Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2001, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2001
I>V
Fréttir
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna ummæla Davíðs:
Sparkar ansi mikið frá sér
- Árnamálið bitnar ekki á Sjálfstæðisflokknum
„Mér finnst Davíð sparka ansi mik-
ið frá sér. Sorgarsaga Áma á ekkert að
hafa með pólitík að gera,“ segir Stein-
grímur Hermannsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, um yfirlýsingar Davíðs
Oddssonar í helgarviðtali DV.
Þar lýsti Davíð því að sjálfstæðis-
menn öxluðu ábyrgð á verkum sínum
en annarra flokka þingmenn gerðu það
síður.
Forsætisráðherrann nefndi til sögu
Óiaf Ragnar Grímsson, forseta íslands,
sem á sínum tíma hefði kostað ríkis-
sjóð tugmilljónir króna þegar hann
sem fjármálaráðherra veðsetti ríkis-
sjóð til að bjarga vinum sinum. Þá
nefndi hann Jón Baldvin Hannibals-
son, sem hefði keypt áfengi í nafni ráð-
herraembættis síns til að veita í af-
mælisveislu vinar sins, Guðrúnu
Helgadóttur, sem keypt hefði kjóla í
skjóli þess að hún hefði verið forseti
Alþingis, og Gisla S. Einarsson, sem
þeitt hefði áhrifum sínum sem þing-
maður í þágu sonar sins til að koma í
Endurbættur
Bakkaflugvöll-
ur opnaður
DV, SUDURLANDI:
Endurnýjuð austur-vestur-flug-
braut Bakkaflugvallar í Landeyjum
var tekin í notkun á fimmtudags-
morguninn. Eftir að vél Flugmála-
stjómar hafði lent á vellinum og
formlegt leyfi hennar lá fyrir um að
völlurinn væri opnaður komu þrjár
vélar frá Flugfélagi Vestmannaeyja í
sínar fyrstu ferðir á völlinn. Innan-
borðs voru fulltrúar Vestmannaeyja-
bæjar, sýslumaöur Eyjamanna og
fulltrúar Flugfélags Vestmanneyja.
Austur-vestur-flugbraut vallarins
var lögð klæðningu og lengd úr 935
metrum í 1.000 metra. Flughlað og
tengibraut voru einnig lögð varan-
legu slitlagi. Framkvæmdir á vellin-
um hófust í júlí i fyrra og sam-
kvæmt áætlun átti að ljúka þeim 1.
ágúst en þeim lauk hins vegar 27.
júlí, tæpri viku fyrr. Heildarkostn-
aður við verkið nam 58 milljónum
króna, þar af fóru 39 milljónir i end-
umýjun flugbrautarinnar. 19 millj-
ónir fóru í endumýjun vatnslagnar
til Vestmannaeyja sem lá í gegnum
flugbrautina, uppsetningu ljósa,
girðingar og uppgræðslu svæða í
kringum flugbrautina. -NH
gegnum toll Mus-
so-jeppum. Enginn
þessara þing-
manna hefði sagt
af sér. Sem dæmi
um sjálfstæðis-
menn sem axlað
hefðu ábyrgð
nefndi Davið Jón
G. Sólnes, Árna
Johnsen og Albert
Guðmundsson.
Steingrímur, sem sjálfur hefur lent í
umræðu um spillingu, segir að mál
Áma Johnsens sé mannlegur harm-
leikur.
„Því miður var það svo að Ámi fór
offari sem einstaklingur og gerði ranga
hluti. Ég veit ekki af hverju verið er að
blanda pólitík í það mál. Davíð nefndi
Guðrúnu Helgadóttur en ég veit ekki
til þess að hún hafl nokkru sinni verið
sökuð um að draga sér fé. Ég veit ekki
betur en að hún hafi gert allt upp,“ seg-
ir Steingrímur.
Hann segir Albertsmálið ekki held-
ur vera dæmi um
að sjálfstæðis-
menn axli ábyrgð.
„Það urðu ekki
aldeilis litlar deil-
ur um mál Alberts
Guðmundssonar
og átök innan
Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann vék ekki
úr pólitík heldur
fór fram fyrir ann-
an lista og náði kjöri á þing með mikl-
um bravúr. Ég veit heldur ekki til þess
að Jón G. Sólnes hafl sagt af sér. Ég sé
nú ekki þessar samlíkingar," segir
Steingrímur.
