Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
DV
7
Fréttir
Hámenntaður tónlistarkennari á Akureyri fær ekki vinnu og hyggst stofna einkaskóla:
Pétur með
flest
bronsstig
Hvert þriðjudagskvöld er spilað
sumarbrids hjá Bridsfélagi Akur-
eyrar í Hamri. Þann 31. júli unnu
Pétur Guðjónsson og Una Sveindótt-
ir sannfærandi sigur.
1. Pétur Guðjónsson -
Una Sveindóttir 62,5%
2. Hjalti Bergmann -
Arnar Einarsson 56,7%
3. -4. Sveinbjörn Sigurðsson -
Sigurður Marteinsson 54,2%
3.-4. Hans Viggó -
Haukur Harðarson 54,2%
Þann 7. ágúst urðu hins vegar
efstir Sveinn Stefánsson og Skúli
Skúlason. Staða efstu para var:
1. Sveinn Stefánsson -
Skúli Skúlason 56,5%
2. Frímann Stefánsson -
Bjöm Þorláksson 52,3%
3. -4. Hans Viggó -
Sunna Borg 50,9%
3.-4. Sigurður Marteinsson -
Sveinbjörn Sigurðsson 50,9%
Eftsu pör fá að sjálfsögðu brons-
stig en alls hafa 35 spilarar fengið
bronsstig í sumar. Þeir spilarar sem
flest hafa fengið eru:
1. Pétur Guðjónsson 97
2. Una Sveinsdóttir 82
3. Björn Þorláksson 72
4. Frímann Stefánsson 57
5. Skúli Skúlason 50
-BÞ
Djangódjass
á Glerártorgi
Heimsóknir Robin Nolan Tríós
frá Amsterdam til Akureyrar eru að
margra mati hápunktur dagskrár
Listasumars og hafa bæði tónleikar
tríósins og námskeið þeirra í Tón-
listarskólanum náð gríðarlegum
vinsældum. Fjórða heimsókn þeirra
til Akureyrar tengist fyrstu alþjóð-
legu djangódjass-hátíðinni sem
haldin er hér á landi og lýkur með
fimm tima innigötutónleikum á
göngum ' Glerártorgs laugardags-
kvöldið 18. ágúst. Árangur af nám-
skeiðum Robin Nolan Tríós má m.a.
heyra hjá djangó-tríóinu Hrafna-
sparki á Akureyri sem vakið hefur
verðskuldaða athygli fyrir frammi-
stöðu sína á opinberum vettvangi
og leika mun á hátíðinni á Glerár-
torgi en þeir félagar hófu að leika
saman eftir að hafa tekið þátt í
tveimum fyrri námskeiðum Robin
Nolan Tríós. Auk þeirra koma fram
á þessum stórtónleikum Robin Nol-
an Tríós, Pearl Django, fimm
manna hljómsveit frá Seattle,
söngvarinn Randy Greer frá
Barcelona og djassgítaristinn
kunni, Paul Weeden frá Ósló, tón-
listarmenn í fremstu röð frá Evrópu
og Bandarikjunum.
Námskeið Robin Nolan Tríós er
fullbókað með 22 þátttakendum,
sem koma víða að af landinu auk
tveggja frá Bandaríkjunum. Nám-
skeiðinu í fyrrasumar lauk með úti-
tónleikum í Hafnarstræti þar sem
allir þátttakendur léku og hrifu við-
stadda með smitandi leikgleði.
Ánægjan með góðan árangur af
námskeiðunum kemur m.a. fram í
því að stór hluti nemenda kemur ár
eftir ár. Lögin sem tekin eru fyrir á
Friöuðum reit á Akureyri fórnaö undir einbýlishús:
Mótmæla skipu
lagsbreytingum
- hnígandi áherslur á græn svæði eftir að Árni Steinar fór á þing?
Akureyr-
ingum
stórfjölgi
Stýrihópur um kynningarátak til
að íjölga íbúum á Akureyri lýkur
senn störfum og verða sjónvarps-
auglýsingar meðal þess sem gert
verður til að reyna að laða fólk til
bæjarins. Að sögn bæjarstjórans,
Kristjáns Þórs Júlíussonar, horfa
menn ekki síst til aldurshópsins
25-35 ára, enda sé mest hreyfing á
þeim hópi.
Ekki er búið að ákveða hvar aug-
lýsingarnar verða sýndar en Krist-
ján segir markmiðið að fjölga íbú-
um um 300 árlega. Það tókst næst-
um því í fyrra og segir Kristján að
húsnæðismálin séu í góðu horfi til
að stórfjölga bæjarbúum. Næsta
íbúabyggðin, Naustahverfið, geri
sem dæmi ráð fyrir 6000 manna
byggð. -BÞ
Kristján Þór
Júlíusson.
Óánægja er
meðal íbúa á Ytri
brekkunni á Ak-
ureyri vegna
breytingar sem
auglýst hefur ver-
ið á skipulagi.
Um er að ræða
grænt svæði, frið-
aðan reit á mót-
um Hraungerðis
og Dalsgerðis,
fyrrum leikvöll,
þar sem krakkar
hafa leikið sér. í
vor var ákveöið
að leggja svæðið
undir lóðir
tveggja einbýlis-
húsa og hafa und-
irskriftalistar
gengið í hverfinu
þar sem þessu er
andæft. Á mót-
mælaplaggið
skrifuðu 70-80 manns nöfn sín og
var það afhent fulltrúa umhverfis-
deildar Akureyrarbæjar sl. fimmtu-
dag.
