Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Page 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viðskiptablaöió
Kaupþing með 322
milljóna króna hagnað
- hagnaðurinn dregst saman um 10% frá því í fyrra
Hagnaður hjá Kaupþingi
Hreinar rekstrartekjur Kaupþings námu 2,8 milljöröum króna
fyrstu sex mánuöi ársins.
Kaupþing hf. skilaði 322 milljón-
um króna í hagnað eftir skatta
fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður
Kaupþings í fyrra var öllu hærri,
eða 529 milljónir króna, og minnkar
hagnaöurinn um 10,4%. Fjármála-
fyrirtækin spáðu að meðaltali 392
milljóna króna hagnaði þannig að
afkoman er minni en væntingar
fjármálafyrirtækjanna um sem
nemur 18%. Tekjur af fyrirtækja-
þjónustu og erlend verkefni skiluðu
fyrirtækinu verulegum tekjum. Töl-
vert tap varð hins vegar af viðskipt-
um meö hlutabréf en úrvalsvísitala
VÞÍ lækkaði um 17,3% á tímabilinu.
Kaupþing er stærsti aöilinn í við-
skiptum með hlutabréf og hefur lagt
metnað í að sinna þeim markaði,
hvort sem aðstæður á hlutabréfa-
markaði eru góðar eða slæmar.
14% arðsemi eigin fjár
Afkoma Kaupþings fyrstu 6 mán-
uði ársins sýnir að rekstur fyrir-
tækisins hvílir á mörgum stoðum.
Þrátt fyrir erfitt árferði á verðbréfa-
mörkuðum er arðsemi eiginfiár
u.þ.b. 14%.
Erlendar starfsstöðvar Kaupþings
skiluðu í heildina viðunandi niður-
stöðu þó að þar hafi hægt á starf-
semi í kjölfar erfiðra aðstæðna á er-
lendum fiármálamörkuðum.
Kaupþing í Danmörku hefur nú
nýverið fengið öll tilskilin leyfi frá
dönskum yfirvöldum til þess að telj-
ast fullgildur banki. í Danmörku
leggur Kaupþing megináherslu á
einkabankaþjónustu, eignastýringu,
miðlun og fyrirtækjaþjónustu.
Hreinar rekstrartekjur Kaup-
þings námu 2,8 milljörðum króna
fyrstu sex mánuði ársins. Eigið fé
jókst um 2,8 milljarða króna frá árs-
byrjun og nemur nú tæpum 7,4
miiljörðum, en á tímabilinu var
boðið út nýtt hlutafé að nafnvirði
200 milljónir sem seldist fyrir kr.
2.480 milljónir. Eiginfiárgrunnur
Kaupþings, þ.e. eigið fé að viðbætt-
um víkjandi lánum, er kr. 10.488
milljónir.
Eiginfiárhlutfall samstæðu Kaup-
þings samkvæmt CAD-reglum er nú
11,7%, en það má lægst vera 8,0%.
Niðurstaða efnahagsreiknings 30.
júní 2001 var 94 miiljarðar króna en
í þriggja mánaða uppgjöri þann 31.
mars var hún 86 milljarðar króna.
Horfa fram á erfiða mánuði
á fjármálamörkuðum
Stjórnendur Kaupþings telja að
næstu mánuðir á fiármálamörkuð-
um geti orðið erfiðir. Verulega hef-
ur þrengt að fyrirtækjum og ein-
staklingum sökum mikillar skulda-
söfnunar, lækkandi hlutabréfaverðs
og hárra vaxta.
Hátt vaxtastig til lengri tíma mun
hafa alvarleg áhrif á fiárhagslega
stööu fyrirtækja og einstaklinga og
er það verulegt áhyggjuefni. Mikil-
vægt er að gera sér grein fyrir þeim
hættumerkjum sem víða blasa við
sökum hins háa vaxtastigs. Enn
fremur er nauðsynlegt að við beit-
ingu hagstjórnartækja sé litið til
hins íslenska hlutabréfamarkaðar.
Hlutabréfamarkaöurinn hefur gegnt
lykilhlutverki á því hagvaxtarskeiði
sem rikt hefur undanfarin ár. Verði
ekki gætt að því að hann þrifist og
dafni getur orðið erfitt fyrir þau fyr-
irtæki sem bera eiga uppi hagvöxt
komandi missera að ná í nýtt eigið
fé sem þeim er nauðsynlegt. Brýnt
er því orðið að vextir verði lækkað-
ir verulega þannig að vaxtasprotar
hagkerfisins verði ekki endanlega
kæföir.
Verðlag hækk-
ar töluvert
umfram spár
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,3% milli mánaðanna júlí og ágúst og
er það nokkru meiri hækkun en spár
Qármálafyrirtækjanna gerðu ráð fyr-
ir. Að meðaltali spáðu þau að vísital-
an myndi hækka um 0,06% en þetta er
ekki í fyrsta skiptiö sem vísitalan
hækkar meira en spár fiármálafyrir-
tækjanna gera ráð fyrir. Síðustu mán-
uði hefur vísitalan nærri því alltaf
hækkað mun meira en meðaltalsspár
fjármálafyrirtækjanna. Tvö fyrirtæki
spáðu að þessu sinni verðhjöðnun en
það hefur loðað við að verðlag hafi
lækkað milli þessara tveggja mánaða.
