Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2001, Blaðsíða 32
X
, ?
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2001
íkveikja við
Sóleyjargötu
Tilkynnt var um eld í fólksbifreið
og gröfu við Sóleyjargötu aðfaranótt
laugardags. Þegar slökkvilið kom á
staðinn slökkti það eldinn en áður
hafði lögregla þegar náð að slá á eld-
inn. Unnin höfðu verið skemmdar-
^ verk á bæði bíl og gröfu og nokkuð
ljóst að um íkveikju var að ræða.
Ekki er vitað hverjir stóðu þar að
verki. -ht
Leki úr íbúö:
Sofnaði í baði
í gærmorgun var Slökkvilið
Reykjavíkur kallað að Fannborg 1
þar sem vart hafði orðið við leka úr
einni íbúðinni. Þegar inn í hana var
komiö kom í ljós að þar hafði mað-
ur sofnað í baði með skrúfað frá.
Þriggja sentímetra djúpt vatn var á
gólfum í íbúðinni. -ht
Hús Fíladelfiusafnaöarins.
DV-MYND HILNMAR
Brugöiö á leik í Fjölskyldu- og húsdýragarðlnum
Segja má að veðrið hafi ekki leikiö við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra þegar hún opnaði nýtt leiktæki í
Fjölskyldu- og húsdýragaröinum í Laugardal í gær. Ingibjög Sólrún og Tómas, framkvæmdastjóri garðsins, voru þó við
öllu búin og klæddu veðrið af sér. Nýja leiktækið er stórt tréskip sem hlotiö hefur nafnið Naglfar.
Ofsaakstur um
Þingholtin
Maður, grunaður um ölvun-
arakstur, reyndi að komast undan
lögreglu aðfaranótt sunnudags með
ofsakstri þar sem hann virti ekki
stöðvunarskyldu, biðskyldu né ein-
stefnureglur. Billinn fannst við
Mánagötu og maðurinn náðist síðan
á hlaupum við gatnamót Snorra-
brautar og Bergþórugötu. -ht
Féll á milli hæða
Skömmu eftir miðnætti á laugar-
dagskvöldið féll drengur á milli
hæða í nýbyggingu. Drengurinn er
talinn hafa faUið í gegnum gat á
paUi, um 2 metra. Hann var Uuttur
á slysadeUd en er ekki talinn vera
alvarlega slasaður. -ht
Eldur í bifreið
Aðfaranótt sunnudags fékk
Slökkvilið Reykjavíkur tilkynningu
um að eldur væri í laus í Honda Ci-
vic-bifreið við Reynihvamm og fór
slökkviliðið og slökkti eldinn. Ekki
er vitað hvort um íkveikju var að
ræða. -ht
Lögregla ræddi viö fanga í Hollandi og mann í Reykjavík vegna Valgeirs:
Hvítasunnumenn funda:
Forstöðumaður-
inn verður áfram
- sáttir við hans svör
Á laugardag var haldinn fyrir lukt-
um dyrum fundur forstöðumanna
safnaða Hvítasunnukirkjunnar vegna
tengsla eins forstöðumanns við mál er
varða hið gjaldþrota fyrirtæki
Thermo Plus í Keílavík. Fór fundur-
inn fram í húsi Fíladelfmsafnaðarins
í Reykjavík. Þar var viðkomandi for-
stöðumanni, Hinriki Þorsteinssyni,
sem stýrir söfnuðinum í Kirkju-
lækjarkoti í Fljótshlíð, gert að skýra
mál sitt. í framhaldi af því var ákveð-
ið að aðhafast ekki frekar í málinu
gagnvart Hinriki.
„Við fórum yftr málið með Hinriki
og spurðum hann spjörunum úr,“ seg-
ir Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir í
i -* Betel í Vestmannaeyjum. „Við vorum
mjög sáttir við svörin hans og ætlum
ekki að gera meira. Af hálfu Hvíta-
sunnuhreyfingarinnar er málinu því
lokið.“
- Var farið fram á það að Hinrik
hætti?
„Það var ekki krafa um það af okk-
ar hálfu og hann mun taka þá ákvörð-
un sjálfur," segir Snorri og telur nið-
urstöðu fundarins mjög góða.
Hinrik Þorsteinsson sagðist í sam-
tali við DV i gærkvöld ekki hafa
neinu við þetta að bæta. „Menn
þurftu að tala saman út af blaðaskrif-
um um málið og það var gert,“ sagði
Hinrik og heldur áfram sínu starfi hjá
söfnuðinum. -HKr.
Yfirheyra átti hina
grunuðu samtímis
- sá sem býr í Reykjavík var handtekinn í verslun og færöur beint í yfirheyrslu
ar eru fra
Valgeir Víöisson
hvarf.