Varðandi snertingar þingmannsins
við verktakafyrirtækið ístak, sem tók
við stórum verkefnum úr hendi Áma
Johnsens, segir Steingrímur að þar sé
einnig um mál einstaklingsins Árna aö
ræða.
„Ámi gerir hárrétt í því að segja af
sér. Mál hans fer að því er virðist
stöðugt stækkandi. Ég vona að ekkert
óhreint sé í pokahominu á Grænlandi
og í Vestmannaeyjum," segir Stein-
grímur.
Aðspuröur hvort mál Áma muni
breyta siðferðisviðmiðum og sterkari
krafa verði uppi um afsögn þeirra sem
missi fótanna á braut dyggðarinnar
segir Steingrímur að hann telji að slíkt
fari eftir eðli ávirðinganna.
„Það fer eftir eðli málanna og hvort
um mistök er að ræða eða auðgunar-
brot að yfirlögðu ráði. í máli Áma
virðist sem hann geri þetta að yfir-
lögðu ráði og hann gerir það ákaflega
klaufalega,“ segir Steingrimur.
Hann segist ekki meta málið sem
svo að það bitni á Sjálfstæðisflokkn-
um. Ekki sé hægt að sakfella flokkinn
í heild vegna málsins.
„Ég held að þetta muni fyrst og
fremst bitna á Áma sjálfum. Einhver
sagði að hann myndi fara í prófkjör
hjá Sjálfstæðisflokknum en ég trúi
ekki að hann nái í gegn þar,“ segir
Steingrímur. -rt
Samtök ferðaþjónustunnar:
Mótmæla
tóbakslögum
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
sent frá sér mótmæli vegna nýrra tó-
bakslaga sem taka munu gildi nú um
mánaðamótin. í mótmælunum segir
að „skriffinnska, aragrúi leyfa og sí-
stækkandi eftirlitsiðnaður sé mjög
íþyngjandi fyrir fyrirtækin og tíma-
skekkja í nútímaþjóðfélagi. Ef stjórn-
völd vilja hafa áhrif á tóbaksnotkun
væri nær að efla forvarnir svo og
hvetja neytendur til þess að óska eft-
ir reyklausum svæðum. Eftirspurnin
er sterkasta vopnið". Samtökin benda
á að það sé ótrúleg stjórnsýsla að veit-
ingastaðir sem keypt hafi sér dýr
starfsleyfi og vínveitingaleyfi og upp-
fyllt strangar kröfur skuli ekki sjáíf-
krafa geta selt tóbak, heldur þurfi að
afla sér sérstakra leyfa til þess. Tó-
bakssöluleyfið verður dýrara í
Reykjavík en nágrannasveitarfélög-
unum eða um 12.500 kr. á móti
4.200-5.300 kr. Þá benda samtökin á
að óeðlilegt sé að fyrirtæki geti keypt
sér tímabundnar undanþágur frá 18
ára aldursmarki við tóbakssölu og að
framreiðslunemar sem mega afgreiða
áfengi geti nú ekki afgreitt tóbak! -BG
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Fyrstu lambaskrokkarnir
Sverrir Ágústsson, verkstjóri hjá SS,
við fyrstu sumarskrokkana.
Sumarslátrun
hafin hjá SS á
Selfossi
DV, SELFOSSI:
Sumarslátrun hófst í sláturhúsi
Sláturfélags Suðurlands á Selfossi í
gær.
Sverrir Ágústsson, verkstjóri hjá
SS, segir að það fé sem slátrað var nú
líti mjög vel út.
„Það má búast við að ef þetta gefur
tóninn fyrir haustslátrunina verði
hún með betra rnóti," sagði Sverrir.
Haustslátrun hjá SS byrjar viku fyrr
en í fyrra, Sverrir segir að lömbin líti
betur út nú en síðasta sumar þó að
byrjað sé aðeins fyrr. Alls var slátrað
240 dilkum hjá SS I gær, meðalvigtin
var 13,2 kg sem telst nokkuð gott mið-
að við að verið er að slátra allt að
tveim mánuðum fyrr en það sem áður
taldist venjuleg sláturtíð. -NH
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Veislukaka
Ólafur Snorrason, Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða, Guðjón Hjörleifsson og Karl Gauti Hjaltason
gæddu sér á tertu í tilefni dagsins.