Milli þessara tveggja mánaða lækkaði
það í fyrra um 0,5%.
Að þessu sinni komst Landsbank-
inn næst því að spá réttu gildi en spá
hans hljóðaði upp á 0,23% hækkun.
Vísitala neysluverðs, miðuð við
verðlag í ágústbyrjun 2001, var 214,9
stig og hækkaði um 0,3% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs án hús-
næðis var 214,1 stig og hækkaði
einnig um 0,3% frá júlí. Verð á þjón-
ustu hækkaði um 1,9% en verð á inn-
lendum vörum og grænmeti hækkaði
um 0,5%. Þá lækkaði verð á innflutt-
um vörum um 1,2%.
Af einstökum breytingum má nefna
að vegna sumarútsala lækkaði verð á
fatnaði um 6,9% og verð á bensíni og
olíu lækkaði um 4,0%, að því er fram
kemur í frétt frá Hagstofunni. Verð á
símaþjónustu hækkaði um 4,2%,
happdrætti um 21,9% og veitinga- og
kaffihús um 2,3%. Þá hækkaði verð
dagheimila og gæsluvalla um 5,1%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 7,9% og
vísitala neysluverðs án húsnæðis um
8,4%. Undanfama þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um 2,6%.
46 milljóna hagnaður
Marels fyrstu 6 mánuðina
- bætt rekstrarskilyrði móðurfélagsins
Hagnaður af rekstri Marels hf. á
fyrstu sex mánuðum ársins var 46
milljónir króna. Þar af var hagnað-
ur annars ársfiórðungs 104 milljónir
þannig að félagið tapaði 58 milljón-
um á fyrsta ársfiórðungi. Rekstrar-
hagnaður (EBIT) nam 213 milljón-
um króna en var 181 milljón árið
áður.
Rekstrartekjur Marels og dóttur-
félaga þess á fyrsta ársfiórðungi
2001 námu alls 3.505 milljónum
króna sem er 23% aukning frá sama
tímabili ársins 2000 og í samræmi
við áætlanir samstæðunnar.
Mikil breyting til batnaðar varð á
rekstri Marel-samstæðunnar á milli
fyrsta og annars ársfiórðungs árið
2001 sem skýrist einkum af bættum
rekstrarskilyrðum móðurfélagsins á
Islandi og aukinni sölu í kjölfar
styrkingar sölukerfis félagsins á síð-
asta ári. Þannig var framlegð eftir
breytilegan kostnað, þ.e. aðkeypt
efni, 1.462 milljónir á öðrum árs-
fiórðungi en 1.058 milljónir á þeim
fyrsta eða alls 2.520 milljónir. Sam-
bærileg tala fyrir fyrstu sex mánuði
ársins 2000 var 1.854 milljónir
króna.
Launakostnaður hefur aukist
um 35%
Á móti kemur að launakostnaður
hefur hækkað um 35%, úr 1.094
milljónum í 1.477 milljónir, sem
rekja má til 12% fiölgunar starfs-
manna, gengisbreytinga og al-
mennra launahækkana. Einnig hef-
ur annar rekstrarkostnaður hækk-
að um 44% (úr 521 milljón í 749
milljónir) vegna tveggja nýrra fé-
laga innan samstæðunnar sem ekki
voru með á fyrrihluta ársins 2000,
gengisbreytinga og nokkurrar
hækkunar vegna aukinna umsvifa.
Eigið fé Marels í lok júní 2001 var
2.086 milljónir og hækkaði um 221
milljón frá árslokum 2000. Þar af er
endurmat á eignarhluta Marels í er-
lendum dótturfélögum vegna geng-
isbreytinga sem nam 138 milljónum
en það er fært beint í gegnum efna-
hagsreikning félagsins. Veltufé frá
rekstri nam 405 milljónum, saman-
borið við 184 milljónir árið áður, og
jókst því um 120% á milli ára.
Fjárfestingar Marels og dótturfé-
laga þess námu alls 333 milljónum
króna á tímabilinu en voru 168
milljónir á sama tíma árið 2000. Þar
af var fiárfest fyrir 238 milljónir hjá
Marel hf., einkum í nýbyggingu fé-
lagsins í Garöabæ. Starfsmenn voru
aö jafnaði 634 á fyrri hluta ársins
2001 en voru 564 á sama tíma í fyrra.
Þar af voru 255 á íslandi og 379 er-
lendis.
