Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2001, Síða 23
27
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2001
DV Tilvera
BSf
Wesley Snipes 39 ára
Afmælisbarn dags-
ins er Wesley Snipes,
sem meðal annars í
upphafi ferils síns lék í
Spike Lee-myndunum
Mo Better Blues og
Jungle Fever. Hann
hefur á seinni árum aðallega sérhæft
sig í að leika töffara í hasarmyndum.
Snipes á að baki fjölbreyttan feril.
Hann fæddist í Orlando í Flórída en
flutti snemma til New York þar sem
hann fékk áhuga á leiklist og undirbjó
sig sem sviðsleikari. Það sem vakti
fyrst athygli kvikmyndaleikstjóra á
honum var þegar hann lék í mynd-
bandi Michaels Jacksons, Bad.
Gildir fyrir miövikudaginn 1. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
i Ijík Þú ert búin að vera
heldur niðurdreginn
undanfarna daga en
ert nú allur að kætast.
Vmir eiga saman góðar stundir.
Happatölur þínar eru 1, 12 og 23.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
»Ef þú vandar þig ögn
meira muntu uppskera
ríkulega. Fjölskyldan
stendur einkar þétt
saman um þessar mundir. Happa-
tölur þínar eru 4, 7 og 21.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
sem amar
þín.
. Ástvinur þinn er eitt-
’ hvað niðurdreginn.
Nauðsynlegt er að þú
komist að hvað það er
að. Vinur þinn þarfnast
i vmuiqmii u
Nautið (20. apríl-20. maí):
Það lítur út fyrir að þú
guggnir á að fram-
kvæma verk sem þú
varst búinn að ákveða
að"géra. Reyndu að vera svolítið
harðari við sjálfan þig.
Tvíburarnir (2i. maí-2i. iúní):
Þú hefur unnið vel að
’ undanfömu og ferð nú
að njóta árangurs erf-
iðisins. Ástin er
skammt undan. Happatölur þínar
eru 4, 7 og 24.
Krabbinn m. iúní-22. iúin:
Viðskiptin blómstra
I hjá þér mn þessar
' mundir og það virðist
allt verða að peningum
dunum á þér. Happtölur þín-
ar eru 5, 9 og 12.
Liónlð 123. iúlí- 22. áeústl:
Það kemur upp ágrein-
ingur í vinnunni en
hann jafhar sig fljótt
__ og andinn í vinnunni
verður betri en nokkru sinni fyrr.
Happtölur þínar eru 6, 13 og 25.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Það litur út fyrir að ein-
hver sé að tala illa um
,þig en ef þú hefur öll
þín mál á hreinu þarft
þú ekkert að óttast. Sennilega stafar
þessi óvild eingöngu af öfund.
Vogin (23. sent.-23. okt.i:
Þú þarft að fara gæti-
lega í sambandi við
peningamál en útlit er
fyrir að þú hafir ekki
eins mikið á milli handanna og þú
bjóst við.
Sporðdreki f24. okt.-21. nóv.):
Það borgar sig ekki að
vera hjálpsamur og þú
jættir að vera spar á að
j hjálpa þeim sem þú veist
ekki hvar þú hefur. Það getur verið
að einhver sé að reyna að nota þig.
Bogamaður (22. nóv.-21, des.):
__ Þú eignast nýja vini og
V ^^^það gefur þér nýja sýn
* á ýmis mál. Ástin virð-
ist blómstra um þessar
mundir og þú nýtur þess að vera
til.
Steingeitin (22. des.-19. ian.i:
Fjölskyldumálin eiga
hug þinn allan um
þessar mundir og er
samband á milli ást-
vina mjög gott. Þú ættir að heim-
sækja aldraða ættingja þína.
Laxdæla á ensku
Arnar Jónsson, einn af okkar ástsælustu ieikurum, Ijáöi
verkinu rödd sína meö lestri á Laxdælasögu á ensku.
Oskar magnar seið
Óskar Guöjónsson átti ekki í vandræöum með aö töfra
fram kynjahljóö úr saxófóninum.
Kynjahljóð í
Kaffileikhúsinu
- tónleikar vegna myndar Gios Sampogna
Blásið var til allsérstaks gjörn-
ings i Kaffileikhúsinu á sunnu-
dagskvöld þar sem blandað var
saman ólíkum listformum eins og
tónlist, kvikmyndagerð, leiklist og
bókmenntum. Gjörningurinn var
hluti af kvikmynd sem leikstjór-
inn Gio Sampogna er að vinna að
og nefnist Ice Rushes: An Iceland-
ic Odyssey. Sýnd voru brot úr
myndinni undir seiðmagnaðri
tónlist og voldugum lestri Arnars
Jónssonar leikara á völdum köfl-
um úr Laxdælasögu. Auk Arnars
tóku þátt í flutningnum tónlistar-
mennirnir Sigtryggur Baldursson
slagverksleikari, Óskar Guðjóns-
son saxófónleikari, Eyþór Gunn-
arsson píanóleikari, og Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópransöngkona.
DV-MYNDIR EINAR J
Trommað með fiðluboga
Sigtryggur Baldursson slagverks-
leikari sat viö settiö og strauk
trommurnar meö fiöluboga.
