Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2001, Qupperneq 22
26 íslendingaþættir Urnsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 100 ára__________________________ Ragnheiöur Magnúsdóttir, Gullsmára 11. Kópavogi. 85 ára___________________________ Guðrún Pétursdóttir, Vogatungu 79, Kópavogi. 80 ára___________________________ Jóhanna Björnsdóttir, Sæbakka 13, Neskaupstaö. María Jónína Adolfsdóttir, Munkaþverárstræti 29, Akureyri. ?5 ára___________________________ Ágústa Sigurðardóttir, Garðbraut 41, Garði. Sigfríður Jónsdóttir, Skálholtsvík 2a, Strandasýslu. 70 ára___________________________ Jónbjörg Eyjólfsdóttir, Gilsbakkavegi 13, Akureyri. Óskar Friðriksson, Giýtubakka 24, Reykjavík. 60 ára___________________________ Guðjón Albertsson, Móaflöt 39, Garðabæ. Guðlaug íris Tryggvadóttir, Munaðarhóli 23, Hellissandi. Kristín Guöjónsdóttir, Hraunbæ 82, Reykjavík. Sveinn Ingólfsson, Hvassaleiti 28, Reykjavík. 50 ára___________________________ Elín Óskarsdóttir, Sendiráöi Stokkhólms, Reykjavík. Karl Axel Guðjónsson, Mávabraut 6c, Keflavík. Kolbrún Gestsdóttir, Klukkubergi 13, . Kristín Elídóttir, Birkihvammi 15, Kópavogi. Sigurjón Benediktsson, Kaldbaki, Húsavík. Þórunn Guðmundsdóttir, Laufengi 14, Reykjavík. 40 ára___________________________ Elín Ósk Halldórsdóttir, Brúnastöðum 29, Reykjavík. Guðbjörg María Ingólfsdóttir, Frostafold 48, Reykjavík. Helgi Hálfdánarson, Æsuborgum 2, Reykjavík. Herdís Jakobsdóttir, Jakaseli 30, Reykjavík. Lena Helgadóttir, Kúrlandi 18, Reykjavík. Magnús Brynjar Erlingsson, Þykkvabæ 4, Reykjavík. Ólafur Skúli Guðjónsson, Ásgarösvegi 4, Húsavík. Sigrún Gissurardóttir, Skólagerði 34, Kópavogi. Sólrún Björk Björgvinsdóttir, Háseylu 3, Njarðvík. Þóra Björk Ólafsdóttir, Ásbúöartröð 15, Hafnarfirði. Arndís Einarsdóttir, húsmóðir frá Ing- unnarstöðum, Kjós, síðast til heimilis Samtúni 36, Reykjavík, lést á Landspít- ala Fossvogi fimmtudaginn 9. ágúst. Júlíana H.M. Ólafsdóttir frá Patreksfirði lést á dvalarheimilinu Kumbaravogi fimmtudaginn 9. ágúst. Oddrún Sigurlaug Guðmundsdóttir íþróttakennari, Löngubrekku 25, Kópa- vogi lést á Vífilsstaðaspítala miðviku- daginn 8. ágúst. Þóra G. Bragadóttir kaupmaöur, Ysta- bæ 5, Reykjavík, lést miðvikudaginn 8. ágúst. Sara Abdelazíz, lést af slysförum laugar- daginn 11. ágúst. Baidur Sigurjónsson, organisti og tré- smiöur frá Þingeyri, andaöist á Dvalar- heimilinu Höfða, Akranesi, föstudaginn 10. ágúst. Stefán Nikulásson frá Stokkseyri, Hamraborg 32, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju á morgun, 15. ágúst, kl. 13.30. Ari Magnús Kristjánsson, fyrrv. skip- stjóri og kaupmaður, Hrafnistu, Hafnar- firði, verður jarðsunginn frá Hafnarljarö- arkirkju á morgun, 15. ágúst, kl. 13.30. ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 DV Sjntiigiir Björn G. Eiríksson sérkennari-talkennari Bjöm G. Eiríksson, talkennari í Reykjavík, er sjötugur i dag. Starfsferill Björn Grétar er fæddur í Sigurð- arhúsi á Eskifirði. Hann lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur 1949 og verslunarskólaprófi 1952. Björn lauk kennaraskólaprófi 1955 og var í Norska kennaraháskólan- um á Hlöðum í Þrándheimi 1958- 1959. Björn lauk handavinnukenn- araprófi í Kennaraskóla íslands 1967 og prófi í talkennslu í Norska sérkennslu-kennaraskólanum í Ósló 1973. Hann var kennari við Barna- og unglingaskólann á Búðum í Fá- skrúðsfirði 1955-1956, var með Reykjavíkurumboð Tryggingastofn- unar ríksins, lifeyrisdeild 1956-1958, kennari við Barna- og unglingaskól- ann í Grindavík 1959-1960, kennari á Reyðarfirði, við Barna- og ung- lingskólann á Búðareyri í Reyðar- firði 1960-1961, kennari við Voga- skóla í Reykjvík 1961-1963, kennari við Bama- og unglingaskólann á Höfn í Hornafirði 1963-1964, kenn- ari við Barna- og unglingaskólann á Búðareyri í Reyðarfirði 1964r-1965 og aftur 1967-1971 og var auk þess kennari við miðskólann Reyðarfirði 1970-1971. Bjöm var kennari við Ár- múlaskóla (Gagnfræðaskóla verk- námsins 1971-1972 og frá 1973 til starfsloka 1998 var hann talkennari í Reykjavikurskólahéraði við ýmsa skóla. Björn vann einnig margs konar sumarstörf og var til að mynda stöðumælavörður hjá Bíla- stæðasjóði Reykjavíkur í 5 sumar. Björn hefur verið virkur þátttak- andi í félagsstörfum en ekki verða þau öll tíunduð hér. Meðal félaga sem hann starfar/starfaði í eru barnastúkan á Fáskrúðsfirði, Fram- tíðin (æðstitemplar) frá 1986, Þingstúka Reykjavíkur, Stórstúka íslands, Bindindisfélag Kennara- skólans, Samband bindindisfélaga í skólum, Samtök skólamanna um bindindisfræðslu, Kristilegt sjó- mannastarf, Kristinboðsfélag karla, KFUM og Gídeonfélagið. Fjölskylda Björn kvæntist 21. desember 1970 Björgu Aasen, f. 16. janúar 1940, for- skólakennara. Foreldrar Bjargar voru Hallvor Aasen, b. á Aasen á Þelamörk, og kona hans, Tone, f. Gulbek, sem bæði eru látin. Björn og Björg skildu árið 1994. Börn Björns og Bjargar eru: Verónika, f. 23. september 1973, var gift Jose Manuel C. Salvador, vél- smið; Una Tone, f. 8. janúar 1977, og Grétar Páll, f. 8. janúar 1979. Barnabörn Björns eru Alexander Migue, 10 ára, Antóníó Kristófer, 5 ára og Marina Helena, 2 ára. Foreldrar Björns vom Eiríkur Ei- riksson, f. 7. september 1896, d. 12. desember 1973, sjómaður á Eski- firði, og kona hans, Ásta Verónika Björnsdóttir, f. 20. júlí 1893, d. 16. október 1984. Ætt Eiríkur var sonur Eiríks, vefara á Eskifirði, Arasonar, bróður Ragn- heiðar, móður Björgólfs Stefánsson- ar, skókaupmanns. Móðir Eiríks Ei- ríkssonar var Kristín Magnúsdóttir, b. á Hvammi í Fáskrúðsfirði, Árna- sonar, langafa Ingimars Eydals, Finns Eydals og Gunnars Eydals, skrifstofustjóra Félagsmálaskrif- stofu Reykjavíkur. Móðir Kristínar var Rósa Jónsdóttir, b. á Hvammi, Ámasonar, bróður Steinunnar, ömmu Eysteins, fyrrv. ráðherra, og Jakobs Jónssona. Ásta var dóttir Bjöms, vefara og hreppstjóra á Sléttu i Reyðarfirði, Jónssonar, prests á Stað, bróður Þorkels, afa Óskars Clausens rithöf- undar, langafa Lúðvíks Kristjáns- sonar sagnfræðings og Arnar Clausens hrl. Jón var sonur Eyjólfs, prests í Snóksdal, Gíslasonar, prests á Breiðabólstað, Ólafssonar, bisk- ups