Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
DV
■j
Fréttir
Framkvæmdum við Húsavíkurkirkju að ljúka:
Ekki reiknað með
fötluðum til kirkju
„Það er vlða við kirkjur lands-
ins verið aö hugsa um að varö-
veita og friða og virðist þá skipta
minna máli hvort fólk komist inn
i viðkomandi hús. Þarna stangast
á húsafriðunarlög og ferlimál fatl-
aðra,“ segir séra Pétur Þórarins-
son, prófastur í Þingeyjarsýslum,
en það hefur vakið mikla athygli
að við enduruppbyggingu á tröpp-
unum við Húsavíkurkirkju er
ekki gert ráð fyrir þvi að fatlaðir
sæki þangað messur eða aðrar at-
hafnir. Menn áttu von á að settur
yrði upp „rampur“ við kirkjuna
fyrir hjólastóla en það var ekki
gert og er ástæðan sú að húsið er
alfriðað samkvæmt húsafriðunar-
lögum og engu má breyta.
„Þaö er mitt persónulega mat
að það hefði ekki skemmt útlit
kirkjunnar á nokkurn hátt þótt
framan við hana hefði verið kom-
ið fyrir búnaði þannig að fatlaðir
í hjólastólum
gætu farið til
kirkju. Ég
get tjáð mig
um þetta á
tvennan hátt,
bæði sem
prófastur og
einnig sem
fatlaður mað-
ur í hjóla-
stól. Okkur,
sem þannig
er ástatt
með, þykir
ákaflega leið-
inlegt að láta
halda á okk-
ur og viljum
að sjálfsögðu
komast okk-
ar ferða sem
mest upp á
eigin spýtur.
En auðvitað
hlíti ég fyrir-
mælum Húsa-
friðunar-
nefndar þótt
mér finnist
það ekki
sæmandi á
21. öldinni að
ekki hafi allir
sama aðgengi
og sömu
möguleika að
komast til
kirkju," segir
Pétur. Hon-
um finnst það
varla boðleg
leið, sem rætt
hefur verið
um að fara á
Húsavíkurkirkja Húsavík, að
Ákaflega fallegt og sérstakt guöshús en ekki koma upp
reiknað meö aö fatlaöir eigi þangaö erindi. einhverjum
aðgangi fyrir fatlaða á bakhlið
kirkjunnar.
„Þetta er einfaldlega í sam-
ræmi við kröfur Húsafriðunar-
nefndar. Við óskuðum eftir því að
fá að koma upp aðgengi fyrir fatl-
aða en það má ekki hreyfa
nokkurn nagla við þessa bygg-
ingu án þess að fá til þess einhver
leyfi og þau eru ekki auðfengin.
Það hefur verið rætt um aðrar
leiðir eins og aðgengi fyrir fatl-
aða á bakhlið kirkjunnar. Þessi
mál skýrast væntanlega fljót-
lega,“ segir Friðrik Sigurðsson,
formaður sóknarnefndar Húsa-
víkurkirkju.
Þess má geta að í haust verður
blásið til ráðstefnu í Þingeyjar-
sýslum á vegum prófastsdæmis-
ins þar sem „þernað" verður
einmitt aðgengi fatlaðra og eldra
fólks að kirkjum og safnaðar-
heimilum. -gk
Eigandi Café Nobel:
Dyraverðinum
vikið úr starfi
„Ég hef vikið dyraverðinum
tímabundið úr starfl vegna þessa
atviks," segir Ólafur Gunnarsson,
eigandi Café Nobels í Austurstræti
sem lokað var aöfaranótt laugar-
dags með lög-
regluvaldi.
Samkvæmt
upplýsingum
frá lögreglu
var dyravörð-
ur staðarins
drukkinn, sem
og eigandinn.
Ólafur segir
rangt sem haft
hafi verið eftir
lögreglunni að
hann hafi sjálf-
Lokaö ur verið á
Eigandi Café Nobels staðnum. Þeg-
íhugar aðgeröir eftir ar lögregluna
að staö hans var hafi borið að
lokaö um helgina. garði hafi ver-
1...........1 iö barþjónn á
staðnum auk dyravarðarins.
„Barþjónninn segir mér að hann
hafi ekki verið undir áhrifum
áfengis og ég sé enga ástæðu til að
vefengja þann framburð," segir
Ólafur.
Hann er nú með til skoðunar,
ásamt lögfræðingi sínum, til hvaða
aðgerða hann geti gripið.
