Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2001, Síða 25
29
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001
DV Tilvera
Bíófréttir_______________________
Rush Hour 2 í fyrsta sæti
Njósnarinn afhjúpaður
Undirheimar Hong Kong
Tucker og Chan ná betur saman í þessari
mynd en þeirri fyrri og er leikur þeirra því
meira sannfærandi.
Rush Hour 2, með þeim
Chris Tucker og Jachie
Chan, var vinsælasta kvik-
myndin í bíóhúsum í Banda-
ríkjunum um síðustu helgi
og náði inn 67,4 milljónum
dollara.
Myndin segir frá tveimur
mjög ólikum lögreglumönn-
um sem vinna saman að því
að koma upp um glæpahring
í Hong Kong sem sérhæfir
sig í að falsa peninga og
smygla þeim til Bandaríkj-
anna. Jachie Chan leikur
rannsóknarlögguna, inspect-
or Lee, sem er skyndilega
kallaður heim úr fríi til að vinna að
málinu. Hann kemst fljótlega að því
að höfuðpaurinn er gamall en spilltur
vinur fóður hans sem var lögga.
Leikstjóri Rush Hour 2 er Brett
Rather sem gerði m.a. Rush Hour 1 og
Family Man. Þeir sem hafa sé Rush
Hour 2 segja að hún sé bæði hraðari
og fyndnari en fyrri myndin en sé
byggð á sömu formúlunni. Eins og í
fyrri myndinni mætist menning aust-
urs og vesturs og karakterar sem auð-
velt er að lesa í skreyta myndina.
Tucker og Chan ná betur saman í
þessari mynd en þeirri fyrri og er
leikur þeirra því meira sannfærandi.
í lok myndarinnar má sjá hversu
mikið Chan leggur á sig til að leika öll
áhættuatriði sín sjálf og þegar mynd-
inni lýkur langar þig örugglega að sjá
Rush Hour 3. -Kip
HELGIN 27... 29. jútí
SÆTI FYHRI VIKA TITIU. ALLAR UPPHÆÐIR 1 ÞÚSUNDUM BANDARiKJADOLLARA. INNKOMA INNKOMA FJÖLDI HELGIN: ALLS: BÍÓSALA
O Rush Hour 2 67.408 67.408 3118
0 1 Planet of the Apes 27.535 123.740 3530
0 - The Princess Diaries 22.862 22.862 2537
o 2 Jurassic Park III 12.272 147.019 3462
0 3 America's Sweethearts 8.038 49.100 2211
o - Oríginal Sin ‘6.402 6.402 2194
o 4 Legally Blonde 5.851 71.358 2536
o 5 The Score 4.863 57.165 2211
0 6 Dr. Dolittfe 2 2.272 106.169 1681
© 7 Cats and Dogs 2.211 86.707 2122
© 8 The Fast and the Furious 2.130 136.973 1620
© 9 Scary Movie 2 1.182 69.950 1312
© 10 Shrek 1.072 257.919 1010
© 11 Kiss of the Dragon 714 34.705 591
© 18 Made 600 2.299 117
© 13 Tomb Raider 522 129.512 690
© 15 Atlantis: The Lost Empirer 441 80.521 501
© 16 Pearl Harbor 434 80.521 462
© 19 The Closet 411 3.352 128
© 28 Ghost World 342 793 23
Eiturlyfjaviðskipti vinsælust
Kvikmynd Stevens Soderbergs,
Traffic, er í efsta sæti á myndbanda-
listanum þessa vikuna. Traffic er að
mörgu leyti eins og heimildamynd í
þremur hlutum sem allir eru sam-
tvinnaðir.
Ein sagan ijallar um bandariskan
saksóknara sem leikinn er af Mich-
ael Douglas. Douglas er staðráðinn í
að ráða niðurlögum öflugs eitur-
lyflahrings en þarf um leið að horfa
upp á og berjast við eiturlyfjaneyslu
dóttur sinnar.
Önnur sagan í myndinni segir frá
ævi mexíkósku lögreglunnar
Javiers Rodriguez sem leikin er af
Benicio Del Toro. Hann þarf að feta
þröngan stíg milli eiturlyfjahrings-
ins sem ræður ríkjum í umdæmi
hans og að gæta vinar síns sem er
uppljóstrari fyrir
bandarísku eiturlyfja-
lögregluna.
Síðasta sagan í
myndinni segir frá
lífi eiturlyfjabaróns-
ins og eiginkonu hans
eftir að honum er
stungið í grjótið og
hún kemst að raun
um hvað maður
hennar gerir.