í Skálholti, Gíslasonar. Móðir Jóns var Guðrún Jónsdóttir, prests og skálds á Bægisá, Þorlákssonar, og konu hans, Margrétar Bogadótt- ur, bróður Benedikts, fóður Boga fræðimanns, ættfóður Staðarfells- ættarinnar. Móðir Björns var Sig- riður Oddsdóttir, b. á Atlastöðum, Jónssonar, bróður Ólafs, langafa Ingibjargar, móður Þórleifs Bjarna- sonar námsstjóra. Móðir Sigríðar var Guðrún, systir Þorleifs, langafa Örnólfs, fóður Þorvarðar, fram- kvæmdastjóra Krabbameinsfélags- ins. Þorleifur er einnig langafi Kristjáns, langafa Ólafs Hjartar. Guðrún var dóttir Þorkels, b. í Gelti, Jónssonar, b. á Vöðlum, Þor- leifssonar, b. á Hóli, Jónssonar. Móðir Þorleifs var Guðlaug Jóns- dóttir, b. í Hjarðardal, Jónssonar, og konu hans, Kristínar Þorleifsdóttur, smiðs í Hjarðardal, Sveinssonar, bróður Brynjólfs biskups. Móðir Ástu var Siggerður, systir Bóasar, föður Páls, afa Harðar Einarssonar, forstjóra Frjálsrar fjölmiðlunar, og Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Björn er að heiman á afmælisdag- inn. Merkir Islendingar Guðrún Katrín Þorbergsdóttir Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forseta- frú fæddist í Reykjavík árið 1934 og var dóttir hjónanna Guðrúnar S. Bech húsmóður og Þorbergs Þorbergsson- ar stýrimanns. Hún útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavik árið 1955. Guðrún Katrín nam þjóðfélagsfræði við Háskóla ís- lands frá 1973 til 1975 og fomleifa- fræði við Gautaborgarháskóla veturinn 1971 til 1972. Hún var framkvæmdastjóri Póstmannafélags Islands árin 1979 til 1987 og aftur árið 1989. Hún rak hannyrðaverslun í Reykjavík árin 1987 til 1989 en gegndi jafnframt ýmsum trún- aðarstörfum og var meðal annars bæjarfull- trúi á Seltjarnarnesi í sextán ár samfleytt. Guðrún Katrín var tvígift. Fyrri maður hennar var Þórarinn B. Ólafs- son læknir og eignuðust þau tvær dætur en seinni maður hennar var Ólafur Ragnar Grímsson, núver- andi forseti, og eignuðust þau einnig tvær dætur. Hún stóð við hlið manns síns er hann fór í forsetaframboð og var ávallt mjög sýnileg sem for- setafrú við ýmsar athafnir og þótti hún jafnan glæsilegur full- trúi landsins. Guðrún Katrin greindist með bráðahvítblæði í septembermánuði ár- ið 1997 og lést eftir harða baráttu við sjúkdóminn rúmu ári síðar. Leiðrétting Pétur Bjarnason Beðist er vel- virðingar á að á ættfræðisíðu í gær mánudag birtist röng mynd með afmælisgrein um Pétur Bjarna- son og er hér með birt rétt mynd. Pétur mun taka á móti þeim sem vilja fagna afmælinu með honum laugardaginn 18. ágúst nk. á milli 17 og 19 á Fiðlaranum í Skipagötu, Akureyri. Hann vekur einnig athygli á DjangoJazz 2001 tón- leikum á Glerártorgi kl. 21. sama dag. Beðist er velvirðingar á því að þessar upplýsingar vantaði í afmæl- isgreinina I gær. --------------------------- I m Mundu 15% afsláttinn þegar þú greiðir með korti EUROCARD lí/lam V/SA *££ í M- ikm cL Wt I ^ktkir,,,',^ Ðw i ‘H <xinr, p l,- na 11 % m ! DV Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍf.ÍS 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.