Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Side 24
36
__________________MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001
Tilvera I>V
Tónleikar
á Gauknum
Það verða heljar tónleikar á Gauki
á Stöng í kvöld þegar þrjár af
helstu ungu hljómsveitum borgar-
innar troða upp. Fyrst ber að telja
hina stórskemmtilegu Úlpu sem
hefur verið að gera það gott und-
anfarið og hitaði meðal annars
upp fyrir Stephen Malkmus á
Gauknum í vetrarlok. Úlpa mun
leika lög af væntanlegri breið-
skífu sinni. Með henni leika á tón-
leikunum hljómsveitirnar Man-
hattan og Kuai sem báðar hafa
verið að stimpla sig inn undanfar-
ið. Tónleikarnir hefjast klukkan
21 og kostar skitinn 500 kall inn.
Opnanir________________________
■ Konur sýna í Kvennasögusafninu Á morg-
un kl. 15 veröur hleypt af stokkunum röð
myndlistarsýninga i húsnæöi Kvennasögu-
safns íslands I Þjóðarbókhlööu. Hver sýning
stendur í einh mánuö og er tvískipt, annars
vegar á Kvennasögusafninu, sem er til húsa
á efstu hæö Þjóðarbókhlöðunnar, og hins
vegar í anddyri Þjóðarbókhlööunnar. Auk
þess veröa þar upplýsingar um þá listakonu
sem sýnir hverju sinni, upplýsingar um
Kvennasögusafnið og einnig tölulegar staö-
reyndir sem er ætlað aö varpa Ijósi á hlut
kvenna í íslenskri listasögu. Fyrst til aö sýna
er Alda Siguröardóttir. Hún lauk myndlistar-
námi frá MHt árið 1993 og haföi áöur lokið
r.ámi í hjúkrunarfræöi. Hún hefur starfað aö
myndlist sinni meira og minna síðan og
einnig skipulagt sýningar og uppákomur þar
sem fleiri komu viö sögu.
■ JÓNIN6ISÝNIR í EDEN jón Ingl Slgurmundsson
opnar málverkasýningu í Eden, Hveragerðl, í dag kl.
21. Á sýningunni eru oíu-, pastel- og vatnslitamynd-
ir málaðar á þessu ári og síðastliðnu ári. Myndefnið
er aö mestu leyti frá Suðurlandi. Þetta er 18. einka-
sýning Jóns Inga en hann hefur sýnt víöa á Suður-
landi,Akureyri og I Danmörku. Á síöasta ári sótti
hann nokkur námskeið I myndlist, m.a. hjá þekktum
vatnslitamálara I Englandi. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn l.júlí.
Bíó_________________________________
■ MÚMÍAN í RAFEIND Kvikmyndahús Egilsstaða,
Rafeind, sýnir ævintýramyndina The Mummy kl. 20.
Fundir______________________________
■ Up? - Uf - Heiisa - Omhverfl Ráöstefnan
LUX Europa 2001, sem er 9. evrópska Ijós-
tækniráðstefnan, veröur haldin I Háskólabíói
18.-20. júní og stendur Ljóstæknifélag ís-
lands aö henni. Þátttakendur eru rúmlega
200 frá 30 löndum og fyrirlestrarnir eru 77
talsins auk 37 veggspjaldakynninga. Þema
ráöstefnunnar er Ljós - Líf - Heilsa - Um-
hverfi. Fyrirlestrarnir eru því mjög fjölbreyttir
og fjalla um Ijós frá ýmsum sjónarhornum,
áhrif Ijóss á heilsu fólks, mælingar Ijóss,
götulýsingu, flóölýsingu bygginga, svo eitt-
hvað sé nefnt. Meðal íslenskra fyrirlesara er
Jóhann Axelsson, prófessor emeritus, sem
fjallar um áhrif dagsljóss á árstíöabundna
heilsu fólks, Guöjón L. Sigurösson, sem fjall-
ar um lýsingu á Bláa lóninu og Reykjanes-
brautinni, og dr. Hákon Hákonarson sem fjall-
ar um erföafræðileg viöbrögö við lyfjum og
árstíöabundið þunglyndi.
Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.is
Blómaskreytir sem
spilar á böllum
- meö Á móti sól sem mun gera fimm plötur fyrir Skífuna. Starfar í blómabúð móður sinnar
DV-MYND NJÖRDUR
Heimir hljómsveitargæi meó blóm í hendi
„ÞaO er nú hálfskrýtiö aö segja þaö en útfararskreytingar hafa
aiitaf heillaö mig. “
„Það er nú hálfskrýtið að segja það
en útfararskreytingar hafa alltaf
heillað mig,“ segir Heimir Eyvindar-
son, blómaskreytingamaður í Sjafn-
arblómum á Selfossi, sem jafnframt
er einn liðsmanna hljómsveitarinnar
Á móti sól. Sveitin sú hefur notið
mikilli vinsælda á síðustu misserum,
ekki síst á sveitaböllum vítt og breitt
um landið. Á dögunum lék hljóm-
sveitin á átakamiklum dansleik í
Húnaveri norður bar.sem sumir
segja að muni leiða til þess að sveita-
böllin séu fyrir bí. Reynslan mun þó
væntanlega skera úr um bað.
