Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2001, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001
Skoðun
I>V
Ferðu oft í Ijós?
Guðrún Karlsdóttir námsráðgjafi:
Mjög sjaldan, þaö er svo óhollt fyrir
húöina aö fara oft í Ijós.
Guðríður Ingólfsdóttir nemi:
Ég fer aldrei í Ijós. Hingaö til hef ég
ekki haft áhuga á því.
Soffía Grímsdóttir leiðbeinandi:
Stundum, þaö er svo afslappandi
að fara í Ijós.
Oli Hjörtur Olafsson vaktstjóri:
Ég fer aö meöaltali einu sinni á ári, í
mesta lagi. Ég sé einfaldlega ekki
tilganginn meö því aö fara í Ijós.
Heiða Ágústsdóttir og
Júlía Sól, 11/2 árs:
Nei, þaö gerum viö aldrei því viö höf-
um ekki tíma til þess.
Birgir Orn Jónsson nemi:
Nei, ég borga ekki fyrir aö svitna.
Léttvín og fjór-
réttað fyrir lítið
Andri Kárason,
rekstrarstjóri Nings, skrifar:
Vegna skrifa Sigurðar í DV mánudaginn 30. júlí vil
ég koma eftirfarandi á framfæri: Ég get heilshugar tek-
ið undir það að verð á léttvíni og bjór á veitingastöðum
borgarinnar er oft á tíðum óheyrilega hátt. Mig langar
hins vegar að benda Sigurði og öðrum lesendum DV á
að veitingahúsið Nings hefur um allnokkurt skeið boð-
ið lágt verð á léttvini og er mér óhætt að fullyrða að fáir
ef nokkrir veitingastaðir bjóða sambærilegt verð. Við
fógnum tíu ára afmæli á þessu ári og höfum boðið úr-
vals rauðvín og hvítvín á kr. 1.490, þá bjóðum við upp
á bjór í flöskum á kr. 290. Viðskiptavinir okkar hafa
tekið þessu afar vel og lýst mikilli ánægju með þetta
verð.
Hvað varðar fullyrðingar Sigurðar að islenskar fjöl-
skyldur neyðist til að fara á skyndibitastaði til að gera
sér dagamun er ég honum ósammála. Fyrir það fyrsta,
þá er flóra veitinga- og kaffihúsa orðin mjög mikil og
verð á veitingum mismunandi, allt eftir þvi hvers kon-
ar staði um er að ræða. Hjá Nings er verði stillt í hóf
og hægt að fá staka rétti af matseðli frá kr. 590 eða velja
úr fjölbreyttu úrvali af réttum dagsins hverju sinni sem
kosta frá 690 til 990 krónur. Þá er einnig hægt aö velja
um margrétta tilboð fyrir hópa. Sem dæmi má nefna að
hjón með tvö börn geta hæglega fengið sér fjögurra
rétta máltíð og léttvínsflösku með matnum og gos fyrir
bömin fyrir rétt um 6 þúsund krónur, svo dæmi sé tek-
ið. Þannig að fullyrðing Sigurðar mn að hinn almenni
launamaður geti ekki boðið konu og bömum út að
borða fyrir minna en 10 þúsund krónur, fellur um sjálfa
sig. - Sigurður, vertu velkominn til okkar á Nings!
Ut að borða á veitingastað
Þá er einnig hægt aö velja um margrétta tilboö fyrir hópa.
Sem dœmi má nefna að hjón með tvö
böm geta hœglega fengið sér fjögurra
rétta máltíð og léttvínsflösku með
matnum og gos fyrir bömin fyrir rétt
um 6 þúsund krónur.
íbúðir eða áhætta?
m
‘iMÍÉSí'Sji
‘9- /
Jón Kjartansson
frá Pálmholti,
Stundum koma
til mín menn að
ræða málefni.
Einn slíkur sagði:
íslensk stjómvöld
hafa stofnað
Qölda sjóða i ýms-
um tilgangi og
eyðilagt þá alla
nema lifeyrissjóð-
ina. Þeir verða
formaöur Leigjenda- H
samtakanna, skrifar: næsur, sagoi
................. hann og hló um
leið og hann kvaddi.
Mér komu þessi orð í huga vegna
frétta af kröfu stjómvalda um þátt-
töku lífeyrissjóðanna í byggingu
virkjana og álvers sem valdamenn
kalla sjálfir áhættufjárfestingu. í
áratugi áttu lífeyrissjóðir þátt í að
fjármagna félagslegt húsnæði og
græddu sjóðirnir og fólkið. Félags-
lega húsnæðiskerfið galt þess að
ekki mátti breyta því í takt við þjóð-
félagsbreytingar. Kerfið varð fórn-
arlamb pólitískrar misnotkunar
eins og margt annað. Fyrir
nokkrum árum samþykkti Alþingi
lög sem heimiluðu lifeyrissjóðum
„Félagslega húsnœðiskerfið
galt þess að ekki mátti breyta
því í tákt við þjóðfélagsbreyt-
ingar. Kerfið varð fómarlamb
pólitískrar misnotkunar eins
og margt annað. “
þátttöku í áhættufjárfestingum. Ög-
mundur Jónasson greiddi atkvæði
gegn því einn þingmanna.
