Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2001, Side 25
29
ÞRIDJUDAGUR 31. JÚLÍ 2001
r>V Tilvera
Bíófréttir
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Aparnir slógu í gegn
Endurgerð Planet
of the Apes í leik-
stjórn Tims Burtons
sló heldur betur í
gegn vestanhafs um
helgina. Tæpir 70
milljónir dollarar í
aðgangseyri á þrem-
ur dögum segir allt
sem segja þarf.
Þessar miklu vin-
sældir koma í kjöl-
fariö á sams konar
vinsældum Jurassic
Park III. Þetta segir
okkur að hvað sem
mönnum fmnst um
endurgerðir og
framhaldsmyndir þá
er það greinilegt að
bandarískir bíógestir vilja svoleiðis
myndir og meðan markaðurinn tek-
ur við af miklum ákafa verður enn
erfiðara fyrir aðrar kvikmyndir að
setja mark sitt á smekk bíógesta.
Tvær aðrar framhaldsmyndir
verma sæti á topp tíu
listanum, Dr, Dolittle
2 og Scary Movie 2.
Þessar gríðarlegu
vinsældir má að
nokkru leyti rekja til
markaðsmála en
löngu áður en bæði
Planet of the Apes og
Jurassic Park III voru
frumsýndar var farið
að kynda undir með
alls konar auglýsinga-
brellum og leikjum
sem tengdust mynd-
unum. Gagnrýnendur
voru ekkert yfir sig
hrifnir af Planet of the
Apes, ekki frekar en
öðrum fyrrnefndum
framhaldsmyndum, en mega sín lít-
ið gegn ofurmætti markaðsmanna
sem koma almenningi til að dansa í
kringum gullkálfinn.
-HK
Planet of the Apes
Mark Wahlberg fyrir miðri
mynd.
HELGIN 27. 29. júlí
ALLAR UPPHÆÐIR 1 ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. |
SÆTI FYRRI VIKA rrnLL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O Planet of the Apes 68.530 68.530 3500
o 1 Jurassic Park 111. 22.540 124.800 3438
o 2 America’s Sweethearts 15.400 59.100 3011
o 3 Legally Blonde 9.010 '59.800 2725
o 4 The Score 7.050 49.100 2211
o 5 Dr. Dolittle 2 4.630 101.200 2816
o 8 Cats and Dogs 4.620 81.600 2190
o 6 The Fast and the Furious 4.090 132.500 2415
o 7 Scary Movie 2 2.720 67.200 2179
0 11 Shrek 1.790 255.500 1439
0 8 Kiss of the Dragon 1.770 33.000 1214
© 9 Rnal Fantasy 1.300 30.300 2028
© 13 Tomb Raider 1.010 128.500 940
© 12 A.l. Artificial Intelligence 940 76.700 1327
© 14 Atlantis: The Lost Empire 860 79.400 893
© 16 Pearl Harbor 830 193.700 715
© 15 Baby Boy 680 27.800 491
© _ Made 660 1.300 105
© 20 The Closet 390 1.800 98
© 18 Moulin Rouge 360 54.000 356
Vinsælustu myndböndin:
Rússneskir krimmar
í New York
í tveimur efstu sætum
myndbandalistans eru tvær
nýjar myndir, sakamálamynd-
in 15 Minutes og Cast Away,
þar sem Tom Hanks leikur nú-
tíma Robinson Krúsó. 15
Minutes gerist í New York.
Tveir morðingjar frá Rúss-
landj hafa mikið látiö að sér
kveða með þvi að fara um
borgina með miklum ófriði.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Eddie Flemming (Robert De
Niro), sem er margverðlaunað-
ur fyrir störf sín i morðdeild-
inni, leyfir ungum
rannsóknarmanni úr
brunadeildinni, Jor-
dy Warsaw (Edward
Burns), að slást í för
með sér til að hafa
upp á óþokkunum.
En morðingjarnir eru
óútreiknanlegir,
snjallir og grimmir
og því reynist erfitt
að hafa hendur í hári
þeirra og brátt taka
þeir að gera út á að
svo þekktur lögreglu-
maður skuli vera á
eftir þeim. Pressan
gleypir við því um
leið og það gerir lög-
reglumönnunum ekki
auöveldara fyrir. í
þrettánda sæti situr
einnig ný mynd, The
Legend of Bagger
Vance. í henni leikur
Matt Damon dular-
fullan kylfing.
15 Minutes
Edward Burns og Robert De Nirc í hlut-
verkum tveggja lögregluþjóna í New
York.