„Ég verð fyrir veltutapi vegna
lokunarinnar sem að minu mati
var tilefnislaus. Þá er ekki gott að
staðurinn fá á sig slæmt orð vegna
slíkra aögerða. Ég legg mikið upp
úr góðu orðspori staðarins og við
eigum ekki skilið að fá á okkur
óorö vegna slíkra aðgerða eins og
þarna áttu sér stað,“ segir Ólafur.
-rt
Kattarhryggur:
Þjóðverji fót-
brotnaði
Ungur Þjóðverji sem var á göngu
á Fimmvörðuhálsi í gær ökkla-
brotnaði er hann hrasaði á Kattar-
hrygg. Björgunarsveit var kölluð
út frá Hvolsvelli með lækni og
sjúkrabifreið en aðstæður voru
mjög erfiðar á slysstað. Þvi þótti
einnig rétt að kalla út þyrlu Land-
helgisgæslunnar og fór TF-Sif á
vettvang og sótti manninn. Komið
var með hann til Reykjavíkur um
klukkan 21, fjórum klukkustund-
um eftir að hann slasaðist. -gk
Almenningur vill skylda flokka til að upplýsa um fjárstuðning:
Alþingi verður
að taka af skarið
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgar-
stjóri í Reykjavík,
kallar á Alþingi að
setja reglur sem
skylda stjórnmála-
flokkana til að opna
bókhald sitt.
„Ég tel það vera
eðlilegt að í gildi
séu reglur um fjár-
reiður stjórnmála-
flokkanna og Alþingi þarf að setja
þær reglur. Sömu aðferðir og sömu
reglur verða að gilda um alla,“ seg-
ir hún.
Skoðanakönnun DV frá síðasta
þriðjudegi leiddi í ljós að tæplega 9
af hverjum 10 þeirra sem tóku af-
stöðu vildu láta skylda stjórnmála-
flokka til að greina opinberlega frá
fjárstuðningi frá einstaklingum og
fyrirtækjum. Talsmenn stjómar-
andstöðuflokkanna segjast eiga í
erfiðleikum með að opinbera bók-
hald sitt upp á sitt einsdæmi og
vilja að allir sitji við sama borð.
Ingibjörg segir það munu skerða
möguleika þeirra flokka sem opna
bókhald sitt á að fá fjárstuðning ef
aðrir flokkar komast upp með að
halda því lokuðu.
„Það þýðir ekki að gera þetta með
þeim hætti að stjórnmálaflokkarnir
upplýsi um fjárstuðning sjálfviljug-
ir heldur þurfa allir að vera undir
sömu reglur settir í þeim efnum.
Þetta mun aldrei ganga upp á meö-
an stærsti stjórnmálaflokkurinn,
sem hefur greiöastan aögang að fjár-
magninu, opnar ekki sitt bókhald,“
segir Ingibjörg og bendir á Sjálf-
stæðisflokkinn í því samhengi.
í könnun DV kom fram aö um 90
prósent fylgismanna Samfylkingar-
innar og Vinstrihreyfmgarinnar -
græns framboðs vildu upplýsa um
fjárstyrki til flokkanna. 85 prósent
framsóknarmanna en einungis 71,4
prósent sjálfstæðismanna vildu gera
hið sama. -jtr
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
Verðbólgan meiri en spáð var:
Lottóverðbólga
- skoðum málið í febrúar, segir hagfræðingur ASÍ
Verðbólgan í júlí,
mæld samkvæmt
vísitölu neyslu-
verðs, var 0,3%.
Siðastliðna tólf
mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs
hækkað um 7,9%
og vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis
um 8,4%. Undan-
farna þrjá mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 2,6%. Þetta er talsvert umfram
spár. „Þetta er nokkru meiri hækk-
un en við höfðum gengið út frá en
þegar maður skoðar þessa hækkun
betur þá kemur í ljós að helmingur-
inn af henni stafar af hækkun
lottósins," segir Rannveig Sigurðar-
dóttir, hagfræðingur ASÍ. Rannveig
segir aðra liði vísitölunnar ekki
hafa komið mjög á óvart nema hvað
síminn hækki talsvert mikið.
Verð á þjónustu hækkaði milli
mánaða um 1,9% sem hafði þau
Kynt undir veróbólgu
Lottóiö er sterkur áhrifavaldur í
íslensku efnahagslífi.
áhrif að vísitalan hækkaði um
0,6%. Verð á innlendum vörum og
grænmeti hækkaði um 0,5% sem
hækkaði vísitöluna aöeins um
0,1%. Þá lækkaði verð á innfluttum
vörum um 1,2%. Af einstökum
breytingum má nefna að vegna
sumarútsala lækkaði verð á fatnaði
um 6,9% og verð á bensíni og olíu
lækkaði um 4,0%. Verð á símaþjón-
ustu hækkaði hins vegar um 4,2%,
happdrætti um 21,9% og veitinga-
og kaffihús um 2,3%. Þá hækkaði
verð dagheimila og gæsluvalla um
5,1%.