Gunnar Gústavsson, íbúi í
Hraungerði, segir að undanfarið
telji hann sig greina viöhorfsbreyt-
ingu hjá bæjaryfirvöldum til hins
verra: „Eftir að Árni Steinar Jó-
Arni Steinar
Jóhannsson.
DV-MYND BG
Svæöiö umdeilda
Þarna munu aö óbreyttu rísa tvö einbýlishús, hluta íbúa í Geröahverfi á Akur-
eyri til mikilia vonbrigöa.
hannsson hætti störfum hjá um- undir högg að sækja.“ Gunnar segir
hverfisdeild bæjarins og fór á þing, krakkana í hverfinu hafa spurt
er eins og þessi grænu svæði eigi hvar þeir eigi að leika sér í framtíð-
inni og sum bömin hafi viðrað þá
hugmynd að tala við bæjarstjóra
vegna málsins. „Hann er alltaf að
státa sig af þvi að Akureyri sé svo
fjölskylduvænn bær,“ segir Gunnar.
Erlingur Einarsson, íbúi í hverf-
inu, segir að svæðið hafi drabbast
niður undanfarin ár en eigi að síður
séu börn þarna iðulega að leik. Er-
lingur lítur svo á að ekkert al-
mennilegt útivistarsvæði verði eftir
í hverfinu eftir að einbýlishúsin
rísa. „Við erum ekki að mótmæla
byggingunum sem slikum heldur
því að þama verður ekki eftir nema
smáræma fyrir börnin til að leika
sér á,“ segir Erlingur. Bæði Erling-
ur og Gunnar lýsa einnig áhyggjum
af fyrirhuguðum breytingum á
gatnakerfi hverfisins sem muni
auka umferö bíla.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, vildi ekki tjá sig
um málið að sinni. Umhverfisnefnd
bæjarins myndi funda um málið á
miðvikudag og í kjölfar þess fundar
hefði hann hugsanlega eitthvað um
málið aö segja. Bæjarstjórinn kaus
enn fremur að tjá sig ekki um þau
orð Gunnars Gústavssonar er lúta
að grænum reitum innan bæjarfé-
lagsins.
-BÞ
Hrafnaspark
Hljómsveitin Hrafnaspark á Akureyri er höfö til marks um þaö sem komiö
hefur út úr djangódjass-námskeiöum Robin Nolan Tríós undanfarin sumur.
námskeiðinu eru af efnisskrá
sígaunagítaristans heimsþekkta,
Django Reinhardt, bæði hans eigin
lög og sígildar djassperlur. Ætluhin
er að ljúka námskeiðinu með tón-
leikum í Hafnarstræti kl. 12.30 laug-
ardaginn 18. ágúst ef veður lofar,
annars verða tónleikarnir fluttir í
Deigluna.
Bíður eftir svari frá bæjaryfirvöldum
Á sama tíma og langir biðlistar
eru við Tónlistarskólann á Akur-
eyri vegna skorts á kennurum, hef-
ur skólinn ekki not fyrir Michael
Jón Clarke, hámenntaðan tónlistar-
kennara með mikla starfsreynslu.
Michael Jón starfaði áður við skól-
ann en fór þaðan og hugði á frekara
nám. Áform hans breyttust síðan og
hann hugðist leita eftir gamla starf-
inu sínu þegar það lá fyrir að kenn-
araskortur væri viö skólann.
„Það kom
fram í frétta-
þætti á sjón-
varpsstöð á Ak-
ureyri að langir
biðlistar væru í
Tónlistarskólan-
um, sérstaklega í
söng- og
strengjadeild,
sem stafaði af
Clarke. því að ómögulegt
væri að fá kennara til starfa. Ég bað
um viðtal við skólastjórann og hann
tjáði mér að kennslukvótinn væri
fullnýttur en sagði að fengi ég styrk
til að kenna þessum nemendum
væri það mjög góð lausn. Hann
sagði jafnframt að einkarekinn
skóli mundi veita Tónlistarskólan-
um vissa samkeppni og aðhald sem
væri jákvætt," segir Michael Jón Cl-
arke í nýlegu bréfi sinu til bæjar-
stjórans á Akureyri.
Michael Jón áfomar að hefja
rekstur einkaskóla í haust en hann
sagöi í samtali við DV að ekki komi
til greina að hefja slíkan rekstur
nema fá til þess styrk frá Akureyr-
arbæ fyrir launakostnaði. Fram-
haldið sé því alfarið undir bæjaryf-
irvöldum komið. í bréfi sínu til bæj-
arstjóra segir Michael Jón Clarke
að hann hafi mjög víðtæka menntun
og reynslu, hans sérgreinar séu
bæði söngkennsla og kennsla á
strengjahljóðfæri...0 en í þeim
deildum munu biðlistar vera lengst-
ir í Tónlistarskólanum á Akureyri.
Jafnframt getur Michael Jón þess i
bréfinu að Reykjavíkurborg reki
engan tónlistarskóla en styrki 13
einkarekna skóla þar sem borgin
greiði öll laun og launatengd gjöld.
Aðrir tónlistarskólar fái einnig fast-
an styrk.
Michael Jón