Félagslegt íbúöakerfi lagt niður
Síðan var félagslega húsnæðis-
kerfið lagt niður og afleiðingamar
blasa við; rekstrartap lífeyrissjóð-
anna vegna þátttöku m.a. í erlend-
um hlutafélögum og húsnæðisskort-
ur sem sprengt hefur húsnæðis-
kostnað íslenskra heimila upp úr
öllu valdi. Ögmundur er stjórnarfor-
maður Lífeyrissjóðs opinberra
starfsmanna og hefur þar beitt sér
gegn áðumefndri kröfu stjómvalda.
Andstæðingar hans kalla það póli-
tíska afstöðu sem er hárrétt. Aðrir
lífeyrissjóðir hafa þrátt fyrir reynsl-
una mælt með þátttöku sjóða sinna
í álveri og virkjun. Það er líka póli-
tísk afstaða, því pólitík snýst ekki
síst um forgangsröðun verkefna og
meðhöndlun fjármagns. Ögmundur
hefur einnig lagt til að lífeyrissjóð-
imir verði á ný látnir fjármagna fé-
lagslegt húsnæði, enda er það hvort
tveggja í senn öruggasta fjárfesting-
in og öruggasta lausnin á hrikaleg-
um húsnæðisvanda. Miðstjórn ASÍ
hefur samþykkt tillögu um nýja
húsnæðisstefnu sem byggir m.a. á
þátttöku lífeyrissjóðanna. Þær til-
lögur hafa nær ekkert verið ræddar
eða kynntar, enda fátæklega hús-
næðisumræðan nær eingöngu bund-
in við „ástand á fasteignamarkaði"
því réttur fólks til heimilis hefur
aldrei fengist virtur í verki. Þrátt
fyrir þetta hefur félagsmálaráð-
herra sýnt skilning á vandanum en
kemst lítið áfram vegna fjármála-
ráðherrans og liðsins í kringum
hann. Það lið lifir og hrærist í
áhættufjáifestingum og spila-
mennsku. íslensku yfirstéttina vant-
ar gjaldeyri hvað sem hann kostar,
til að halda áfram bruðli sínu á
kostnað alþýðunnar.
Hrægammarnir
„Þegar ég les sumt af því, sem skrifað er
vegna máls Árna Johnsens, eða hlusta á það,
sem sagt er í útvarpi eða sjónvarpi, dettur mér í
hug dýralífsmynd frá Afríku. Hjörð af dýrum er
á ferð um gresjuna, eitt þeirra heltist úr lestinni
og ekki líður á löngu, áður en það er umkringt
af hrægömmum, sem linna ekki látum, fyrr en
þeir hafa fellt dýrið og drepið með því að rífa úr
því innyflin.
Til þess að koma í veg fyrir, að þannig sé far-
ið með okkur sjálf og meðbræður okkar, höfum
við mennimir komið á fót rannsóknarkerfi og
dómstólum, þar sem öllum á að gefast kostur á
að skýra mál sitt og setja fram málsbætur." Á
þessum orðum hefur Bjöm Bjamason mennta-
málaráðherra pistilinn sem hann setti inn á vef-
síðu sína um helgina. Hrægammar þjóðfélagsum-
ræðunnar eru nú lagstir á hinn pólitíska ná
Áma Johnsens og Birni er augljóslega nóg boðið.
Ekki bara Árni
En það er ekki bara að hrægammarnir séu
vondir við Áma því Bjöm bendir á að rangindin
og illskan leynist víöa og hrægammarnir hafi
meira að segja fengið leyfi frá Hæstarétti til að
ráðast á fólk, svo framarlega sem það sé áber-
andi í Sjálfstæðsflokknum. Ekki er hægt að
skilja ráðherrann öðruvísi en svo
að hann telji að forustumenn
sjálfstæðismanna búi við þá sér-
kennilegu aðstööu að njóta ekki -
einir manna - almennra borgara-
legra réttinda. Björn visar 1 því
sambandi til niðurstöðu Hæsta-
réttar i málaferlun Kjartans
Gunnarssonar gegn Sigurði G.
Guðjónssyni, vegna greinar sem
Sigurður skrifaði í Dag á sínum
tíma. Því máli tapaði Kjartan og
um það segir Bjöm: „Með öðmm orðum er það
svo samkvæmt dómi meirihluta hæstaréttar
(2:1), að beri menn eitthvað á einhvem, sem
gegnir áberandi stöðu innan Sjálfstæðisflokksins,
þurfa þeir ekki að sanna, að þeir hafi rétt fyrir
sé, ef það er þeim óhæfilega erfitt. Minnir þetta
á það, sem George Orwell sagði: Öll dýr eru jöfn.
