Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 4
Fréttir
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001
DV
íslensk olíuprinsessa
við Reykjavíkurtjörn
- giftist inn í aðra ríkustu ætt í Kanada - metin á 600 milljarða króna
Hún brosti blítt þegar hún gekk út
úr Fríkirkjunni við Reykjavikurtjöm
i hádeginu á laugardaginn. Enda
ástæða til. íris Lana Birgisdóttir gekk
þar að eiga Irving yngri, aðalerfmgja
Irving-olíurisans, sem á og rekur hátt
í þúsund bensínstöðvar i Kanada og
Bandaríkjunum auk alls kyns hliðar-
fyrirtækja. Irving-feðgarnir leituðu
sem kunnugt er hófanna hér á landi
varðandi rekstur bensínstöðva fyrir
nokkrum árum og þó þær hafi ekki
enn risið varð ávöxturinn af þeim
þreifmgum brúðkaupið í Fríkirkj-
unni á laugardaginn.
Brosiö smitaði
Fjöldi gesta kom hingað til lands
frá Kanada til að vera viðstaddur
brúðkaupið og að sögn sjónarvotta
báru þeir flestir ættareinkenni Ir-
vinganna í háttum og útliti. Að loknu
brúðkaupinu var slegið upp matar-
veislu i Ápotek bar grill á horni Aust-
urstrætis og Pósthússtrætis þar sem
bomir voru fram glæsilegri réttir en
áður hafa sést í því húsi. Á eftir
fylgdi svo brúðkaupsveislan sjálf í
risatjaldi sem reist haíði verið í garði
móður brúðarinnar, Svölu Guð-
mundsdóttur flugfreyju, við heimili
hennar í Melgerði í Reykjavík. Stigu
brúðhjónin þar brúðarvalsinn að
bandariskri fyrirmynd í glaðasólskini
og hægum andblæ úr suðri. Bros
brúðarinnar hafði þá smitað frá sér
og færst yfir á andlit gestanna sem
vora fjölmargir.
Jóga og maraþon
Eftir brúðkaupið er íris Lana
Birgisdóttir komin í hóp ríkustu
DV-MYNU hlNAK J.
Viö Fríkirkjuna
íris Lana Birgisdóttir og irving yngri aö lokinni hjónavígslu sem setur írisi í hóp ríkustu eiginkvenna í Kanada.
kvenna í Kanada enda eru þeir
Irving-feögar í öðru sæti yfir rík-
ustu fjölskyldur í heimalandi sínu.
íris Lana er háskólamenntuð og
starfaði á árum áður sem flug-
freyja. Hún stundar jógakennslu og
hefur getið sér gott orð fyrir árang-
ur í maraþonhlaupi og þá sérstak-
lega í Mývatnsmaraþoninu. Fram-
tíöarheimili Irving-hjónanna verð-
ur í St. John’s á Nýfundnalandi.
-EIR
Háskólinn 90 ára
- hátíðarfundur í Alþingishúsinu á þjóðhátíðardaginn
í gær, 17. júní, voru liðin níutíu
ár frá stofnun Háskóla íslands,
hann var stofnaður á afmælisdegi
Jóns Sigurðssonar árið 1911 og var
stór þáttur í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Sérstakur hátíðar-
fundur var haldinn í Alþingishús-
inu af tilefninu að viðstöddum
helstu mektarmönnum og konum
þjóðarinnar, m.a. forseta íslands,
Ólafl Ragnari Grimssyni. Forset-
inn er sérstakur vemdari þjóðar-
átaksins sem Stúdentaráð ýtti úr
vör á fundinum í Alþingishúsinu í
gær og gengur undir nafninu
„Þjóðarátak í þágu Háskóla ís-
lands". Með þjóðarátakinu vill
Stúdentaráð sýna frumkvæði í því
að efla skólann, m.a. með því að
vekja þjóðina til vitundar um skól-
ann sem allir landsmenn hafa að-
gang að og tryggir jafnrétti til
náms í þjóðfélaginu.
-W
DVWYND PJETUR
Frá hátíðarfundi í alþingishúsinu
/ pontu er Þorvaröur Tjörvi Ótafsson, formaöur Stúdentaráös.
Veðrtð í kvöld
B Sóíarg^ngnr og sjávarföH
Vaxandi vindur og rigning
Gert er ráö fyrir vaxandi suöaustan- og
austanátt meö 13-18 m/s vindstyrk sunnan
til síödegis en hægari vind noröanlands.
Rigning veröur einkum sunnan- og
vestanlands, hiti 6 til 13 stig.
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódeglsflóö
Árdegisflóö á morgun
24.04 00.06
02.54 02.52
19.35 24.08
07.51 00.08
Kvindátt IOV-hit. -10° X VINDSTYRKUR N, I m«trum á wkúndu þkusi HEIÐSKÍRT
O o
IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKYJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAO
'w’ llMf ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
| =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Jií/J'JJJil
Varúð á vegum!