VIKAN 23
FYRR — VIKUR
SÆTI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) ÁUSTA
O . 15 Minutes (myndform) i :
o _ Cast Away isam myndbönd) i
o 4 Billy Elliot (sam myndbönd) 2
o 1 The Way of the Gun isam myndböndi 2
o 2 Vertical Limit (Skífanj 4
o 6 Pay It Forward isam myndböndi 3
o 5 Unbreakable isam myndbönd) 5
o 3 Meet the Parents isam myndböndi 6
0 7 Crouching Tiger..... (skIfanj 6
© 8 Wonder Boys isam myndbönd) 6
0 10 Bless the Child iskífan) 3
© 9 Chlll Factor (sam myndbönd) 5
© _ The Legend of Bagger Vance iskífan) 1
© 12 The Family Man (sam myndböndi 9
© 11 0 Brother, Where Art Thou? iskífani 10
© 14 Friends 7, þættir 17-20 (sam myndböndi 3
■0 16 Sugar & Spice (myndform) 6
© 13 Friends 7, þættir 21-24 (sam myndböndi 3
© 15 Friends 7, þættir 13-16 isam myndbönd) 3
© - Gangster no. 1 iskífan) 1
Magga Stína á sviðinu
Magga Stína hefur geislandi sviðsframkomu og á auðvelt með aö heilla áhorfendur og
fá þá til að sleppa fram af sér beislinu.
DV-MYNDIR EINAR J
Sumargleði Möggu Stínu
- ærlegt dansiball í Þjóðleikhúskjallaranum
Það var heldur betur fjör í kjall-
ara Þjóðleikhússins á laugardaginn
þegar Magga Stína og hljómsveitin
Hringir héldu þar ærlegt dansiball.
Hljómsveitin leikur fyrst og fremst
gömul og góð stuðlög sem koma
fólki til að hreyfa sig í takt og
syngja með. Kom því ekki á óvart að
dansgólf Þjóðleikhúskjallarans fyllt-
ist af fjörugum körlum og konum
um leið og hljómsveitin hóf leik.
Einn í stuði
Björgvin Kristbergsson skemmti sér konunglega í kjall-
ara Þjóðleikhússins.
Dansað af lífi og sál
Gestir flykktust út á dansgólfið enda er
ekki auðvelt að sitja meö hendur í skauti
þegar Hringirnir eru annars vegar.
Biogagnryni
Laugarásbíö/Stjörnubíó/Regnboginn - Scary Movie 2 0
Ófyndinn hallærishúmor
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Einstaka kvik-
myndir geta verið svo
hallærislegar og
ófrumlegar að óvart
verða þær fyndnar.
Slík kvikmynd var
Scary Movie og fram-
haldið, Scary Movie 2,
fellur einnig i þennan
flokk en nú er heldur
betur farið að slá í
húmorinn. Það sem
kannski þessar mynd-
ir hafa helst til síns
ágætis er að þær eru
viljandi gerðar hall-
ærislegar og því öm-
urlegri sem húmorinn
er því nær kemst
myndin takmarkinu.
Svo er það bara mats-
atriði hjá hverjum og
einum hversu mikils
virði það er að sitja yfir slíkum hall-
ærishúmor.
Þetta er taktík sem Keenan Ivory
Wayans kann enda margreyndur úr
sjónvarpinu í slíkum húmor. Það
sem hann og bræður hans, Marlon
og Shawn, sem leika stór hlutverk í
myndinni og eiga auðsjáanlega eitt-
hvað í húmornum, klikka á er að
vera nánast eingöngu í kúk- og piss-
bröndurum sem ég get ekki ímynd-
aö mér annað en að flestir séu orðn-
ir leiðir á. Þegar slíkur húmor mis-
tekst, eins og gerist hér, er ekki til
leiðinlegri húmor. Opnunaratriðið,
sem er úttekt á The Exorcist, gefur
tóninn. Þetta atriði er svo ömurlegt
að þegar kom að kynningartexta
myndarinnar var ég farinn að ör-
vænta um framhaldið og svo sann-
arlega var ástæða til þess. Hvert
ófyndna hallærisatriðið tók við af
öðru.
Eins og í fyrri myndinni er sagan
sótt í þekktar hryllingsmyndir. I
fljótu bragði má ætla að fyrirmynd-
irnar séu The Haunting og Polt-
ergeist. Nokkrum persónum er safn-
að saman í draugahús
þar sem draugarnir
sem og aðrar persónur
fara hamfórum um
húsakynninn. Scary
Movie 2 er ekki byggð
upp sem saga heldur
er myndin einstök at-
riði og þó margir
handritshöfundar séu
nefndir þá er óvíst að
nokkuð hafi verið
skrifað á blað.
í raun má segja að
sá litli söguþráður sem
draga má saman hefði
getað orðið efni í farsa
þar sem tekið væri á
heimsku og klaufa-
skap persónanna. í
stað þess eru Wayans-
bræður nánast ein-
göngu í neðanbeltis-
húmor. Og þar sem aðeins er hægt
að mæla gæði myndarinnar út frá
einstökum atriðum þá eru mínus-
amir allsráðandi enda eru langflest
atriðin illa gerð, illa leikin og ófynd-
in.
Leikstjóri: Keenan Ivory Wayans. Hand-
rit: Shawn Wayans, Marlon Wayans og
fleiri. Kvikmyndataka: Steven Bernstein.
Aöalhlutverk: Shawn Wayans, Marlon
Wayans, Anna Farris, Regina Hall, James
Woods og Tori Spelling.