Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2001, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2001
I>V
Utlönd
11
Bretland:
Grínþætti um barna-
níðinga mótmælt
Heit umræða er komin upp i Bret-
landi eftir sýningar sjónvarpsstöðv-
arinnar Channel 4 á grínþætti um
barnaníðinga. Breska stjórnin mót-
mælti í gær þættinum en mjög
óvenjulegt er að ríkisstjórnin skipti
sér af sjónvarpsþáttagerð. 2500 kvart-
anir hafa borist til sjónvarpsstöðvar-
innar. Hún lét hins vegar engan bil-
bug á sér finna og sýndi þáttinn
þrátt fyrir andstöðu. Hann var jafn-
vel endursýndur daginn eftir.
Þátturinn er eins konar grinút-
gáfa af heimildaþætti um bamaníð-
inga og fjölmiðlafárið í kringum þá.
Meðal atriða í þættinum má nefna
að barnaníðingur er brenndur inni
í getnaðarlimstákni og annar er
sýndur þar sem hann situr um
börn. Leikarinn Chris Morris á
heiðurinn að þættinum.
Talsmaður Tonys Blairs forsætis-
ráðherra segir þáttinn hafa farið út
yfir mörk velsæmis og smekks. Dav-
id Blunkett innanríkisráðherra og
Tony Blair
Talsmaður harts lýsir grínþætti um
barrtartíöinga sem handan viö mörk
velsæmis og smekks.
Teressa Jowell menningarmálaráð-
herra deila þeirri skoðun með
honum. Sjálfstæð sjónvarpsnefnd,
ITC, mun fara yflr kvartanirnar á
þættinum. Jowell menningarmála-
ráðherra hefur lýst yfir efasemdum
með starf sjónvarpsnefndarinnar þar
sem Channel 4 hafi tekist að sýna
þáttinn tvisvar á 24 tímum, þrátt fyr-
ir kvartanir þúsunda aðila. Hún seg-
ir sjónvarpsnefndina ekki vinna
nægilega hratt í málum sem þessum.
Talsmaður Blairs sagði hins veg-
ar að hugmyndin væri ekki að
koma á fót ritskoðun á sjónvarps-
efni. Hann benti auk þess á það að
satíra hafi mikilvægu hlutverki að
gegna.
Einn þingmaður Verkamanna-
flokksins hefur hins vegar snúist til
varnar fyrir þáttinn. Austin
Mitchell segir málið vera storm í
vatnsglasi. „Ég horfði á þáttinn og
hann kom mér til að hlæja,“ sagði
hann.
Clinton fagnað í Harlem
Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heilsar hér íbúum Harlem, New York, á samkomu vegna opnunar
skrifptofu hans í hverflnu. Harlem-hverfíö er aö stórum hluta byggt svörtu fólki og hefur Demókrataflokkur Clintons
ávallt átt marga stuöningsmenn þar. Flutningurinn er þó umdeildur meöal íbúanna eins og flest sem Clinton gerir.
m\GG/
Ef TRAFFIC er ekki inní
Dá færðu fíana FRÍTT næst
Degar Dú kemur.
Klofningur innan make-
dónskra stjórnvalda
Makedónskir saksóknarar lögðu í
gær fram beiðni til dómstóla að gefa
út handtökuskipun á ellefu leiðtoga
albanskra skæruliða. Þessi ákvörð-
un hefur varpað skugga yfir friðar-
viðræður á milli makedónskra
stjórnvalda og fulltrúa albanskra
stjórnmálaflokka í Makedóníu,
leiddar af sendifulltrúum Banda-
rikjanna og Evrópusambandsins.
Haft er eftir ónefndum erlendum
erindreka i Makedóníu aö framferði
saksóknaranna sé augljós tilraun til
að eyðileggja eitt af undirstöðuatrið-
um hugsanlegs friðarsamkomulags.
Leiðtogar skæruliða taka ekki bein-
an þátt í viðræðunum. Samþykki
þeirra er hins vegar nauðsynlegt og
til að fá þaö er sakaruppgjöf skæru-
liðunum til handa algerlega nauð-
synleg. Aziz Pollozhani, fulltrúi eins
albanska flokksins í viðræðum þjóð-
Önnum kafnir sendifulltrúar
James Pardew og Francois Leotard
reyna aö miöla málum i Makedóníu.
arbrotanna, ásakar ákveðna aðila
innan makedónska stjórnkerfisins
um að reyna aö grafa undan viðræð-
unum.
Aðalsökudólguriim í þeim málum
er innanrikisráðherrann Ljube
Boskovski. Handtökuskipunin er
runnin undan rifjum hans. Svo
virðist sem deilur hafi risið upp
milli hans og annarra meðlima
makedónsku stjórnarinnar. Varnar-
málaráðuneyti Makedóníu svaraði
gagnrýni Boskovski um aðgerða-
leysi hersins gagnvart skæruliöum.
í yflrlýsingu frá þvi segir að herinn
sé aðeins að virða vopnahlé. Auk
þess er Boskovski ásakaður um að
reyna að valda ólgu í hemum. Enn
fremur hvatti ráðuneytið til sam-
vinnu viö erlend ríki til að koma í
veg fyrir einangrun landsins sem
kæmi sér illa fyrir borgara þess.
LÁGMÚLI 7
SPÖNGINNI
GEISLAGÖTU 10 AKUREYRI