Brad Pitt leigir
ferðamannaeyju
Venjulegir rómantískir eigin-
menn leigja herbergi fyrir sig og
elskuna sína á hóteli í Hveragerði.
Brad Pitt er hins vegar enginn
venjulegur maður. Hann er búinn
að ná samningi um að leigja eitt
stykki ferðamannaeyju í vikutíma í
desember fyrir Sig og eiginkonuna,
Jennifer Aniston, eða Jen 2000 eins
og hún er sundum kölluð. Eyjan er
í Seychelles-eyjaklasanum austur af
Afríku. Kappinn borgar litlar 150
milljónir fyrir leiguna en á eyjunni
eru 16 ferðamannastaðir. Bradinn
fékk upp undir 3 milljarða fyrir sið-
ustu mynd sína þannig að þetta er
ekki jafn mikið bruðl og virðist i
fyrstu. Venjulegt fólk borgar mun
stærra hlutfall af launum sínum í
sólarlandasukk.
Britney rokkar sig
inn í nútímann
More Time og Oops! I Did It Again,
við gríðarlegar vinsældir. Platan er
væntanleg á markaðinn 6. nóvember
næstkomandi.
Britney fær hjálp frá kærasta sín-
um, Justin Timberlake, við gerð nýju
plötunnar. Justin tekur að sér að
semja nokkur lög á plötuna og er út-
gáfustjóri Britney kampakátur með
framlagið. Hann líkir tónlist Britney
við takta bresku rokkhljómsveitarinn-
ar Queen. Eitt lagið á nýju plötunni
minnir hann nefnilega á klassíska
rokkóperu þeirra félaga. Annað lag ku
titra af ryþma og blús. Ljóst er því að
Britney mun einnig leita í rætur sin-
ar í New Orleans enda hefur hún
margsinnis lýst því yfir að Suður-
ríkjauppruni hennar hafi áhrif á
sviðsframkomuna. Hún er alltaf í
magabolum og léttklædd því það var
svo heitt þarna fyrir sunnan. Svo varð
það að vana.
í október fer Britney í tónleikaferð
og gleöjast þá gumar. Britney ætlar
nefnilega að setja á fót mikla sýningu
á tónleikunum og verður kynþokkinn
þar í aðalhlutverki. Hvort þar birtast
Rammstein-taktar til að undirstrika
rokkið er ekki orðið ljóst. Hún hefur
heldur ekki gefið út tónleikadagskrá,
þannig að íslendingar geta haldið í sér
andanum og vonast eftir að poppgyðj-
an láti á sér kræla hér á landi.
Næsta plata Britney Spears verður
rokkaðari en áður hefur sést frá
henni. Þetta er þriðja plata hennar.
Áður hefur hún gefið út Baby One
Bntney Spears
Líkt viö bresku rokkhljómsveitina
Queen.
Carev útkeyrð
Mariah Carey poppdíva með meiru
lagðist seinasta miðvikudag inn á
spítala vegna ofþreytu, að því er yfir-
lýsing frá talskonu hennar segir.
í yfirlýsingunni segir að Mariah
hafi keyrt sig út vegna anna. Hún var
að leika á tveim bíómyndum í einu,
myndunum Glitter og Wise Girls. Of-
an á þetta bættist síðan vinna við að
semja, taka upp og vinna tónlist sem
fylgja á myndinni Glitter.
Ekki er vitað hvar Carey er niður-
komin né hve lengi búist var við að
hún dvelji sér til hressingar á spítala.
Lítil miðasala
Svo virðist sem barátta siðprúðra
Ástrala gegn tónleikum rapparans
umdeilda Eminem hafi gefið árang-
ur, ef eitthvað er að marka miða-
sölu á tónleika hans.
Svo leit út um tíma að Eminem
fengi ekki vegabréfsáritun til
Ástralíu þar sem hann er á saka-
skrá í Bandaríkjunum, auk þess
sem mikil andstaða var við slíkt hjá
foreldrasamtökum og öðrum sið-
prúðum samtökum. Vegabréfsárit-
unin fékkst þó að lokum enda fræga
fólkinu allir vegir færir.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir
á fimmtudaginn í seinustu viku og
hafði aðeins tekist að selja tvo
þriðju af þeim 15.000 miðum sem í
boði voru. Gagnrýnendur rapparans
segjast hafa náð siðferðilegum sigri
í málinu.
Syngur
fyrir hermenn
Geri Halliwell mun fylgja í fót-
spor Bláa engilsins, Marlene
Dietrich, þegar hún skemmtir
breskum hermönnum í arabaríkinu
Oman. Geri var ráðin af varnar-
málaráðuneytinu til þess að peppa
upp baráttuandann hjá hermönnun-
um. Nokkrar vikur í eyðimörkinni
eru nefnilega nokkuð lýjandi og er
líklegt að sumir þeirra telji sig sjá
ofsjónir þegar Geri birtist á sviðinu.
Sjálf lítur hún reyndar út fyrir að
hafa dvalist langtimum í eyðimörk
án matar. Meira en 20 þúsund her-
menn munu berja Geri augum. Ekki
er búist við því áð hún sýni lesbíu-
atriðið enda getur baráttuandi
breyst í uppreisn á svipstundu.