Catherine Zeta-Jones
leikur eiginkonu
dópsalans og tekur
hún til sinna ráða til
að halda uppi þeim
ríkmannlega lifsstíl
sem þau hafa vanið
sig á.
Myndin státar af
hópi úrvalsleikara og
þeir sem hafa ekki
séð hana nú þegar
ættu að gera það sem
fyrst.
-Kip
Þrjár sögur í einni
Benicio Del Toro leikur lögreglu-
mann sem þarf aö feta þröngan stíg
milli eiturlyfjahringsins sem ræöur
ríkjum í umdæmi hans og aö gæta
vinar síns sem er uppljóstrari fyrir
bandarísku eiturlyfjalögregluna.
VIKAN 23. - 29. júlí
FYRRI VIKUR
SÆTl VIKA Timi. (OREIFINGARAÐIU) ÁUSTA
0 Ný Traffic (Sam myndbönd) 1
0 1 15 Minutes (myndformj 2
© 2 Cast Away (sam myndböndi 2
O Ný Dude, Where's My Gun iskífan) 1
0 3 Billy ElliOt (SAM MYNDBÖND) 3
0 5 Vertical Limit (skífani 5
O 4 The Way of the Gun isam myndbönd) 3
0 8 Meet the Parents (sam myndbönd) 7
0 6 Pay It Forvard (sam myndbönd) 4
© 9 Crouching Tiger.... (skífan) 7
© 7 Unbreakable <sam myndböndi 6
© 2 The Legend of Bagger Vance(SKíFAN) 2
10 Wonder Boys <sam myndböndi 7
© 11 Bless the Child iskífan) 4
© 15 0 Brother, Where Art Thou? (skífan) 11
© 12 Chill Factor (sam myndböndi 6
© 14 Family Man isam myndböndi 1
© 20 Gangster No. 1 iskífan) 3
© 16 Friends 7, þættir 13-16 (sam myndbönd) 4
LJL. 18 Friends 7, þættir 21-24 (sam myndbönd) 4
- þjóöremba og kvenfyrirlitning í James Bond
Njósnari hennar hátignar, James
Bond, er í huga margra holdgervingur
hetjuskapar og karlmennsku. Njósn-
arinn er þó ekki allur þar sem hann
er séður því ef vel er að gáð kemur
margt misjafnt fram í fari hans og
hegðun. Hákon Gunnarsson bók-
menntafræðingur hefur nýlokið MA-
ritgerð um kappann þar sem hann
tekur fyrir fimm James Bond-myndir
og greinir þær meðal annars út frá
feminisma og eftirlendufræðum.
Myndirnar sem Hákon fjallar um eru
Dr. No (1962), On Her Majesty’s Secret
Service (1969), The Spy Who Loved Me
(1977), The Living Daylights (1987) og
Tomorrow Never Dies (1997). Segist
Hákon hafa notað hinar Bond-mynd-
irnar til hliðsjónar en látið bækurnar
eiga sig með öllu.
Bretland miðja heimsins
Hákon segir myndimar um James
Bond gegnsýrðar af breskri þjóð-
rembu og heimsveldishugmynda-
fræði. „Þegar Flemming var að skrifa
bækurnar var nýlenduveldið á
fallanda fæti en þær eru engu að síð-
ur skrifaðar inn í hugmyndafræði ný-
lenduveldisins," segir Hákon og bætir
við að því sé haldið við í myndunum.
„í Bond-myndunum er Bretland alltaf
miðjan. Þeir ráða alls staðar. Það er
til dæmis ráðist á rannsóknarstofu
Bandaríkjamanna í Dr. No en það er
samt Breta að redda málunum, ekki
Bandaríkjamanna," segir Hákon. Þá
er enn fremur rasismi undirliggjandi
í myndinni. „Allar persónur sem eru
afrískar eða austrænar eru illmennin
en Bretar eru ekki í hlutverki ill-
menna,“ segir Hákon og bætir við að
það sé þó ein góð persóna sem sé dökk
á hörund. „En hún er líka í hlutverki
nýlendubúa sem er mjög hollur ný-
lenduherranum, er þjónn hans. Hann
fer og sækir skó húsbóndans þegar
hann er beðinn um þaö,“ segir Hákon
og bætir við aö persónan sé í þokka-
bót dregin upp sem
barnaleg, einfóld og
hjátrúarfull.