„Djöfull er ég flottur"
Hljómsveitin Á móti sól kom fyrst
fram í mars 1996 bannig að hún á
rétt rúmlega fimm ára starfsafmæli
um þessar mundir. Þeir sem hana
skipa eru Magni Ásgeirsson söngv-
ari, Sævar Helgason gítarleikari,
Þórir Gunnarsson bassaleikari,
Stefán Þórhallsson trommuleikari
og Heimir sem leikur á hljómborð.
„Til að byrja með ætluðum við okk-
ur bara að dútla í bessu svona
meira til gamans en svo vatt betta
upp á sig, bað fór að ganga vel að
spila á böllum, jafnvel bótt um
óþekkta hljómsveit væri að ræða, og
svo í einhverju mikilmennskukasti
var ákveðið að kýla á að gefa út
disk,“ segir Heimir.
„Það má reyndar segja að hljóm-
sveitin Skítamórall hafi verið
kveikjan að þvi að við réðumst í út-
gáfu disksins. Þeir höfðu gefið út
disk árið 1996 sem kostaði ekki mik-
ið og gátu miðlað okkur af reynslu
sinni sem reyndist okkur ómetan-
legt og kunnum við þeim miklar
bakkir fyrir. Nú, platan sem slík
gerði nú enga stormandi lukku, en
eitt laga hennar, Djöfull er ég flott-
ur, varð hins vegar einn af að-
alsmellum sumarsins 1997. Síðan
má segja að vinsældirnar hafi auk-
ist hægt og sígandi og séu kannski
að ná hámarki um þessar mundir.“
Fimm platna samningur
Heimir segir að bótt allmargar
hljómsveitir séu að gera út á sveita-
ballamarkaðinn séu bær tiltölulega
fáar sem séu með böll sem virkilega
mikilli aðsókn nái. „Okkur hefur
gengið vel og kannski einhverjum
þremur til fjórum í viðbót. Það er
nú ekki svo mikil keppni í bessu,
Sálin hans Jóns míns trónir á
toppnum óumdeilanlega. Sumarið
fram undan lítur ljómandi vel út hjá
okkur. Við verðum aðalnúmerið i
Bylgjulestinni sem beysist um land-
ið í sumar, verðum á bjóðhátíð í
Eyjum og til að kóróna allt saman
skrifuðum við nú nýverið undir
fimm platna samning við Skífuna
og fyrsta plata okkar undir beirra
merkjum lítur dagsins ljós um miðj-
an júlí,“ segir Heimir, sem er
blómaskreytingamaður að mennt og
starfar sem slíkur í Sjafnarblóum á
Selfossi sem móðir hans á og rekur.
Hann segist siðustu tvö árin nánast
eingöngu hafa starfað í hljómsveit-
inni, en komið til hjálpar í búðinni
á álagstímum.
Get um frjálst höfuð strokið
„Verslunin Sjafnarblóm, bar sem
ég starfa eða er á launaskrá í bað
minnsta, hefur einnig lagt mikinn
metnað í brúðkaupsskreytingar
og til að mynda er vegleg brúð-
kaupssýning búðarinnar orðin að
árlegum viðburði á Selfossi. Versl-
unin er óvenju vel sett hvað varðar
menntað blómaskreytingafólk, en
auk mín starfa þar tveir menntaðir
blómaskreytar og einn nemi, þannig
að ég þarf litlar áhyggjur af þessum
hlutum að hafa núorðið og get um
frjálst höfuð strokið. Það má segja
að ég sé i óskastöðu eins og er en
hvað framtíðin ber í skauti sér veit
enginn, frekar en fyrri daginn."
-sbs
Votur
þjóðhátíðardagur
Ingólfur í góðum félagsskap
Þaö var margt um manninn á Arn-
arhóli enda fór þar skemmtidag-
skrá fram síödegis. Sjálfsagt hafa
fáir haft jafngott útsýni yfir svæöiö
og þessir ungu menn.
DV-MYNDIR EINAR J.
Skrúögangan mynduð
Ungviöið kemur sér vel fyrir á heröum hinna eldri
og bíöur þess aö skrúögangan nálgist.
Ltnudans
Ófáir fóru í þrautabraut skáta í Hijóm-
skálagarðinum en hún er fyrir löngu orö-
in fastur þáttur hátíöarhaldanna.
Reykvíkingar á öllum aldri fjöl- greinilegt að votviörið hefur ekki
menntu niður í miðbæ í gær til að slegið menn út af laginu.
fagna þjóðhátíðardeginum.
Venju sam-
kvæmt var
skrúðganga
farin frá
Hlemmi nið-
ur Laugaveg-
inn undir for-
ystu skáta og
lúðrasveitar
en þar að
auki setti
götuleik-
hús sterkan svip á
skrúðgönguna í ár.
Að henni lokinni
var boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá í
miðbænum sem
stóð langt fram á
kvöld. Ekki var
annað að sjá en að
ungir sem aldnir
skemmtu sér
hið besta
og