Sex tilboð bárust í ráðgjöf vegna sölu
ríkisins á hlutabréfum í Landsbankanum
Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Fram-
kvæmdanefnd um einka-
væöingu bárust sex tilboð
í ráðgjöf vegna fyrirhug-
aðrar sölu ríkisins á
hlutabréfum í Lands-
banka íslands. Eftirfar-
andi fyrirtæki sendu inn
tilboö: KPMG Corporate
Finance í Danmörku,
PRICEWATERHOU-
SECOOPERS (PWC) í
London og Reykjavík,
ING BARINGS Limited, The
Northern Partnership Limited,
HSBC investment bank og Deloitte
& Touche. I tilkynningunni segir að
um sé að ræða tilboð í verkefni sem
felist í að semja skilmála sam-
kvæmt þeim óskum sem
verkkaupi hefur um fyrir-
komulag sölunnar, aug-
lýsa forval og taka við er-
indum í kjölfar þess.
Einnig skuli gera tillögu
um hverjir eigi aö taka
þátt í lokuðu útboði, semja
skilmála og vinnureglur
vegna lokaðs útboðs, veita
ráðgjöf um lágmarksverö,
taka við tilboðum, yfirfara
þau og gera tillögur um
hvaða tilboði skuli tekið.
Tilkynnt verður fóstudaginn 17.
ágúst nk. að hvað tilboði verði geng-
ið.
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001
I>V
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 2300 m.kr.
Hlutabréf 170 m.kr.
| Spariskírteini 1100 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
; 0 Kaupþing 82 m.kr.
| Q Landsbankinn 25 m.kr.
(-> íslandsbanki 19 m.kr.
MESTA HÆKKUN
1 0 EFA 10,7%
© íslandsbanki 0,8%
o
MESTA LÆKKUN
i © Kaupþing 5,7%
© Búnaðarbankinn 2,6%
i © Landsbankinn 2,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1028 stig
- Breyting Q 1,05 %
i
Samdráttur í smá-
sölu í Þýskalandi
Smásala í Þýskalandi dróst saman í
júní um 1,8% en þetta er fiórði mán-
uðurinn af síðustu fimm þar sem sam-
dráttur verður i smásölu. Þetta gefur
til kynna að einkaneysla sé of veik til
að koma í veg fyrir að hagvöxtur í
Evrópu staðni.
Væntingar höfðu verið um sam-
drátt upp á 0,6% þannig að tölumar
voru vel undir væntingum. Sala jókst
um 0,5% miðað við sama tímabil í
fyrra. I
21 milljónar dollara skattalækkun í
Þýskalandi á þessu ári hefur ekki tek-
ist að auka sölu þar sem verðhækkan-
ir hafa verið töluverðar á neytenda-
vörum og orku. Síðustu rannsóknir
sýna að verðbólgan virðist vera á leið-
inni niður sem gæti gefið evrópska
Seðlabankanum tækifæri til að lækka
lántökukostnað og auka þar með
neyslu og fiárfestingu.
„Hagvöxtur veröur, ef við horfum
jákvætt á hlutina, 1,2% og ekki meira
en það í Þýskalandi á þessu ári, „ seg-
ir Harbert Hainer, aðalforstjóri Adi-
das-Salomon AG, sem er næststærsti
íþróttavöruframleiðandi í heiminum.
British Airways
inn í Norðurlönd
Breska flugfélagið British Airways,
sem er eitt stærsta flugfélag heimsins,
íhugar þessa dagana hvort það eigi að
fara inn á markaö á Noröurlöndum í
kjölfar hneykslismála hjá flugfélaginu
SAS um verðsamráð.
Markaðurinn á Norðurlöndum þ.e.
leiðimar milli Óslóar, Kaupmanna-
hafnar og Stokkhólms, þykja vera
mjög arðbærar og hafa löngum verið
litnar girndaraugum af forráðamönn-
um BA. Ef BA ákveður að fara inn á
þennan markað er ljóst að það verður
ekki gert með hangandi hendi. Minnst
10 ferðir verða hvern dag á leiðunum
Ósló-Kaupmannahöfn, Stokkhólm-
ur-Kaupmannahöfn og Ósló-Stokk-
hólmur.
„Það mun kosta mikið fiármagn að
koma inn á markaðinn og fyrstu árin
veröur líklega enginn hagnaður af
starfseminni. En ef við ákveðum þetta
munum við kosta því sem þarf til.
Þetta verður unnið að heilum hug,“
segir Sam Heine, yfirmaður BA í Dan-
mörku.
tfoiH’l 14.08.2001kl. 9.1S
KAUP SALA
BHpollar 99,190 99,700
HgPund 140,720 141,430
1*1 Kan. dollar 64,360 64,760
IDönsk kr. 11,9160 11,9810
HttNorskkr 10,9800 11,0410
CBSænsk kr. 9,6180 9,6710
mark 14,9133 15,0029
1 | Fra. franki 13,5177 13,5989
5 ÍÍBolg. franki 2,1981 2,2113
3] Sviss. franki 58,5200 58,8500
CSHoII. gyllini 40,2369 40,4787
"^Þýskt mark 45,3365 45,6089
1 Ih. líra 0,04579 0,04607
[XÍAust. sch. 6,4439 6,4827
jMÍPort. escudo 0,4423 0,4449
[T-]Spa. peseti 0,5329 0,5361
|_*Jjap. yen 0,80770 0,81260
jírskt pund 112,588 113,264
SDR 125,6500 126,4100
JfcSi 88,6704 89,2032