinn (22. iúní-22. iúlíi:
Endurskoðaðu skoðun
þína í sambandi við
vin þinn. Þú gætir haft
rangt fyrir þér um
Uónlð (23. iúlí- 22. ágústi:
í dag gæti orðið á vegi
þínum óheiðarleg
manneskja sem þú
skalt um fram allt
forðast að ganga f lið með.
hann.
IVIevian (23. áeúst-22. sept.i:
Skipuleggðu næstu
daga, sérstaklega það
sem við kemur frítíma
^ f þínum. Þú afkast
miklu í vinnunni í dag.
Óvissuferð 10. bekkinga á Vestfjörðum:
Þetta var ógeðs-
lega gaman
Lagt úr höfn
Grunnskólanemar á Þingeyri og Flateyri reyndu hæfni sína í kajakróöri þegar þeir fóru
í óvissuferö meö foreldrum sínum í próflok.
DV-MYND GS
- segir Birgitta Rán Friðfinnsdóttir nemandi
DV, VESTFJQRÐUM:_________________
Nemendum grunnskólanna á
Flateyri og Þingeyri var boðið í
sameiginlega óvissuferð að aflokn-
um samræmdu prófunum nú á dög-
unum. Slíkar ferðir hafa verið fam-
ar nokkur undanfarin ár og er
ávallt bryddað upp á einhverjum
nýjungum í hverri ferð og reynt á
þol krakkanna, jafnframt því sem
adrenalíninu er komið á hreyfingu.
Nú fengu nemendumir að skoða
foss þann í Vestfjarðagöngunum
sem sér ísfirðingum fyrir vatni en
foss þessi er vel varðveitt leyndar-
mál bak viö luktar dyr. Hápunktur
ferðarinnar var kajakróður á Flat-
eyri þar sem nemendur þreyttu
frumraun sín í þessu sporti þar sem
adrenalínið rennur hraðar hjá en
sjórinn umhverfis. Ein þeirra sem
voru að reyna kajaksportið í fyrsta
sinn var Birgitta Rán Friðfinnsdótt-
ir. „Þetta er geðveikt stuð. Ég var að
reyna þetta í fyrsta skipti og var
skíthrædd á köflum. Ég var nærri
búin að hvolfa bátnum tvisvar sinn-
um svo ég veit ekki hvort ég legg í
þetta aftur. Við vorum send í þetta
af því að foreldramir vildu það en
þetta var ógeðslega gaman,“ segir
Birgitta sem var að útskrifast úr
tíunda bekk í grunnskólanum á
Þingeyri.
í ferðalok var nemendum svo boð-
ið í pitsuveislu á Tóka munki á
Þingeyri en eftir hana var diskótek
í grunnskóla staðarins fram eftir
kvöldi þar sem krakkarnir
skemmtu sér með foreldrum sínum.
-GS
Ræöarinn
Birgitta Rán Friöfinnsdóttir búin aö ná tökum á aö láta kjölinn snúa niöur.
Vogin (23. sept-23, okt.l:
y Þú gætir kynnst nýju
r>éy fólki í dag og hitt
\y áhugaverðar persónur.
f f Happatölur þínar eru
3, 15 og 35.
SPOfðdreki (24. oKt.-21. nóv.i:
Óvæntur atburður á
;; sér stað í vinnunni.
t Einhver kemur þér
verulega á óvart með
framkomu sinni.
Bogamaður (22. nðv.-21. des.l:
LFólk í kringum þig
rgæti leiðst í dag en það
er ekki þín sök. Ekki
draga ályktanir fyrr
en þú ert búinn að Úta vel í kring-
um þig.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Það er mikið um að
vera í fiölskyldunni
um þessar mundir og
þú átt stóran þátt í
þvi. Varaðu þig á að lofa meira en
þú getur staðið við.
Neitar sambandi við klámleikara
Kvikmyndaleikarinn Tom
Cruise hefur stefnt klám-
leikara og krafist 100 milljóna
dollara í bætur fyrir að hafa
logið þvi að hann og Cruise
hefðu verið í ástarsambandi
og að það hefði verið ástæða
þess að hjónaband Cruise og
Nicole Kidman fór út um þúf-
ur.
I stefnu sinni sagði Cruise
að Chad Slater, sem einnig er
þekktur undir nafninu Kyle
Bradford, hefði sagt þessa
lygasögu í viðtaii við tímaritið
Actustar og að sama viðtal
hefði birst í spænska blaðinu
TVyNovelas. Fullyrt er í stefn-
unni að Slater hafi sagt þessa
lygasögu til að koma sjálfum
sér á framfæri.
Jafnframt er þess getið að
þó að Tom Cruise virði rétt
annarra til að stunda hvaða
kynlíf sem þeir kjósa sé hann
Tom Cruise
Krefst ÍOO milljóna dollara í bætur vegna
lygasögu klámleikara.
ekki samkynhneigður sjálfur.
Hann hafi aldrei verið í neinu
sambandi við Chad Slater og
þekki hann ekki einu sinni.
Bent er á að Slater hafi soðið
saman lygasögu sína samtímis
því sem Cruise gekk í gegnum
skilnað sem vakið hefur mikla
athygli. Slater hafi logið til að
vekja athygli á sér á kostnað
Cruise.
Cruise sótti um skilnað frá
Nicole Kidman í febrúar síðast-
liðnum. Síðan hafa fjölmiðlar
velt fyrir sér ástæðu skilnaðar-
ins og það gerir reyndar Nicole
Kidman enn sjálf að eigin sögn.
Lögmaður Cruise segir
Nicole hins vegar vita nákvæm-
lega hvers vegna þau séu að
skilja. Lögmaðurinn tekur það
fram að Tom muni sjá vel fyrir
börnumun sem þau hjónin ætt-
leiddu og tryggja öryggi þeirra.
GERUM GOTT
KYNLÍF BETRA!
LANDSINS MESTA ÚRVAl AF
UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍfSINS
Barónsstíg 27 - S: 562 7400
Leikhúskórinn sýnir:
Sígaunabaróninn
eftir Johann Strauss.
Leikstjóri Skúli Gautason.
Tónlistarstjórn Roar Kvam.
Einsöngvarar:
Alda Ingibergsdóttir,
Ari J. Sigurðsson,
Baldvin Kr. Baldvinsson,
Haukur Steinbergsson,
Hildur Tryggvadóttir,
Sigríður Elliðadóttir,
Steinþór Þráinsson,
Sveinn Arnar Sæmundsson
og Þórhildur Örvarsdóttir.
3. sýn. fimmtud. 10. maí,
4. sýning sunnud. 13. maí.
Sýningar hefjast kl. 20.30
Sniglaveislan
eftir:
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjóm:
Sigurður Sigurjónsson.
Sýningar í
Loftkastalanum
I talnlnl !»■ íJ [ftl HjjB iit I
iiiM.iIlikili.iUl
pBJabÍLpBfll
ILEIKFELAG AKIIRF.YRARI
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is