Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Qupperneq 11
11 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001 I>v Útlönd Jákvæðir eftir Slóveníufund George Bush Bandaríkjaforseti og Vladimir Pútin Rússlandsforseti áttu vingjarnlegar viðræður í Lju- bljana, höfuðborg Slóveníu, á laug- ardag. Fundur þeirra átti í upphafi að vera hálftímalangur en hann lengdist um klukkutima þar sem leiðtogarnir ræddu saman á ensku og skiptust á persónulegum sögum. Viðræður þeirra voru diplómat- ísks eðlis og engin plögg voru und- irrituð. Hins vegar var andrúmsloft- ið óþvingaðra en búist hafði verið við og viðræðurnar einlægar. Leið- togarnir horfðust í augu og sögðust eftir fundinn treysta hvor öðrum. Bush lýsti því yfir að Pútín væri merkur leiðtogi og að hann kynni að meta afdráttarlausar viðræður þeirra. Stærstu málin á dagskrá var fyr- irhugað eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna og stækkun Nató til austuráttar en Bush hefur talað mikið fyrir henni. Pútín varaði við öllum einhliða aðgerðum í þeim efn- um. Leiðtogarnir sögðu að ráðherr- ar þeirra myndu hittast og finna leið til að vinna úr eldflaugavarnar- málinu. I lok blaðamannafundar eft- ir viðræðurnar iýstu þeir því yfir að Bush og Pútin Náðu vel samari í Stóveníu. Bandaríkin og Rússland væru vinir og myndu nálgast ágr’einingsefnin sem félagar. Þeir gældu jafnframt við þá hugmynd að hittast aftur á búgarði Bush í Texas og einnig í Moskvu. Bush hefur lýst því ítrekað yfir síðustu daga að Rússar þurfi ekki að óttast stækkun Nató til austurs. Á fundinum opinberaði Pútín leyni- legt skjal frá 1954 þar sem fram kemur að Sovétríkin óskuðu eftir nánu samstarfí við Nató en því hafl verið hafnað. Hann sagðist líta áætl- anir um stækkun bandalagsins grunsemdaraugum en útilokaði þó ekki inngöngu Rússa í bandalagið. Aðspurður sagði Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, að rússnesk aðild að Nató væri á þess- ari stundu ótímabær. ÍEvrópuferð sinni hefur Bush jafnan lýst friðarvilja Bandaríkj- anna. Það er til marks um þessa stefnu Bush að tímaritið Newsweek vitnar í nýjustu útgáfu sinni í ótil- greindan starfsmann Hvíta hússins sem segist hafa heyrt Bush undrast stærð vopnabúrs Bandaríkjahers. „Ég hafði enga hugmynd um að við ættum svona mikið af vopnum. Til hvers þurfum við þau?“ mun forset- inn hafa sagt. Við komuna til Washington seint á laugardag sagðist Bush hafa náð markmiðum sínum með fimm daga Evrópuför sinni. Eftir Slóven- íufundinn fór Pútín til Júgóslavíu og Kosovo þar sem hann lagði áherslu á að ekki yrði hróflað við landamærum á Balkanskaga. Kofi Annan Aöalritari SÞ hefur feröast um Palestínu síöustu daga. Annan bjartsýnn Kofi Annan, aðalritari Samein- uðu þjóðanna, sagðist vera bjart- sýnn á framtíð Mið-Austurlanda eft- ir að hann kom frá svæðinu í gær. Hann sagði viðurkenningu ísraela og Palestínumanna á Mitchell- skýrslunni vera hvetjandi fyrir frið- arferlið. Vopnahlé George Tenets, CIA-stjóra í Palestínu, hefur nú staðið 6 daga og er næsta skref í burðarliðnum. Annan vill koma á fundi milli leiðtoga Palestínumanna og Israela til að tryggja vopnahléið. Þrátt fyrir vopnahlé halda skær- ur áfram og skutu ísraelsmenn 12 ára Palestínudreng. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að hann myndi fara til Mið-Austurlanda ef vopnahlé á svæðinu héldist. Jarðarför fyrrverandi prinsessu Leila Pahlavi, nýlátin dóttir fyrrverandi íranskeisara, var borin til grafar í París á helginni. Dauði hennar hefur enn ekki veriö útskýröur, en hún fannst látin á dýru hóteiherbergi í Lundúnum fýrir rúmri viku, einungis 31 árs gömul. Umhverfisráðuneytið Námskeið Seinasti skráningardagur á námskeið umhverfis- ráðuneytis, „Löggilding iðnmeistara11, skv. reaiugerð nr. 168/2000, er 1. júlí nk. Athugið að námskeioið verður ekki endurtekið. Námskeið þetta er ætlað þeim sem fengu útgefið eða áttu rétt á að fá útgefið meistarabréf fyrir 1. janúar 1989 og hafa ekki lokið meistaraskóla. Löggilding veitir rétt á að bera ábyrgð á verkframkvæmdum fyrir byggingarnefnd. Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu Menntafélags byggingariðnaðarins á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Þeim skal skilað útfylltum þangað, ásamt fylgiskjölum, ekki síðar en 1. júlí nk. Ekki er tekið við umsóknum sem berast eftir 1. júii 2001. Nánari upplýsingar í síma 552 1040. ■ ■ ■ ■ I TEIKHINGA-HERDATRÍ Verktakar Teiknistofur Verkfræðingar Hönnuðir ..það sem fagmaðurinn notar! Armúli 17, WB Reykjaw'k síml: 533 1334 fax: 568 0499 www.isol.is Subaru Legacy 4x4, GL 2000, 5 d., skr.4/99, vínr., ek. 35 þ. km, ssk, s/v dekk, cd, abs, krók, álf. V. 1.850. þ. árg. 2000, svart, ek. 500 km. V. 690 þ. Toyota Hiace 4x4, 2,4 dísil turbo, skr.2/99, hvitur, ek.16. þ. km, bsk., VSK-bíll. V. 2.150. þ. Ford F-250 4x4, Super Duty, 7,3 disil turbo, 2 d., skr. 9/00, hvítur, óekinn, bsk., 6 gíra. V. 4.200 þ. Isuzu Trooper 4x4, 3,0 dísil turbo, 5 d., skr. 7/99, hvítur, ek. 50. þ. km, bsk., 33“ álf., krómgr., cd. V. 2.800 þ. BRÁÐVANTAR BÍLA Á SKRÁ OG STAÐINN STRAX 0PIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL.10-18. LAUGARDAGA FRÁ KL.10-14. m m I BÍLASAUNIL nöldur ehf. B í L A S A L A Tryggvabraut 14, 600 Akureyri 461 3020 - 461 3019 Toyota Hilux 4x4, D/C 2,4 dísil, 4 d., árg. 1991, rauður, ek.116 þ. km, bsk., 36“ breyttur, hús ioftd. m/mæli. V. 890 þ. Ath. greiðslukjör. Coachmen Hunter 1060 ST fellihýsi, árg. 1999, m/fortjaldi o.fl. V. 790. þ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.