En sum dýr eru jafnari en önnur.“
Gammarnir halda áfram
Árásimar á Árna Johnsen eru því meiri en
ella vegna þess að hann var forustumaður i Sjálf-
stæðisflokknum og nýtur sem slíkur ekki al-
mennra réttinda. Og eftir að hann er hættur sem
forustumaður í flokknum - búinn að segja af sér
- halda hrægammamir áfram
og ráðast einfaldlega á næsta
sjálfstæðismann og reyna að
finna á honum höggstað.
Þetta er vitaskuld afskaplega
ósanngjörn staða og aumt til
þess að vita hvað allir eru
vondir við forustumenn í
Sjálfstæðisflokknum. Garri
hallast nú helst að því eftir
lesturinn á pistli Björns að
hér sé um dæmigert eineltis-
mál að ræða. Það er beinlínis
verið að leggja sjálfstæðis-
menn í einelti - og eins og oft
vill verða með fórnarlömb
eineltis þá segja þau ógjaman sjálf frá eineltinu.
En nú hefur Bjöm sem sé brotið ísinn og látið
heyra frá sér þannig að forsendur ættu að vera
til að taka á þessu máli af festu. Garri sér fyrir
sér að fyrsta skrefið gæti verið að beita hörðu til
aö þagga niður í hrægömmunum og banna þá í
fjöhniðlum þannig að menn fengju einhvern frið.
í framhaldinu mætti svo klára málið, t.d. með
því að vængstýfa gammana, og þannig tryggja að
forustumenn í Sjálfstæðisflokknum gætu gert
það sem þeir telja sig þurfa að gera án þess að
eiga á hættu að verða úthrópaðir fyrir vikið. Þá
yrðu loksins allir jafn jafnir, nema kannski sjálf-
stæðismenn sem yrðu fyrir vik-
ið heldur jafnari en aðrir.
Smáiminasemi
Samkvæmt nýrri
reglugerð fjármála-
ráðuneytisins sem
iS tekur gildi 1. ágúst
2001 verða vasapen-
ingagreiðslur til
þeirra sem dvelja á
elliheimilum eða
sambærilegum stofn-
unum staðgreiðslu-
skyldar frá þeim
tíma. Fjármálaráðu-
neytið hefði átt að byrja á því að
leiðrétta rangindin í skattagreiðsl-
um á ellilífeyrisþega en þar munar
mörgum prósentum. Mismunun
virðist vera ær og kýr þeirra sem
sitja við stjórnvölinn i landinu.
Brynjólfur
Brynjólfsson
skrifar:
Goðapylsur
Þær eru einstaklega góöar enda þarf
mikiö til að vörumerki vinni sig í
gegn í huga fólks og standi fyrir
meira en „bara pylsa“.
Mjög góöar
Goðapylsur
Sigrún skrifar:
DV birti frétt fyrir skömmu þess
efnis að pylsurnar frá Goða væru að
ná sístækkandi markaöshlutdeild á
kostnað helsta keppinautarins, SS.
Það hlýtur að koma flestum á óvart
að sala á einni vöru, eins og pyls-
um, fimmfaldist á nokkrum mánuð-
um. Ég skil það þó vel því pylsurn-
ar frá Goða eru einstaklega góðar
enda þarf mikið til að vörumerki
vinni sig í gegn í huga fólks og
standi fyrir meira en „bara pylsa“.
Hinar nýju pulsur sem Goði setti
nýlega á markað eru einnig ákaf-
lega góðar. Markaðssetningin á
þeim er skemmtileg og höfðar til
unga fólksins. Pulsur eru herra-
mannsmatur!
Endurvinnsla
fyrir alla
Gunnar Bragason, framkvæmdastjðri
Endurvinnslunnar hf., skrifar:
Þann 1. ágúst
birtist á les-
endasíðu bréf
þar sem kvartað
var yfir að ekki
væri skilagjald
á bjórflöskum.
Þetta er ekki
rétt, 8 krónu
skilagjald er
lagt á allar bjór-
og áfengisflösk-
ur sem seldar
eru hér á landi.
Þeim umbúðum
er því unnt að
skila til umboðs-
manna Endur-
vinnslunnar hf.,
eins og áldósum, plast- og glerflösk-
um sem áður hafa geymt gos eða
ávaxtasafa. Upplýsingar um um-
boðsmenn, staðsetningu þeirra og
afgreiðslutima má finna á vef End-
urvinnslunnar, www.endurvinnsl-
an.is.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst S netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKiavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Bjórumbúöir
8 krónu skilagjald
er lagt á
allar bjór- og
áfengisflöskur
sem seldar eru
hér á landi.