Þessa vikuna má búast viö vætusömu
veöri og er þá vert aö minna ökumenn
á aö hafa ökuljósin í lagi.þar sem erfitt
getur veriö aö greina bíla sem á móti
koma í rigningarsudda. Framúrakstur
viö slíkar aöstæöur er oft æöi
varasamur því vatnsúöi frá næsta bíl
skeröir oft mjög útsýnið fram á veginn.
Ökumenn eru þvf hvattir til aö fara
varlega.
Rigning eða skúrir
Veöurstofan gerir ráö fyrir noröaustan 8-13 m/s, en aö þaö lægi síödegis
á morgun. Víöa dálítil rigning eöa skúrir. Hiti 7 til 13 stig.
sljjjjjjiiJilsigíjr E23S
Vindur: /O1 ^ 5—10 m/% —J • Vindur: O O O 8-15 m/* Vindur: ~v'\ N 8-13 m/‘
Hiti0°UI-O* Hiti0° tii-0* Hiti0“ til-0°
Fremur hæg breytlleg átt. | Sunnan- og suövestanátt. Sunnan- og suövestanátt.
Skýjaó meó köflum og Vætusamt sunnan- og Vætusamt sunnan- og
sums staóar skúrlr í vestanlands en bjart meö vestanlands en bjart meö
Innsveltum. Hitl 8 til 15 köflum og fremur hlýtt á köflum og fremur hlýtt á
stig. Noröaustur- og Noröaustur- og
Austurlandl. Austurlandl.
Rmmtán
fengu
fálka-
orðu
Forseti islands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, sæmdi i gær, á
þjóðhátíðardaginn, fimmtán ís-
lendinga heiðursmerki hinnar is-
lensku fálkaoröu við hátíðlega at-
höfn á Bessastöðum.
Þau sem
hlutu fálka-
orðuna að
þessu sinni
eru: Ár-
mann Hall-
dórsson,
fyrrum
kennari á
Eiðum,
riddara-
kross fyrir
störf sín í
þágu mennt-
unar og upp-
eldis. Björn
Jónsson, fv. prestur á Akranesi,
riddarakross fyrir störf að bind-
indis- og menningarmálum. Bragi
Ásgeirsson listmálari, Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu
lista og menningar. Egill Bjama-
son ráðunautur, Reykjavík, ridd-
arakross fyrir störf í þágu land-
búnaðar. Guðrún Agnarsdóttir
læknir, Reykjavík, riddarakross
fyrir störf að heilbrigðismálum.
Gyða Stefánsdóttir kennari, Kópa-
vogi, riddarakross fyrir störf í
þágu menntunar og fræðslu. Har-
aldur Sumarliðason húsasmíða-
meistari, Reykjavík, riddarakross
fyrir störf í þágu iönaðar. Helga
Ingólfsdóttir tónlistarmaður,
Álftanesi, riddarakross fyrir störf
í þágu lista og menningar. Ingi-
björg Pálmadóttir, fv. ráðherra og
alþingismaður, Akranesi, stórridd-
arakrossi fyrir störf í opinbera
þágu. Jón Ásgeirsson tónskáld,
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
i þágu lista og menningar. Kristín
Pétursdóttir bókasafnsfræðingur,
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
í þágu bókasafns- og upplýsinga-
fræða. Stefán Baldursson þjóöleik-
hússtjóri, Reykjavík, riddarakross
fyrir störf í þágu lista og menning-
ar. Svava Jakobsdóttir rithöfund-
ur, Reykjavík, riddarakross fyrir
störf í þágu lista og menningar.
Svavar Gestsson, sendiherra og fv.
ráðherra, Reykjavík stórriddara-
kross fyrir störf í opinbera þágu.
Þorsteinn Gunnarsson rektor, Ak-
ureyri, riddarakross fyrir störf í
þágu menntunar og vísinda. -W
BggaawEW J
AKUREYRI skýjaö 8
BERGSSTAÐIR skýjaö 8
BOLUNGARVÍK hálfskýjaö 9
EGILSSTAÐIR 9
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 9
KEFLAVÍK rigning 6
RAUFARHÓFN rigning 7
REYKJAVÍK rigning 7
STÓRHÖFÐI rigning 7
BERGEN úrkoma 18
HELSINKI rigning 15
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 16
ÓSLÓ úrkoma 18
STOKKHÓLMUR 13
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 8
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 15
ALGARVE léttskýjað 26
AMSTERDAM skúrir 18
BARCELONA léttskýjaö 21
BERLÍN skúrir 18
CHICAGO heiöskírt 18
DUBUN skúrir 20
HAUFAX súld 13
FRANKFURT skýjað 20
HAMBORG þrumuveöur 19
JAN MAYEN skýjað 2
LONDON súld 13
LÚXEMBORG skúrir 13
MALLORCA skýjaö 26
MONTREAL léttskýjaö 21
NARSSARSSUAQ skýjaö 10
NEWYORK skýjað 22
ORLANDO hálfskýjað 24
PARÍS skúrir 16
VÍN skúrir 18
WASHINGTON heiöskírt 21
WINNIPEG heiöskýrt 8