Afþreying ekki
tekin alvarlega
Að sögn Hákonar
hafa James Bond-
myndirnar fengið
talsverða gagnrýni
í gegnum tíðina
fyrir þjóðrembuna,
ekki síst Dr. No og
Goldfinger. „Það hef-
ur alltaf verið deilt á d
þetta annað slagið en
þetta hefur líka ekki
verið tekið alvarlega
vegna þess að þetta
eru afþreyingar-
bókmenntir." Há-
kon bætir við að
þó að síðustu
myndirnar um
James Bond
hafi ekki verið
skrifaðar af Flemm-
ing sjálfum fylgi þær
að mörgu leyti sömu
lögmálum og fyrri
myndir í þessum efn-
um.
Bond-stúlkan
dægrastytting
James Bond verð-
ur ekki aðeins brigslað um þjóðrembu
heldur er hann í þokkabót karlremba
af verstu sort. „Það er alltaf ákveðin
ástarsaga í Bond. Hann hittir Bond-
stelpuna og á endanum eru þau sam-
an. En svo byrjar ferlið alltaf aftur í
næstu mynd,“ segir Hákon. „Sam-
skiptin eru mótuð af því að þau eru
tímabundin dægrastytting,“ segir Há-
kon en bætir við að staða kvenna í
Bond-myndunum hafi þó breyst. „I
fyrstu myndunum hafa þær ekki einu
sinni rödd heldur er talað yfir
leikkonurnar. Þær verða meiri per-
sónur eftir því sem á líður. í fyrstu
myndunum eru Bond og illmennið
áberandi en í seinni myndunum fær
Bond-stúlkan meira vægi,“ segir Há-
DV-MYND EINAR J,
Hákon Gunnarsson bókmenntafræðingur
Hákon hefur nýlokiö MA-ritgerö þar sem hann greinir
James Bond-kvikmyndirnar út frá ýmsum stefnum,
svo sem eftirlendufræöum og feminisma.
kon. Engu að síður ráða Bond-
stúlkurnar oft úrslitum og koma
hetjunni jafnvel til bjargar.
„Bond kemst ekki af án Bond-
stelpunnar. Hún er til dæmis með
einhverjar upplýsingar sem
hann þarf til að komast
að illmenninu eða eitt-
hvað svoleiðis. Hún er
því sterk að þessu
leyti,“ segir Hákon.
Persónur og
F leikendur
Nokkrir leikarar hafa
túlkað hlutverk Bonds í
gegnum tíðina og segir
Hákon talsverðan mun á
persónunni eftir því hver
leikur hana hverju sinni.
„í meðförum Rogers
Moores varð hann hálf-
gerð grínpersóna. James
Bond er mikið karl-
menni. Engu að síður er
hálfpartinn gert grín að
þeim hetjudáðum sem
Bond í kunnuglegri
stellingu
Njósnarinn frægi er
ekki allur þar sem
hann er séöur
hann vinnur. Hann drepur einhvern
og þá kemur brandari á eftir og morð-
inu snúið upp í grín,“ segir Hákon en
bætir við að þetta sé algengt einkenni
hasarmynda. Hinir leikararnir tóku
hetjuhlutverk James Bonds alvarlegar
að sögn Hákonar og þá sérstaklega
Timothy Dalton. Bendir Hákon
einmitt á það í ritgerð sinni að hann
taki að sér hlutverkið á miðjum ní-
unda áratugnum þegar hasarmyndir
voru í mikilli uppsveillu og dragi per-
sónusköpunin því dám af hasar-
myndahetjum á borð við Rambo.
Alltaf gaman aö Bond
Aðspurður kveðst Hákon ekki
stefna á að gefa ritgerð sína út, að
minnsta kosti ekki í heild sinni. Hann
er um þessar mundir að vinna að
grein um njósnarann fræga fyrir
Tímarit Háskóla íslands sem er að
vissu leyti unnin upp úr MA-ritgerð-
inni. Einnig mun hann skrifa stutta
grein um Bond i blað sem kvikmynda-
klúbburinn Filmundur gefur út. En
skyldi hann líta James Bond öðrum
augum núna en áður? „Maöur sér
hann náttúrlega í allt öðru ljósi núna.
En það er samt alltaf gaman að Bond,
þó að hann sé eins og hann er,“ segir
Hákon Gunnarsson að lokum.
-EÖJ
Umboðsmaður I Akranesi
Kristbjörg Antóníusdóttir
Stekkjarholti 17
sími 431 2913