Steingrímur
Hermannsson.
Víða bjart veður
Vestlæg eöa breytileg átt, 3 til 8 m/s og
víöa bjart veöur en skýjað og dálítil þokusúld
öðru hvoru vestan- og norðanlands. Hiti 7 til
18 stig, hlýjast suðaustanlands.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódegisflóö
Árdegisflóö á morgun
22.35 22.37
04.34 04.00
16.15 20.48
04.34 09.07
Skýringar á veðurtáknum
^VINDÁTT ÍOV-HUI
Wi -io°
^XVINDSTYRKUR Vcnncr
S metrum á sekúndu r«uö t
HEIÐSKÍRT
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKYJAÐ ALSKÝJAO
w W; Ö
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOIVtA
w m: -\r
ÉUAGANGUR ÞRUMU“ VEOUR SKAF- RENNINGUR ROKA
Æk
Færð á fjallvegum
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni eru Gæsavatnaleið og
Dyngjufjallaleið nú færar vel búnum
fjallabílum. Ástæöa er þó til aö brýna
lýrir ferðamönnum að reyna ekki
ferðalag á þessum leiöum á vanbúnum
eöa minni jeppum. Gæsavatnaleið
milli Öskju og Sprengisandsleiðar er
heilsdagsferðalag og ein erfiöasta
fjallaleiö landsins.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm^mammmmmmm i ih i i ii i iii udA’wmi.riciHKEÉ
Á«tand Qallvaga
Vegtr á skyggftum ava&um
eru loka&lr þar til onnað * w
' www.vogaa.ls/faord
Sunnanátt og skýjað að mestu
Sunnan 3 til 5 m/s og skýjað að mestu en dálítil súld sunnan- og
vestanlands. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Norðaustan 5 tll 10 m/s
og rignlng suöaustanlands
en annars norðlæg átt,
3-5 m/s og skýjaö en
þokuloft viö
noröurströndina.
Föstiida^ur
Vindur: (
3—8 nv'*\
Hiti 7" tii 17°
Norölæg átt, 3 til 8 m/s
og súld eöa dálítll rlgnlng
austanlands en viöa bjart
veöur vestanlands. Hiti 7
tll 17 stlg, svalast á
annesjum noröan tll.
Laiifíardaííur
Vindur: U
3-5 m/» \
Hití 7° til 17°
Búlst er vlö hægum vlndi
og nokkuð björtu veöri inn
til landsins en sums
staöar þokuloftl vlö
ströndlna. Fremur hlýtt í
veðri.
AKUREYRI skýjað 7
BERGSSTAÐIR skýjaö 10
BOLUNGARVÍK úrkoma 10
EGILSSTAÐIR skýjað 8
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 10
KEFLAVÍK skýjað 9
RAUFARHÖFN alskýjaö 8
REYKJAVÍK skýjaö 9
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 10
BERGEN skýjaö 12
HELSINKI skýjaö 14
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 16
ÓSLÓ léttskýjaö 14
STOKKHÓLMUR 16
ÞÓRSHÖFN skýjaö 11
ÞRÁNDHEIMUR skúrir 10
ALGARVE þokumóöa 18
AMSTERDAM skúrir 20
BARCELONA heiðskírt 24
BERLÍN rigning 19
CHICAGO heiðskírt 22
DUBLIN rigning 13
HALIFAX léttskýjaö 14
FRANKFURT léttskýjaö 21
HAMBORG skýjaö 16
JAN MAYEN þokumóöa 3
LONDON léttskýjaö 17
LÚXEMBORG heiösklrt 21
MALLORCA heiöskírt 24
MONTREAL heiöskírt 20
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 5
NEWYORK heiöskírt 20
ORLANDO alskýjaö 26
PARÍS heiöskírt 22
VÍN hálfskýjað 21
WASHINGTON alskýjaö 19
WINNIPEG heiösklrt 18
Wá'tiWÉililkavMi.’UHii-.iiæwneiiMHillMH.'liHi