Að sögn Rannveigar Sigurðar-
dóttur virðist sem nú séu að koma
fram afleiddar hækkanir vegna
gengisbreytinganna sem sjá megi á
ýmsum þjónustuliðum. Aðspurð
um hvort þessi niðurstaða nú auki
eða minnki líkurnar á því að for-
sendur kjarasamninga haldi segist
Rannveig ekkert vilja um það full-
yrða á þessu stigi. Hún minnir á að
í fyrrahaust hafi útlitið verið nokk-
uö dökkt og menn talið víst að taka
þyrfti upp samninga sem síöan hafl
reynst óþarfi. „Þess vegna munum
viö skoða þetta mál þegar upp verð-
ur staðið í febrúar. Það skiptir auð-
vitað mjög miklu máli að ekki verði
meiri hækkanir á næstu mánuðum
og að neytendur séu á varðbergi
gagnvart verðhækkunum," segir
Rannveig Sigurðardóttir.
-BG
Rannveig
Slgurðardóttir.
Vill upplýsingar
Gísli S. Einars-
son, þingmaður
Samfylkingar, hef-
ur óskað eftir því
að fjárlaganefnd fái
nákvæmar upplýs-
ingar úr leiðarbók
um alla notkun á
flugvél Flugmála-
stjómar undanfarin ár. Ástæðu
þessa segir hann vera umræðu um
misnotkun á vélinni.
Stærsta jarögangagerð
Landsvirkjun hefur auglýst eftir
verktökum til að taka þátt i forvali
fyrir útboð á gerð aðrennslisganga
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
við Kárahnjúkavirkjun. Þar yrði
um langstærstu jarðgangagerð að
ræða sem ráðist hefur verið i hér á
landi. Göngin eiga að verða 40 kíló-
metrar að lengd.
Aðeins venjulegt dót
Umhverfisráðuneytið segir úr-
gang frá Bandaríkjaher á Heiðar-
fialli á könnu heimamanna. Ráðu-
neytið hafi þó kostað rannsókn á
vatni við fiallið árið 1992 í kjölfar
miklar umræðu um málið. Rann-
sóknin hafi enga mengun leitt í ljós.
- Fréttablaðið greindi frá.
Úrskurðarnefnd klofnaöi
Úrskurðamefnd
um upplýsingamál
klofnaði þegar hún
ákvað að vísa frá
kærum Fréttablaðs-
ins vegna synjunar
um afhendingu
gagna tengdra
byggingarnefnd
Þjóðleikhússins. Meirihluti nefnd-
arinnar sagði ekki hægt að kæra
synjunina til hennar þar sem „ætla
megi“ að gögnin veröi tekin til skoð-
unar í lögreglurannsókn.
Unrframeftirspurn
Um 120 umsóknir hafa borist um
92 pláss á hjúkrunarheimilinu Sól-
túni sem verður opnað í byrjun
næsta árs. Eftirspum eftir plássum
er strax umfram framboðið og því
huga forsvarmenn Sóltúns að
stækkun. - Sjónvarpið greindi frá.
Rottufaraldur
Mikið hefur verið um rottugang í
austurbæ Vestmannaeyja undan-
famar vikur og hefur hann orðið
svo skæður að meindýraeyðir Vest-
mannaeyja greip til þess ráðs að
stytta sumarfrí sitt svo að hann
gæti tekist á við rottufaraldurinn. -
Fréttablaðið greindi frá.
Sundreiö meö tölvu
Umfangsmikill ratleikur á sér nú
stað við Mývatn og taka 36 Þjóðverj-
ar þátt. Um 20 þýskir blaðamenn
em með í for og munu kynna her-
legheitin. Leikurinn er liður i aug-
lýsingaherferð rafhlöðuframleið-
andans Varta.
Með tónleika á íslandi
mundsdóttir söng-
I kona mun halda
RSk1 fónleika hérlendis
■ skömmu fyrir jól
l z I með Sinfóníuhljóm-
A M sveit íslands. Ekki
er ljóst hvar tón-
IHMHHH leikarnir verða
haldnir en það skýrist þegar nær
dregur.
Haldiö til haga
í Heita pottinum í gær var rang-
lega sagt frá því að bókaútgáfan
Fróði yrði á tónlistarlegum nótum
fyrir jólin og gæfi út sögu Álfta-
gerðisbræðra og Rokksögu íslands.
Rétt er að bækumar eru væntan-
legar en það er Forlagið sem gefur
út. -HKr.
I
%
J
U...V ...i