37 ára karlmað-
ur í Reykjavik
hefur verið yfir-
heyrður í máli
Valgeirs heitins
Víðissonar á síð-
ustu mánuðum,
grunaður um að
hafa tengst þvi að
Valgeir hvarf
árið 1994. Tengsl
eru á milli
mannsins og ís-
lendingsins sem situr í fangelsi í
Hollandi - a.m.k. það mikil að þeir
tala saman reglulega í síma.
Samkvæmt heimildum DV fór
síðasta yfirheyrsla yfir manninum
fram fyrir páska, vegna annars
máls, en önnur yfirheyrsla fyrr í
vetur - nánast á sömu klukkustund
og tveir lögreglumenn frá Reykjavík
hugðust yfirheyra fangann í
Hollandi. Ekkert varð úr yfirheyrsl-
unni ytra þar sem fanginn neitaði
að tjá sig.
Eftir að Valgeir hvarf á sínum
tíma og grunur fór að vakna um að
honum hefði verið banað var fram-
angreindur maður í Reykjavík
einnig yfirheyrður ásamt fleirum.
Samkvæmt upplýsingum DV kvaðst
maðurinn í yfirheyrslum ekki kann-
ast við að eiga þátt í að Valgeir
hvarf. Sími hans var á tímabili hler-
aður eftir að Valgeirs var saknað.
Fanginn neitaði að tjá sig
Þegar yfirheyra átti Islendinginn
í Hollandi, 36 ára mann, neitaði
hann að tjá sig nema hafa lögmann
sér við hlið. Hann og félagi hans,
framangreindur karlmaður í
Reykjavík, höfðu verið í reglulegu
símasambandi. Rétt eftir að fanginn
tilkynnti félaga sínum á íslandi að
hann væri nýbúinn að fá lögreglu-
menn frá íslandi í heimsókn til sín
stóð hinn maðurinn í verslun í
Reykjavík. Hann var handtekinn
þegar hann kom út ásamt samferða-
manni og honum tilkynnt að hand-
takan væri vegna mannshvarfs.
DV-MYND HILMAR ÞðR
Valgeir bjó i íbúö ofanvert viö Laugaveg.
Þegar hinir íslensku lögreglu-
menn hugðust yfirheyra fangann í
Hollandi neitaði hann að tjá sig á
þeim forsendum að honum væri
ekki skylt að svara spurningum á
erlendri grundu um íslenskt mál-
efni án íslensks lögmanns. Urðu lög-
reglumenn þá að hverfa heim til ís-
lands.
Eftir þetta var ákveðið að leita at-
beina dómsmálaráðuneytisins hér
heima og fara fram á það viö hol-
lensk yfirvöld að fá manninn fram-
seldan á grundvelli þess að hann
væri grunaður um að hafa átt aðild
að mannshvarfi á íslandi.
Maðurinn sem býr hér heima og
var handtekinn vegna Valgeirsmáls-
ins í vetur hefur komið við sögu
fikniefnamála hér á landi á síðasta
áratug. Hann lauk afplánun fyrir
nokkrum misserum og hefur stund-
að vinnu á höfuðborgarsvæðinu.
-Ótt
Lögregla leysti upp mannsöfnuð í Lækjargötu:
Á garðstólum gegn bensínhækkunum
Hópur hátt í tuttugu einstaklinga
tók sig til og teppti umferð við gatna-
mót Lækjargötu og Bankastrætis að-
faranótt sunnudags. Fólkið hafði náð
sér í garðstóla og settist í þá á gatna-
mótunum. Þegar lögregla kom á vett-
vang lýsti hópurinn því yfir að verið
væri að mótmæla hækkunum elds-
neytis undanfarna daga.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu myndaðist smávegis múgæsing
þegar „mótmælin" voru leyst upp.
Þegar lögregla yfirgaf vettvanginn
safnaðist hópurinn aftur út á gatna-
mótin og þegar lögregla sneri aftur
hafði nokkur mannfjöldi safnast þar
Bensínhækkunum mótmælt
Á milli 70 og 90 manns mótmæltu
bensínhækkununum sem oröið hafa
undanfarna daga.
saman, milli 70 og 90 manns. Mun
meiri æsingur var í fólki þá og urðu
lyktir þær að forsprakkar „mótmæl-
anna“ voru teknir niður á stöð til
skýrslutöku, fimm í handjárnum.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
báðust þeir þar afsökunar þar sem
þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir
umfangi og afleiðingum gjörða sinna.
Að sögn sjónarvotta voru viðbrögð
lögreglunnar helst til harkaleg þar
sem flestir héldu ró sinni. Lögreglan
gat ekki svarað til um það þar sem
vakthafandi lögreglumenn voru ekki
á vakt er hringt var í gærkvöld.
-ht
brother P-touch 1250
Lítil en STÓRmefkileg merkivél
5 leturstærðir
9 leturstillingar
prentar í 2 linur
borði 6. 9 og 12 mm
4 gerðír at römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443
Veffang www.if.is/rafport