Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Blaðsíða 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001______________________________________
JOV ______________________________________Neytendur
Fór með eigur sínar í búslóðageymslu:
„Eigur mínar stór-
skemmdust í búslóða-
geymslu í Rafha-húsinu í
Hafnarfirði," segir Gróa
Sigurbjömsdóttir og held-
ur áfram: „Menn þar gefa
sig út fyrir að geyma bú-
slóðir og maður treystir
því auðvitað að fá þær
jafngóðar til baka, enda
borgar maður fyrir það.“
Hún kveðst hafa verið með
hluta af búslóð á þremur
brettum i Rafha-húsinu frá
mars til september 2000.
Þar hafi verið sett plast-
filma utan um brettin með
öllu saman. „Þegar ég náði
i mitt dót, eftir hálfs árs
geymslu, var bleyta í sum-
um kössunum innan um á
brettunum og vídeóspólur
og margir persónulegir
munir myglaðir, undnir og
ónýtir.
Tvær bókahillur voru
líka skemmdar af raka og
tölvuborðið mitt brotið
eins og lyftaragaffall hefði
farið gegnum hliðina á
því.“
Fær ekkert úr tryggingum
Gróa kveðst hafa hringt og kvart-
að en starfsmenn geymslunnar
harðneitað að nokkur leki hafi átt
sér stað þar á bæ og enginn hafi
ingalegra og ekki síður tilfinn-
ingalegra verðmæta.
Ekki möguleiki að vatn
hafi komist að
Eigendaskipti urðu að
búslóðageymslunni í Rafha-
húsinu í Hafnarfirði í maí sl.
Fyrri eigandi hennar, Gunnar
Valdimarsson, segir það af og
frá að nokkur bleyta hafi getað
komist að búslóð Gróu í
geymslunni. „Þar eru stein-
veggir allt i kring og steypt loft
og þar biluðu engar lagnir á
þessum tíma. Þess vegna er það
ekki fræðilegur möguleiki að
vatn hafi getað komist að þessu
dóti hjá okkur,“ segir hann og
bætir við: „Ef eitthvað hefði
komið upp á af okkar hálfu þá
hefðum við tilkynnt það strax.“
Gróa með tvo myglaða hluti sem voru henni dýrmætir,
Bók barnsins og skjal frá Háskóla Islands.
DV-MYND E.ÓL.
komið frá fyrirtækinu til að skoða
skemmdirnar. Hún kveðst hafa til-
kynnt tryggingafélagi sínu um
flutning búslóðarinnar í geymsluna
þegar hann átti sér stað og borgað
samviskusamlega sín tryggingarið-
gjöld. Þrátt fyrir tjónið fái hún ekki
krónu úr þeirri átt þar sem ekki sé
hægt að sanna að leki hafi átt sér
stað í geymslunni eða lagnir brugð-
ist. „Ég er gersamlega varnarlaus,"
segir Gróa, hnuggin yfir missi pen-
Erfitt mál
Neytendasamtökin hafa haft
þetta mál til meðferðar og að
sögn Emblu, starfsmanns
þeirra, er það erfitt viðureignar
þar sem geymsluaðilinn verjist
allri sök. Samkvæmt nýjum lög-
um frá Alþingi, sem tóku gildi
1. júní sl., er sönnunarbyrðin lögð á
þjónustuaðilann þannig að það er
hans að sanna sakleysi sitt. Fyrir
gildistöku þeirra voru ólögfestar
reglur við lýði en ekki skýrt laga-
ákvæði. -Gun.
Fékk myglaða, undna
og ónýta muni til baka
Töfrakrydd frá
Pottagöldrum
Pottagaldrar hafa
sett á markað þrjár
nýjar kryddtegundir.
Fyrst skal nefna Töfra-
kryddið sem er alhliða
krydd fyrir allt hráefni og allan mat.
Kryddið er í senn borð-, steikar- og
grillkrydd og i fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu segir, að varla sé til neitt
hráefni sem það geri ekki enn betra.
Karrí Madras og Karrí de luxe eru nýj-
ar karríblöndur. Indverskur matur
verður æ vinsælli hér á landi og þess-
ar tvær nýju karríblöndur ættu að
vera kærkomnar fyrir áhugasama
heimakokka. Þessar karríblöndur
henta með nánast öllu hráefni, bæði til
steikingar og kryddlagningar. Einnig
má búa til kaldar sósur eða ídýfur með
þeim og sýrðum rjóma og bragðbæta
með sinnepi eða mango chutney.
Sextíu prósent
verðmunur
Maður nokkur Nóatún HÍUgartl
keypti sér Gil- lette Úl»» kM
Sensor rakblöð í verslun
Nóatúns í Hóla- iUw «iwn M) w-m n.:UlM)IRR ..-IKSl
garði, Breiðholti, MB..-ÍIJUW
og greiddi fyrir þau ■■IBJW: ■iMM «.B lUUBMI.'a
1287 krónur. „Ég gerði mér ekki m mm*x niuAauatt | im ■ m: m a»m inui
grein fyrir því nm:: tt
hvað þetta var hátt 1 hjbola m ■ <u
verð fyrr en ég HVMI* KVIIIUNIMA ÞOXKUM VIISIIPIIM 1 *l< 1 -1) IBU MU K IMUM
kom í n ágranna-
verslunina Sam- Kvittanirnar
kaup í Vesturbergi tala s'nu mal''
fjörutiu mínútum síðar og sá að ná-
kvæmlega sama vara kostaði þar
798,“ sagði kaupandi rakblaðanna og
lagði fram bæði blöð og kvittanir hjá
DV máli sínu til stuðnings. -Gun.
Þurrkun blóma
- auðveld og skemmtileg
Fallegur krans úr þurrkuöum blómum
Til aö blómin njóti sín sem best þarf aö þurrka þau á réttu blómgunarstigi. Til dæmis
veröa rósir fallegastar ef þær eru þurrkaöar þegar knúpparnir eru rétt sprungnir út.
Nú er sumarið að
verða liðið og ekki
seinna vænna að reyna
að varðveita eitthvað af
öllum fallegu blómunum
sem vaxa í garðinum.
Þurrkuð blóm hafa ætið
notið töluverðra vin-
sælda en með hinni
miklu föndurbylgju, sem
átt hefur sér stað hér á
landi undanfarin ár, hafa
notkunarmöguleikar
þeirra aukist mikið. Þvi
er ekki úr vegi að bregða
sér í garðinn á sólríkum
degi og tína uppáhalds-
blómin úr garðinum. Til
eru nokkrar leiðir til að
þurrka blómin og fer að-
ferðin eftir því hvemig
nota á þau.
Fyrst skal nefna aðferð
sem flestir þekkja og
kunna mætavel, þ.e.
pressun. Pressun blóma
er auðveld leið til að
varðveita flestar blóma-
tegundir. Ekki tekur
langan tíma að koma
blómunum fyrir og út-
búnaður sem til þarf er
lítill og notast má við
hluti sem til eru á flest-
um heimilum. Hvort sem
pressa á eitt stakt blóm
sem minnir á sérstaka
stund eða fleiri til að nota
í skreytingar og föndur er þessi að-
ferð á allra færi. Þó er ágætt að hafa
nokkur atriði í huga eigi pressunin
að takast vel. Byrja þarf á því að
fjarlægja allan sjáanlegan raka af
blómunum. Það flýtir fyrir þurrk-
uninni og kemur í veg fyrir að þau
rotni. Leggið blómin milli tveggja
laga af þerripappír og nokkurra
laga af dagblöðum. Ofan á allt sam-
an eru svo sett einhvers konar
þyngsli; góðar bækur duga vel. Setj-
ið pressuna á hlýjan, þurran stað og
fylgist reglulega með þurrkuninni,
blómin eru tilbúin þegar þau eru
þurr og stökk.
Blóm má einnig þurrka með því
að hengja þau upp á dimmum, hlýj-
um og þurrum stað. Þá eru þau
bundin saman í litla vendi. Hafið í
huga að misjafnt er milli blómteg-
unda á hvaða blómstigi er best að
þurrka þau. Sumar tegundir, eins
og t.d. rósir eða eilífðarblóm, eru
þurrkaðar áður en blómin eru
fullútsprungin á meðan aðrar þurfa
að vera komnar lengra. Gott er aö
blása á þurrkaða vendi með hár-
þurrku til að fjarlægja af þeim ryk.
Silica gel hentar vel þegar þurrka
á mjög viðkvæm blóm. Gelið er þá
sett í 1,5 cm þykkt lag í botninn á
loftþéttu plastúáti og blómin lögð
þar ofan á með „andlitið" upp. Síð-
an er notuð skeið til að moka silica
kristöllum varlega ofan á blómin og
þess gætt að þau missi ekki lag sitt
eða kremjist. ílátinu er lokað og eft-
ir nokkra daga ættu blómin að vera
tilbúin. Þá eru þau tekin varlega
upp og burstað af þeim með mjúk-
um pensli. -ÓSB
IGNIS 4x4
SPORTJEPPLINGURINN
Meðaleyðsla 6,91
1.575.000,-
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og meó 15. ágúst 2001 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 43. útdráttur
1. flokki 1990 - 40. útdráttur
2. flokki 1990 - 39. útdráttur
2. flokki 1991 - 37. útdráttur
3. flokki 1992 - 32. útdráttur
2. flokki 1993 - 28. útdráttur
2. flokki 1994 - 25. útdráttur
3. flokki 1994 - 24. útdráttur
Innlausnarverðið er aó finna i Morgunblaðinu
þriðjudaginn 14. ágúst.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúóalánasjóói, í bönkum,
sparisjóóum og verðbréfafyrirtækjum og Liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
| Borgartúni 21 j 105 Reykjavík | Sími 569 6900 j Fax 569 6800